Dagur - 03.04.1991, Síða 18

Dagur - 03.04.1991, Síða 18
✓* ► n» a n *-nr* *• r..i O M 18 - DAGUR - Miðvikudagur 3. apríl 1991 Dandalaveður Miðvikudaginn 27. mars frum- sýndi Leikfélag Húsavíkur leikritið „Dandalaveður“ eftir hinn ástsæla rithöfund, Jónas Árnason. Leikstjóri er Sigurður Hallmarsson. Verkið var samið sérstaklega fyrir Leikfélag Húsavíkur. Grunnur þess er einþáttungurinn „Drottins dýrðar koppalogn", eftir Jónas, sem sýndur var í Iðnó fyrir fjölda ára og var þá sam- ferða einþáttungnum „Táp og fjör“. Leikritið gerist á lítilli eyju ein- hvers staðar í Norður-Átlants- hafi. Tíminn er framarlega á þessari öld en þó eftir 1920. Lífs- hættir manna og skoðanir mótast af tímanum og þeirri einangrun, sem er á eyjunni. Þar hafa sér- kennilegar manngerðir fengið að þrífast og kúnstuglegt orðalag, sem Jónasi er einkar tamt að nota lipurlega, setur svip á allt það, sem gerist og á milli manna fer. Efni verksins er að mestu átök um viðhorf til athafna heiðurs- borgara samfélagsins á eynni. Hann er sérlyndur útlendingur, sem hefur sest þarna að og verið sæmdur fyrrnefndum titli sakir þess, að hann hefur tekið að sér að greiða öll útsvör eyjarskeggja gegn því að hafa algeran umráða- rétt á stórum hluta eyjarinnar. Inn á það svæði mega ekki nema örfáir útvaldir koma. Heiðurs- borgarinn eyðir tíma sínum í að draga að sér alla vega dót, sem hann hirðir á fjörum og sækir á haf út. Hrifnastur virðist hann vera af kúlulaga hlutum. í þann flokk fellur stór kúla, sem hann dregur upp í fjöruna og sem nokk- ur hluti íbúa eyjarinnar er sann- færður um, að sé tundurdufl. í verkinu örlar lítt á boðskap, nema ef vera skyldi, að fjallað sé um valdið, sérréttindin og mátt- leysi þeirra, sem lítt mega sín. Þessi boðskapur, ef hann er fyrir hendi og í huga höfundarins, er ekki settur fram á markvissan hátt, heldur líkt og flýtur með öðru. Mest áhersla er á sérkenn- um einstakra persóna og leitast við að draga gaman úr þeim og málfari þeirra. Petta tekst nokk- uð vel og vekur iðulega kátínu. Leikurinn heldur sæmilega dampi fram að hléi. Eftir það er sem botninn sé úr því. Ef til vill er frumþráðurinn úr „Drottins dýrðar koppalogni" ekki nógu seigur til þess að þola þá teyg- ingu, sem til þarf til að gera úr honum verk, sem stæði heila sýn- ingu. Líklegra er þó, að unnt hefði verið að láta hann duga, hefði meiri alúð verið lögð við verkið í ritun þess. Uppsetning Leikfélags Húsa- víkur er svo góð, sem kostur er, þegar til meðferðar er verkefni sem þetta. Leikmyndin er mjög vel hönnuð og falleg. Yfir henni er blær tímabilsins og hún styður vel þær persónur, sem leikurum Leikfélags Húsavíkur tekst að skapa í túlkun sinni. Þessar per- sónur er vel mótaðar langflestar. Séra Daníel, hinn véla- og tæknisinnaði prestur eyjarbúa, er leikinn af Þorkeli Björnssyni. Hann á marga góða spretti í túlk- un sinni, en líður talsvert fyrir galla í byggingu persónunnar. Jakob, oddviti byggðarinnar, er leikinn af Sigurði Illugasyni. Sigurður er góður í hlutverki sínu og gerir því talsvert sannferðug skil. Þessi persóna er nokkuð vel mótuð af höfundar hálfu. Hlut- Frá æfíngu á Dandalaveðri. verk Rebekku skólastýru er í höndum Ásu Gísladóttur. Henni tekst vel að gera úr hlutverkinu allsannfærandi persónu. Bjarni Sigurjónsson leikur Jafet, hinn heyrnardaufa hreppstjóra. Hon- um tekst allvel að draga fram spaugilegan blæ persónunnar. Hrefna Jónsdóttir og Regína Sigurðardóttir skapa hvor um sig eftirminnilegustu persónurnar í verkinu. Hrefna leikur fröken Rakel, stjórnsama konu, sem hefur ákveðnar skoðanir á hags- munamálum eyjarskeggja og heldur þeim fram af fornum skörungsskap. Regína fer með hlutverk Rutar húsmóður og tekst eftirminnilega að draga upp mynd þeirrar liðnu gerðar hús- freyjunnar, sem bar gestum veit- ingar, en dró sig síðan í hlé og lét sem minnst fyrir sér fara. Leikstjórinn, Sigurður Hall- marsson, hefur unnið gott verk í því að hagræða viðamikilli leik- myndinni og talsverðum fjölda leikara svo á sviðinu, að góð sam- fella næst, allt gengur lipurlega fyrir sig og úr uppsetningunni verður verulega snotur sýning. Ekki spillir í þessu tilliti lýsing Jóns Árnkelssonar og Ragnars Emilssonar, sem er smekkleg og vel unnin. Þó að ýmislegt megi að „Dand- alaveðri“ finna sem leikverki, er það þó góð kvöldskemmtun. Verkið ber í sér mörg af bestu höfundareinkennum Jónasar Árnasonar, svo sem þegar hefur verið að vikið. í meðförum leikara Leikfélags Húsavíkur hefur það fengið svo góða túlkun sem unnt er að veita því. Haukur Ágústsson. Styrktarfélag vangefinna Aðalfundur Styrktarfélags vangefinna veröur aö löjulundi fimmtudaginn 4. apríl kl. 20.30. Venjuleg aöalfundarstörf. Félagar fjölmennið. Stjórnin. WordPerfect framhaldsnámskeið immskeiðsins: ★ Skráasöfii sett upp. ★ Texti settur upp í dálka ★ Teikning. ★ Qrösldpting. ★ Efiiisyfirlit og atriðaskrár. ★ Fjölvar. ★ Dreifibréf. Innrltun og upplýsingar í síma 27899. Námskeiðið hefst 9. apríl og verður haldið á kvöldin. [g| Töhufræðslan Akureyri h£ Glerárgötu 34 IV. hœð. Sími 27899. Skrifstofa Norrænu ráðherranefndarinnar: Tveir f slendingar ráðnir til starfa Á fundi staðgengla samstarfs- ráðherra Norðurlanda í Kaup- mannahöfn um síðustu mán- aðamót var ráðið í fimm stöð- ur deildarsérfræðinga hjá Skrifstofu Norrænu ráðherra- nefndarinnar í Kaupmanna- höfn. í tvær af þessum fimm stöð- um urðu íslenskir umsækjend- ur fyrir valinu, þeir Dr. Olafur Kvaran, iistfræðingur, sem starfa mun á sviði menningar- mála og Tryggvi Felixson, hagfræðingur, sem starfa mun á fjármálasviði skrifstofunnar. Ráðningarnar eru tímabundn- ar, 4-6 ár. Dr. Ólafur Kvaran verður deildarsérfræðingur um menn- ingarmál, og verksvið hans eink- um fólgið í að annast um norræna samvinnu á sviði myndlistar og tónlistar svo og tengsl milli ráð- herranefndarinnar og norrænna menningarstofnana. Ólafur Kvaran lauk fil.kand. prófi í Iistasögu frá Háskólanum í Lundi árið 1974 og doktorsprófi frá sama skóla árið 1987. Hann starfaði sem safnvörður við Lista- safn íslands 1975-80. Frá 1980 hefur Ólafur verið forstöðumað- ur Listasafns Einars Jónssonar og jafnframt frá 1985 listráðunautur Norræna hússins. Ólafur er fæddur 23. janúar 1949 og kvæntur Önnu Soffíu Gunnarsdóttur og eiga þau tvær dætur. Hann mun hefja störf 1. ágúst 1991. Tryggvi Felixson lauk stú- dentsprófi frá Menntaskólanum í Kópavogi 1978. Hann lagði stund á nám í sögu og spænsku við ríkisháskólann í Mexíkóborg í einn vetur. Þá stundaði hann nám í hagfræði, stjórnmálafræði og spænsku við háskólann í Osló og lauk þar cand.mag. prófi 1981. Tryggvi vann tvö ár við áætlanadeild ríkisspítala og sem stundakennari við Menntaskól- ann í Kópavogi. Hann hélt til framhaldsnáms í hagfræði við ríkisháskóla Massa- chusetts 1984 og lauk meistara- prófi í hagfræði 1986 og hefur síðan starfað í Seðlabanka íslands, fyrst í hagfræðideild og síðar í alþjóðadeild. Tryggvi er fæddur 14. janúar 1955 og kvæntur Sigrúnu Krist- ínu Magnúsdóttur, M.A., sem starfar fyrir fræðsluráð hótel- og veitingagreina og eiga þau þrjú börn. Hann mun hefja störf 1. maí 1991. 1 árs í tilefni 1 árs afmælis okkar þökkum við viðskiptavinum góðar móttökur Við munum gefa fría filmu með hverri framköllun þessa og næstu viku LIöSA4yNd voriwa

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.