Dagur - 30.04.1991, Blaðsíða 3
Þriðjudagur 30. apríl 1991 - DAGUR - 3
Kópasker:
Konur stofiia
fyrirtæki
Nokkrar konur í sveitarfé-
lögunum viö Öxarfjörð hafa
undanfarið undirbúið stofnun
nýs fyrirtækis, en ætiunin er að
framleiða minjagripi og ýmsa
handunna muni. Stofnfundur
verður haldinn á næstunni, en
atvinnumálafulltrúi sýslunnar,
Trausti Þorláksson, hefur unn-
ið að þessu verkefni ásamt
konunum.
Ingunn St. Svavarsdóttir, sveit-
arstjóri Öxarfjarðarhrepps, segir
að hugmyndin sé að stofna hand-
íðafyrirtæki, þar sem konurnar
ætla sjálfar að sauma og fram-
leiða ýmsa minjagripi, m.a. fyrir
ferðamenn. „Petta er sjálfsbjarg-
arviðleitni, gcrt til að stemma
stigu við þessu ársbunda atvinnu-
leysi sem verið hefur á svæðinu,“
segir hún.
Stofnfundur hefur ekki verið
dagsettur, en búið að skipa
starfsstjórn. Hana skipa Sigur-
lína Jóhannesdóttir, formaður,
Hrefna Magnúsdóttir og Erla
Óskarsdóttir. Pær munu vinna að
stofnuninni í samvinnu við
atvinnumálafulltrúann. EHB
Hótel Stefanía:
„MM löngun
tíl aö
framkvæma“
- segir Stefán Sigurðs-
son, hótelhaldari
„Við buðum verkið út og
Aðalgeir Finnsson hf. mun
annast framkvæmdir,“ sagði
Stefán Sigurðsson, hótelhald-
ari Hótels Stefaníu á Akureyri,
þegar hann var spurður um
byggingaframkvæmdir á veg-
um hótelsins.
Að sögn Stefáns er ekki um
mikla framkvæmd að ræða í þess-
um fyrsta áfanga. „í fyrstu verður
byggð aðstaða fyrir starfsfólk,
bakatil upp í brekkuna, en síðar
er ráðgert að byggja í sundið.
Útboðsgögn þar að lútandi eru
ekki tilbúin og því er ekkert hægt
að segja á þessu stigi. Löngun til
framkvæmda er mikil, en öll
ákvarðanataka bíður betri tíma,“
sagði Stefán Sigurðsson, hótel-
haldari. ój
Kaupfélag Héraðsbúa:
40 milljónir í
rekstarhagnað
Hagnaður af reglulegri starf-
semi Kaupfélags Héraðsbúa á
síðasta ári nam rúinum 40
milljónum króna. Þetta þýðir
að veruleg umskipti hafa orðið
í rekstri kaupfélagsins því að á
síðasta ári tapaði það tæplega
50 milljónum króna.
Heildarvelta Kaupfélags Hér-
aðsbúa á síðasta ári var 2.021
milljónir króna. Heildarrekstr-
argjöld voru 1.939 milljónir og
hagnaður fyrir fjármagnsliði 81.3
milljónir króna.
Meðalstarfsmannafjöldi var
198 á síðasta ári.
Formaður stjórnar Kaupfélags
Héraðsbúa er Jón Kristjánsson,
alþingismaður, en Jörundur
Ragnarsson er kaupfélagsstjóri.
óþh
Greiðslumat
á 168 stöðum
STÆRSTU LÁNASTOFNANIR LANDSINS HAFATEKIÐ HÖNDUM SAMAN:
Greiðslumat umsækjenda í húsbréfakerfinu fer hér eftir fram í bönkum,
sparisjóðum og verðbréfafyrirtækjum.
Frá og með 29. apríl nk. munu neðangreindar fjármálastofnanir veita
viðskiptamönnum sínum mat á greiðslugetu þeirra:
Búnaðarbanki íslands
íslandsbanki hf.
Kaupþing hf.
Kaupþing Norðurlands hf.
Landsbanki íslands
Landsbréf hf.
Samband íslenskra sparisjóða
Jafnframt hættir Húsnæðisstofnun með öllu að veita umsækjendum greiðslumat
vegna húsbréfaviðskipta.
Þær umsóknir um greiðslumat sem nú þegar liggja fyrir í Húsnæðisstofnun,
verða þó afgreiddar.
Allt frá upphafi húsbréfakerfisins, í nóvember 1989, hefur staðið til að lánastofnanir tækju sjálfar upp
þá þjónustu í þágu viðskiptamanna sinna að veita þeim mat á greiðslugetu þeirra, hyggðust þeir
sækja um í húsbréfakerfinu. Er nú komið að því.
Ofangreindir aðilar grundvalla greiðslumat sitt á sömu forsendum og Húsnæðisstofnun hefur
gert til þessa og nota tölvuforrit hennar til þess. Er umsögn um greiðslugetu umsækjanda enn sem fyrr
skilyrði fyrir afgreiðslu í húsbréfakerfinu.
Þjónusta þessi verður veitt í alls 168 afgreiðslustöðum ofangreindra lánastofnana.
Það er von okkar að þessi nýja tilhögun verði til hagsbóta fyrir almenning, auðveldi umsækjendum
aðgang að húsbréfakerfinu og auki á öryggi væntanlegra húsnæðiskaupenda.
Hér með bendum við því tilvonandi umsækjendum í húsbréfakerfinu á að hafa
samband við viðskiptabanka sinn, sparisjóð eða verðbréfafyrirtæki og fá allar nánari upplýsingar
um þessa nýju þjónustu.
Reykjavík í apríl 1991
o5o
SÖ HÚSNÆÐISSTOFNUN RÍKISINS
O SUÐURLANDSBRAUT 24 • 108 REYKJAVÍK ■ SÍMI 696900