Dagur - 30.04.1991, Blaðsíða 14
14 - DAGUR - Þriðjudagur 30. apríl 1991
Skilafrestur
auglýsinga!
MiðviKudaginn 1. maí kemur blaðið út eins
og venjulega.
Fimmtudaginn Z. maí kemur blaðið ekki út
vegna frídags þann 1. maí.
5kilafre5tur auglýsinga í föstudagsblað er til
kl. 11.00 á fimmtudag og skilafrestur aug-
lýsinga í helgarblaðið 4. maí er til kl. 14.00
á fimmtudag.
Þetta eru auglýsendur beðnir að hafa
í huga.
auglýsingadeild,
sfmi 24222.
Opið frd kl. 8-17 virka daga og í hódeginu.
Föstudaga 8-16.
Nauðungaruppboð
á eftirtöldum eignum fer
fram í skrifstofu embættisins,
Hafnarstræti 107, 3. hæð,
Akureyri,
á neðangreindum tíma:
Hafnarstræti 97, A og B hluti Akur-
eyri, þingl. eigandi Byggingarfélagið
Lind hf., föstudaginn 3. maí 1991,
kl. 14.30.
Uppboðsbeiðendur eru:
Benedikt Ólafsson, hdl., Bæjarsjóð-
ur Akureyrar, Innheimtumaður ríkis-
sjóðs og Steingrímur Eiríksson, hdl.
Hamarstígur 25, Akureyri, þing. eig-
andi Hilda Ámadóttir, föstudaginn 3.
maí 1991, kl. 14.00.
Uppboðsbeiðendur eru:
Fjárheimtan hf., og Reynir
Karlsson, hdl.
Helgamagrastræti 10, Akureyri,
þingl. eigandi Ólafur Halldórsson,
föstudaginn 3. maí 1991, kl. 14.15.
Uppboðsbeiðandi er:
Skarphéðinn Þórisson, hrl.
Kringlumýri 17, Akureyri, þingl. eig-
andi Rafn Magnússon, föstudaginn
3. maí 1991, kl. 14.15.
Uppboðsbeiðendur eru:
Gunnar Sólnes, hrl., Ólafur Birgir
Árnason, hrl., og íslandsbanki.
Norðurgata 55b, Akureyri, eigandi
íspan hf., föstudaginn 3. maí 1991,
kl. 14.15.
Uppboðsbeiðendur eru:
Islandsbanki og Sigurður Sigurjóns-
son, hdl.
Óseyri 22, Akureyri, þingl. eigandi
þrotabú Fiskv. Birgis Þórhallssonar
hf., föstudaginn 3. maí 1991, kl.
15.00.
Uppboðsbeiðendur eru:
Fiskveiðasjóður íslands, Vilhjálmur
H. Vilhjálmsson, hdl., Byggðastofn-
un og Ólafur Birgir Árnason, hrl.
Skólastígur 5, Akureyri, þingl. eig-
andi Rögnvaldur Þórhallsson o.fl.,
föstudaginn 3. maí 1991, kl. 14.45.
Uppboðsbeiðendur eru:
Byggðastofnun og Bæjarsjóður
Akureyrar.
Syðri-Varðgjá, Eyjafjarðarsveit,
þingl. eigandi Egill Jónsson, föstu-
daginn 3. maí 1991, kl. 14.15.
Uppboðsbeiðandi er:
Ólafur Gústafsson, hrl.
Bæjarfógetinn á Akureyri
og Dalvík,
Sýslumaðurinn í Eyjafjarðarsýslu.
Nauðungaruppboð
annað og síðara,
á eftirtöldum eignum fer
fram á skrifstofu embættisins,
Hafnarstræti 107, 3. hæð,
Akureyri,
á neðangreindum tíma:
Björnshús, Hjalteyri, þingl. eigandi
Einar Helgason o.fl., föstudaginn 3.
maí 1991, kl. 13.45.
Uppboðsbeiðandi er:
Húsnæðisstofnun ríkisins.
Draupnisgata 3, F-G-H-hlutar,
Akureyri, þingl. eigandi Hrís sf.,
föstudaginn 3. maí 1991, kl. 13.30.
Uppboðsbeiðendur eru:
Iðnlánasjóður, Ásgeir Thoroddsen,
hdl., Ólafur Birgir Árnason, hrl. og
Bæjarsjóður Akureyrar.
Eyrarvegur 4, Akureyri, þingl. eig-
andi Vébjörn Eggertsson, föstudag-
inn 3. maí 1991, kl. 15.00.
Uppboðsbeiðendur eru:
Veðdeild Landsbanka íslands og
Bæjarsjóður Akureyrar.
Höfðahlíð 3, 1.h og ris, Akureyri,
þingl. eigandi Þórarinn Stefánsson,
föstudaginn 3. maí 1991, kl. 13.45.
Uppboðsbeiðandi er:
Veðdeild Landsbanka íslands.
Karlsrauðatorg 20, Dalvík, þingl.
eigandi Bergur Höskuldsson o.fl.,
föstudaginn 3. maí 1991, kl. 15.00.
Uppboðsbeiðendur eru:
Innheimtumaður ríkissjóðs, Bene-
dikt Ólafsson, hdl., og Gunnar
Sólnes, hrl.
Skarðshlíð 26e, Akureyri, þingl. eig-
andi Regína Jónsdóttir, föstudaginn
3. maí 1991, kl. 13.30.
Uppboðsbeiðandi er:
Gunnar Sólnes, hrl.
Sunnuhlíð 12, Þ-hl., Akureyri, þingl.
eigandi Skúli Torfason, föstudag-
inn 3. maí 1991, kl. 13.45.
Uppboðsbeiðandi er:
Ingvar Björnsson, hdl., Innheimtu-
maður ríkissjóðs, Fjárheimtan og
Guðjón Ármann Jónsson, hdl.
Sæból, Sandgerðisbót, Akureyri,
þingl. eigandi Jóhann Sigvaldason,
föstudaginn 3. maí 1991, kl. 13.30.
Uppboðsbeiðendur eru:
Valgarður Sigurðsson, hdl., Trygg-
ingastofnun ríkisins og Bæjarsjóð-
ur Akureyrar.
Tjarnarlundur 8h, Akureyri, þingl.
eigandi Magnús Jónsson, talinn
eigandi Guðmundur Ágúst Svavars-
son, föstudaginn 3. maí 1991, kl.
15.00.
Uppboðsbeiðendur eru:
Veðdeild Landsbanka íslands,
Bæjarsjóður Akureyrar, Kristján
Ólafsson, hdl., og Gunnar Sólnes,
hrl.
Vallargata 5, Grímsey, þingl. eig-
andi Sigurður Bjarnason o.fl., föstu-
daginn 3. maí 1991, kl. 13.30.
Uppboðsbeiðendur eru:
Gunnar Sólnes, hrl., Veðdeild
Landsbanka íslands, Ásgeir Thor-
oddsen, hdl., Björn Ólafur Hall-
grímsson, hdl., Jóhannes Ásgeirs-
son, hdl., Ólafur BirgirÁrnason, hrl.,
Sveinn Skúlason, hdl., Gjaldskil sf.,
Vilhjálmur H. Vilhjálmsson, hdl.,
Ólafur Gústafsson, hrl. og Inn-
heimtumaður ríkissjóðs.
Ægisgata 29, Akureyri, þingl. eig-
andi Vignir Valtýsson o.fl., föstu-
daginn 3. maí 1991, kl. 13.30.
Uppboðsbeiðendur eru:
Gunnar Sólnes, hrl., íslandsbanki
og Innheimtumaður rikissjóðs.
Bæjarfógetinn á Akureyri
og Dalvík,
Sýslumaðurinn í Eyjafjarðarsýslu.
Ábyrgðaveitingar í Ólafsfirði
Ég tek þann kostinn að senda
Degi þessa grein. Mér finnst ég
eiga það inni hjá blaðinu að fá
dálítið rými, eftir að mjög grófar
persónulegar árásir hafa verið
gerðar á mig af síðum blaðsins
dag eftir dag, án þess að mér væri
gefinn kostur á því að bera hönd
fyrir höfuð mér. Auðvitað er
mönnum vorkunn í hita kosn-
ingabaráttunnar en ekki vitnar
málsmeðferðin um vandaða
fréttamennsku.
Björn Valur á
nornaveiðum
Bæjarfulltrúi Alþýðubandalagsins
í Ólafsfirði og frambjóðandi til
Alþings, Björn Valur Gíslason,
hóf nornaveiðar sínar þrem dög-
um fyrir kosningar, með því að
„leka fréttlí í fjölmiðla. Stórfellt
misferli átti að hafa átt sér stað
við ábyrgðarveitingar bæjarsjóðs
Ólafsfjarðar til Fiskmars hf. sem
er gjaldþrota. Ég hef reyndar
ekki sannanir fyrir því að Björn
Valur hafi komið þessu á fram-
færi við Dag. En í RÚVAK
hringdi hann, kynnti sig og sagð-
ist vera með stóra frétt. Enga
ástæðu sá hann til að skoða málið
ofan í kjölinn á vettvangi bæjar-
stjórnar, heldur birti hann ákæru
sína í fjölmiðlum. Sá maður sem
þannig fer að hlýtur að hafa mjög
fast land undir fótum. Ég ætla því
ekki að tala við hann að sinni en
láta nægja að skýra þetta mál frá
mínum sjónarhóli sem fyrrum
framkvæmdastjóri Fiskmars hf.
og bæjarfulltrúi í Ólafsfirði.
Af hverju er sótt um
bæjarábyrgðir?
Ég hef aldrei vitað til þess að sótt
hafi verið um bæjarábyrgð á láni
nema af þeirri einföldu ástæðu að
viðkomandi hafi vantað trygging-
ar. Eða þá að lánveitendur hafa
ekki metið þær tryggingar nægar
sem boðnar hafa verið. Þetta
hlýtur að vera hverjum manni
ljóst. Bæjarfélög hafa síðan veitt
ábyrgðir í þeirri von að atvinnulíf
eflist. En þessu fylgir auðvitað
mikil áhætta.
Ábyrgðaveitingar og
skoðun vinstri manna
í gegn um tíðina hefur Ólafs-
fjarðarbær oft veitt bæjarábyrgð-
ir, bæði til einkaaðila og fyrir-
tækja. Það hefur beinlínis verið
stefnumál í bæjarstjórnakosning-
um og fróðlegt að minnast þess
að í kosningablaði vinstri manna
fyrir bæjarstjórnarkosningarnar
1986 er þess getið að vinstri menn
hafi veitt þær ábyrgðir sem beðið
hafi verið um og var það til marks
um aðstoð þeirra við atvinnulífið
í bænum. Einnig nefndi Björn
Valur Gíslason, oddviti vinstri
manna, það á framboðsfundi fyr-
ir síðustu kosningar, að stór
ábyrgð sem féll á bæinn við gjald-
þrot Sævers hf. hafi verið tilraun-
arinnar virði. Sami maður hefur
talað mjög fyrir því í bæjarstjórn
að bærinn eigi að taka frumkvæði
í atvinnulífinu. íhlutun bæjar-
sjóðs sé eina vonin til að auðga
megi fábreytt atvinnulífið í pláss-
inu. Hann virðist þó halda að það
sé hægt án þess að taka fjárhags-
lega áhættu.
Merkilegt er líka til þess að
hugsa að á sama tíma og verið
var að blása það upp að engar
tryggingar væru fyrir þeim
ábyrgðum sem Fiskmar hf. voru
veittar, afgreiddi Björn Valur
Gíslason í bæjarráði ábyrgð á
láni til aðila í Ólafsfirði og krafð-
ist engra trygginga og bað ekki
um nein gögn til skoðunar vegna
ábyrgðarveitingarinnar.
Sigurður Björnsson.
Ábyrgðir til Sævers hf.
Sæver hf. var merkileg tilraun til
að breikka atvinnulífið í bænum
með kavíarvinnslu. Bæjarstjórn
Ólafsfjarðar samþykkti að taka
ábyrgð á afurðalánum fyrirtækis-
ins hjá Búnaðarbankanum en
bankinn tók ekki tryggingar gild-
ar í hráefni og vöru. Abyrgð upp
á tugi milljóna króna féll á bæinn
þegar fyrirtækið varð gjaldþrota.
Lagerinn reyndist verðlítill en
eitthvað greiddist upp í kröfur.
Málaferli standa enn út af
ábyrgðinni og ekki ljóst um
niðurstöðu. í þessu tilfelli var
skrifað upp á tryggingavíxil og
hann var opinn. Samstaða var í
bæjarstjórninni um þetta mál
eins og alltaf um ábyrgðaveiting-
ar.
Saga Fiskmars hf.
Fiskmarhf. var þróunarfyrirtæki.
Hugmyndin var að búa til iðnað-
arvöru til útflutnings úr afskurð-
inum sem til fellur í frystihúsum
við snyrtingu flaka. Rannsókn-
arráð ríkisins og Rannsóknar-
stofnanir atvinnuveganna tóku
þessa hugmynd upp á arma sína
og veittu til hennar myndarlega
styrki. Hlutafé félagsins var í
upphafi samskot áhugamanna.
Enginn starfsmaður var hjá félag-
inu fyrstu árin og allt starf fór
fram hjá Rannsóknarstofnunum
atvinnuveganna í Reykjavík.
Loks kom að því að sérfræðing-
arnir töldu sig komna með nýja
vöru sem hæfði erlendum mark-
aði og töldu ráðlegt að hefja
framleiðslu fyrir innanlands-
markað og undirbúa útflutning.
Ákveðið var að kaupa litla verk-
smiðju og hafist handa við að
leysa fjármögnunardæmið.
Hlutafé var safnað og bæjar-
stjórn Ólafsfjarðar spurð hvort
hún vildi leggja þessu máli lið.
Svarið var já. Állir voru bjartsýn-
ir. Fiskmar hf. setti hina nýju
vöru á innanlandsmarkað. Varan
gekk ekki á markaðnum og gera
þurfti á henni breytingar. Fisk-
mar hf. stóð á slíkum brauðfót-
um að félagið varð gjaldþrota.
Ábyrgðirnar
sem um er deilt
Þegar Fiskmar hf. sótti um
ábyrgðirnar til bæjarsjóðs Ólafs-
fjarðar var umsóknin studd ýtar-
legum gögnum. Þar var um að
ræða efnahags- og rekstrarreikn-
inga félagsins frá upphafi, rekstr-
aráætlanir og nákvæmar skýrslur
um áformin. Ástæðan fyrir því að
svo ýtarleg gögn fylgdu umsókn-
inni var einfaldlega sú að félagið
átti ekkert. Aðeins hugmyndir og
nákvæmlega útfærð áform. Vél-
arnar átti að kaupa í skuld. Veð í
þeim sem boðið var var auðvitað
einskis virði ef verkefnið mis-
heppnaðist. Það var á hinn bóg-
inn mikils virði ef dæmið hefði
gengið upp. Megin styrkurinn var
talinn liggja f því að Iðntækni-
stofnun hugðist taka þetta verk-
efni í „gjörgæslu“ og þar átti að
koma fyrirtækinu á lappirnar og
skila því síðan heim sem fullbúnu
útflutningsfyrirtæki. Bæjarstjórn
Ólafsfjarðar mat það svo að vel
væri þess virði að taka áhættuna.
Samþykktin var einróma. Björn
Valur Gíslason sat í bæjarstjórn-
inni og veitti málinu brautar-
gengi. Ég tók að sjálfsögðu ekki
þátt í afgreiðslunni, var yfirleitt
ekki á þeim fundum þegar fjallað
var um málið og raunar var ég
langdvölum í Reykjavík þegar
þarna var komið sögu og vann
við þróunarverkefnið. Bæjar-
ábyrgð var veitt fyrir lánum hjá
Iðnlánasjóði sem að hluta voru
áhættulán og eru niðurfellanleg
en að hluta til fjárfestingalán.
Hluti þessara ábyrgða mun falla á
bæjarsjóð en Fiskmar hf. er enn
til meðferðar í skiptarétti og mál-
inu því ekki lokið.
Að svíkja út ábyrgðir
Björn Valur Gíslason hefur ásak-
að okkur sem stóðu að Fiskmar
hf. um að hafa svikið þessar
ábyrgðir út úr bæjarsjóði. Segir
að þær hafi átt að veita gegn
ströngum skilyrðum um trygging-
ar. Það hefði þá orðið í fyrsta
skipti sem slík ströng skilyrði
væru sett þegar Ólafsfjarðarbær
veitti ábyrgð. En það mál verður
hann að eiga við sjálfan sig og
aðra þá sem afgreiddu þessar
ábyrgðir til Fiskmars hf. Það er
hlutverk þeirra sem veita ábyrgð-
ir að ganga úr skugga um að þeim
skilyrðum sé fullnægt sem þeir
ákveða. Gögnin sem ég nefni hér
áðan og fylgja ábyrgðarumsókn-
inni sýna það og sanna að engum
blekkingum er beitt. Hvert ein-
asta mannsbarn í Ólafsfirði vissi
hvers eðlis þetta félag var og allir
vita að þeir áhugamenn sem
þarna áttu hlut að máli höfðu
ekki fjárhagslegan ávinning af
málinu. Allir töpuðu þeir ein-
hverju og sumir mjög miklu.
Reglur um veitingu
ábyrgða
Nefndar hafa verið til sögunnar
hugmyndir sem ég lagði fram í
bæjarstjórn á sínum tíma um að
setja reglur um veitingu ábyrgða.
Ég er enn sömu skoðunar að rétt
sé að móta slíkar reglur. Hug-
myndir mínar gerðu ráð fyrir að
þegar um væri að ræða atvinnu-
starfsemi sem færi í samkeppni
við það sem væri fyrir á staðnum
ætti að fara varlegar í ábyrgðar-
veitingar en þegar um nýjungar
væri að ræða ætti bæjarsjóður að
taka áhættu. En auðvitað verður
þátttaka bæjarsjóðs með þessum
hætti að byggjast á því að hug-
myndirnar séu nákvæmlega
útfærðar og studdar rökstuddum
greinargerðum, þannig að hægt
væri að gera sér glögga grein fyrir
áhættunni.
Það var nákvæmlega þetta sem
Fiskmar hf. gerði; sendi inn ýtar-
legar upplýsinar. Nú fullyrðir
Björn Valur Gíslason að bæjar-
fulltrúar hafi verið blekktir. Mér
er hins vegar kunnugt um að
hann skoðaði aldrei þá pappíra
sem ábyigðarumsókninni fylgdu.
Ég veit líka að aðrir bæjarfull-
trúar skoðuðu þá nákvæmlega.
Það er enginn vandi að gera
fólk tortryggilegt. Það er meiri
vandi að axla ábyrgð af orðum
sínum og athöfnum.
Sigurður Björnsson.
Höfundur er bæjarfulltrúi í Ólafsfirði.