Dagur - 30.04.1991, Blaðsíða 11
Þriðjudagur 30. apríl 1991 - DAGUR - 11
f/ leiklist H
Tölvubúnaður
Skrúðsbóndinn
Miðvikudaginn 24. apríl frum-
sýndi Leikfélag Akureyrar
leikritið Skrúðsbóndann eftir
Björgvin Guðmundsson,
tónskáld. Uppsetningin er unnin
í samvinnu við Kór Akureyrar-
kirkju og söngstjóra hans, Björn
Steinar Sólbergson, organista
Akurey rarkirk j u.
Leikstjóri uppsetningarinnar
er Jón Stefán Kristjánsson og
hefur hann líka unnið leikgerð
verksins fyrir flutninginn í kirkj-
unni. Nauðsyn þótti á að gera
verkið nokkuð umfangsminna
vegna stutts undirbúningstíma og
þess, að umbúnaði þeim, sem
frumgerð verksins gerir ráð fyrir,
verður ekki við komið í kirkjunni
og loks vegna helgi þeirrar bygg-
ingar.
Leikgerð Jóns Stefáns hefur
tekist vel. Þjóðsögunni eru gerð
viðhlítandi skil og sá boðskapur,
sem höfundur felur í verkinu,
kemur allvel til skila. Framar
öðru er þó leikgerð Jóns Stefáns
lipur og samfelld og fer vel í með-
ferð leikaranna og þeirri
umgjörð, sem guðshúsið gefur.
Með hlutverk Heiðar, dóttur
prestsins á Hólmum, fara Helga
Hlín Hákonardóttir, sem leikur
Heiði unga, og Vilborg Halldórs-
dóttir, sem fer með Heiði full-
orðna. Báðar fara vel með hlut-
verk sín og iðulega af tilfinninga-
hita og styrk. Eftirtektarverð er
til dæmis natin túlkun Helgu
Hlínar á þeirri breytingu, sem
verður á Heiði við það að komast
undir vald Grímu og Skrúðs-
bóndans. Þá er leikur Vilborgar
iðulega grípandi og áhrifaríkur í
túlkun hennar á hinni föllnú og
niðurbrotnu Heiði.
Gríma, ráðskona, er leikin af
Kristjönu Jónsdóttur, Kristjana
nær iðulega þeim blæ, sem hlut-
verkinu heyrir. Þó hefði fas
hennar á stundum mátt vera ann-
að til þess að skapa meiri fjöl-
breytni í túlkun og brag.
Valgeir Skagfjörð fer með
hlutverk Skrúðsbóndans
Friðþjófs. Hann á verulega lipran
leik í fyrsta hluta, þegar hann
kemur fram sem erlendur fræði-
maður og flagari. Hins vegar
skortir nokkuð á samfellu og
þunga í fólsku hans og tröllshátt í
síðari hlutum verksins, þar sem
hann er kominn í sitt rétta eðli í
Klettahöll sinni. Þar leikur
Valgeir með brag, sem minnir
nokkuð á bófa mafíunnar, en
hann á ekki við í þessu hlutverki.
Þórey Aðalsteinsdóttir fer með
hlutverk förukonunnar og gerir
því góð skil. Hlutverkið er ekki
átakamikið og býður ekki upp á
dramatískan leik. Eins er með
hlutverk Hjálmars, smala og síð-
ar prests. Eggert A. Kaaber leik-
ur þessa persónu og gerir henni í
flestu þau skil, sem unnt er.
Þráinn Karlsson og Sunna
Borg fara með hlutuverk prests-
hjónanna á Hólmum. Þau hafa
bæði fullt vald á persónum sínum
og túlka þær af næmni og tilfinn-
ingu.
Tónlistarflutningur allur er á
vegum Kórs Akureyrarkirkju og
Björns Steinars Sólbergssonar,
organista og söngstjóra. Orgelh-
lutar verksins eru áhrifamiklir í
flutningi þess og fallega „regis-
treraðir" af hendi Björns Stein-
ars. Samfella þeirra og söngs kir-
kjukórsins við flutning leikara er
yfirleitt með ágætum, en þó
koma á stöku stað fyrir vand-
ræðaleg smáhlé.
Kórinn söng víða mjög vel. Til
má nefna tónsetningu messuhlut-
ans „Sælir eru þeir, sem heyra
Guðs orð...“ og Faðir vors, sem
hvort tveggja var sungið af mikl-
um innileik og án undirleiks. Fyr-
ir kom hins vegar á stundum, að
söngur kórsins var dálítið sár og
allt að því „forseraður". Hér má
nefna sem dæmi þróttmikla hluta
lagsins Nú legg ég augun aftur.
Umbúnaður uppsetningarinn-
ar á Skrúðbóndanum er, eins og
gefur að skilja, svo til enginn.
Einskis þarf þó að sakna í því
efni. Flutningur er allur svo ljós,
að hann gefur fulla mynd kring-
umstæðna. Lýsing dugar vel til
áhrifa, en varpar þó á nokkrum
stöðum skuggum, sem hefðu ver-
ið æskilegt að eyða. Búningar eru
góðir. Þeir eru ýmsir í nokkuð
rómantískum anda og ef til vill
betri fatnaður, en gera hefði mátt
ráð fyrir hefði fulls raunsæis verið
gætt. Slíkt hefði þó engan veginn
átt við í þessari uppsetningu.
Á heildina litið er uppsetning
Leikfélags Akureyrar í samvinnu
við Kór og organista Akureyrar-
kirku á Skrúðsbóndanum falleg
og vel unnin sýning. Hún markar
vonandi veginn til áframhaldandi
samvinnu leikfélagsins og kirkju-
kóranna við uppsetningar í
kirkjum á Akureyri. Sá árangur,
sem hér hefur náðst, ætti að
verða hvati til frekari verka á
þessu sviði.
Haukur Ágústson.
Akureyri:
Stoftmn ljós-
myndaklubbs
í kvöld, þriðjudagskvöld
kl. 20.00 mun hópur áhuga-
manna um ljósmyndun standa
fyrir stofnun félags sem hefði það
markmið að virkja betur ljós-
myndaáhuga fólks.
Ætlunin er félagið starfi fyrst
um sinn sem nokkurskonar rabb-
klúbbur þar sem áhugamenn geta
skipst á skoðunum og upplýsing-
um, en með tímanum gæti félagið
jafnvel komið sér upp mynda- og
framköllunaraðstöðu.
Allir sem einhvern áhuga hafa
eru beðnir að láta sjá sig á fyrr-
nefndum stofnfundi sem haldinn
er í Dynheimum.
Áhugafólk.
Nauðungaruppboð
þriðja og síðasta,
á eftirtöldum eignum
fer fram á eigninni sjálfri
á neðangreindum tíma:
Ásgata 25, Raufarhöfn, þingl. eig-
andi Lífeyrissjóður sjómanna, talinn
eigandi Sigurður Einarsson,
fimmtudaginn 2. maí 1991, kl.
11.00.
Uppboðsbeiðendur eru:
Landsbanki íslands og Örlygur
Hnefill Jónsson, hdl.
Austurvegi 4, Þórshöfn, þingl. eig-
andi Jón Stefánsson, fimmtudaginn
2. maí 1991, kl. 13.15.
Uppboðsbeiðendur eru:
Árni Pálsson, hdl., Garðar Garðars-
son, hrl., Björn Ólafur Hallgrímsson,
hdl.
Bæjarfógetinn í Húsavík.
Sýslumaður í Þingeyjarsýslu.
GLERÁRGÖTU 36
SÍMI 11500
Á söluskrá
Lundarhverfi:
Einbýlishús á einni hæð
ásamt tvöföldum bílskúr og
garðstofu samtals ca 215 fm.
Eign í mjög góðu lagi.
Hólabraut:
Lítil kjallaraíbúð 2 herb. Selst
á hagstæðu verði.
Tjarnarlundur:
4 herb. íbúð á 4. hæð ca 90
fm. Eldhús og bað endurnýj-
að. Eign í mjög góðu ástandi.
Einholt:
4 herb. raðhús á einni hæð
(endaíbúð) rúml. 100 fm.
Laus eftir samkomulagi.
Brekkugata:
4 herb. íbúð í 4 íbúða húsi ca
108 fm. Bílskúr 35 fm. Laus
strax.
Okkur vantar sérstak-
lega 4-5 herb. íbúðir og
hús á söluskrá.
FASTÐGNA& IJ
skipasalaS£;
NORÐURLANDS O
Glerárgötu 36, 3. hæð Simi 11500
Opið virka daga kl. 14.00-18.30
á öðrum timum eftir samkomulagi
Sölustjori:
Pétur Jósefsson
Heimasími 24485
Lögmaður: Æ*
Benedikt Ólafsson hdl.
Steinullarverksmiðjan hf.
Sauðárkróki.
Aðalfundarboð
Aðalfundur Steinuliarverksmiðjunnar h.f.
verður haldinn þriðjudaginn 7. maí 1991 kl.
16.00 í Safnahúsinu á oauðárkróki.
Á dagskrá eru venjuleg aðalfundarstörf, en skv. 16.
gr. samþykkta félagsins, skal taka fyrir eftirtalin mál:
1. Skýrslu stjórnar félagsins um starfsemi þess sl.
starfsár.
2. Efnahags- og rekstrarreikningur fyrir liðið reikn-
ingsár ásamt skýrslu endurskoðenda verður
lagður fram til staðfestingar.
3. Tekin skal ákvörðun um hvernig fara skuli með
hagnað eða tap félagsins á reikningsárinu.
4. Tekin skal ákvörðun um þóknun til stjórnarmanna
og endurskoðenda.
5. Kjósa skal stjórn og varastjórn og tilnefna fulltrúa
ríkisins.
6. Kjósa skal endurskoðanda.
7. Önnur mál, sem löglega eru upp borin.
Dagskrá fundarins, ársreikningur og skýrsla endur-
skoðenda liggur frammi á skrifstofu félagsins viku
fyrir aðalfund samkv. 14. gr. samþykktar þess.
Steinullarverksmiðjan h.f.
hátíðahöldin
1. maí 1991
Sýnum samstöðu - Okkar er aflið
- Höldum hátíð
DAQSKRÁ:
Kröfuganga
60 ára afmæli kröfugöngu 1. maí á Akureyri.
Kl. 13.45: Safnast saman við Alþýðuhúsið.
Kl. 14.00: Lagt upp í kröfugöngu.
Hátíðarsamkoma
Hátíðarsamkoma hefst að aflokinni kröfugöngu og
verður á fjórðu hæð í Alþýðuhúsinu.
Ávörp: Ávarp 1. maí nefndar: Quðlaugur Hilmarsson,
formaður 1. maí nefndar.
Aðalræða dagsins: Quðmundur Þ. Jónsson, formaður
Landssambands iðnverkafólks.
Önnur ávörp: Anna Egilsdóttir, verkakona, Jóna Stein-
bergsdóttir, formaður FV5A.
Skemmtidagskrá:
Fjölbreytt skemmtidagskrá. M.a. koma fram:
Luðrasveit AKureyrar, nemendur úr Tónlistashólanum á Akureyri,
Galgopar, Trúbadorinn Arnar Guðmundsson, Ungir dansarar verða
með söng og dans úr Greese, o.m.fl. verður til skemmtunar.
Kaffiveitingar.
Kaffihlaðborð í boði 1. maí nefndar verkalýðsfélag-
anna.
Barnagæsla.
T hliðarsal verður barnanna gætt og þar verða leikföng
ogaðstaða til að lita ogteikna. Einnig verða þarsýnd-
ar vet valdar teiknimyndir.
Launfólk — tökum þátt
T hátíðarhöldunum
Eflum samtakamáttinn — fyrr var þörf
en nú er nauðsyn.
Framundan eru erfiðir kjarasamningar
- sýnum samtakamáttinn.
Okkar er aflið - Sýnum samstöðu
- Höldum hátíð