Dagur - 07.06.1991, Side 16
Nýr matseðill
í hverri viku
Opið í hádeginu alla daga
Norðurland vestra:
Skólastjórar
skipta uin skóla
- fáir nýir
réttindakennarar
Á komandi vetri verða þrjár
breytingar á skipan skólastjóra
við grunnskóla á Norðurlandi
vestra miðað við síðasta vetur.
Þar á meðal kemur Páll Dag-
bjartsson og tekur aftur við
sinni gömlu stöðu í Varma-
hlíðarskóla, en hann hefur
undanfarin tvö ár starfað sem
skólastjóri Framhaldsskólans á
Laugum.
Aðrar breytingar eru þær, að
Sveinn Kjartansson lætur af
störfum við Grunnskóla Blöndu-
óss, en við af honum tekur Páll
Leó Jónsson, sem verið hefur
skólastjóri á Skagaströnd.
Umsóknarfrestur um stöðu
skólastjóra grunnskólans á
Skagaströnd rennur aftur á móti
ekki út fyrr en um næstu mánaða-
mót.
Að sögn starfsmanns Fræðslu-
skrifstofu Norðurlands vestra,
verður nú bráðlega endurauglýst
eftir kennurum í um 80 stöður í
umdæminu, en á síðasta ári voru
86 leiðbeinendur á móti 114
réttindakennurum starfandi við
grunnskóla á Norðurlandi vestra.
Athyglisvert er að samkvæmt
tölum frá nóvember sl., störfuðu
við kennslu á Norðurlandi vestra
síðasta vetur, ekki nema þrír
kennarar útskrifaðir frá KHI á
árunum ’87-’90 af 379 kennurum
sem útskrifuðust á því tímabili.
Þess má geta að níu af þessum
379 störfuðu á Vestfjörðum í vet-
ur og þrjátíu og einn á Norður-
landi eystra. SBG
Flugleiðir vilja
lækka fargjöld
um 4 prósent
Flugleiðir hafa sent samgöngu-
ráöuneytinu beiðni um heimild
til 4% lækkunar skráöra far-
gjalda hér á landi, sem ætlað
er að taki gildi 10. júní.
Ástæða fyrir beiðninni er
lækkandi eldsneytisverð. Fáist
heimild til lækkunarinnar
lækka apex fargjöld til Kaup-
mannahafnar um 1.410 kr, til
London um 1.330 kr, til Lúx-
emborgar um 1.320 kr. og til
New York um 2.280 kr.
Sigurður Helgason, forstjóri
Flugleiða, segir að félagið hafi
fengið heimild til hækkunar far-
gjalda í vetur þegar eldsneyt-
isverð hækkaði í kjölfar Persa-
flóadeilunnar. „Þá sögðumst við
lækka verðið þegar eldsneyt-
isverð gæfi tilefni til þess. Sam-
gönguráðuneytið verður að sam-
þykkja skráð fargjöld félagsins
og því leitum við eftir heimild til
lækkunar. Við höfum ákveðið
svigrúm og við látum það allt
koma íslenskum farþegum til
góða,“ segir Sigurður.
Eldsneytishækkanir í vetur
komu minna við farþega Flug-
leiða en ella vegna endurnýjunar
millilandaflugflotans. Nýju vél-
arnar eru mun sparneytnari en
þær eldri og því var unnt að halda
hækkunum í lágmarki. óþh
Framhaldsskólar á Norðurlandi:
Innbæingar vilja vegginn burtu enda býður hann hættunni heim. Stefán
Stefánsson, bæjarvcrkfræðingur tekur undir það sjónarmið. Mynd: Golli
Slysagildra í Aðalstræti:
„Veggmn verður að rífa“
- segir Stefán Stefánsson,
bæjarverkfræðingur
Sem sjá má af myndinni er
þessi veggur á lóðarmörkum
Aðalstrætis 16 stórhættulegur
allri umferð á gangstétt og
götu. Nokkrir Innbæingar hafa
hringt í Dag og kvartað vegna
þessa og bent á að veggnum er
forðað frá hruni með vír sem
ekki er traustvekjandi.
Er leitað var til Stefáns
Stefánssonar, bæjarverkfræð-
ings, þá hafði hann þetta um mál-
ið að segja: „Mér er ljóst að
vegginn verður að rífa og bæjar-
yfirvöld hafa farið þess á leit við
húsráðendur. Við þessari mála-
leitan hafa eigendur hússins dauf-
heyrst þrátt fyrir ítrekanir. Nú er
svo komið að ég sé ekki annan
kost en að starfsmenn Akureyr-
arbæjar rífi vegginn á kostnað
húseigenda." ój
„Fosturbörn“ í Eyjafirði:
Mikil þátttaka í um-
hverflsverkeftiinu
- flestir ætla að vinna
að hreinsun og
Mikil þátttaka er í umhverf-
isverkefni Ungmennafélags
Islands, sem hefst nú um helg-
ina á félagssvæði Ungmenna-
sambands Eyjafjarðar. Að
sögn Kristjáns Þorsteinssonar
í Uppsölum hafa öll félögin
innan sambandsins að frátöld-
um hestamannafélögunum
Funa og Létti valið sér „fóst-
urbarn“ og hefjast annað hvort
handa nú um helgina eða síðar
eftir nánari hentugleikum.
Hjá Ungmennafélaginu Narfa
í Hrísey verður unnið að gróður-
setningu skjólbeltis við fótbolta-
völlinn og einnig unnið að snyrt-
ingu. Félagar í Ungmennafélagi
Möðruvallasóknar ætla að grisja
og snyrta skógræktarreit í landi
Hvamms í Arnarneshreppi.
Verkefnið hefst þó ekki fyrr en
síðar í sumar. Hjá Porsteini
Svörfuði á að lagfæra lóð við
Sundskála Svarfdæla, girða og
gróðursetja trjáplöntur. Framtíð-
in í Hrafnagilshreppi hinum
forna ætlar að útrýma njóla með-
fram þjóðveginum í sveitinni.
Félagar í Reyni á Árskógsströnd
hafa lokið við að hreinsa fjörur
og ætla einnig að gróðursetja
trjáplöntur í nágrenni Árskógs-
skóla. Hafist verður handa með
það verkefni þegar lokið verður
við gerð skipulags af svæðinu.
Hjá Ungmennafélaginu Æskunni
á Svalbarðsströnd er ákveðið að
hreinsa meðfram þjóðveginum
og koma upp skjólbelti við
íþróttavöll. Félagar í Ungmenna-
félagi Svarfdæla ætla að grisja
skógarreit í landi Ytra-Holts við
Dalvík og félagar í Árroðanum í
Eyjafjarðarsveit austan Eyja-
fjarðarár ætla að hressa upp á
skógræktarland sem lítið hefur
verið hirt um á undanförnum
árum. Félagar í Dagsbrún ætla að
hreinsa til við fótboltavöll í
gróðursetningu
Glæsibæjarhreppi norðan bæjar-
marka Akureyrar. Ungmenna-
félagar í Skriðuhreppi ætla einnig
að taka að sér hreinsunarverkefni
og einnig félagar í fremri sveitum
Eyjafjarðar en þeir munu ekki
enn hafa tekið ákvörðun um
hvert „fósturbarn” þeirra verður.
ÞI
Húnaver ’91:
Sálin og Sólin sjá
iim framkvæmdina
Allar Iíkur eru á að útitónleik-
ar verði í Húnaveri um versl-
unarmannahelgina á þessu ári,
líkt og sl. tvö ár. Þeir sem bera
hitann og þungann ai' skipu-
lagningunni að þessu sinni eru
Stefán Hilmarsson og Helgi
Björnsson, en þeim til halds og
trausts er Jakob Frímann
Magnússon sem var fram-
kvæmdastjóri Húnavershátíð-
arinnar í fyrra.
Að sögn Stefáns Hilmarssonar
er undirbúningur kominn vel á
veg, en samt töluverðu ólokið
enn. Ljóst er að hljómsveiíirnar
Síðan skein sól, Sálin hans Jóns
míns og Stuðmenn munu spila
þarna um verslunarmannahelg-
ina, en með aðrar hljómsveitir
sagði hann að enn væri ekkert
komið á hreint um. Eins er ekki
búið að opna tilboð þau sem bár-
ust varðandi ýmsa verkþætti sem
tengjast hátíðinni.
Jón ísberg, sýslumaður í
Húnavatnssýslum, sagði í samtali
við Dag að ekki væri búið að
sækja um leyfi fyrir neinu
skemmtanahaldi um verslun-
armannahelgina í Húnaveri, en
eins og vanalega væri helgin frá-
tekin fyrir slíkt nema eitthvað
nýtt kæmi til. SBG
Þúsund nýnemar á skólabekk í haust
Yfír eitt þúsund umsóknir um
nýskráningu í framhaldsskól-
um á Norðurlandi höfðu borist
sjö framhaldsskólum í gær en
umsóknarfresti lauk þann 5.
júní. Fleiri umsóknir geta þó
borist næstu daga og verður
póststimpill látinn gilda í slík-
um tilvikum. Ekki verður hægt
að veita öllum umsækjendum
skólavist nema ef varaóskir
umsækjenda koma til og verða
um 90 umsóknir því sendar
viðkomandi skólum. Enn er
pláss í nokkrum skólum en
aðrir eru þegar yfirfullir.
Flestar umsóknir bárust Verk-
menntaskólanum á Akureyri og
verður reynt að koma fyrir öllum
þeim 350 sem sótt hafa um. Að
sögn Hauks Jónssonar, aðstoðar-
skólameistara, verður sumum
nýnemum beint í fornám í einni
eða fleiri greinum en allir sem
lokið hafa grunnskólaprófi eiga
rétt á setu í framhaldsskólum svo
og þeir sem eru orðnir 18 ára.
Liðlega 270 umsóknir höfðu
borist Menntaskólanum á Akur-
eyri. Tryggvi Gíslason, skóla-
meistari, sagði að vegna hús-
næðisþrengsla hefði upphaflega
verið ætlunin að taka aðeins 150
nemendur en vegna aðsóknarinn-
ar yrðu teknir allt að 200 nýnem-
ar inn. „Því verður að neita um
70 nemendum um skólavist á
fyrsta ári. Auk þess sækja mun
fleiri um heimavist skólans en
hægt er að sinna,“ sagði Tryggvi.
Annar skóli sem líklega þarf
að vísa umsækjendum annað er
Laugaskóli en þar er einnig
heimavist fyrir nemendurna. Páll
Dagbjartsson, skólastjóri, sagðist
búast við tæplega 140 umsóknum
en aðeins er rúm fyrir 120
nemendur. Páll sagði það eftir-
tektarvert hve mikil ásókn væri í
Laugaskóla frá þéttbýlissvæðum
þar sem oft væri búið betur að
nemendum - að minnsta kosti á
höfuðborgarsvæðinu þar sem
þjónusta væri betri. „Þarna
hljóta einhver vandamál að liggja
að baki þ.e. námslegs, félagslegs
eða fjölskyldulegs eðlis eða hegð-
unarvandamál." Páll sagði suma
foreldra að vísu vilja að börnin
upplifðu samskonar skólavist og
þeir hefðu hlotið.
Fjölbrautaskóli Norðurlands
vestra stefnir að sögn Þorkels
Þorsteinssonar, aðstoðarskóla-
meistara, að því að veita öllum
skólavist á meðan húsrúm leyfir
en þar höfðu yfir 160 umsóknir
borist. „Það er helst heimavistar-
húsnæði sem hamlar enda Iítið
annað í boði.“
Björgvin Leifsson, áfanga-
stjóri, Framhaldsskólans á Húsa-
vík sagði að 54 umsóknir hefðu
borist og að enn væri rúm fyrir
um 20 - 30 annarsstaðar frá enda
væru allir nemendur teknir inn -
óháð einkunnunum. Nemar með
ófullnægjandi árangur yrðu send-
ir í fornám í einstökum greinum
samhliða öðrum. Að sögn
Björgvins er skráningartalan ekki
endanleg. „Það er alltof mikið af
flökkurum í framhaldsskólakerf-
inu,“ sagði Björgvin.
Framhaldsdeild Gagnfræða-
skóla Ólafsfjarðar mun taka við
um 15 nemendum en ekki náðist
í forsvarsmenn þar í gær.
Umsóknarfrestur fyrir sjávar-
útvegsbraut Dalvíkurskóla lýkur
þann 15. júní en í gær höfðu bor-
ist um 50 umsóknir. GT