Dagur


Dagur - 24.07.1991, Qupperneq 5

Dagur - 24.07.1991, Qupperneq 5
Miðvikudagur 24. júlí 1991 - DAGUR - 5 Starfsfólk íslensks skinnaiðnaðar hf. á Akureyri gerði sér glaðan dag á dögunum og griliaði lambakjöt í blíðskap- arveðri. Glatt var á hjalla enda var þetta síðasti vinnu- dagur flestra starfsmannanna fyrir mánaðarlangt sumar- frí, sem hófst 8. júlí sl. Starfsfólkið hefur ástæðu til að gleðjast yfir fleiru þessa dagana, því íslenskur skinna- iðnaður hf. er rekinn með hagnaði og virðist vera fremur bjart yfir rekstrinum. Mynd: ehb Myndlist Flugbjörgunarsveitin í V.-Hún.: Ný bifreið til björgunarstarfa - endurgreiðsla Flugbjörgunarsveitin í Vestur- Húnavatnssýslu fékk nýlega í hendur nýja bifreiö til björg- unarstarfa sem sveitin hefur fest kaup á. BíIIinn er keyptur í gegnum Globus hf., en breytt hér á landi hjá Stáli og stönsum. Þessi bifreið er sú fyrsta sem virðisaukaskattur og aðflutningsgjöld vegna breyt- inga gerðra hér á landi fást endurgreidd af. Bifreiðin er af gerðinni Ford Econoline 250 Club Wagon og er með 7,3 lítra díselvél. í henni er allur nauðsynlegur búnaður til björgunarstarfa, en að sögn Sigurðar Björnssonar, formanns flugbjörgunarsveitarinnar, er ekki búið að koma fjarskiptabún- aði fyrir ennþá. Sigurður sagði það vera mikinn mun fyrir björg- unarsveitir að fá endurgreiddan virðisauka og aðflutningsgjöld vegna breytinga sem þarf að gera á slíkum bifreiðum til að þær verði hæfari til björgunarstarfa. Áður hefur þurft að láta breyta bílum áður en þeir eru fluttir inn til að fá þessa endurgreiðslu, en vegna breytinga nú er hægt að láta aðila hér heima framkvæma breytingarn- ar. Með tilkomu þessa bíls segir Sigurður að tækjakostur flug- björgunarsveitarinnar batni mikið, en til eru fyrir Volvo Lapplander, snjóbíll og snjósleð- ar. Flugbjörgunarsveitin í V- Húnavatnssýslu hefur verið að byggja nýtt hús á Laugabakka síðasta árið til að bæta aðstöðu sveitarinnar og er það orðið fokhelt. Kostnaður við bifreiða- kaupin, um 2,4 milljónir króna, bætist því við annan fram- kvæmdakostnað hjá sveitinni, en Sigurður segir þá hafa safnað fé síðustu ár og fengið góðan fjár- stuðning frá mörgum aðilum og það auðveldi þeim að láta dæmið ganga upp. SBG DAGUR Sauðárkróki S 95-35960 Sumar ’91 20. júlí var opnuð samsýning sex myndlistarmanna í húsakynnum Myndlistarskólans á Akureyri. Þeir listamenn, sem þátt taka í sýningunni eru Dröfn Friðfinns- dóttir, Guðmundur Ármann Sig- urjónsson, Helgi Vilberg, Jón Laxdal, Kristinn G. Jóhannsson og Rósa Kristín Júlíusdóttir. All- ir þessir listamenn starfa og eiga heinia á Akureyri. Það er mjög við hæfi, að akur- eyrskir myndlistarmenn skuli prýða bæjarlífið með sýningu á þeim tíma, þegar helst er von gesta í bænum. Þannig gefst bæði þeim og heimamönnum tækifæri til þess að líta verk eftir nokkra á meðal þekktustu myndlistar- manna Akureyrar og er strax það gott og lofsvert framtak. Við bætist, að samsýningin í Myndlistarskólanum er harla fjöl- breytt að myndefni og efnismeð- ferð. Slíkt er að vonum, þar sem svo margirólíkir listamenn leggja saman. Um verk allra listamann- anna má segja, að í framlagi þeirra allra er að finna athygl- isverð og góð verk, og í heild tekið, að sýningin er mjög þess virði, að hún sé litin augum. Dröfn Friðfinnsdóttir á níu verk á samsýningunni í Myndlist- arskólanum á Akureyri. Sérstaka athygli vöktu verk nr. 2, Eldeyj- an, nr. 5, Nýtt land og verkin Umbrot 1 og 2, sem eru númer 6 og 7 í sýningarhluta Drafnar. Dröfn hefur skemmtilega dirfsku til að bera í litanotkun og túlkun auk þess, sem myndmál hennar er talsvert persónubundið og skemmtilegt. Guðmundur Ármann Sigur- jónsson á tvö verk á sýningunni. í þeim er hann að brjóta nýja leið í myndmáli sínu. Verkin eru nokk- uð keimlík enda í raun um yfir- vegun svipaðs tema að ræða í þeim báðum. Erfitt er að gera upp á milli verkanna tveggja, en bæði eru laðandi og sterk. - samsýnmg Skemmtilegt er og spennandi, að Guðmundur er greinilega kom- inn af stað í forvitnilegri leit að ferskri tjáningu. Helgi Vilberg sýnir sex myndir. Þær eru afar fallega unn- ar og sumar beinlínis fagrar. Hér má helst til nefna myndir nr. 3, Vetrarhula, nr. 5, Blika og nr. 6, Landslag. Myndmál Helga er verulega heillandi, þegar honum tekst best. Myndflötur Helga er sem ofinn töfrum og litanotkunin natin og ber vott næmu auga á djarflega samsetningu lita. Jón Laxdal Halldórsson á sjö myndir á samsýningunni. Greini- legt er, að hann er að fe'ta sig fram eftir þeirri braut, sem hann var lagður af stað eftir í sýningu þeirri, sem hann var með í Lax- dalshúsi á síðasta vetri. Myndir hans eru sumar orðnar fígúratív- ari en fyrr, til dæmis skemmtilcga ísmeygileg mynd, sem hann kall- ar Menningar- og skólabær, nr. 7, og myndin Fagurkeri, nr. 3. Einnig er Jón í meira mæli en fyrr farinn að nota óbrotna, geometr- íska fleti í myndum sínum, svo sem í forvitnilegri myndröð, sem ber heitið Tíglar, nr. 2, og Dag- bókarblöðum, nr. 4. Kristinn G. Jóhannsson á fimm myndir á samsýningunni í Mynd- listarskóla Akureyrar. Það er ætíð spennandi að eiga þess kost að líta myndir Kristins. Hann er í sífelldri Jrróun og bryddar svo til ævinlega upp á einhverju skemmtilegu. Að þesu sinni hef- ur Kristinn þróað áfram það myndmál, sem hann notaði á síð- ustu sýningu sinni og gætt það fjöri og léttri kímni, sem gefur myndunum laðandi svip. Sérstak- lega skemmtilegar eru myndir nr. 1, Búrfell, og nr. 4, Foss, þar sem Kristinn beitir fyrir sig talsvert djarflegu litaspili. Rósa Kristín Júlúsdóttir á ekki nema eitt verk á sýningunni og er það miður, að ekki skuli vera þar fleira verka eftir hana. Verk Rósu Kristínar heitir Teppi og er bútasaumur. Samsýning listamannanna sex í húsakynnum Myndlistarskólans á Akureyri stendur til 11. ágúst. Auk þess sem bæjarbúar eru hvattir til þess að sjá sýninguna, er þeim, sem fjalla um móttöku ferðamanna og annarra gesta í bænum eindregið bent á að vekja athygli þeirra á sýning- unni. Hún er góöur vitnisburður um þann þrótt, sem er ár af ári að færast í myndlistarlíf höfuðstaðar Norðurlands. Haukur Ágústsson. Verkleg flugkennsla í fiillum gangi Getum enn bætt við nemendum. Bóklegt einkaflugmannsnámskeið í haust verður auglýst síðar. Flugskóli Akureyrar Akureyrarflugvelli, sími 27900 Ágúst Magnússon, hs. 24718, Frímann Svavarsson, hs. 27564. ,3* ' Krakkamót í knattspyrnu (6. flokkur) opið öllum liðum á félagssvæði KEA verður haldið sunnudaginn 18. ágúst nk. á KA-velli Þátttaka tilkynnist til Þórarins E. Sveinssonar í síma 25744 eða Gunnars Kárasonar í síma 22052 fyrir 1. ágúst.

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.