Dagur - 24.07.1991, Síða 11
Miðvikudagur 24. júlí 1991 - DAGUR - 11
ÍÞRÓTTIR
Samskipadeild
10. umferð:
ÍBV-KA 3:0
Valur-Stjarnan 2:2
Víkingur-FH 0:1
Breiðablik-Frani 1:1
KR-Víðir 7:1
KR 10 6-3-1 22: 5 21
Fram 10 6-2-2 14: 7 20
ÍBV 10 5-1-4 17:14 16
Breiðablik 10 4-4-2 16:13 16
Víkingur 10 5-0-5 16:17 15
Valur 10 4-2-4 14:14 14
FH 10 4-2-4 12:12 14
Stjarnan 10 3-3-4 13:15 12
KA 10 3-1-6 8:13 10
Víðir 10 0-2-8 8:27 2
Markahæstir:
Höröur Magnússon, FH 7
Steindór Elíson, UBK 7
Guömundur Steinsson, Víkingi 6
Leifur Hafsteinsson, ÍBV 6
Atli Eövaldsson, KR 4
Ragnar Margeirsson, KR 4
Steinar Ingimundarson, Víði 4
Arnljótur Davíösson, ÍBV 4
Ingólfur Ingólfsson, Stjörnunni 4
2. deild
10. umferð:
ÍA-Haukar 9:0
Tindastóll-Grindavík 4:3
Þróttur-Þór 0:2
ÍR-Selfoss 7:3
Fylkir-Keflavík 1:3
í A 10 8-0-2 33: 8 24
Þór 10 7-1-2 25:14 22
ÍBK 10 5-3-2 23:10 18
ÍR 10 5-1-4 23:19 16
Þróttur 10 4-3-3 13:10 15
Grindavík 10 4-2-4 16:14 14
Fvlkir 10 2-5-3 13:14 11
Selfoss 10 3-2-5 18:22 11
Haukar 10 1-2-7 10:37 5
Tindastóll 10 1-1-8 10:36 4
Markahæstir:
Halldór Áskelsson, Þór 9
Júlíus Tryggvason, Þór 8
Tryggvi GunnarssonV'ÍR 7
Einar Daníelsson, Grindavík 7
Kjartan Kjartansson, ÍR 6
Haraldur Ingólfsson, ÍA 6
Marco Tanasic, ÍBK 6
Kjartan Einarsson, ÍBK 6
4. deild
D-riðiU
10. umferð:
Þrymur-HSÞ-b 1:8
UMSE.b-Hvöt 3:6
Korniákur-Neisti 3:1
SM sat hjá
HSÞ-b 9 6-2-1 39:11 20
Hvöt 9 5-4-0 36:15 19
Neisti 9 4-1-4 20:21 13
Kormákur 8 4-1-3 19:11 13
UMSE-b 8 4-0-4 18:23 12
SM 8 3-0-5 13:21 9
Þrymur 9 0-0-9 8:55 0
Markahæstir:
Viðar Sigurjónsson, HSÞ-b 12
Bjarni Gaukur Sigurðsson, Hvöt 11
Jónas Hallgríinsson 9
Páll Leó Jónsson, Hvöt 8
Albert Jónsson, Kormáki 7
SigurðurSkarphéöinsson, UMSE-b 6
1. deild kvenna:
Akurcyrarliðin KA og Þór
unnu Týrara örugglega
Tveir leikir fóru fram í 1. deild
kvenna um sl. helgi. Það var
lið Týs úr Vestmannaeyjum
sem hér lék við Akureyrarliðin
Þór og KA og tapaði báðum
leikjunum, 7:0 fyrir Þór og 3:1
fyrir KA.
Einstefna hjá Þór
Leikur Þórs og Týs var nánast
eins og leikur kattarins að mús-
inni og eftir aðeins sex mín. leik
var staðan 3:0 fyrir Þór og ljóst
að hverju stefndi. Staðan í hálf-
leik var 6:0 og öll spenna úr
leiknum en í seinni hálfleik skor-
uðu Þórsarar aðeins eitt mark en
fengu mýmörg tækifæri til þess en
tókst ekki. Mörk Þórs gerðu Ellen
Óskarsdóttir (3), Inga Huld Páls-
dóttir (2), Sveindís Benedikts-
dóttir og Þórunn Sigurðardóttir.
Fyrsti sigur KA
KA vann Tý í leik á Akureyrar-
velli á laugardeginum og það var
aldrei spurning hvoru megin
sigurinn félli, aðeins hversu stór
hann yrði. Staðan í hálfleik var
1:0 en í síðari hálfleik bætti KA
við tveimur mörkum en í lok
leiksins gleymdu KA-stúlkurnar
varnarleiknum og Týrarar kom-
ust í gegn og löguðu aðeins
stöðuna. Þetta lið Týs er mjög
ungt að árum, flestar stúlkurnar
leika í 2. flokki og eiga því vissu-
lega framtíðina fyrir sér. Mörk
KA gerðu Arndís Ólafsdóttir (2),
Linda Hersteinsdóttir en Andra
Atladóttir skoraði mark Týs.
Arndís skoruöi tvö.
2. flokkur karla:
Þórsarar töpuðu í
undanúrslitum
Bikarkeppninnar
- KA vann Leikni en
tapaði fyrir Fylki
2. Hokkur Þórs lék sl. iaugar-
dag gegn Fram í 4ra liða úrslit-
um Bikarkeppni KSÍ. Leikur-
inn fór fram í Reykjavík.
Leikurinn bar þess merki
hversu mikilvægur liann var
báðum liðunum en var á hinn
bóginn hinn besta skemmtun.
Framarar náðu forystunni um
snemma í fyrri hálfleik en Páll
Jakob Líndal jafnaði fyrir Þór á
33. mín. Þannig var staðan þar til
5 mín. voru til leiksloka en þá var
dæmd vítaspyrna á Þór sem
Framarar skoruðu úr. Þórsarar
lögðu eftir það allt kapp á sókn-
OL-unglinga:
Met íjúka
Norðlensku þátttakendurnir á
hinum óformlegu olympíuleik-
um unglinga í Brussel í Belgíu
hafa staðið sig mjög vel.
Árangur þeirra í gær var eftir-
farandi:
Ómar Kristinsson UMSE hljóp
400 m á 51,26 sek. og setti
íslenskt sveinamet. Sunna Gests-
dóttir USAH hljóp 200 m á 25,08
sek. og setti íslenskt meyjamet
og Hákon Sigurðsson HSÞ hljóp
800 m á 2:03,18 sem er mjög góð-
ur tími. GG
ina og því komust Framarar í
gegn á síðustu mín. leiksins og
skoruðu sitt þriðja mark í síðustu
spyrnunni.
Framarar leika því til úrslita
gegn Akurnesingum sem sigruðu
Vestmannaeyinga í hinum
undanúrslitaleiknum með þrem-
ur mörkum gegn tveimur.
Feikurinn fer frarn 17. ágúst nk.
Tap og sigur hjá KA
2. flokkur KA lék tvo leiki í sfn-
um riðli um helgina, báða fyrir
sunnan. Á föstudagskvöldið léku
þeir við Fylki og töpuðu 2:4.
Tveir leikmanna KA fengu að sjá
rauða spjaldið í þcim leik og léku
því ekki með gegn Leikni á laug-
ardeginum. Mörk KA gerðu
Sigurður Óli Ólason og Baldur
Hólm.
Á laugardeginum var leikið
gegn Leikni og komust heima-
menn í 2:0 en KA tókst að hrista
af sér slenið og vinna leikinn 3:2.
Mörkin í þeim leik gerðu Sigurð-
ur Óli Ólason og Bjarki Braga-
son (2). Nokkur heppnisstimpill
var á þessum sigri KA en þegar
leikmenn höfðu öðlast trú á því
að þeir gætu unnið leikinn þá áttu
þeir fleiri hættuleg tækifæri en
Leiknir. KA leikur í kvöld gegn
Fylki á Menntaskólavellinum.
GG
Siglt á Pollinum.
íslandsmeistaramót í siglingum:
Laufey Kristjánsdóttir
sigurvegari í
Laufey Kristjánsdóttir Kaup-
angi, Eyjafjarðarsveit og félagi
í Siglingafélaginu Nökkva varð
íslandsmeistari í siglingum á
optimist báti um sl. helgi. 1
þriðja sæti varð annar kepp-
andi frá Siglingafélaginu
Nökkkva, Berglind Guð-
mundsdóttir. Mótið fór fram í
Nauthólsvík í Reykjavík og
fóru keppendur 6 umferðir.
Keppendur á optimistbátum
eru á aldrinum 8 til 15 ára en þeg-
ar þeint aldri er náð er keppt á
topperbátum. Þó geta keppendur
sem ná a.m.k. 50 kg þyngd keppt
á topper þó 15 ára aldrinum sé
ekki náð.
Aðspurð segist Laufcy hafa
byrjað á siglingum fyrir fjórum
árum vegna þess að bróðir henn-
ar hafi stundað þær af kappi og
sér finnist þetta mjög skemmtileg
stúlknaflokki
íþrótt. Laufey æfir tvisvar í viku
en þriðja daginn er yfirleitt
keppt. Kostnað við það að
stunda þessa íþrótt segir hún ekki
mikinn en aðalkostnaðurinn sé
fólginn í þurrgalla sem kostar um
20 þúsund krónur. Siglingaklúbb-
urinn á bátana og því þurfi
iðkendur ekki að leggja í báta-
kaup.
í vor fór Laufey til Danmerkur
til að keppa í siglingum og kynn-
ast dönskum unglingum sem
þessa íþrótt stunda. Nokkur
munur er á því að sigla hér á Poll-
inum eða í Danmörku en aðal-
lega eru það sterkari straumar
sem gera siglingar í Danmörku
frábrugðnar því sem unglingar
hér heima eiga að venjast.
Næsta mót sem Laufey hyggst
taka þátt í er Opið íslandsmót
sem fram fer á Akurcyrarpolli 9.
til 11. ágúst nk. GG
Lautey Knstjansdóttir meö sigurlaunin frá Islandsmótinu.