Dagur


Dagur - 24.07.1991, Qupperneq 12

Dagur - 24.07.1991, Qupperneq 12
Akureyri, miðvikudagur 24. júlí 1991 Askriftarsíminn er 96-24222 Sauðárkrókur 95-35960 Húsavík 96-41585 Sorphaugarnir á Glerárdal: Jarðfræðiúttekt gerð í haust - vegna hugmynda um sorphirðu fyrir Eyjafjörð Vegna hugmynda um saineig- inlega sorphirðu fyrir Eyja- fjarðarsvæðið á Glerárdal var Halldóri Péturssyni, jarðfræð- ingi hjá Náttúrufræðistofnun Norðurlands, falið að gera jarðfræðilega úttekt á frá- rennsli frá sorphaugum Akur- eyringa á Glerárdal. Að sögn Halldórs verður byrjað á úttektinni í haust. Frekari ákvarðanir um sameiginlega sorphirðu á Glerárdal munu m.a. byggjast á niðurstöðum Halldórs. Halldór sagðist í samtali við blaðið vera búinn að kanna aðstæður á Glerárdal og undir- búningur athugana er hafinn. Jarðvegskönnun hefur ekki áður verið gerð á sorphaugunum. Halldór vinnur að athuguninni í samvinnu við tæknideild Akur- eyrarbæjar og heilbrigðiseftirlitið en framkvæmdin er á vegum Héraðsnefndar Eyjafjarðar. Valdimar Brynjólfsson, lieil- brigðisfulltrúi, sagði í samtali við Dag að sorphaugarnir á Glerár- dal væru að mörgu leyti hentugur staður fyrir sameiginlega urðun sorps af Eyjafjarðarsvæðinu. „Til þess að það megi verða þarf að ganga frá botni sorphauganna þannig að leki ekki grunnvatn í gegn. Hingað til hefur ekki verið gengið frá botninum sérstaklega og við viljum fá á hreint hvort slíkt sé mögulegt,“ sagði Valdi- mar og bætti við að sérstakri mót- töku fyrir hættuleg úrgangsefni verði komið á en annað sorp verður urðað. . -bjb Óslax fékk 3 milljónir í rekstrarlán: „Enim ekkert svekktir“ - segir Sigurður Jóhannesson, stjórnarformaður Óslax hf. í Ólafsfirði fékk út- hlutað þriggja milljón króna rekstrarláni frá nefnd landbún- aðarráðneytisins sem var skip- uð vegna vanda fiskeldis. Eins og komið hefur fram var 7 fisk- eldisfyrirtækjum úthlutað láni og var Óslax annað tveggja norðlenskra fyrirtækja í þeim hópi. Sigurður Jóhannesson, stjórn- arformaður Óslax, sagði í samtali við Dag að rekstrarlánið væri í takt við það sem menn áttu von á og um var sótt. „Við erum ekkert svekktir með þessa úthlutun. Rekstrarlánið fer í að létta á lausaskuldum og búa í haginn fyrir framtíðina," sagði Sigurður. Hitt norðlenska fiskeldisfyrir- tækið sem fékk rekstrarlán var Innbrot í Gamla Brotist var inn í skátaskálann Gamla ofan Kjarnaskógar á föstudagskvöldið. Skemmdar- verk voru unnin á skálanum sem er í eigu skátafélagsins Klakks. Skátafélagið hefur grun um hverjir voru að verki og hyggst kæra verknaðinn þegar grunurinn hefur verið staðfestur. Kæra hefur ekki borist rann- sóknarlögreglunni en Dagur hafði samband við Tryggva Marinósson, félagsforingja í skátafélaginu Klakki, vegna málsins. „Við þykjumst vita hverjir voru þarna að verki og erum með fullt af fólki til að athuga það. Síðan kærum við innbrotið til lögreglunnar þegar grunurinn hefur verið staðfest- ur,“ sagði Tryggvi. Hann sagði að hellt hefði verið niður tölu- verðu af málningu og fúavörn sem geymd er í skálanum en hann er nefndur í höfuðið á Tryggva Þorsteinssyni, skátafor- ingja og skólastjóra. GT Silfurstjarnan í Öxarfirði og eins og Dagur skýrði réttilega frá í síðustu viku fengu Silfurstjörnu- menn 28 milljón króna rekstrar- lán frá umræddri nefnd. Að sögn Björns Benediktssonar, fram- kvæmdastjóra Silfurstjörnunnar, greiðist helmingur lánsins í næsta mánuði og afgangurinn í desem- ber nk. -bjb Múrað í Tröllagili. Mynd: Golli Mj ólkurfr amleið slan: Búið að framleiða um 80% fullvirðisréttar á Norðurlandi eystra Um síðustu mánaðamót var búið að framleiða um 80% upp í fullvirðisrétt til framleiðslu mjólkur á Norðurlandi eystra. Þá hafði 21 mjólkurframleið- andi lokið við að framleiða upp í sinn fullvirðisrétt á sam- lagssvæði Mjólkursamlags Kaupfélags Eyfirðinga og 4 höfðu fullnýtt sinn kvóta á svæði Mjólkursamlags Kaup- félags Þingeyinga á Húsavík. Búið var að framleiða 17,2 milljónir lítra eða 79,6% af heild- ar fullvirðisrétti á samlagssvæði Kaupfélags Eyfirðinga og 83% á samlagssvæði KÞ. Að sögn Hlíf- ars Karlssonar, mjólkursanilags- stjóra á Húsavík, eru rúmlega 20 bændur eða nærri fjórðungur ntjólkurframleiðenda til viðbótar komnir yfir 90 til 95% fram- leisðlu og því stutt í að þeir verði búnir. Hlífar sagði að innlagt ntjólkurmagn færi nú stöðugt ntinnkandi og greinilegt væri að bændur reyndu að treina sér það sem þeir ættu eftir af fullvirðis- réttinum. Pórarinn E. Sveinsson, mjólk- ursamlagsstjóri á Akureyri hafði svipaða sögu að segja. Hann sagði dæmi um að bændur hafi leigt sér jarðir með fullvirðisrétti og þannig aukið kvóta sinn. Þó væri ljóst að margir yrðu komnir framyfir fljótlega upp úr næstu mánaðamótum. Oddur Gunnarssqn, formaður Félags kúabænda á Norðurlandi, sagðist búast við að stóra stökkið kæmi í fyrrihluta ágústmánaðar. Þá myndi framleiðsla margra bænda fara framúr fullvirðisrétti. Oddur sagði að þótt hluti umframframleiðslunnar væri sjálfskaparvíti þá spiluðu fleiri þættir inní og nefndi meðal ann- ars að margir bændur hefðu fækkað gripum vegna minnkandi framleiðslumöguleika. Þá förg- uðu menn fremur lélegri kúm og því hækki meðaltalsframleisðlan og heildarframleiðsluinagnið minnki ekki í hlutfalli við fækkun gripa. Oddur sagði einnig að hið góða árferði gerði mönnunt erfið- ara fyrir nteð að takmarka fram- leiðsluna. ÞI Sjallinn eftir opnun á ný: Reksturinn gengið vel Að sögn Sigurðar Thoraren- sen, framkvæmdastjóra Sjall- ans hefur reksturinn gcngið vel frá því skemmtistaðurinn var opnaður aftur fyrir um mánuði síðan. „A flest öllum laugardags- kvöldum hefur verið uppselt hjá okkur og föstudagskvöldin eru á uppleið," sagði Sigurður og var ánægður með þær viðtökur sem forráðamenn Sjallans hafa fengið frá gesturn hússins, bæði hvað varðar hvernig til tókst með breytingar og hversu góður hljóntburður sé í húsinu. Heyrst hefur að Sigurður sé að hætta sem framkvæmdastjóri Sjallans og Sigurður staðfesti það en sagði að tímasetning á því væri óákveðin. „Ég verð hérna eitthvað fram eftir hausti,“ sagði Sigurður. -bjb Hrísey: Fullskipað í hundaeinangnm út næsta ár Hundaeinangrunin í Hrísey er fullskipuö út næsta ár. Sex klefar fyrir hunda og tveir fyrir ketti eru fullir og mikil aðsókn er frá fólki sem flytja vill gælu- dýrin með sér heim til íslands. Staða sóttvarnadýralæknis við einangrunarstöðina hefur ver- ið auglýst laus til umsóknar. Að sögn Helga Sigfússonar, bústjóra einangrunarstöðvarinn- ar í Hrísey, var nýtt hús byggt fyrir einangrun gæludýranna en sú starfsemi tók til starfa í júní- mánuði. „Þetta gengur ágætlega; það er mikil aðsókn hingað og biö út næsta ár,“ sagði Helgi í samtali við Dag en heyra mátti hundgá í gegnum síma. Sóttkví gæludýranna varir frá einum mánuði og allt að ársfjórð- ungi en í því santbandi hefur teg- und dýranna mikið að segja svo og það land sem flutt er frá. Að öllu jöfnu er aðeins eitt dýr í hverjum klefanna átta en dýr úr sama goti ntá þó vista saman. Nú hefur staða sóttvarnadýra- læknis við einangrunarstöðina í Hrísey veriö auglýst laus til umsóknar frá og með 1. septem- ber nk. Undanfarið hefur Ólafur Valsson, aðstoðarmaður yfir- dýralæknis, sinnt starfinu tíma- bundið en stöðin heyrir undir embætti yfirdýralæknis. GT Hlutaflárútboð í Útgerðarfélagi Akureyringa hf.: Hluthafar nýttu sér forkaupsréttinn Ljóst er að ekkert af hlutabréf- um í Útgerðarfélagi Akureyr- inga hf. að andvirði tíu millj- ónir króna, sem boðin voru út í síðasta mánuði, koma á almennan markað. Hluthafar í félaginu höfðu forkaupsrétt að bréfunum og þeir munu nýta sér hann til fulls. Raunar ósk- aði fjöldi hluthafa eftir að kaupa bréf umfram forkaups- rétt sinn. Aðalfundur ÚA 3. maí sl. samþykkti að heintila stjórn félagsins að selja nýja hluti í félaginu að upphæð 50 ntilljónir króna. í þessari atrennu voru hins vegar boðin út hlutabréf að andvirði 10 milljónir króna á genginu 4,30 til forkaupsréttar- hafa og 4,50 á almennum mark- aði. í útboðslýsingu kenttir fram að stjórn ÚA hyggist nota nýtt hlutafé til þess að mæta þeirri 10% arðgreiðslu sem samþykkt var á aðalfundinum 3. maí sl. óþh

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.