Dagur - 23.08.1991, Page 2
2 - DAGUR - Föstudagur 23. ágúst 1991
Skrifstofiitækni
Lögð er áhersla á töhair
og notkun þeirra
Auldn menntun betri
atshmumöguleíkar
Innritun og upplýsingar í síma 27899.
ATH. Hafið samband og _
við sendum bækling. ISZ iMj
Tölvufræðslan Akureyri hf.
Glerárgötu 34, III. hæð • Akureyri • sími 27899
„„ailiiiiii
im
HÓTEL KEA
Laugardagurinn 24. ágúst
Hljómsveitin
NA/VIM
ásamt Júlíusi Guðmundssyni halda upp
stuðinu fram eftir nóttu.
★
Helgarmatseðill
Blandaður sjávarréttakokteill
„andalouse"
Nauta- og grísamedalíur
„Black & White"
Súkkulaði- og krókant mousse með appelsínusósu
verð kr. 3.200.-
Glæsilegur sérréttaseðill
ÍL
Hótel KEA
Fyrir vel heppnaða veislu
J
Fréttir
Stéttarsamband bænda:
Aðalfundur á Hvanneyri
31. ágúst til 2. september
- búast má við miklum umræðum um stöðu landbúnaðarins
Aðalfundur Stéttarsambands
bænda verður haldinn á
Hvanneyri í Borgarfirði dag-
ana 31. ágúst til 2. september
næstkomandi. Fundurinn hefst
á laugardag og mun Ijúka á
mánudagskvöldi.
Búast má við miklum umræð-
um á fundinum um stöðu land-
búnaðarins í Ijósi væntanlegs
búvörusamnings og markaðs-
tengingar landbúnaðarfram-
leiðslunnar. Pá má einnig reikna
með að samningar íslands og
annarra EFTA-landa við Evrópu-
bandalagið um evrópskt efna-
hagssvæði komi til umræðu og
fjallað verði rækilega um hugsan-
legan innflutning á landbúnaðar-
vörum. Málefni sauðfjárræktar-
innar verða einnig til umræðu en
um mánaðamótin rennur út frest-
ur sauðfjárbænda til þess að taka
fyrsta tilboði ríkisins um sölu á
fullvirðisrétti og því verður Ijóst
að hvað miklu leyti markmið um
fækkun sauðfjár á komandi
hausti munu nást með frjálsum
samningum. Formaður Stéttar-
sambands bænda er Haukur
Halldórsson og gefur hann kost á
sér til endurkjörs. ÞI
Akureyri:
Umferðarskóli fyrir 5 og 6 ára böm
Dagana 26. til 29. ágúst n.k.
fer frani umferðarfræðsla fyrir
5 og 6 ára börn á Akureyri og
er þetta í annað sinn seni börn-
um á Akureyri gefst kostur á
að sækja námskeið Umferðar-
skólans. Kennsla fer fram í
grunnskólum bæjarins.
Pað eru skipulagsnefnd Akur-
eyrar, lögreglan og Umferðarráð
sem standa að fræðslunni í sam-
vinnu við grunnskólana á Akur-
eyri en fóstrur og lögreglumenn
annast kennsluna.
Hvert barn kemur tvisvar og er
í u.þ.b. eina klukkustund f senn.
Meðal annars er farið yfir nokkr-
ar mikilvægar umferðarreglur
fyrir gangandi vegfarendur, fjall-
að er um hjólreiðjar og nauðsyn
þess að allir noti bílbelti og bíl-
stóla.
Það sem af er árinu hafa nám-
skeið Umferðarskólans verið
haldin víða um land. Pau hafa
alls staðar verið mjög vel sótt og
hafa börnin verið áhugasöm og
haft frá mörgu að segja úr
umferðinni.
Útboð í nýbyggingu Esso á Sauðárkróki:
Trésmiðjan Borg með lægsta tilboð
tilboð voru opnuð í gær
Tilboð voru opnuð í gær í
nýbyggingu Esso - Olíufélags-
ins hf. á Sauðárkróki. AIIs bár-
ust þrjú tilboð, öll frá heima-
mönnum, og það lægsta reynd-
ist vera frá Trésmiðjunni Borg
hf. Kostnaðaráætlun Esso var
43 milljónir króna en tilboð
Borgar kr. 40.609.671.
Önnur tilboð voru frá Bygg-
ingafélaginu Hlyn hf. kr.
45.153.266 og sameiginlegt tilboð
frá Trésmiðjunni Ýr hf. og Knúti
Aadnegaard kr. 52.987.196. Til-
boð verða yfirfarin og samið við
lægstbjóðanda á næstu dögum.
Samkvæmt útboðsgögnum eru
verklok 27. mars 1992.
Byggja á 425 fermetra þjón-
ustuhús með veitingasölu og
bensínafgreiðslu og 65 fermetra
geymsluhús. Hönnuður bygging-
anna er Aðalsteinn Júlíusson á
Akureyri. -bjb
Tcikning af framhlið nýbyggingar Esso - Olíufélagsins hf. á Sauðárkróki. Framhliðin, sem snýr í vestur, er alls 36
metrar á lengd.
• •
ICIX
njrv
ardagskvöld
Húsið opnað
kl. 23.30
Staöur fyrir lifandi fólk