Dagur - 23.08.1991, Side 4

Dagur - 23.08.1991, Side 4
4 - DAGUR - Föstudagur 23. ágúst 1991 ÚTGEFANDI: DAGSPRENT HF. SKRIFSTOFUR: STRANDGATA 31, PÓSTHÓLF 58, AKUREYRI, SlMI: 24222 ÁSKRIFT KR. 1100 Á MÁNUÐI LAUSASÖLUVERÐ 100 KR. GRUNNVERÐ DÁLKSENTIMETRA 725 KR. RITSTJÓRI: BRAGI V. BERGMANN (ÁBM.) FRÉTTASTJÓRI: KRISTJÁN KRISTJÁNSSON RITSTJÓRNARFULLTRÚI: EGILL H. BRAGASON BLAÐAMENN: INGIBJÖRG MAGNÚSDÓTTIR (Húsavík vs. 41585), JÓHANN ÓLAFUR HALLDÓRSSON, JÓN HAUKUR BRYNJÓLFSSON (íþróttir), ÓLI G. JÓHANNSSON, ÓSKAR ÞÓR HALLDÓRSSON, SKÚLI BJÖRN GUNNARSSON (Sauöárkróki vs. 95-35960), STEFÁN SÆMUNDSSON, ÞÓRÐUR INGIMARSSON LJÓSMYNDARI: KJARTAN ÞORBJÖRNSSON PRÓFARKALESTUR: SVAVAR OTTESEN ÚTLITSHÖNNUN: RlKARÐUR B. JÓNASSON, ÞRÖSTUR HARALDSSON AUGLÝSINGASTJÓRI: FRÍMANN FRlMANNSSON DREIFINGARSTJÓRI: HAFDlS FREYJA RÖGNVALDSDÓTTIR, HEIMASlMI 25165 FRAMKVÆMDASTJÓRI: HÖRÐUR BLÖNDAL PRENTUN: DAGSPRENT HF. SÍMFAX: 96-27639 Aukið vald til héraða og sveitarstjóma Á undanförum árum hefur margt verið rætt og ritað um aðgerðir sem vænlegar þykja til að ná árangri í byggðamálum. Meðal þeirra hugmynda sem merki- legastar verða að teljast á þeim vettvangi er sú að færa aukið vald heim í kjördæmin þannig að þau eflist bæði stjórnsýslulega og efnahagslega. í nefndaráliti sem stjórnskipuð nefnd ríkisstjórnar Steingríms Her- mannssonar gaf út síðasta vetur um nýjar leiðir í byggðamálum er þessi hugmynd um aukið vald kjör- dæmanna útfærð á greinargóðan hátt. I áliti nefndarinnar segir að flestar opinberar aðgerðir hafi áhrif á þróun byggðar á einn eða annan hátt. Nauðsynlegt sé að samræma aðgerðir fagráðu- neytanna til að ná fram þeim heildaráhrifum sem stjórnvöld á hverjum tíma ætlist til. Forsendan fyrir því að þetta takist sé að ákvarðanataka í mörgum málaflokkum verði færð heim í héruðin og dregið úr allri miðstýringu frá höfuðborgarsvæðinu. Það liggur í augum uppi að heimamenn á hverjum stað skynja best þarfirnar í atvinnumálum og félags- málum innan sinna sveitarfélaga. Landsbyggðar- menn hafa fyrir löngu komið auga á nauðsyn þess að draga úr miðstýringu Reykjavíkurvaldsins en í þeirri umræðu hefur menn greint á um leiðir þótt markmið- ið sé í sjálfu sér einfalt. Efling kjördæmanna til aukinnar ábyrgðar í eigin málum er rauði þráðurinn í tillögum hinnar stjórn- skipuðu nefndar. Setja verður fram ákveðin markmið í öllum helstu málaflokkum byggðarlaganna þannig að stefnumótunin verði skýr og greinileg. Þannig er auðvelt að meta árangurinn af aðgerðum til að vega á móti byggðaröskun. Byggðastjórnir með skýrt skilgreind verkefni, hér- aðsmiðstöðvar í öllum kjördæmum á landsbyggðinni, stefnumótandi áætlanagerð og samræming ríkisað- gerða í byggðamálum eru lykilatriði í tillögum nefnd- arinnar. Bent er á að samræmd áætlanagerð muni bæta stórlega nýtingu opinberra fjármuna og að ný opinber störf verði á landsbyggðinni en ekki á höfuð- borgarsvæðinu. Sameining sveitarfélaga og atvinnu- þróunarsjóðir eru mikilvægir þættir í þeirri framtíðar- mynd sem áhugamenn um landsbyggðarmál sjá fyrir sér að verði til góðs. Því miður bendir fátt til að tillögur sem þessar eigi upp á pallborðið hjá núverandi ríkisstjórn. Það er helst að skilja á ráðherrum stjórnarinnar að alltof miklu fé sé búið að verja til landsbyggðarinnar, oft til verkefna sem talin eru gagnslaus. Landsbyggðar- menn hljóta að taka sífelldar árásir Davíðs Oddsson- ar, forsætisráðherra, á Byggðastofnun sem merki um lítinn áhuga ríkisstjórnarinnar á að koma til móts við þarfir landsbyggðarinnar og hinna dreifðu byggða. Oft er auðvelt að rífa niður það sem aðrir gera en slíku fylgir um leið sú ábyrgð að viðkomandi verður að koma með nýjar tillögur í staðinn, í þessu tilviki til eflingar landsbyggðinni. Ekki hefur bólað á neinum tilburðum ríkisstjórnarinnar í þá veru. EHB Góð tónlist fer eftir smekk - svargrein við plötuum^öllun á poppsíðu Poppsíður blaðanna læt ég sjald- an framhjá mér fara ólesnar og er poppsíða Dags þar engin undan- tekning. Réttara væri kannski að kalla hana rokksíðu Dags en lát- um það liggja á milli hluta að þessu sinni. Eitthvað virðist íslensk popptónlist eiga lítið upp á pallborðið hjá Magnúsi Geir poppskrifara, þótt einstaka sinn- um fjalli hann um íslenska tónlist í skrifum sínum. Fyrrnefndur Magnús sá þó ástæðu til að fjalla um tvær nýútkomnar plötur í helgarblaði Dags þ. 17. ágúst síðastliðinn. Þar var um að ræða hljómleika- disk Sniglabandsins og plötu sem Gunnar Þórðarson er að mestu leyti ábyrgur fyrir og kallast íslandslög. Mig íangar aðeins til að leggja orð í belg um síðar- nefndu plötuna. Ekki líst Magnúsi Geir meira en svo á gripinn og er það í sjálfu sér allt í lagi; það er kannski frekar hvernig hann rök- styður álit sitt sem er athugunar- vert. Ég tel mig bera þó nokkurt skynbragð á tónlist og hygg að ég sé bara töluvert víðsýnn í þeim efnum, en vissulega hefur hver maður sinn smekk sem bet- ur fer. Góð tónlist hlýtur því ávallt að vera sú tónlist sem hver og einn kann að meta, svo einfalt er nú það. En þá ætla ég að snúa mér að plötunni. Magnús Geir byrjar umfjöllun sína á að fara nokkrum fögrum orðum um stórgóða skífu þjóð- lagahópsins íslandica „Ramm- íslensk" sem út kom í fyrra, síðan segir: „Með hliðsjón af þessu vel- heppnaða og þarfa framtaki íslandicu kemur það ekki á óvart að aðrír hafa kosið að feta sömu braut, en það er einmitt það sem er uppi á teningnum á íslandslög- um. “ Það má vel vera að velgengni íslandicu hafi eitthvað haft að segja með tilurð Islandslaga og ef svo er þá er það bara hið besta mál. Hins vegar skal á það bent í þessu «bandi að fyrir nokkrum árum kom út hljómplata sem áðurnefndur Gunnar Þórðarson stóð að ásamt fleiri góðum mönnum. Þar var að finna líkt og á íslandslögum lög sem ekki voru þjóðlög í eiginlegri merkingu en lög sem voru djúpt greypt í vit- und þjóðarinnar og löngu orðin þjóðareign. Má í því sambandi nefna Sumarkveðju (Ó blessuð vertu sumarsól) Páls Ólafssonar Kvikmyndarýni Björn Jónsson. og Hótel Jörð, Tómasar sem Pálmi Gunnarsson gerði góð skil. Þar, líkt og á Islandslögum, sómdu þessi gömlu góðu lög sér einkar vel í einföldum og smekk- legum útsetningum Gunnars. Karlinn er því enginn nýgræðing- ur í þesskonar tónlist er um ræðir. Magnús Geir virðist vera búinn að gleyma þessari útgáfu nema þekking hans nái svona skammt aftur hvað íslenska tón- listarsögu áhrærir. Magnús Geir hælir vinnubrögð- um við gerð íslandslaga og telur fagmennsku í fyrirrúmi við gerð hennar. Síðan kemur hann að einurn stórum galla sem honum finnst skemma fyrir plötunni. Gefum poppskrifaranum orðið: „Liggur þessi galli í helsta muninum sem er á henni og Rammíslensk þ.e. lögunum, en annars vegar er um að ræða þjóð- lög hjá íslandicu en sönglög hjá Gunnarí og félögum, mér finnst nefnilega að það hafi gleymst, a.m.k. í sumum tilfellum, að um sönglög er að ræða. “ Nú er ekki nema hluti þessara laga svokölluð sönglög og vissu- lega hæfir ekki hvaða búningur sem er þessum perlum íslenskrar tónlistar. Ég er hins vegar sáttur við einfaldar og smekklegar útsetningar Gunnars, þær hæfa þessum lögum mjög vel og þá ekki síst sönglögunum. Ég get ómögulega séð nokkuð því til fyrirstöðu að fyrrnefnd tónlist sé útsett og sungin á þennan h átt. Þá talar Magnús Geir um að „vitlausir“ söngvarar syngi lögin og nefnir hann sem dæmi, I fjarlægð, lag Karls O. Runólfs- sonar sem Björgvin Halldórsson syngur. Mér finnst Björgvin fara einkar vel með þetta fallega lag enda vanur maður á ferð, sérlega Ijúft og áheyrilegt. Krafturinn, sem Magnús saknar, hæfir engan veginn þessari útsetningu, aftur á móti hentar útsetningin laginu einkar vel. Þá fer Björgvin einkar vel með vögguljóð Davíðs Stefánssonar, Mamma ætlar að sofna. Undir lok greinarinnar kemur nokkuð kostuleg útlistun hjá Magnúsi Geir: „Sama er að segja um Ríó- manninn, Ólaf Þórðarson, en annað tveggja laga sem hann syngur, í dag skein sól, krefst sterkari raddar svo vel sé en hann hefur. “ Hafi Magnús heyrt í Ólafi Þórðarsyni Ríómanni á plötunni íslandslög hefur hann vissulega heyrt í „vitlausum“ söngvara og það í „vitlausu“ lagi. Magnúsi til fróðleiks skal hér bent á það að sá ágæti Ríómaður, Ólafur, kem- ur alls ekki við sögu plötunnar íslandslög og virðist þessi þekk- ingarskortur poppskrifarans geta bent til þess að hann hafi nú ekki hlustað allt of vel á umrædda skífu. Hinn stórgóði söngvari Egill Ólafsson er ábyrgur fyrir söngnum í laginu í dag skein sól og ferst honum það ágætlega úr hendi, eða munni réttara sagt, enda er Egill alls ekki óvanur að túlka lög af þessu tagi. Mig langar til að upplýsa Magnús um fleira varðandi þessa skífu. Skal nú nefndur til sögunn- ar nafni Ríómannsins fyrrnefnda, Ólafur Þórarinsson oft kallaður Labbi úr Mánum. Sá Ólafur syng- ur tvö lög á plötunni, Drauma- landið eftir Sigfús Einarsson og Ljósbrá eftir Eirík Bjarnason og er túlkun hans bara nokkuð góð þó hann skorti reynslu í flutningi slíkra laga. Ég tel þessa plötu vera aðstand- endum sínum til mikils sóma og að þessi fallegu lög komist vel til skila. Það er góð tilbreyting að hvíla Kristján Jóhannsson, Krist- in Sigmundsson og alla hina óperusöngvarana á þessurn lög- um enda eiga þeir ekki að hafa neitt einkaleyfi á þessari tónlist. Ég ætla að vona að Magnús Geir taki skrif mín ekki illa upp og um leið vil ég þakka honum fyrir skrif sín þótt gjarnan mættu koma áherslubreytingar hjá kappanum. Rokk og ról er góðra gjalda vert en ýmislegt annað er líka að finna í töfraheimi tónlist- arinnar. Björn Jónsson. Höfundur er áhugamaður um tónlist. Umsjón: Jón Hjaltason vera kona Að Borgarbíó sýnir: Með tvo í takinu. (Sibling Rivalry). Leikstjóri: Carl Reiner. Aðaihlutverk: Kirstic Alley, Bill Pull- man og Scott Bakula. Það virðist vera áskapað ótrúlega mörgum eiginkonum að vera bara eiginkonur. Um leið og gift- ingin er afstaðin er eins og þær gefi upp þá þroskamöguleika er búa með þeim; hætta námi, slitna úr tengslum við kunningjana og gerast kúldaðar mæður. Óg jafn- vel þó engin börn séu getin þá er eins og sumir trúi því að eigin- konuhlutverkið felist í því að ganga aldrei út úr skugga eigin- mannsins; áhugamál hans verða einnig áhugamál hennar, vel- gengni hans er velgengni hennar, líf hans verður líf hennar. Eigin- konan má aðeins sýna frumkvæði í eldhúsinu og ef til vill í rúminu en þá aðeins þegar vel liggur á karlinum og leyndarliminn þyrstir. Með tvo í takinu segir frá einni slíkri eiginkonu (Kirstie Alley) sem hefur í átta ára hjóna- bandi týnt svo gjörsamlega niður sjálfstæði sínu og persónuleika að hún hræðist frelsið er gæfi henni tækifæri til að finna sjálfa sig á nýjan leik - að verða persóna en ekki aðeins móttöku- stöð bíðandi eftir boðum frá eiginmanni og ættmennum hans um rétta og skikkanlega hegðun. Með tvo í takinu er þó alls ekki háalvarleg siðferðispredikun, því fer fjarri. Hún er þvert á móti gamanmynd þar sem reynt er að sjá skoplegu hliðarnar á illleysan- legu vandamáli. Það liggur við að myndin gjaldi þess hversu erfið- leikarnir eru miklir - á köflum er hún á mörkum þess að breytast í skrípaleik. Þetta er í og með vegna þess einnig að leikararnir ofleika, eru svolítið eins og á sviði þar sem beita þarf röddinni af ákveðni til að heyrist aftur í sal - veifa höndum á ýktan hátt til að fjarlægustu áhorfendur sjái, geifla sig og gretta í smávon um að salargestir greini sálarangist eða ringlaða sál í hrukkunum. Með tvo í takinu sleppur þó fyrir horn, í og með vegna þess að það eru ákaflega smellnir brandarar í myndinni og eins vegna hins að sviðsetningin er svolítið eins og í leikhúsi, maður gæti jafnvel hald- ið að kvikmyndin hefði verið skrifuð fyrir leiksvið í upphafi. Atriðin eru löng og samræðurnar eftir því, bakgrunnur breytist lít- ið og leikararnir eru sáralítið á ferðinni, það er varla að þeir fari út fyrir hússins dyr, þó eru þeir ekki alltaf í sama herberginu eða sömu byggingunni. Þessi skortur á útiveru og hreyfingu þarf þó ekki óhjákvæmilega að vera ljóð- ur á kvikmynd, Með tvo í takinu er gott dæmi um það.

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.