Dagur - 23.08.1991, Page 12
imm
Akureyri, föstudagur 23. ágúst 1991
Öxarfjörður:
Stóraukiim rækjukvóti
Ávallt í fararbroddi
Á helgarseðli Smiðjunnar er boðið upp
á hreindýrasteik og aðalbláber.
★
Arnhildur leikur á píanóið fyrir matargesti.
Hafrannsóknastofnun hefur
lagt til að rækjuveiðar í Öxar-
firði verði stórauknar næsta
vetur frá því sem verið hefur.
Tillögur íiskifræðinga gera ráð
fyrir 500 tonna rækjuveiði-
kvóta í stað 100 tonna í fyrra.
Rækjuveiðar í Öxarfirði hafa
verið takmarkaðar um skeið
vegna siæms ástands stofnsins.
Rannsóknarskipið Dröfn fór í
könnunarleiðangur í sumar og
áttu niðurstöðurnar að leggja
grunn að kvótanum á næstu
vertíð. í fyrstu tillögum fiski-
fræðinga var gert ráð fyrir 200
tonna hámarksveiðikvóta í rækju
næsta vetur, en eftir rannsóknar-
leiðangur Drafnar þótti óhætt að
auka veiðarnar mikið frá því.
Fiskifræðingar eiga eftir að
kanna stærð rækjustofnsins á
nokkrum stöðum, t.d. er eftir að
rannsaka rækju í Húnaflóa.
EHB
Iðnþróunarfélag Eyjaljarðar hf.:
Tveir nýir starfsmenn
Iðnþróunarfélagi Eyjafjarðar
bætast tveir nýir starfsmenn
um þessar mundir, Bjarni
Kristinsson rekstrarráðgjafi og
Elín Antonsdóttir markaðs-
ráðgjafí.
Bjarni tekur til starfa um næstu
mánaðamót, en starfssvið hans
verður almenn rekstrarráðgjöf til
fyrirtækja. Bjarni er vélá- og
rekstrarverkfræðingur, menntað-
ur í Danmörku. Hann er frá
Eskifirði, en kona hans heitir Sig-
ríður Sigurvinsdóttir og er frá
Akureyri.
Elín Antonsdóttir hóf störf hjá
IFE 15. þ.m. en hún er ráðin til
sex mánaða. Elín vinnur að sér-
stöku átaksverkefni sem tengist
fyrirtækjum og atvinnurekstri
kvenna. Félagsmálaráðuneytið
veitti styrk til verkefnis sem ætlað
var að styðja atvinnuþátttöku
kvenna, Iðnþróunarfélagið sótti
um og fékk hlutdeild í umrædd-
um styrk. EHB
Tveggja bíla árekstur varð í Þórunnarstræti við Bjarkarstíg kl 13:25 í gær. Ökumaður annars bílsins kvartaði að sögn
lögreglu um verki í hálsi og í baki og var fluttur á sjúkrahús. Tveir minni háttar árekstrar urðu á Akureyri í gær.
Að sögn Gunnars Randverssonar varðstjóra hafa verið klippt númer af hátt í 50 bílum síðan á þriðjudag. Mynd: Golli
Framhaldsskólarnir á Akureyri að springa:
Mörgum neitaö um skólavist og heimavist
- ríflega 1100 nemendur í VMA og um 630 í MA
Ný styttist óðum í ad fram-
haldsskólar, sem og aðrir
skólar, taki til starfa á kom-
andi hausti. Metaðsókn er að
fíestum skólum og eru fram-
haldsskólarnir á Akureyri eng-
Dótturfyrirtæki Álafoss í Þýskalandi:
Selt úr þrotabúinu
- ágæt lausn segir skiptaráðandi
Sölufyrirtækið Álafoss Island
Sport Handel, dótturfyrirtæki
Álafoss í Þýskalandi, hefur nú
verið selt úr þrotabúi Álafoss.
Kaupendur eru framkvæmda-
stjóri fyrirtækisins og starfs-
maður þess, hvorutveggja
Islendingar. Gengið var frá
kaupunum í vikubyrjun.
Álafoss Island Sport Handel er
staðsett í Ludvigsburg. Því var
ekki lokað við gjaldþrot Álafoss
en því hefði að líkindum verið
lokað ef ekki hefði komið til
sölunnar.
Ásgeir Pétur Ásgeirsson,
skiptaráðandi í þrotabúi Álafoss,
segir að þetta hafi verið ágæt
lausn því ef fyrirtækinu hefði ver-
ið lokað hefði ekkert fengist.
„Þetta var hagkvæmt fyrir alla
aðila. Petta er fyrirtæki nteð ágæt
sambönd á þessum markaði,"
segir Ásgeir.
Hann segir að með þessari sölu
hafi Landsbankinn fengið um 10
milljónir en þrotabúið um eina
milljón króna en annars hefði
ekkert fengist ef fyrirtækið hefði
verið látið fara í gjaldþrot. JÓH
Veðrið á morgun:
suðvestan átt
og bjart norðanlands
Hæg
Mjög hvöss sunnanátt var á
öllu landinu í gær; ekki síst á
Norðurlandi að sögn Ásdísar
Auðunsdóttur, veðurfræðings
á Veðurstofu íslands. Meðal-
vindhraði á Akureyri fór upp í
6 stig en fellibylurinn „Bob“
var þó fjarri góðu gamni. Þar
var að verki lægð sem mynd-
aðist á Grænlandshafi en mun
grynnast í dag og þokast norð-
vestur.
Að sögn Ásdísar á að vera
norðvestankaldi, 4-6 vindstig og
skúrir mest allan daginn í dag en
á morgun verður hæg suðvestan
átt og bjart norðanlands.
„Veðrið verður gott um mest-
allt landið á laugardag og sérlega
gott á Norðausturlandi. Hiti
verður um 15 gráður.
Á sunnudag mun nokkuð öflug
lægð á Grænlandshafi valda
sunnanstrekkingi um allt land. Þá
verður skýjað og kannski dálítil
rigning annað slagið en nokkuð
hlýtt,“ sagði Ásdís í samtali við
Dag. GT
in undantekning þar á. Við
Menntaskólann á Akureyri
verða á sjöunda hundrað
nemendur og ríflega 1100 í
Verkmenntaskólanum. Heima-
vist MA er fyrir löngu fullsetin
en þar verða í vetur um 160
nemendur. Að sögn Tryggva
Gíslasonar, skólameistara,
þurfti að neita nokkrum tugum
nemenda, sem fengu inni í
skólanum, um heimavist. Eins
og sést hefur í Degi síðustu
daga hefur skólafólk mikið
auglýst eftir leiguhúsnæði, og
er það nokkru meira en undan-
farin ár. Að sögn kunnugra er
framboðið hins vegar litlu
minna en verið hefur. í síðustu
viku auglýstu um 50 aðilar í
Degi eftir leiguhúsnæði, mest
skólafólk.
Tryggvi sagði í samtali við
blaðið að húsnæðismál nemenda
hefðu oft verið í verra ástandi.
„Fyrir einum 6-8 árum var ntun
erfiðara að fá herbergi úti í bæ en
við höfum orðið að neita tleiri
nemendum um skólavist og
heimavist en nokkru sinni áður,“
sagði Tryggvi en 50 nemendum
var neitað um skólavist. Nýnem-
ar á fyrsta ári hafa aldrei verið
fleiri í MA, eða 210, og alls er
búist við að nemendur verði 620-
630 talsins.
Aðspurður unt skýringu á
mikilli aðsókn að MA sagði
Tryggvi: „Það er ekki bara að
gott orð fari af Menntaskólanum
heldur að nemendur sækja nú
miklu meira í fratnhaldsnám af
því þeir eiga ekki annarra kosta
völ. Núna fara nær öll 16 ára ung-
menni í framhaldsnám í stað
tveggja þriðju hluta þeirra fyrir
um 10 árum síðan. Af þessum
sökum eru skólarnir að springa.“
Menntaskólinn á Akureyri er
að komast í þrot í húsnæðismál-
um og í fyrsta skiptið í sögu skól-
ans þarf að leigja kennsluhús-
næði því í vetur verða tvær
kennslustofur leigðar í íþrótta-
höllinni. Pá verða kjallaraher-
bergi í gamla skólahúsinu notuð
til kennslu sem upphaflega voru
hugsuð sem geymsluherbergi.
„Byggingaframkvæmdir eru í
undirbúningi og góðar vonir um
að hafist verði handa innan tíðar.
Héraðsnefnd Eyjafjarðar fjallar
um málið 6. september og von-
andi fæst fjármagn á næsta ári til
hönnunar svo hægt verði að byrja
árið 1993,“ sagði Tryggvi.
Kennsla hefst í MA 1. október
nk. og að sögn Tryggva hafa
kennarastöður verið fullmannað-
ar en sjaldan eða aldrei hafi það
verkefni verið eins erfitt og í ár.
Eins og áður sagði verða
nemendur Verkmenntaskólans
ríflega 1100 í vetur, eða 1113
nákvæmlega. Að sögn Bernharðs
Haraldssonar, skólameistara, eru
það hundrað fleiri nemendur en í
fyrra og því metaðsókn í VMA.
Nýnemar á fyrsta ári eru 317
talsins. Verkmenntaskólinn verð-
ur settur 3. september nk. og
kennsla hefst daginn eftir. Verið
er að ganga frá kennararáðning-
um fyrir veturinn og sagði Bern-
harð að þau mál verði komin í
höfn í tæka tíð. Innritun í öld-
ungadeild stendur yfir en óvíst
hversu margir verða skráðir.
-bjb
Kj ararannsóknarnefnd:
Kaupmáttur jókst um 4%
á árs tímabili
í gær kynnti Kjararannsókna-
nefnd niðurstöður sínar fyrir
fyrsta heila árið frá gerð þjóð-
arsáttarsamninganna. Sam-
kvæmt upplýsingum nefndar-
innar hefur þjóðarsáttin skilað
nokkrum kjarabótum þar sem
heildaraukningin á kaupmætti
á árstímabili frá janúar 1990 er
tæp 4%. Ef bornir eru saman
fyrsti ársfjórðungur 1990 og
fyrstu þrír mánuður þessa árs
hækkaði greitt tímakaup land-
verkafólks í Alþýðusambandi
íslands meira en framfærslu-
vísitalan og mánaðartekjur
hækkuðu einnig umfram verð-
bólgu. Á sama tíma og kaup
hækkaði bötnuðu kjör land-
verkafólks innan ASI einnig á
þann hátt að meðalvinnu-
tími styttist að meðaltali um
hálfa klukkustund á viku.
Kaupmáttur stóð nánast í stað
fyrstu þrjá ársfjórðunga sl. árs en
jókst síðan nokkuð á þeim fjórða
og enn frekar á fyrstu þremur
mánuðum þessa árs.
Niðurstöður Kjararannsóknar-
nefndar ná til landverkafólks inn-
an ASÍ, sem er verkakarlar,
verkakonur, iðnaðarmenn,
afgreiðslukarlar, afgreiðslukon-
ur, skrifstofukarlar og skrifstofu-
konur.
Mánaðartekjur þessara starfs-
stétta, þ.e. heildarlaun með yfir-
vinnu, hækkuðu um 9% frá fyrsta
ársfjórðungi í fyrra til sama tíma
í ár. Framfærsluvísitalan, verð-
bólgan, hækkaði um tæp 6% og
jókst kaupmáttur heildartekna
því um 3%.
Meðalvinnutími styttist á sama
tíma og því jókst kaupmáttur
heildartekna minna en kaupmátt-
ur greidda tímakaupsins sem
jókst um 10% eða 4% umfram
framfærsluvísitölu.
Lengstan vinnutíma á fyrsta
ársfjórðungi ársins 1991 hafa
verkakarlar eða 49,4 stundir á
viku að meðaltali, sem er hálfri
klukkustund minna en ári áður.
Fæstar vinnustundir á viku hafa
skrifstofukonur eða 40,2 klukku-
stundir að meðaltali, sem er 0,7
stunda aukning frá í fyrra. GT