Dagur - 24.08.1991, Side 2
2 - DAGUR - Laugardagur 24. ágúst 1991
Fréttir
Hrútaflörður:
Skólabúðir að Reykjuin
njóta stöðugt
vaxandi vinsælda
- Mbókað fram til ársins 1993
Frá árinu 1988 hefur Héraðs-
skólinn að Reykjum í Hrúta-
fírði gegnt nýju og svolítið
óvenjulegu hlutverki í íslenska
skólakerfínu. Aðsókn að
skólanum var orðin mjög
dræm vegna breyttrar skipan
skólamála sem stefndi mark-
visst að því að nemendur gætu
stundaö nám í heimabyggð
sem lengst. Einnig stuðlaöi
aukning á daglegum akstri
skólabarna til og frá skóla að
því að nemendum fækkaði
verulega.
Að Reykjum eru nú starfrækt-
ar skólabúðir fyrir nemendur af
Kraftlyftingar:
y Kári bætti
íslandsmetið
Kári Elíson, kraftlyftingamað-
ur á Akureyri, bætti eigið
Islandsmet í bekkpressu um
hálft kíló á minningarmóti um
Orm sterka Stórólfsson í
Reykjavík á fímmtudag.
Kári, sem keppir í 75 kílóa
flokki, lyfti 180,5 kg í bekkpressu
á mótinu. Halldór Sigurbjörns-
son úr Reykjavík reyndi við
íslandsmet Hjalta Árnasonar í
réttstöðulyftu og lyfti 402,5 kg en
tveir dómarar af þrem dæmdu
lyftuna ógilda, þriðji dómarinn
taldi hana þó gilda. EHB
öllu landinu til jafns við
skólaárið að því undanskildu að
lengra hlé er gert um áramótin
vegna skammdegisins. Fullbókað
er nú þegar hálft annað ár fram í
tímann. Pað eru fyrst og fremst
nemendur 7. bekkjar (12 ára)
sem koma og eru í eina viku frá
mánudegi til föstudags. Börnin
koma víða að en þó flest frá
Norðurlandi og hafa nemendur
flestra skóla á Eyjafjarðarsvæð-
inu dvalið þar en dræmust er
aðsókn af Austurlandi og veldur
þar fjarlægðin mestu um.
í skólabúðum fara börnin í
fjöruskoðun, skoða dýr og gróð-
ur og fisk ef til næst, skoða og
skilgreina verkefni í víðsjám og
smásjám og heimsækja Byggða-
safn Húnvetninga og Stranda-
manna og skila skýrslu um það
sem þar ber fyrir augu. Einnig
skipa heimilisstörf stóran sess í
dagskránni og m.a. læra þau að
leggja á borð og að sjálfsögðu fá
íþróttir sinn tíma. Á kvöldin fara
fram kvöldvökur sem yfirleitt eru
skipulagðar heima.
Fyrstu börnin sem koma í
haust eru nemendur úr 9. og 10.
bekk frá Noregi, Finnlandi og
Svíþjóð ásamt jafnöldrum þeirra
úr Reykjavík en milli þessara
nemenda hafa farið fram vina-
tengsl t.d. í formi bréfaskrifta.
Meðalfjöldi nemenda að Reykj-
um er um 70 en hægt er að hýsa
allt að 90 nemendur ásamt kenn-
urum. Skólastjóri að Reykjum er
Bjarni Aðalsteinsson GG
Ályktun þingflokks og
Landsstj órnar Framsóknarflokksins:
Aðfór að velferðarkerfimi
Fundur þingfokks og lands-
stjórnar Framsóknarflokksins
sem haldinn var á Húsavík sl.
fímmtudag fordæmdi aðför
ríkisstjórnar Davíðs Oddsson-
ar að velferðarkerfí því sem
Islendingar hafa búið við og
sátt hefur verið um í þjóðfélag-
inu.
í ályktun er fundurinn sendi
frá sér segir: „Fundurinn lýsir yfir
stuðningi við ráðdeild í ríkis-
rekstrinum, en leggur á það
áherslu að það stríðir gegn rétt-
lætiskennd íslendinga, að álögur
og óbein skattheimta hinnar nýju
ríkisstjórnar beinist fyrst gegn
sjúkum og einnig ungu fólki.
Fundurinn átelur jafnframt harð-
lega þá gjaldþrotastefnu sem
ríkisstjórnin virðist fylgja. Það er
ein af meginskyldum ríkisvalds-
ins að stuðla að fullri atvinnu.
Stjórnvöldum ber hverju sinni að
styðja við atvinnuvegina í þeim
efnahagssveiflum sem óhjá-
kvæmilega verða í einhæfu
atvinnulífi okkur íslendinga.
Stefna ríkisstjórnarinnar sem
m.a. kemur fram í miklum vaxta-
hækkunum mun leiða til nýrra
erfiðleika í atvinnulífinu og stór-
felldrar eignatilfærslu til fárra
peningamanna, með mjög alvar-
legum afleiðingum fyrir þjóðfé-
lagið allt.
Jafnframt er augljóst að ríkis-
stjórnin er fjandsamleg skynsam-
legri byggðastefnu. Framsóknar-
flokkurinn mun hér eftir, sem
hingað til berjast fyrir jafnrétti
allra þegna landsins og byggða
ásamt stöðugleika og aukinni
fjölbreytni í atvinnulífi. Flokkur-
inn mun leggjast af alefli gegn til-
raunum frjálshyggjumanna til að
ganga af byggðastefnunni
dauðri.“ IM
Sláturhús KE A
Það starfsfólk sem unnið hefur á sláturhús-
inu undanfarin haust og ætlar að vinna í
sláturtíð sem hefst 11. september er beðið
að láta skrá sig sem fyrst á skrifstofu slátur-
hússins í síma 30443.
^mmmmmmmmmmmmmmm^^mmmmmmm^
í gær undirrituðu Halldór Jónsson, bæjarstjóri á Akureyri, og Aðalsteinn Sigurgeirsson, formaður íþróttafélagsins
Þórs, endurskoðaðan rammasamning um byggingu félagsaðstöðu á Þórssvæðinu. Samkvæmt samningnum mun
Akureyrarbær styrkja þessa framkvæmd um tæpar 35 milljónir króna á næstu fimm árum. Mynd: Goiii
Aðalfundur Landssambands sauðflárbænda að Hallormsstað:
„Býst við að kippur komi í sölu-
málin síðustu daga mánaðarins“
- segir Jóhannes Kristjánsson, formaður
Landssambands sauðíjárbænda
Aðalfundur Landssambands
sauðfjárbænda hefst að Hall-
ormsstað um hádegisbilið nk.
mánudag og stendur í tvo
daga. Að sögn Jóhannesar
Kristjánssonar bónda að
Höfðabrekku í Mýrdalshreppi
og formanns landssambandsins
verða þar ýmis stór mál
á dagskrá eins og framtíð ullar-
iðnaðarins, samdrátturinn í
sauðfjárbúskapnum og
búvörusamningurinn. Gestur
fundarins verður Halldór
Blöndal landbúnaðarráðherra.
Fundir Landssambands sauð-
fjárbænda hafa oft verið langir og
fjörugir en einnig málefnalegir
enda mjög skiptar skoðanir með-
al bænda um framtíð sauðfjár-
búskapar á íslandi. Einkum
munu það vera bændur á Vestur-
landi og Vestfjörðum sem
óánægðastir munu vera með sinn
hlut en þeir eru að verða komnir
í um 20% uppkaup af sauðfjár-
framleiðslunni. Uppkaup á full-
virðisrétti til framleiðslu sauð-
fjárafurða hafa náðst að fullu á
Vestfjörðum, Austur-Skaftafells-
sýslu og Eyjafirði en annars stað-
ar eins og t.d. í Húnvatnssýslum
hefur sáralítið verið selt. Á
Suðurlandi hefur sala verið um
7% en bændur hafa frest til 31.
ágúst nk. til sölu en eftir þann
tíma verða þeir að sæta niður-
skurði. Jóhannes Kristjánsson
býst við að nokkur kippur komi í
sölumál þessa daga fram að mán-
aðamótum þegar bændur átti sig
almennt á því hver staðan er því
þeir bera minna úr býtum ef
þeir verða að sæta skerðingu. I
dag er fjöldi sauðfjár á íslandi
um 440 þúsund en var flest um
917 þúsund á árunum 1988 til
1989.
Daltré hf. á Dalvík:
Skipulagt sumarhúsahverfi að Laugahlíð
Trésmiðjan Daltré hf. á Dalvík
hóf í vor framleiðslu á surnar-
húsum. Framleiðslan hefur
farið fremur hægt af stað en þó
hafa verið seld tvö hús í sumar
og sala tveggja húsa er í sjón-
máli. Fyrsta húsið var selt að
Stóru-Giljá í Austur-Húna-
vatnssýslu en hitt að Bakka í
Svarfaðardal.
Daltré hf. hefur látið skipu-
leggja sumarhúsaland í landi
Laugahlíðar í Svarfaðardal og
hefur Skipulag ríksins samþykkt
teikningar af svæðinu. í landi
Laugahlíðar er heitt lindarvatn
sem m.a. er notað í Sundskála
Svarfdæla en ókannað er hvort
það sé framkvæmanlegt að nýta
það vegna sumarhúsa sem vænt-
anlega rísa þarna í framtíðinni.
Fundur þingflokks og Lands-
stjórnar Framsóknarflokksins:
Sigrí umbótaaflauna fagnað
Fundur þingflokks og lands-
stjórnar Framsóknarflokksins
sem haldinn var á Húsavík sl.
fímmtudag ályktaði um ástand-
ið í Sovétríkjunum og stjórn-
málasamband við Eystrasalts-
ríkin. Einn þingmanna fíokks-
ins, Jóhannes Geir Sigurgeirs-
son, er nú á ferð um Eystra-
saltslönd.
f ályktun fundarins segir að
hann fagni sigri umbótaaflanna í
Sovétríkjunum og treysti því að
lýðræðis- og framfaraþróun fái
nú að halda áfram ótrufluð af
sjónarmiðum og hótunum harð-
línumanna hins gamla kerfis.
í ljósi atburða síðustu sólar-
hringa telur fundurinn sjálfsagt
að viðurkenna nú einnig sjálf-
stæði Lettlands og Eistlands, eins
og Litháen, og taka upp stjórn-
málasamband við Eystrasaltsrík-
in öll. IM
Sumarhúsin eru 36mað stærð
og kosta tilbúin um tvær millj-
ónir. Einnig er hægt að fá húsin
afhent þar sem einingar eru
klæddar, einangraðar og raka-
varðar og kosta þá um eina og
hálfa milljón en fokhelt kostar
húsið rúmar 1.300 þús. kr.
Stefán Björnsson hjá Daltré
hf. segist vera hæfilega bjartsýnn
á sölu á sumarhúsum en ef efna-
hagur almennings versnar gæti
áhrifa þess mjög fljótt í þessum
iðnaði. Daltré er með tvö íbúðar-
hús í byggingu á Dalvík og er
annað þeirra í félagslega kerfinu
en mikið hefur verið að gera í
sumar í viðhaldi og breytingum á
gömlum húsum. GG
Þetta sumarhús Daltrés hf. er nú
komið að Stóru-Giljá. Mynd: gg