Dagur - 24.08.1991, Page 3
Fréttir
Laugardagur 24. ágúst 1991 - DAGUR - 3
Mengunarrannsóknirnar á Heiðarijalli:
Eigendur Eiðis kreí]ast
hárra skaðabóta
Mengunarrannsóknir á vegum
umhverfisráðuneytisins standa
yfir á Heiðarfjalli á Langanesi,
en mikið sorp er urðað á fjall-
inu frá þeim tíma er þar var
starfrækt radarstöð á vegum
bandaríska hersins.
Fiskeldismenn sem ráku haf-
beitarstöð í landi Eiðis á Langa-
nesi urðu að hætta rekstri stöðv-
arinnar vegna mengunarhættu frá
öskuhaugum á Heiðarfjalli. Þeir
hafa frá árinu 1989 gert kröfur urri
að rannsóknir færu þar fram og
krafist skaðabóta vegna hafbeit-
arstöðvarinnar sem þeir urðu að
loka.
Radarstöð var rekin á Heiðar-
fjalli frá miðjum 6. áratugnum
fram til ársins 1964, en þá eyði-
lagðist önnur ratsjáin í ofviðri.
Næstu sex árin var einungis starf-
rækt fjarskiptastöð á fjallinu, en
þar dvöldu ávallt á annað hundrað
hermenn í einu til 1970. Talið er
að mikið af sorpinu frá stöðinni
geti verið skaðlegt lífríkinu, m.a.
leikur grunur á að þar sé um að
ræða eiturefnið PCB, að sögn
Sigurðar R. Þórðarsonar, eins
eiganda Eiðis.
Jörðin Eiði á stóran hlut af
Heiðarfjalli. Sigurður segist
ekkert skilja í þeirri leynd sem
hvíla eigi yfir athugunum
umhverfisráðuneytisins á fjall-
inu, og segir að margir fjölmiðla-
menn hafi lýst áhuga sínum á að
fylgjast með rannsóknum
þessum. Sigurður segir að eig-
endur hafbeitarstöðvarinnar telji
sig eiga rétt á að krefjast hárra
skaðabóta vegna mengunar á
fjallinu, sem reiknað er með að
berist í sjó að fáum árum liðnum
og komi í veg fyrir rekstur fisk-
eldisstöðvar í landi Eiðis. EHB
Fjallalamb hf.
á Kópaskeri:
24 þúsund
Ijár slátrað
í haust
Engin sumarslátrun hefur farið
fram í sumar hjá sláturhúsinu
Fjallalambi hf. á Kópaskeri en
haustslátrun hefst 11. septem-
ber nk. sem er svipaður tími og
í fyrra. Hjá Fjallalambi hf. er
slátrað fé sem kemur úr Norð-
ur-Þingeyjarsýslu þ.e. frá
svæðinu milli Jökulsár á Fjöll-
um og Bakkafjarðar.
Garðar Eggertsson fram-
kvæmdastjóri segir að búist megi
við frekar vænu fé af fjalli eftir
svona gott árferði eins og verið
hefur í sumar en ekki sé víst að fé
sé fremur feitt en ýmsir hafa ver-
ið að gera að því skóna. Hjá
Fjallalambi hf. verður slátrað
rúmlega 24 þúsund fjár á þessu
hausti sem er svipaður fjöldi og
haustið 1990. Fé af Hólsfjöllum
verður að hluta til slátrað á
Kópaskeri en einnig verður fé
þaðan slátrað austur á Fossvöll-
um og eins á Húsavík. GG
Falleg hellulögn glæÖir
umhverfiÖ nýju lífi
- við höfum það sem til þarf -
20 x 10
10 x 10
20 x 20
30 x 30
40 x 40
NÝTF
40 x 20
20x20
STUBBUR - KUBBUR
Stubbur og Kubbur eru hentugir einir sér
í göngustíga, sólpalla og bílastæði.
Einnig má nota þá með Krosssteini, Hell-
um og Stóra-Kubbi og búa þannig til
ýmis form og mynstur. Möguleikarnir á
samsetningu eru nánast ótakmarkaðir.
Stubbur og Kubbur eru framleiddir í
þremur litum, gráu, svörtu og hvítu.
HELLUR - STÓRI-KUBBUR:
Hellur og Stóri-Kubbur henta í hvers
kyns hellulagnir, stórar og smáar. Hellur
og Stóri-Kubbur, ásamt Krosssteini,
Stubbi og Kubbi mynda eina heild sem
raða má eftir hugmyndum hvers og eins.
Hellur og Stóri-Kubbur fást í gráu, svörtu
og hvítu.
KROSSSTEINN:
Krosssteinninn hentar einn sér í bíla-
stæði, sólpalla og göngustíga. Hann
raðast einnig á ýmsa vegu með Hellum,
Stóra-Kubbi, Stubbi og Kubbi.
Strandgata 13 á Akureyri:
Endumýjað utan sem innan
Ásýnd Akureyrar breytist
hægt og hægt. Ný hús rísa,
gömul hús eru rifín en önnur
hljóta náð fyrir augum skipu-
lagsyfírvalda. I dag er verið að
endurbyggja Strandgötu 13.
Tryggvi Pálsson, fasteignasali,
og kona hans eru nýir eigendur
hússins að Strandgötu 13 sem
mjög er komið til ára sinna.
„Afar leiðinlegt er að sjá
gömlu húsin á Akureyri grotna
niður. Ástæðulaust var með öllu
að rífa húsið að Strandgötu 13 og
því var ráðist í endurbætur. Allir
burðarviðir og þiljur, utan sem
innan, eru í besta lagi. Við höf-
um skipt um klæðningu á þaki
sem útveggjum. Útlit hússins er
ekki sem fyrirhugað var. Ég hef
þurft að gefa eftir smátt og smátt
vegna þess að byggingayfirvöld
samþykktu ekki þær útlitsbreyt-
ingar sem ég hafði farið fram á.
Síðast var ekki samþykkt að setja
franska glugga í húsið. Ég fæ þó
að setja panel á milli glugganna. í
upphafi var ráðgert að setja
panel utan á húsið en ekki báru-
járn. Búið er að rífa niður alla
innveggi hússins. Uppistöður
standa eftir og nú er að innrétta
húsið að nýju. Allar lagnir verða
endurnýjaðar. Húsið verður
klætt eldvarnarplötum að innan
og gert hið vistlegasta. Það er
spennandi að takast á við þetta
verkefni og þegar húsið verður til-
búið verður það leigt út fyrir
atvinnustarfsemi af ýntsu tagi.
Að vori verða skúrarnir norðan
hússins rifnir og lóðin endur-
skipulögð,“ sagði Tryggvi
Pálsson, fasteignasali. ój
Miklar endurbætur standa nú yfir á húsinu að Strandgötu 13 á Akureyri.
Mynd: Golli
40 x 40
63 x 18
50 x 20
LAUFSTEINN:
Laufsteinninn er hentugur í bílastæði og
göngustíga.
KANTSTEINAR:
Kantsteinarnir forma blómabeð og
afmarka hellulögn.
TRÖPPUSTEINN:
Tröppusteinana má nota í hvers kyns
tröppur, og tengja hann við hellulögn.
40 x 60
NYTT
40 x 40
GRASSTEINN:
Grassteinninn hentar í bílastæði eða
þar sem aka þarf yfir grasflöt.
BLÓMAKASSAR:
Blómakassarnir falla inn í hellulögn og
gefa henni glæsilegt útlit. Þá má tengja
saman á ýmsan hátt og raða þeim hverj-
um ofan á annan.
Hafið samband og við sendum litprentaðan upplýsingabækling.
MÖL& SANDUR
v/Súluveg Akureyri, Sími 96-21255
!