Dagur - 24.08.1991, Page 14
14 - DAGUR - Laugardagur 24. ágúst 1991
/------------------------------------
Bíletsýning
verður í sýningarsal okkar að Bifreiðaverkstæði
Sigurðar Valdimarssonar, Óseyri 5,
laugardaginn 24. ágúst og sunnudaginn 25.
ágúst frá kl. 14-17 báða dagana.
Koznið og reynsluakið!
Nissan Sunny Sedan 1600, 16
ventlavél, rafmagn í rúðum,
sentral-læsingar, upphituð sæti,
svo eitthvað sé nefnt.
o NI5SAN
NI55AIM
Popp
Magnús Geir Guðmundsson
Tvennir stórtónleikar
í vændum í 1929
Það er óhætt aö segja að eftir
opnun skemmtistaðarins 1929 i
mars hafi hlaupið mikið líf í
skemmtanahald Akureyringa. Er
það ekki hvað síst að þakka því
hve eigandi staðarins, Þráinn
Lárusson, hefur verið ódeigur við
að bjóða upp á lifandi tónlist og
það næstum því um hverja helgi.
Hefur raunin líka orðið sú að
bæjarbúar hafa kunnað vel að
meta framtakið og sótt staðinn
grimmt. Og þótt Sjallinn hafi
komið til sögu á ný virðist 1929
standa sig fyllilega í samkeppn-
inni, a.m.k. enn sem komið er.
Beaten Bishops verða í 1929 3. september.
En það hefur ekki bara verið
um líflegt skemmtanahald í 1929
að ræða, heldur einnig gott tón-
leikahald. í þeim efnum er einmitt
von á góðu nú á næstunni. Er
annars vegar um að ræða að
GCD verða loksins með tónleika
hér í bæ. Þeir verða fimmtudag-
inn 29. ágúst og er víst kominn
tími til. Hafa þeir félagar verið að
spila út um allar trissur en ein-
hverra hluta vegna hefur koma
þeirra hingað tafist þar til nú.
Hins vegar er svo um að ræða
tónleika 3. september þar sem
fram munu koma þrjár hljóm-
sveitir: Point Blank, Todmobile
og Sálin hans Jóns míns en eins
og kemur fram hér annars staðar
á síðunni, eiga þessar hljóm-
sveitir lög á lcebreakers plötunni,
sem nú hefur verið send til
Skandinavíu í kynningarskyni.
Ekki þarf að fara mörgum orðum
um að þessir tvennu tónleikar
eru mikill viðburður og því
ástæða til að hvetja alla sem
geta til að mæta.
Eins og áður segir hafa þeir
GCD menn; Bubbi, Rúnar, Berg-
þór og Gunnlaugur verið duglegir
við tónleikahald í sumar og verða
betri og betri með hverjum tón-
leikum að sögn þeirra sem séð
hafa. Það er því eflaust von á
góðu frá þeim félögum. Sama
má líka segja um Todmobile og
Sálina/Beaten Bishops að þar
mun ekki stuðið skorta og þá
mun jassinn hjá Friðriki Karlssyni
og Point Blank eflaust ylja
mörgum. Sem sagt tvennir stór-
tónleikar í vændum í 1929.
Einnig sýnum við Subaru Legacy og
Justy, ásamt öðrum gerðum af Nissan.
Frægðardraumar endurvaktir
Komið og kynnið ykkur kjör og
ræðið við sölumenn.
Bifreiðaverkstæði
Sigurðar Valdimarssonar
Óseyri 5 - Sími 22520 - Akureyri.
Ingvar Helgason hf. Sævarhöfða 2.
ser-
Afgreiðslustarf
Óska eftir starfskrafti til afgreiðsfustarfa
verslun. 70-100% vinna.
Upplýsingar um nafn, síma, aldur og fyrri störf send-
ist til afgreiðslu Dags merkt „Vinna“.
M Hjúkrunar-
fræðingar
Sjúkra- og dvalarheimilið Hornbrekka, Ólafsfirði,
auglýsir eftir hjúkrunarforstjóra.
Upplýsingar um starfið og starfskjör (húsnæði og
fríðindi) veitir forstöðumaður, Kristján Jónsson, sími
96-62480.
heimili aldraðra
Dalb
Forstöðumaður óskast
til starfa í eitt ár
að Dalbæ, dvalarheimili aldraðra á Dalvík.
Óskað er upplýsinga um menntun og fyrri störf.
Umsóknarfrestur er til 15. september 1991.
Umsóknir skulu sendar til Ragnheiðar Sigvaldadóttur,
Hólavegi 7, 620 Dalvík.
Upplýsingar veita Ragnheiður Sigvaldadóttir í síma
96-61218 og Óskar Gunnarsson í síma 96-61658.
Stjórn Dalbæjar.
Það hefur löngum verið takmark
okkar, sem byggjum þessa litlu
eyju norður í Dumbshafi langt frá
hringiðu heimsins, að skapa okk-
ur nafn og öðlast frægð í þessum
stóra heimi. Hafa tilraunir okkar í
þá átt verið af ýmsum toga og
með ýmsum árangri.
í íþróttum höfum við eignast
þó nokkra einstaklinga sem öðl-
ast hafa frægð og frama; menn
eins og Jón Páll, Einar Vilhjálms-
son og Ásgeir Sigurvinsson að
ógleymdum Jóhanni Hjartarsyni.
Fegurð kvenna landsins hefur
borið hróður þess víða og eru
þær ófáar íslensku stúlkurnar
sem náð hafa frama erlendis í
fegurðarsamkeppnum eða orðið
þekktar fyrirsætur, samanber
Hófí, Lindu, Maríu Guðmunds-
dóttur, Önnu Björns o.fl. o.fl.
í tónlistinni hafa málin hins
vegar nær alla tíð gengið heldur
erfiðar fyrir sig, eða allt þar til
Mezzoforte sló í gegn með
Sprett úr spori (Garden party) í
Bretlandi og svo Sykurmolarnir
með sinni fyrstu plötu þar á eftir.
En auðvitað má ekki gleyma því
aö í klassísku deildinni höfum við
átt marga söngvara sem frægðar
hafa notið á erlendri grund og
nægir þar að nefna Stefán ís-
landi, Maríu Markan og svo auð-
vitað nú síðast Kristján Jóhanns-
son, sem er víst að verða mestur
og bestur af öllum tenórum, ef
marka má hann sjálfan.
í poppinu gekk hvorki né rak
lengst af eins og áður segir og
þótt menn rembdust líkt og rjúp-
an við staurinn; syngju á ensku
og stældu allar stóru útlensku
hljómsveitirnar, þá kom frægðin
ekki. Enda fór svo aö menn
hættu að mestu að syngja á
ensku og minnkuðu stælingarn-
ar. Hins vegar í kjölfar velgengni
Sykurmolanna, en eins og kunn-
ugt er varð reyndar hlé á henni
með annarri plötunni sem seldist
illa, eygðu menn aftur von um
frekari útflutning á íslenskri
tónlist. Icebreakers er nýjasta
viðleitnin í þessa átt en ætlunin
með útgáfu plötunnar er að
kynna það helsta sem er að ger-
ast í íslensku poppi, auk þess að
vera viss stökkpallur fyrir þrjá af
flytjendunum í Skandinavíu en
plötur með þeim koma þar út inn-
an skamms. Eru þetta Friðrik
Karlsson með plötuna Point
Blank, Todmobile og Sálin hans
Jóns míns, Beaten Bishops eins
og þeir kalla sig á ensku, með
Hver er draumurinn eða Where’s
my destiny. Auk þessara þriggja
eiga lög á plötunni Bubbi
Morthens, Mezzoforte, Eric
Hawk (Eiríkur Hauksson),
Angels & Devils (Rikshaw), Artic
The Clash
Líkt og margar aðrar hljómsveitir,
sem getið hafa sér frægðarorð,
en hætt síðan, er nú The Clash að
fá sín frægðarverk endurútgefin í
formi smáskífukassa. Er, nánar
tiltekið, um að ræða kassa í tak-
mörkuðu upplagi sem geyma
mun öll smáskífulög hljómsveit-
arinnar. Mun reyndar líka um að
ræða útgáfu á breiðskífu með
lögunum. Munu smáskífurnar í
kassanum vera í sínum upp-
runalega búningi. í október er
svo von á myndbandi með ævi-
sögu The Clash, þar sem áður
óséðar uppákomur í sjónvarpi
birtast auk viðtala.
The Cure
Nú er nýlega komið á markað
geisladiskasafn með poppsveit-
inni bresku The Cure. Réttara er
þó að segja söfn, því um tvo
kassa er að ræða með samtals
Orange (Ný dönsk) og Stefán &
Eyfi (með Nínu).
Er ekki hægt að segja annað
en að þessi nýja útflutnings-
tilraun sé virðingarverð. Með
framförum í upptökumálum sem
orðið hafa hér á landi nú í seinni
tíð, en þau mál hafa löngum ver-
ið stærsti Ijóðurinn við íslenska
tónlist, erum við að verða vel
samkeppnisfær. Þessi plata er
því vel tímabær og er vonandi að
hún skili einhverjum árangri.
hvorki fleiri né færri en 12
diskum. Innihalda þessir kassar
allar plötur hljómsveitarinnar að
tveimur undanskildum, þeirri
nýjustu Mixed up og Entreat.
Mixed up, sem er safn endurunn-
ins efnis með Cure, er hins vegar
endurútgefin samhliða þessari
nýju útgáfu og það líka í kassa
með samtals fimm diskum.
U2
Hér koma nýjustu fregnir af Bono
og félögum í stórsveitinni írsku
U2 og eru þær af gleðilegra tag-
inu fyrir poppunnendur. Nýja
platan með U2 er nefnilega
væntanleg í október og fyrsta
smáskífan af henni mun koma út
nú í byrjun september eða um
hann miðjan. Hljómsveitin mun
síðan snemma á næsta ári hefja
heljarmikla heimsreisu sem áætl-
að er að geti staðið í allt að tvö
ár. Meira um þetta síðar.
Friðrik Karlsson á tvö lög á lcebreakers eins og sex aðrir flytjendur.
Hitt og þetta