Dagur - 24.08.1991, Qupperneq 15
Laugardagur 24. ágúst 1991 - DAGUR - 15
Toyota Camry.
Bílasýningin í
Frankfurt 1991
Opel Astra.
Volkswagen Golf III.
Bílasýningin í Frankfurt, sem
haldin er annað hvert ár verður
opnuð 12. september nk.
Margt nýrra bíla kemur þá fyr-
ir almenningssjónir að venju, og
má gera ráð fyrir mikilli aðsókn
að sýningunni nú, ekki síst í Ijósi
þess að bílasala hefur aldrei verið
jafnmikil í Þýskalandi og það
sem af er þessu ári.
Þarna verður t.d. kynntur nýr
skutbíll í 5-línunni frá BMW með
2,0 eða 2,5 lítra 6 strokka vélurn.
Chevrolet Corvette verður
þarna, að vísu í nær óbreyttu
útliti en með nýja 5,7 lítra 300
ha. vél.
Búist er við nýrri Lödu sent
heitir Forma, og sömuleiðis
Moskwitch Aleko, 4-dyra bíl
með 1,8 lítra díselvél.
Þá má nefna nokkra nýja jap-
anska, Mazda MX-3 sportbíll
með 1,9 lítra V-6 vél og Mazda
MX-6 með 2,5 lítra V-6 vél.
Mitshubishi sýnir Space Wagon
með framhjóladrifi, sem einnig
verður boðinn með aldrifi en
heitir þá Space Runner.
Nissan sýnir sportútgáfu af
Sunny-línunni sem heitir Nissan
100NX með 2,0 1 143 ha. vél og
ABS bremsum.
Toyota kynnir nýja útgáfu af
Cantry nteð 2,5 lítra V-6 vél.
Þá verða á sýningunni tveir af
metsölubílum í Evrópu, Opel
Astra, sem er arftaki Kadettsins
og svo.Volkswagen Golf 111.
Snemma á þessu ári hófst fram-
leiðsla nýrrar S-gerðar hjá Daimler-
Benz verksmiðjunum í Unter-
túrkheim skammt utan við Stutt-
gart í Þýskalandi. Þessi elsti bíla-
framleiðandi heims hefur um
áraraðir haft á sér orð fyrir tækni-
lega fullkomnun og afburða
aksturseiginleika og vandaðan
frágang í smáu og stóru. Síðustu
árin hefur þessi risi mátt þola
meira mótlæti en oft áður, sem
birst hefur í sífellt betri bílum frá
aðalkeppinautnum, BMW. Bíla-
sérfræðingar voru almennt sam-
mála um að BMW 750iL væri
betri bíll en Mercedes-Benz
560SEL og við slíkt gátu menn í
Stuttgart ekki unað. Hinn nýi S-
bíll átti því að vera svo tæknilega
fullkominn og vandaður að ekki
væri lengur neinn vafi á því hver
væri „stærstur og bestur“. Lík-
lega hefur Benz tekist það ætlun-
arverk því bíllinn er ekki einung-
is hlaðinn ótrúlegustu tækninýj-
ungum, heldur er hann gríðar-
stór, níðþungur og fokdýr.
S-Klassi
sem sía burt frjókorn og ýmis-
legt það sem veldur sumu fólki
ofnæmi, hliðarrúðurnar eru úr
tvöföldu einangrunargleri til að
draga úr hávaða og til að koma í
veg fyrir móðu innan á rúðunum
á köldum dögum. Tvö lítil prik
ganga upp úr afturhornunum
þegar sett er í bakkgír til að auð-
velda ökumanni að sjá ystu horn-
in á þessum stóra bíl. Hurðar-
læsingar eru með sérstöku hjálp-
arátaki svo ekki þarf annað en
leggja hurðirnar að stöfum.
Svona má lengi telja, bílasér-
fræðingar þóttust komast að því
að væri bíllinn keyptur með öll-
um fáanlegum búnaði væri burð-
argeta hans ekki nema ca. 350
kg. Þeð dugar að sögn þýskra fyr-
ir Kohl og frú, en farangur geta
þau lítinn haft með sér.
Rétt er að hafa sem fæst orð
um verðið en það er á bilinu 100-
190 þúsund mörk í Þýskalandi.
AKUREYRARBÆR
Dagvistardeild
Akureyrarbæjar
óskar eftir að ráða sem allra fyrst forstöðu-
mann við nýtt skóladagheimili að Hamri.
Fóstrumenntun er áskilin og reynsla við störf á
skóladagheimili og/eða kennslu mjög æskileg.
Umsóknarfrestur er til 30. ágúst nk.
Við getum veitt aðstoð við útvegun húsnæðis.
Allar nánari upplýsingar um starfið gefur deildar-
stjóri dagvistardeildar í síma 96-24600 kl. 10-12
virka daga.
Umsóknareyðublöð liggja frammi hjá dagvistar-
deild og hjá starfsmannastjóra Akureyrarbæjar
sem veitir upplýsingar um kaup og kjör.
Deildarstjóri dagvistardeildar,
Ingibjörg Eyfells.
S-bíllinn er fáanlegur með
nokkrum vélarstærðum, þ.ám.
6,0 lítra V-12 vél sem skilar yfir
400 hö. Þá eru í boði 4- og 5-
þrepa sjálfskiptingar, ABS/ASR
- sjálfvirkur búnaður sem kemur
í veg fyrir að hjól spóli, sjálfvirk
fjöðrunarstilling og sjálfvirk drif-
læsing. Bíllinn er á 16“ hjólum,
hefur innbyggða loftpúða sem
verja ökumann og farþega í
framsæti fyrir höggi og auk þess
er farþegarýmið afar sterkt. Loft-
ræstikerfið er búið sérstökum síum
Eiginmaður minn,
ALFREÐ KRISTENSEN,
lést 22. ágúst síðastliðinn á Fjórðungssjúkrahúsinu á
Akureyri.
Súsanna Kristensen.