Dagur - 05.09.1991, Blaðsíða 3

Dagur - 05.09.1991, Blaðsíða 3
Fimmtudagur 5. september 1991 - DAGUR - 3 Fréttir Mikið sunnanrok gerði í framdölum Eyjafjarðar aðfaranótt mánudagsins. Að Granastöðum er unnið að fornleifauppgreftri. í rokinu tók upp skúr er fræðimenn höfðu afnot af. Skúrinn fauk 15 metra og er ónýtur með öllu. Er inyndin var tekin höfðu fræðimennirnir fundið allt er lauslegt var í skúrnum nema eina frumteikningu. Á myndinni eru frá vinstri Bjarni Einarsson forn- leifafræðingur og Magnús Sigurðsson jarðfræðingur. Mynd: Hörður Akureyri: Leita verður eftir leigu- húsnæði fyrir dagheimili - er álit dagvistafulltrúa og formanns félagsmálaráðs bæjarins Ingibjörg Eyfells, dagvistafull- trúi Akureyrarbæjar, segir Ijóst að til þess að stytta fyrir- liggjandi biðlista eftir dag- heimilisplássum á Akureyri verði að leita eftir leiguhús- næði fyrir leikskóla handa 2-6 ára börnum, sem geti tekið til starfa um næstu áramót. Ingi- björg segir þetta enn brýnna S 1 Búið að tölvuskrá leiði kirkjugarðinum á Húsavík - merkilegt framtak Sigurðar Péturs Björnssonar, fyrrverandi útibússtjóra Á aðalsafnaðarfundi Húsavík- urkirkju sl. mánudagskvöld aibenti Sigurður Pétur Björnsson, fyrrverandi útibús- stjóri Landsbankans á Húsa- vík, sóknarnefnd að gjöf tölvu- skrá, sem hann hefur unnið yfir leiði í kirkjugarðinum á Húsavík. Tölvuskrána hefur Sigurður unnið upp á sitt ein- dæmi og stuðst við sérstakt forrit til þess arna. Þorsteinn Jónsson, fráfarandi sóknarnefndarmaður, segir að þetta verk Sigurðar sé umfangs- mikið og hann eigi skilið miklar og góðar þakkir fyrir það. Sigurður hefur unnið að þessu verki á undanförnum þrem árum og fékk tölvufróðan mann til þess að vinna fyrir sig forrit, sem hann gæti notað við skráninguna. Sigurður hefur ekki látið þar við sitja. Hann hefur einnig unn- ið sérstaka gjafa- og minninga- bók Húsavíkurkirkju, þar 'sem eru skrautritaðar allar gjafir sem kirkjunni hafa borist. Porsteinn segir meininguna að smíða gler- borð utan um bókina, en einnig verður til staðar ljósrit af henni sem almenningi gefst kostur á að fletta. A aðalsafnaðarfundinum í vik- unni bar margt á góma. Fram kom að ætiunin er að hægja á framkvæmdum á vegum safnað- arins á næsta ári, enda er nýlokið við þjónustuhús við kirkjugarð- inn, sem er orðið töluvert dýrt, kostar nú um 15 milljónir króna. Porsteinn sagði að barna- fræðsla við kirkjuna hafi verið rædd, en hún þykir ekki hafa gengið nægilega vel að undan- förnu og hefur kirkjan að ein- hverju leyti þurft að lúta í lægra haldi fyrir barnaefni Stöðvar 2. Björn Jónsson, sóknarnefndar- formaður, færði söfnuðinum að Sjávarútvegsdeildin Dalvík: gjöf silfurkaleik frá dætrum Jóns og Elínar á Laxamýri til minning- ar um þau hjónin. Sú breyting varð á sóknar- nefnd að Porsteinn Jónsson hætti og í stað hans var kjörinn Hafliði Jósteinsson. óþh vegna ákvörðunar um að fresta byggingu nýs leikskóla við Helgamagrastræti. Eins og fram kom í Degi í gær eru 212 börn á aldrinum 2-6 ára nú á biðlista eftir dagheimilis- plássi á Akureyri. Ingibjörg Eyfells bendir á að þessi tala taki einungis til þessa aldúrshóps, í raun sé biðlistinn lengri. Samkvæmt upplýsingum Sig- rúnar Sveinbjörnsdóttur, for- manns félagsmálaráðs, á bæjar- stjórnarfundi sl. þriðjudag, fæð- ast á bilinu 230-250 börn á Akur- eyri á ári. Sigrún sagði að 80-90% kvenna sæktu vinnu utan heimilis og yfir 90% karla og af þeim töl- um mætti vera Ijóst mikilvægi dagheimila í bænum. Sigrún segir að bygging nýrra dagheimila sé dýr úrlausn og í því ljósi að búið sé að fresta bygg- ingu leikskóla við Helgamagra- stræti verði að leita eftir leigu- húsnæði í bænum fyrir dagheimili og stytta þannig biðlista eftir dag- heimilisplássum. Á bæjarstjórnarfundi sl. þriðjudag kont frant sú skoðun bæjarfulltrúa að mikilvægt væri að leikskólinn við Helgamagra- stræti verði byggður á næsta ári og tekinn í notkun fyrir árslok. Félagsmálaráð samþykkti á fundi í síðasta mánuði að þar sem að leikskólinn væri tilbúinn til útboðs yrði ráðist í framkvæmdir á næsta ári og hann tæki til starfa fyrir árslok 1992. Ingibjörg Eyfells segir að ann- að stórt vandamál, sem stjórn- endur dagvistunarmála á Akur- eyri standi frammi fyrir, sé við- varandi fóstruskortur í bænum. Vitað sé þó af nokkrum nemend- um í fóstrunámi, sem muni skila sér að einhverju leyti til starfa í bænum. Ingibjörg segir erfitt að geta sér til um ástæður þess hve erfitt reynist að fá fóstrur til starfa. Þó ntegi fullyrða að léleg laun hafi þar eitthvað að segja. Ingibjörg getur þess að erfitt sé að ráða fólk í yfirmannastöður á dagheimilum. Sem dæmi hafi enginn sótt enn um forstöðu- mannsstöðu skóladagheimilisins í Hamri. óþh Sauðárkrókur: Undirskriftalisti vegna skóladagheimilis Birni Björnssyni, skólastjóra barnaskólans á Sauðárkróki, barst sl. mánudag í hendur undirskriftalisti frá rúmlega 40 foreldrum yngstu barna skólans, með áskorun þess efn- is að starfrækt yrði í vetur skóladagheimili fyrir börnin utan þess tíma sem þau eru ekki í námi. „Við erum að innrita 6 ára börn í dag og ég mun í leiðinni ræða við foreldra þeirra um þessi mál. Ef í ljós kemur að vilji fyrir þessu er almennur munum við að sjálfsögðu reyna að koma til móts við óskir foreldra. Annars hef ég lítið um þetta að segja annað en það, að búið er að skipuleggja allt vetrarstarf skólans svo áskorunin kemur alltof seint,“ sagði Björn í gær. Fyrir þrentur árurn síðan var starfrækt á vegum bæjarins eins- konar skóladagheimili á Sauðár- króki. Að sögn Björns var það þó eingöngu vegna þess, að kennslu í sex ára bekk, sem þá var ekki hluti skyldunáms, lauk urn klukk- an ellefu og hafa varð ofan af fvr- ir börtiunum frant að hádegi. Það sem foreldrarnir fara aftur á móti fram á í áskorun sinni, er skóla- dagheimili sem börnin gætu verið á fyt ir hádegi, en kennsla í 6 ára bekk samkvæmt stundaskrá kom- andi vetrar, er eftir hádegi. „Viö erum með þetta mál í biðstöðu þangað til rætt hefur verið við alla foreldra, en það ætti að verða á morgun,“ sagði Björn skólastjóri í gær. SBG Sextíu nemendur í tveimur deildum Kennsla viö Sjávarútvegsdeild- ina á Dalvík hófst í dag. Kennt er í tveimur deildum þ.e. stýri- mannadeild og fiskvinnslu- deild. Deildarstjóri er Omar Karlsson og nemendur hafa aldrei verið fleiri. Sjávarútvegsdeildin á Dalvík nýtur vinsælda. Deildin útskrifar æ fleiri nemendur ár hvert og í vetur verða nemendur í báðum deildum um sextíu. í stýrimanna- deildinni verða 34 þ.e. í námi fyrsta og annars stigs. „Nemendurnir koma víða að, en þó eru flestir af Norðurlandi. Erfitt hefur reynst að finna hús- næði fyrir aðkomufólkið, þá sér- staklega fjölskyldumennina. Heimavistin er full. Kennslan í vetur er hefðbundin, en breyting verður á næsta vetur. Þá lengist stýrimannanámið um 1/2 tiT 2 ár. Nauðsynlegt þykir að gera strangari kröfur um menntun áður en til hins eiginlega fagnáms kemur," sagði Ómar Karlsson, deildarstjóri. ój Norræna sumarnámskeiðanefndin: Fundur á Akureyri Árlegur fundur norrænu sumarnámskeiðanefndarinnar verður haldinn á Hótel Norðurlandi á Akureyri í dag og eru þátttakendur um 30 talsins frá öllum Norður- löndunum. Þetta er í fyrsta sinn sem fundur nefndarinnar er haldinn á Akureyri. Svavar Sigmundsson, lektor við Háskóla íslands, sagði að nefndin hefði staðið fyrir nám- skeiðum í máli og bókmenntum Norðurlandanna um áratuga- skeið. I sumum löndunum eru námskeið á hverju ári en annað hvert ár á íslandi, þ.e. námskeið í íslensku og íslenskum bók- menntum fyrir stúdenta í norræn- um málum. Nefndin heyrir undir norrænu ráðherranefndina og á þessum árlegu fundum eru námskeið sumarsins gerð upp og niðurstöð- ur reifaðar með þátttöku sam- vinnunefndarinnar og nám- skeiðsstjóranna. Jafnframt verða námskeið næsta sumars skipu- lögð. SS Unnið að gerð skýrslu um kennara- menntun við Háskólann á Akureyri Kristján Kristjánsson, heim- spekingur og kcnnari við Há- skólann á Akureyri, vinnur nú að gerð skýrslu um hugsanlegt almennt kennaranám við skól- ann. Skýrslan verður væntan- lega fyrst í stað lögð fyrir háskólanefnd og síðan mennta- málaráðuncytið. í ályktun Fjórðungsþings Norðlendinga um sl. helgi er lýst yfir stuðn- ingi við ákvörðun mennta- málaráðherra að fresta leng- ingu kennaranáms við Kenn- araháskólann, en jafnframt er lýst fyllsta stuðningi við hug- myndir um almennt kennara- nám við Háskólann á Akur- eyri. Á fundi háskólanefndar í apríl sl. var ákveðið að ráða starfs- mann í nokkra mánuði til þess að safna upplýsingum um ýmislegt er lyti að stofnun kennaradeildar við Háskólann á Akureyri. Krist- ján Kristjánsson, var ráðinn í þetta verkefni og hóf hann störf 1. ágúst sl. Kristján sagðist þegar hafa viðað að sér ýmsum gögnum um hugsanlega kennaramenntun á Akureyri og rætt við fjölmarga er koma að kennaramenntun í landinu, forsvarsmenn Kennara- háskólans, kennarasamtakanna, fræðslustjóra og fleiri. Einnig hefur málið verið kynnt fyrir Ólafi G. Einarssyni, mennta- málaráðherra, og segir Kristján að hann hafi tekið vel í það. „Málið stendur þannig núna að ég er að vinna að skýrslu sem ég mun leggja fram að fáuni vikurn liðnum. Háskólanefnd ntun væntanlega fjalla um hana og síðan menntamálaráðuneytið,“ sagði Kristján. Rætt er um almennt kennara- nám við háskólann þar sem tekn- ir yrðu inn um 30 nemendur á ári. „Hugmyndin að baki þessu er tvíþætt. Annars vegar að greiða úr miklum skorti á rétt- indakennurum á landsbyggðinni og hins vegar að fullnýta aðstöðu sem fyrir hendi er við háskólann og breikka hinn faglega grund- völl skólans,“ sagði Kristján. Hann sagði að stofnkostnaður kennaradeildar við Háskólann á Akureyri væri ekki talinn vera mikill og hún myndi lækka kostnað á hvern nemanda við skólann umtalsvert. „Við þurf- um nauðsynlega að fjölga nemendum við skólann. Kostn- aður á hvern nemanda í honum er of hár. í skólanum er fyrir hendi ýmiskonar aðstaða og þarna þyrfti því víða ekki að bæta ntiklu við til þess að koma á fót kennaradeild,“ sagði Kristján. Illa hefur gengið að manna skóla á landsbyggðinni með rétt- indamenntuðum kennurum og hafa útskrifaðir kennarar úr Kennaraháskólanum skilað sér illa út í skólana á landsbyggð- inni. Kristján sagðist telja að útskrifaðir kennarar á Akureyri. rnyndu frekar ráða sig til starfa við skóla á landsbyggðinni og þv í kæmi kennaradeild á Akureyri dreifbýlisskólununt til góða. Hann benti á að stór hluti hjúkr- unarfræðinganna, sem útskrifuð- ust frá Háskólanum á Akureyri á sl. vori, stefni að því að ráða sig til starfa utan höfuðborgar- svæðisins. „Við höfum því mikla trú á því að af um 25 útskrifuð- um kennurum frá Háskólanum á Akureyri á ári, myndu 15-20 vinna á landsbyggðinni,“ sagði Kristján. óþh

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.