Dagur - 05.09.1991, Síða 11

Dagur - 05.09.1991, Síða 11
Fimmtudagur 5. september 1991 - DAGUR - 11 Iþróttir Knattspyrna: Markalaust gegn erkifjendunum íslendingar og Danir gerðu markalaust jafntefli í vináttu- landsleik á Laugardalsvelli í gærkvöld. Úrslitin verða að teljast nokkuð sanngjörn þeg- ar á heildina er litið, Danir réðu reyndar ferðinni meiri hlutann í leiknum en íslend- ingar fengu mun hættulegri færi og ekki hefði þurft mikla heppni til að vinna fyrsta sigur- inn á erkifjendunum. Fyrri hálfleikur var nokkuð kaflaskiptur, Danir voru fljótari í gang en íslendingar komust smátt og smátt inn í og fengu nokkur mjög góð færi sem ekki tókst að nýta. Sérstaklega var Ólafur Þórðarson mistækur upp við markið en hann fékk tvö sannkölluð dauðafæri sem bæði runnu út í sandinn. í fyrra skiptið vann Þorvaldur Örlvgsson bolt- ann og sendi fyrir á Ólaf sem stóð á markteig en hitti ekki boltann. í seinna skiptið fékk Ólafur send- ingu frá Eyjólfi en Rasmussen, markvörður Dana, varði skot hans hreint frábærlega. Danir náðu aftur yfirhöndinni þegar á leið og voru nálægt því að skora á 37. rnínútu en skot úr góðu færi fór í íslenskan varnarmann. Danir mættu grimmir til seinni hálfleiks og pressuðu stíft á íslenska liðið sem náði aldrei takti eftir hléið. íslendingar vörð- ust þó vel en pressan jókst þegar á leið en engin veruleg færi sáust þó upp við íslenska markið. Ólaf- ur Gottskálksson mátti þó taka á honum stóra sínum skömmu fyrir leikslok þegar Danir áttu þrurnu- skot sem hann varði meistara- lega. Má segja að þetta hafi verið eina skiptið sem Danir voru ná- lægt því að skora í seinni hálf- leiknum og úrslitin urðu því mar- kalaust jafntefli. Trúlega sann- gjarnt miðað við gang leiksins en vissulega var það grátlegt að nýta ekki dauðafærin sem fengust og vinna um leið langþráðan sigur á Dönum. Þessi leikur var ekki mikið fyr- ir augað, a.m.k. ekki seinni hálf- leikur en sá fyrri var nokkuð frísklegur á köflum. íslenska lið- ið lék þá ágætlega og þorði að sækja en það vantaði algerlega í þeim seinni. Danir náðu tökum á miðjunni og íslendingar bökkuðu of mikið þannig að pressan frá gestunum var orðin óþægilega mikil í lokin. Allir íslensku varn- armennirnir léku vel, Ólafur var duglegur og ógnandi framan af en fór illa með færin. Þorvaldur gerði góða hluti og Arnar var frískur þann stutta tíma sem hann fékk að vera með. Danir léku ekki eins og þeir geta best enda vantaði flestar stærstu stjörnurnar í lið þeirra. „Verðum með dúndurlið“ - segir formaður körfuknatt- leiksdeildar Þórs „Við verðum með dúndurlið í vetur, það er alveg á hreinu. Það er fullt af góðum strákum þarna og Michael Ingram sýndi það um helgina að hann er langbesti „Kaninn“ sem hefur komið hingað,“ sagði Helgi Sigurðsson, formaður körfu- knattleiksdeildar Þórs en Þórs- arar tóku um síðustu helgi þátt í afmælismóti Vals í körfu- knattleik. Sterkustu menn Þórsara voru að koma saman í fyrsta sinn um helgina og notuðu Þórsarar leik- ina til að prófa sig áfram með Gdí Greifamót í dag Að venju fer í dag fram Greifamót hjá Golfklúbbi Akureyrar. Leiknar verða 9 holur með og án forgjafar. Að venju verður 2000 kr. úttekt á Greifanum í verðlaun fyrir fyrsta sætið í hvorum flokki. Þá skal bent á að menn eiga enn möguleika á að vinna 10.000 kr. úttekt á Greifanum fyrir óvænt- asta atvikið. Körfuknattleikur: Aðalfundur Þórs á þriðjudag Aðalfundur körfuknattlciks- deildar Þórs verður haldinn þriðjudagskvöldið 10. sept- ember. Fundurinn fer fram í Hamri og eru félagar hvattir til að fjöl- menna. ýmislegt. Þeir sigruðu Skallagrím 72:50 en töpuðu með 20 stigum fyrir ÍBK, sem vann mótið, og 8 stigum fyrir Njarðvíkingum. Ingram fór á kostum í leikjun- um um helgina og binda Þórsarar miklar vonir við hann. Sem dæmi má nefna að hann lék aðeins fyrri hálfleikinn á móti ÍBK en skoraði þó 25 stig og tók yfir 20 fráköst. „Á móti Njarðvíkingunum salt- aði hann Rondey Robinson algerlega og ég held að það sé ekki spurning að þetta verður yfirburðamaður í vetur,“ sagði Helgi. Fleiri nýir menn hafa gengið til liðs við Þórsara, þeir Gunnar Örlygsson og Georg Birgisson frá Njarðvík. Georg lék ekkert í fyrra en var í unglingalandsliðinu í hittifyrra. Þá er ljóst að hvorki Guðmundur Björnsson né Jó- hann Sigurðsson leika með liðinu í vetur. Markvörðurinn Troels Rasmuss- en og Lars Olsen voru þeirra bestu menn. Lift íslands: Ólafur Gottskálksson, Valur Valsson, Atli Eðvaldsson, Einar Páll Tómasson, Sævar Jónsson, Hlynur Stef- ánsson (Arnar Grétarsson á 81. mín.), Ólafur Þórðarson, Sigurður Jónsson, Þorvaldur Örlygsson (Guðmundur Ingi Magnússon á 87. mín.), Arnór Guð- johnsen, Eyjólfur Sverrisson. Lið Danmcrkur: Troels Rasmussen, Kent Nielsen, Lars Olsen, Peter Möller (Brian Jensen á 46. mín.), Jakob Fris Hansen, Frank Pingel, Per Fransen (Heine Fernandez á 69. mín.), Kim Christofte, Marc Rieper, John Faxe Jensen, John Sivebæk (Henrik Larsen á 46. mín.). Gult spjald: Sævar Jónsson. Arndís Ólafsdóttir reynir að koma boltanum fyrir mark Þórs en Þórunn Sig- urðardóttir er til varnar. Þórunn skoraði sigurmarkið. Mynd: Golli Knattspyrna kvenna: Þór Akureyrarmeistari - sigraði KA 2:1 Þór varð í fyrradag Akureyr- armeistari kvenna í knatt- spyrnu. Liðið sigraði KA 2:1 á Akureyrarvelli. Leikurinn fór fram í töluvert miklum vindi og bar þess nokkur merki. Eins og venjulega þegar þessi lið eigast við var baráttan mikil og sigurinn hefði getað lent hvoru megin sem var en Þórsarar nýttu færin betur. Þórsstúlkur byrjuðu leikinn aðeins 10 en fljótlega voru þær kontnar með fullt lið og íris Thorleifsdóttir náði forystunni þegar sending kom fyrir KA- markið, markvörður KA missti frá sér boltann og íris skoraði af stuttu færi. Rétt á eftir fékk Firmakeppni KA fór fram á KA-vellinum fyrir nokkru. 20 lið tóku þátt í keppninni og sigraði lið Slippstöðvarinnar, KEA varð í öðru sæti og Garð- ræktin í þriðja. Á myndinni er sigurlið Slippstöðvarinnar. Linda Hersteinsdóttir mjög gott færi fyrir framan Þórsmarkið en skaut yfir. Þórsarar voru nálægt því að bæta öðru marki við þegar boltinn skall í stöng KA-marks- ins en mínútu fyrir hlé jafnaði Linda Hersteinsdóttir fyrir KA með skalla eftir hornspyrnu. Seinni hálfleikur var svipaður þeim fyrri, liðin börðust á miðj- unni en lítið var um færi. Það var svo Þórunn Sigurðardóttir sem gerði út um leikinn þegar hún fékk boltann á miðjunni og geyst- ist upp völlinn, stakk sér í gegn- um vörn KA, renndi laglega í rnarkið og tryggði Þór Akureyr- armeistaratitilinn. um íþróttir kvenna Nefnd ÍSÍ, sem vinnur að umbótum í kvennaíþróttum, gengst fyrir námstefnu fyrir þjálfara, leiðbeinendur og áhugafólk um íþróttir kvenna laugardaginn 7. september í Garðaskóla, Garðabæ, og hefst hún kl. 10. Yfirskrift námstefnunnar er „Sérkenni kvenna með tilliti til þjálfunar og keppni í íþrótt- um" og er gert ráð fyrir að hún höfði sérstaklega til leiðbein- enda, þjáifara og væntanlegra þjálfara íþróttakvenna svo og annars áhugafólks um íþróttir kvenna. Námstefnan verður í fyrirlestraformi með fyrir- spurnum eftir hvern fyrirlest- ur. Námstefnustjóri verður Þórdís Gísladóttir, íþrótta- fræðingur, en fyrirlesarar auk hennar verða dr. Ingimar Jónsson, Svandís Sigurðar- dóttir, sjúkraþjálfari, Martha Ernstsdóttir, sjúkraþjálfari, Þráinn Hafsteinsson, íþrótta- fræðingur, íris Grönfeidt, íþróttafræðingur, Birgir Guð- jónsson, læknir, og Jóhann Gunnarsson, sálfræðingur. Snóker: Keppt um 8 utanlandsferðir Ingólfsbilliard, Billiardstof- an Klöpp og málningarverk- smiðjan Harpa ætla í vetur að halda sex opin forgjafar- mót í snóker og verður keppt um átta tveggja vikna ferðir til Englands með til- heyrandi æfingum og keppni. Öpna Hörpumótið er stiga- mót og dreifist yfir 6 mánuði komandi vetrar. Keppt verður í september, október og nóvember í ár og síðan í janúar, febrúar og mars á næsta ári. Hvert mót gefur ails 500 stig og þátttökugjald í liverju þeirra 1800 kr. Keppt verður í riðlum og komast tveir efstu úr hverjum riðli í úrslit. Forgjöf verður 0-60 stig. Allar nánari upplýsingar eru veittar á Billiardstofunni Klöpp í síma 91-13540 og á Ingólfsbilliard í síma 91- 27863. Á báðum stöðum er skráning keppenda þcgar hafin. Opna golfmótið, Akureyri ’91 verður sett á Jaðarsvelli, Akureyri, laugardagogsunnudag 7. og8. sept. nk. Leikin verður 36 holu höggleikur með/án forgjafar í karla-, kvenna- og unglingaflokki 14 ára og yngri. i boði eru glæsileg verðlaun, sem Coca Cola gefur. Þá verða veitt sérstök verðlaun fyrir högg næst holu á öllum par 3 holum vallarins. Ræst verður út kl. 08.00 á laugardag (lægsta forgjöf fyrst). Verðlaunaafhending fer fram í skálanum strax að lokinni keppni. Þátttökugjald kr. 2.500,- og 1.000,- fyrir unglinga. Það er von G.A. og Coca Cola að sem flestir komi og taki þátt í mótinu. Skráningu skal lokið fyrir kl. 20.00 föstudag. Sími i skála er 22974. Mótanefnd.

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.