Dagur - 10.10.1991, Qupperneq 1
74. árgangur
Akureyri, fimmtudagur 10. október 1991
192. tölublað
Venjulegir og
demantsskornir
trúlofunarhringar
Afgreiddir samdægurs
GULLSMIÐIR
SIGTRYGGUR & PÉTUR
AKUREYRI
Jákvæðar fréttir berast
frá loðnuleitarskipunum:
Loðnutorfur íinnast
úti af Vestflörðum
Hreppsnefnd Hríseyjarhrepps:
Mótmælir uppsögnum á Súlnafellinu
í bréfi sem hreppsefnd Hríseyj-
arhrepps sendi í gær til Magnús-
ar Gauta Gautasonar, kaupfé-
Iagsstjóra KEA, er harðlega
mótmælt þeirri ákvörðun hans
að segja upp yfirmönnum Súlna-
fells, „með það í huga að leggja
skipinu og hætta útgerð frá
Hrísey,“ eins og segir orðrétt í
bréfínu. Stjórnarformanni KEA,
Jóhannesi Sigvaldasyni, voru
í gær sendar undirskriftir 50
starfsmanna Frystihúss félags-
ins í Hrísey þar sem einnig er
mótmælt uppsögnunum á
Súlnafellinu.
Hreppsnefnd Hríseyjarhrepps
kom saman til fundar sl. þriðju-
dag þar sem Súlnafellsmálið var
til urnræðu. I máli hreppsnefnd-
armanna kom fram sú skoðun að
ef Súlnafellinu yrði lagt um ára-
mót myndi það þýða endalok
útgerðar í Hrísey, því ekkert ann-
að skip kæmi í staðinn.
í nefndu bréfi hreppsnefndar
Hríseyjarhrepps til kaupfélags-
stjóra KEA er rifjað upp að sveit-
arsjóður Hríseyjar hafi tekið þátt
í rekstri útgerðar í eynni ásamt
KEA frá 1975 til 1987, þegar
hreppsnefnd hafi ákveðið að gefa
eftir sinn hlut í hlutafélaginu, auk
þess sem hún hafi lagt sitt af
mörkum til að lán fengjust úr
Byggðasjóði til að fjármagna
byggingu Snæfells, „en meginrök
lánveitingarinnar voru þau að
bygging Snæfells væri til að
tryggja áframhaldandi atvinnu-
uppbyggingu í Hrísey.“
f haus að undirskriftalistum til
stjórnar KEA segir nt.a. að með
því að leggja Súlnafellinu sé verið
að kippa í burtu kjölfestu
atvinnulífs í Hrísey. Orðrétt
segir: „Við erum vel minnug þess
er Snæfell var gert að frystitogara,
hvaða óvissu það skapaði þar til
Súlnafell var keypt. Erum við viss
um að hægt er að hagræða á annau
hátt í útgerðarmálum KEA, t.d.
nteð eflingu útgerðar í Hrísey."
Jónas Vigfússon, sveitarstjóri í
Hrísey, segir ljóst að sveitarfélag-
ið verði af umtalsverðum tekjum
ef ákveðið verði að leggja Súlna-
fellinu. Hann bendir á að á síðasta
ári hafi aðstöðugjald af skipinu
verið rúmar 748 þúsund krónur.
Auk þess segir hann ekki mega
gleyma ýmsum öðrum gjöldum
s.s. hafnargjöldum, að ónefndum
gjöldum sem menn úr áhöfn
Súlnafellsins, sem búsettir séu í
Hrísey, greiði til sveitarfélagsins.
óþh
„Við urðum varir við loðnu í
nótt. Eg held að þetta hafi ver-
ið vel veiðanlegt en hafrann-
sóknaskipið er ekki búið að
skoða þetta því það er núna
vestur undir Grænlandi að
skoða loðnu sem þar fannst.
Hér fannst engin loðna í fyrra
en nú er líf í sjónum þannig að
þetta veit á betra. Mér finnst
þetta frekar líllegt hafsvæði,“
sagði Bjarni Bjarnason, skip-
stjóri á Súlunni EA-300, í gær
þar sem skipið var við loðnu-
leit út af Vestfjörðum og hafði
meðal annars orðið vart við
loðnu á Dornbanka.
Skipin hafa orðið vör við
loðnudreif vestur undir Græn-
Akureyri:
Ók á skelli-
nöðru í veg
fyrir bfl
Umferðaróhapp varð á Byggða-
vegi í gær þegar piltur á skelli-
nöðru varð fyrir bíl. Pilturinn
slapp lítið meiddur úr óhapp-
inu.
Tildrög slyssins voru þau að
pilturinn ók hjólinu út úr göngu-
stíg og í veg fyrir bíl. Pilturinn
var fluttur á slysadeild Fjórð-
ungssjúkrahússins en fékk að
fara heim að lokinni skoðun.
Bifreiðin er lítið skemmd eftir
áreksturinn. JÓH
Heilsugæslustöðin
á Akureyri:
Kvt'íþesUr
á kreiki
Heilsugæslustöðin á Akureyri
hefur sent frá sér skýrslu um
smitsjúkdóma í september-
mánuði. Þar kemur fram að alls
greindust 478 af þeim sem leit-
uðu til stöðvarinnar í mánuðin-
um með kvef, hálsbólgu og
bronkítis, 15 voru með lungna-
bólgu, 20 með streptókokka-
hálsbólgu og 1 með einkirn-
ingasótt.
Engin inflúensutilfelli greind-
ust hjá Heilsugæslustöðinni á
Akureyri í septembermánuði
þannig að þeir sem hafa kvartað
yfir flensu hljóta að hafa þjáðst af
öðrum sjúkdómi.
Kíghósti lætur enn á sér kræla
á Akureyri og greindust 3 ný til-
felli í september. Hlaupabóla
hrjáði 2 en mislingar, rauðir
hundar og hettusótt greindust
ekki í mánuðinum.
Alls fengu 74 að kenna á iðra-
kvefi og 1 fékk matareitrun af
völdum baktería. Pá greindust 3
með kláðamaur en kynsjúkdóm-
ar létu ekki á sér kræla. SS
landi og sagði Bjarni að fyrstu
niðurstöður bendi til að þar sé
um að ræða smáloðnu og hrygn-
ingarloðnu. Þá bendi fyrstu
athuganir til að mikið sé af
loðnuseiðum í sjónum og það
hljóti að vita á gott.
Bjarni segir sjaldgæft að loðna
finnist út af Vestfjörðum á þess-
um tíma. Enn hafi loðnuskipin
aðeins leitað á tíunda hluta þess
hafsvæðis sem kembt verður í
þessari lotu og fyrir höndum sé
að leita á því svæði þar sem loðnan
heldur sig alla jafna á þessum
árstíma, þ.e norður af Vestfjörð-
um.
„Til þess er leikurinn gerður að
skoða mjög náið það sem finnst
en mér sýnist á öllu að ef svona
heldur áfram þá þyrftum við að
fá hitt rannsóknaskipið hingað.
Það er erfitt fyrir eitt skip að
sinna þessu. Við þurfum að kom-
ast að því hvað fór úr skorðum
hjá okkur í fyrra. Ætli veiti af því
í soltnu þjóðarbúið að finna
eitthvað,“ segir Bjarni. JÓH
Byggt fyrir veturinn.
Mynd: Golli
Fjórðungssjúkrahúsið
á Akureyri:
Sex sækja um
stöðu yfirlæknis
handlækningadeildar
Sex umsækjendur eru um stöðu
yfirlæknis handlækningadeildar
Fjórðungssjúkrahússins á Akur-
eyri, en umsóknafrestur um
hana rann út 30. september sl.
Umsækjendurnir eru:
Guðjón Haraldsson, starfandi
yfirlæknir við Urologiska Sekt-
ionen Kirugiska Kliniken
Centrallasarettet í Karlskrona í
Svíþjóð. Guðjón er sérfræðingur
í almennum skurðlækningum
með þvagfæraskurðlækningar
sem undirgrein.
Gunnar Rafn Jónsson, yfir-
læknir við Sjúkrahúsið á Húsa-
vík. Hann er sérfræðingur í
almcnnum skurðlækningum.
Hlöður F. Bjarnason, yfirlæknir
við Kirurg.kliniken, Lindesbergs
Lasarett í Svíþjóð. Hlöður er
sérfræðingur í almennum skurð-
lækningum.
Haraldur Hauksson, sérfræð-
ingur á handlækningadeild FSA.
Hann er sérfræðingur í almenn-
um skurðlækningum með æða-
skurðlækningar sem undirgrein.
Ingvar Kjartansson, sérfræð-
ingur á Kirurgiska kliniken
Sahlgranska sjukhuset í Gauta-
borg í Svíþjóð. Hann er sér-
fræðingur í almennum skurðlækn-
ingum með æðaskurðlækningar
sem undirgrein.
Shreekrishna S. Datye, starf-
andi yfirlæknir handlækninga-
deildar FSA. Hann er sérfræð-
ingur í skurðlækningum.
Að sögn Inga Björnssonar,
framkvæmdastjóra FSA, mun
stjórn Fjórðungssjúkrahússins
taka endanlega ákvörðun um
hver umsækjendanna verður ráð-
inn í starfið, að fengnu hæfnisáliti
stöðunefndar Landlæknisembætt-
isins og áliti læknaráðs FSA.
Starfandi yfirlæknir mun gegna
stöðunni þangað til gengið verð-
ur frá ráðningu í hana. óþh
Kröfur í þrotabú ístess um 430 milljónir:
Kröfu norska fyrirtækis-
ins T. Skretting hafnað
- þrotabúið telur sig eiga inni hjá fyrirtækinu
Kröfulýsingarfrestur í þrotabú
Istess hf. á Akureyri er runn-
inn út og liggur uppkast að
kröfulýsingarkrá fyrir. Lýstar
kröfur í búið nema um 430
milljónum króna og er krafa
Landsbankans þar af um 145
milljónir. Norska fyrirtækið T.
Skretting A/S, sem var hluthafi
í ístess, gerði kröfu að upphæð
3,5 milljónir danskra króna í
þrotabúið eða um 33 milljónir
íslenskra króna. Skiptaráðandi
hefur hafnað þessari kröfu þar
sem búið telur sig eiga kröfu á
fyrirtækið vegna hlutafjár-
Ioforða sem ekki hafi verið
staðið við.
Fyrsti skiptafundur í ístess
verður á miðvikudag í næstu viku
og væntanlega kemur þar til
umræðu hvort höfðað verður mál
á norska fyrirtækið vegna þessa
hlutafjár sem búið telur sig eiga
hjá T. Skretting. Fyrirtækið telur
sig á hinn bóginn hafa greitt þetta
hlutafé með greiðslu á einka-
leyfisgjaldi.
Eins og áður segir nema kröfur
í þrotabú ístess um 430 milljón-
um króna. Almennar kröfur eru
nálægt 210 milljónum, kröfur
utan skuldaraðar 216 milljónir og
forgangskröfur að upphæð 2,7
milljónir.
Stærstur hluti kröfu Lands-
bankans, eða 129 milljónir, er
vegna afurðaláns. Byggðastofnun
gerir 60 milljóna króna kröfu og
krafa Akureyrarbæjar er 45 millj-
ónir. Stærstur hluti kröfu bæjar-
ins er vegna ábyrgðarskuldbind-
inga og ábyrgðar á láni frá
atvinnutryggingarsjóði. Krafa
KEA er um 35 milljónir.
Forgangskröfur, þ.e. launa og
orlofskröfur starfsmanna, nema
2,7 milljónum króna. Hæsta
krafa eins starfsmanns nemur um
600 þúsundum króna. JÓH