Dagur - 10.10.1991, Blaðsíða 4

Dagur - 10.10.1991, Blaðsíða 4
4 - DAGUR - Fimmtudagur 10. október 1991 ÚTGEFANDI: DAGSPRENT HF. SKRIFSTOFUR: STRANDGATA 31 PÓSTHÓLF 58, AKUREYRI, SÍMI: 24222 ÁSKRIFT KR. 1100 Á MÁNUÐI LAUSASÖLUVERÐ 100 KR. GRUNNVERÐ DÁLKSENTIMETRA 725 KR. RITSTJÓRI: BRAGI V. BERGMANN (ÁBM.) FRÉTTASTJÓRI: KRISTJÁN KRISTJÁNSSON RITSTJÓRNARFULLTRÚI: EGILL H. BRAGASON BLAÐAMENN: INGIBJÖRG MAGNÚSDÓTTIR (Húsavík vs. 41585), JÓHANN ÓLAFUR HALLDÓRSSON, JÓN HAUKUR BRYNJÓLFSSON (íþróttir), ÓLI G. JÓHANNSSON, ÓSKAR ÞÓR HALLDÓRSSON, SKÚLI BJÖRN GUNNARSSON (Sauðárkróki vs. 95-35960), STEFÁN SÆMUNDSSON, ÞÓRÐUR INGIMARSSON LJÓSMYNDARI: KJARTAN ÞORBJÖRNSSON PRÓFARKALESTUR: SVAVAR OTTESEN ÚTLITSHÖNNUN: RÍKARÐUR B. JÓNASSON, ÞRÖSTUR HARALDSSON AUGLÝSINGASTJÓRI: FRÍMANN FRÍMANNSSON DREIFINGARSTJÓRI: HAFDÍS FREYJA RÖGNVALDSDÓTTIR, HEIMASlMI 25165 FRAMKVÆMDASTJÓRI: HÖRÐUR BLÖNDAL PRENTUN: DAGSPRENT HF. SÍMFAX: 96-27639 Afleitt fordæmi Félagsmálastofimnar íhlutun Félagsmálastofnunar Akureyrar í málefni þremenninganna sem komust til Bangkok með því að nota illa fengið ávísana- hefti og söfnuðu síðan skuldum á hóteli þar í borg, hefur vakið verðskuldaða athygli - landsmanna og aðhlátur. Ferðasögu þremenninganna þarf naumast að rekja ítarlega, enda þegar orðin fræg af endemum. Þegar upp komst um fjársvik félaganna ógilti ferðaskrifstofan farmiða þeirra heim til íslands og lánardrottnar þeirra í Bangkok kröfðust þess eðlilega að þeir greiddu skuld sína án tafar en sættu refsingu ella. Þegar hér var komið sögu áttuðu ferða- langarnir sig loks á alvöru málsins; að þeirra biði vist í erlendu fangelsi. Þeir voru hins veg- ar ekki tilbúnir til að taka afleiðingum gjörða sinna og leituðu ásjár stjórnvalda hér heima. Félagsmálaráðuneytið neitaði réttilega að hafa nokkur afskipti af málinu og þar með var talið víst að mál þremenninganna gengi sína boðleið um réttarkerfið ytra. En þá tók ráð- gjafardeild Félagsmálastofnunar Akureyrar til sinna ráða. Hún veitti aðstandendum eins þremenninganna lán til að greiða skuldir hans, leysa manninn úr prísundinni í Bang- kok og koma honum heim til íslands. Þessi afskipti ráðgjafardeildar Félagsmála- stofnunar Akureyrar af málinu hafa sætt mikilli gagnrýni enda orka þau vægast sagt tvímælis. Eflaust er þetta í fyrsta — og von- andi eina skiptið í sögunni — sem opinber stofnun leggur fram verulega fjárhæð til að forða manni, sem brotið hefur af sér, frá því að taka afleiðingum gjörða sinna. í því sam- bandi breytir litlu þótt stofnunin hafi einung- is veitt peningana að láni í skamman tíma. Starfsmenn ráðgjafardeildar Félagsmála- stofnunar áttu auðvitað aldrei að ljá máls á slíkri fyrirgreiðslu. Þeir áttu einfaldlega að hafna erindinu og benda umsækjendum á að leita á náðir viðurkenndra lánastofnana. Félagsmálastofnun Akureyrar er hvorki banki né ferðaskrifstofa og getur ekki gegnt þeim hlutverkum, hvorki nú né síðar. Fordæmið sem stofnunin hefur gefið með íhlutun sinni er afleitt og ber vott um dómgreindarleysi. Það er til þess eins fallið að koma óorði á stofnunina. Bæjarstjórn Akureyrar ber að fá nákvæma skýrslu um aðdraganda þessarar einstöku lánveitingar og sjá til þess að atvik sem þetta endurtaki sig ekki. BB. Er atviimuráðgjöfin á krossgötum Á sínum tíma skipaði þáverandi iðnaðarráðherra, Hjörleifur Guttormsson, nefnd undir for- ystu Vilhjálms Lúðvíkssonar, framkvæmdastjóra Rannsóknar- ráðs ríkisins, sem skyldi móta stefnu í iðnaðarmálum. Meðal tillagna nefndarinnar voru hugmyndir um störf iðnráð- gjafa og um iðnþróunarfélög. Þessar hugmyndir voru þær að ríkissjóður veitti á fjárlögum framlög, sem skipt var á milli iðn- ráðgjafanna í landinu. Framlag til starfa hvers iðnráðgjafa skyldi miðað við sérfræðingslaun hjá ríkinu. Iðntæknistofnun fékk í sinn hlut, sem svaraði einu iðn- ráðgjafaframlagi fyrir samræm- ingarstörf á iðnráðgjafastarfsem- inni. Heimildarlög um iðnráðgjafa- starfsemi í landshlutunum féll úr gildi og fengust ekki framlengd. Eftir 1985 hefur iðnráðgjöfin ver- ið nánast utan kerfisins. Þetta hefur ekki komið að sök. Fyrir atfylgi landsbyggðarþingmanna, hafa iðnráðgjafaframlögin verið á fjárlögum síðan. Iðnráðgjöfin er í eins konar til- vistarkreppu. Raddir eru um að smækka svæði iðnþróunarfélag- anna. Þetta er að gerast með óbeinum hætti með svonefndum átaksverkefnum á starfssvæðum iðnþróunarfélaga kjördæmanna. Páll K. Pálsson, forstjóri Iðn- tæknistofnunar Islands lagði til á ráðstefnu um byggðamál í Borg- arnesi í október á síðasta ári, að megin verkefni Byggðastofnunar ætti að vera aðstoð á vettvangi atvinnuráðgjafar við landsbyggð- ina. Benti hann á að Byggða- stofnun ætti að veita landsbyggð- inni hlutlæga og faglega atvinnu- rágjöf. Ljóst er að sú fyrirgreiðsla, sem iðnráðgjafarnir hafa veitt er í allflestum tilvikum nánast fyrir- greiðsluþjónusta, en ekki eigin- leg atvinnuráðgjöf í þess orðsins merkingu. Taki iðnráðgjafi ást- fóstri við fá en vænleg verkefni verður það til þess að vanrækja leitina að vandamálunum. Það eru gerðar kröfur til atvinnuráðgjafanna um viðlaga- þjónustu, nánast hjálpræði og bjargráð í atvinnumálum. Þetta þýðir í framkvæmd að svo nefnd „atvinnuráðgjöf“ færist á fyrir- greiðslu- og úrræðastigið. Iðn- ráðgjafarnir fjarlægjast að vera faglegir atvinnuráðgjafar, sem geti helgað sig verkefnum. Þessi daglega umsýsla hefur orðið hlut- skipti flestra iðnráðgjafanna í störfum þeirra. Frumatvinnuráðgjöfin þ.e. fyrirgreiðslu- og viðlagaþjónust- Áskell Einarsson. an virðist vera lífæð iðnþróunar- félaganna gagnvart sveitarfé- lögunum. Tengsl atvinnuráðgjafarinnar við atvinnumálanefndir hefur mislagst víðast. Störf atvinnu- málanefnda eru víðast óskipulögð. Enginn virðist láta sig varða um að skipuleggja verkefni þeirra og vinnubrögð. Atvinnumálanefnd- irnar verða að spegla í störfum sínum stöðu atvinnulífsins og vera um leið úrræðavettvangur um val leiða. Samstarfið við nefndirnar er undirstaða atvinnu- þróunarfélaganna og uppspretta þeirra verkefna, sem þurfa á fag- legri atvinnuráðgjöf að halda á síðari stigum. Hér erum við komin að brota- löminni í því kerfi, sem við búum við. Reynt er að bæta úr með svonefndum átaksverkefnum. Skýringin á aukinni ásókn í þess konar fyrirgreiðslu er tvíþætt. Viðleitni í að færa frumatvinnu- ráðgjöfina heim á hvert byggða- svæði, ennfremur afleiðing ein- yrkjabúskapar iðnráðgjafanna, en þeim er oftast um megn að sinna verkefnum sínum. Byggðastofnun var falið með lögum, frá síðasta Alþingi, umsjá og fyrirgreiðsla við atvinnuráð- gjöfina í landinu, af hálfu ríkis- valdsins. Atvinnuráðgjöfin verð- ur því þáttur á verksviði Byggða- stofnunar. í stjórnarsamþykkt Byggða- stofnunar frá 22. maí sl., sem nefnd er atvinnuþróun á lands- byggðinni, gerir stjórnin tilraun til að móta starfsreglur urn stuðn- ing við atvinnuráðgjöfina og atvinnuþróunarfélögin. Ekki er þar að finna tryggingu fyrir lág- marks fjárstuðningi til iðnráð- gjafar, sem komin var hefð á við skiptingu fjárveitinga til iðnráð- gjafar. Engin ákvæði eru um fag- lega atvinnuráðgjöf á vegum Byggðastofnunar. Sá faglegi stuðningur, sem fólst í sam- ræmingarstarfi Iðntæknistofnun- ar er horfinn. Ekkert er sýnilegt af ályktun Byggðastofnunar hvern- ig hún annast faglega leiðsögn fyrir atvinnuráðgjöfina. í sömu stjórnarsamþykktinni er ætlast til að atvinnuráðgjafarn- ir hafi aðsetur í byggðastofnun- um kjördæmanna. Það er í sjálfu sér virðingarvert að byggðastofn- anir kjördæmanna hýsi atvinnu- ráðgjafana og að Byggðasjóðir kosti störf þeirra, eins og reynsl- an er á Vestfjörðum. Svo vitnað sé til ummæla Páls Pálssonar, forstjóra Iðntækni- stofnunar, stendur ekkert nær byggðastofnunum í kjördæmun- um, en leiðsögn í atvinnumálum viðkomandi kjördæma. Það hlýtur að vera verkefni Byggðastofnunar, auk þess að efla atvinnuþróunarfélögin til þróttmikillar starfsemi á sínum vettvangi, að í byggðastofnunum kjördæmanna verði til staðar fagleg, hlutlæg atvinnuráðgjöf, til könnunar vænlegra atvinnu- kosta, sem njóti fyllstu fyrir- greiðslu Byggðasjóðs. Bregðist ekki stjórn Byggða- stofnunar rétt við þessu hlutverki er ekki einsýnt um stöðu þessarar ágætu stofnunar. Það er vandséð um hagnýt verkefni byggðastofn- ana kjördæmanna, ef þaðan kemur ekki forysta um faglega atvinnuráðgjöf, sem er hafin yfir hagsmunapot einstakra aðila og kryt á milli byggðalaga. Byggðastofnun stendur frammi fyrir tvíþættu verkefni að efla atvinnuþróunarfélögin annars vegar og að reka sjálf faglega atvinnuráðgjöf á eigin vegunt. Atvinnuráðgjöfin á landsbyggð- inni er frumþáttur allra byggða- aðgerða, sem ekki má vera háð duttlungum breytilegra fjárveit- inga. Kjarninn er sá að hér þarf til meira raunsæi en kemur fram í „bútastefnunni“, sem einkennir vinnubrögð stjórnar Byggða- stofnunar. Staðreyndin er sú að atvinnuráðgjöfin er þýðingar- mesta forvarnarstarfið í byggða- málum. Það er hlutverk byggða- aðgerða að laða menn til fjárfest- inga á landsbyggðinni að öðru jöfnu. í því efni er atvinnuráð- gjöfin leiðandi starf. Áskell Einarsson. Höfundur er framkvæmdastjóri Fjórð- ungssambands Norðlendinga. Björgunarskóli Landsbjargar: Námsstefiia í skyndihjálp Björgunarskóli Landsbjargar, (Landsbjörg nýstofnað landssam- band björgunarsveita sem áður voru Landssamband Hjálpar- sveita Skáta og Landssamband Flugbjörgunarsveita) heldur námsstefnu fyrir leiðbeinendur í skyndihjálp dagana 12.-13. októ- ber n.k. Tilgangurinn er að leiðbein- endur hittist og ræði ýmis atriði skyndihjálparfræðslu fyrir björg- unarmenn sem og að leiðbein- endur viðhakli og auki við þekk- ingu sína. Á þessari námsstefnu verða ýmsir áhugaverðir fyrirlestrar og ntá þar nefna: Sorg og sorgarvið- brögð sem Sigfinnur Þorleifsson, sjúkrahússprestur flytur. Að- koma á slysstað og björgun úr bílflökum sem Þorgrímur Guð- mundsson, lögregluvarðstjóri flytur. Kynnt verður ný reglugerð um eiturefni, þessi kynning verð- ur á hendi Daníels Viðarssonar sem er forstöðumaður hjá Holl- ustunefnd ríkisins. Þá verður fjallað um vökvagjöf en um þann þátt sér Sigríður Jakobsdóttir, læknir. Einnig verður fyrirlestur unt sjúkraflug sem Jón Baldurs- son, læknir flytur og Rafn Ragn- arsson, læknir verður með fyrir- lestur um bruna og brunaslys. Námsstefnan er að þessu sinni haldin í Garðabæ og er stjórn- andi hennar María Haraldsdótt- ir, yfirkennari skyndihjálpar og almannavarnarsviðs björgunar- skólans. Þátttöku ber að tilkynna á skrifstofu Lansbjargar í síma 91-621400

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.