Dagur - 10.10.1991, Page 9
Fimmtudagur 10. október 1991 - DAGUR - 9
Fundargerðarbók áfengisvarnanefndar Akureyrar að verða útskrifuð:
Fyrsta flmdargerðm í hókinni er frá árinu 1948
Eins og kom fram í Degi í vik-
unni, lagði ritari áfengisvarna-
nefndar Akureyrarbæjar til
að keypt yrði ný fundargerðar-
bók fyrir ncfndina. Sú gamla
er að verða fullskrifuð en
fyrsta fundargerð sem skráð er
í hana er dagsett 30. apríl 1948.
í fyrstu fundargerðinni stendur
m.a. eftirfarandi: „Ár 1948,
fimmtudagurinn 30. apríl kl. 5
e.h. var fundur haldinn í áfeng-
isvarnanefnd Akureyrar á skrif-
stofu Sjúkrasamlags Akureyrar. í
vetur hafði bæjarstjórn kosið 6
menn í nefndina en dómsmála-
ráðuneytið skipar formann lög-
um samkvæmt.
I nefndinni eru þessir menn:
Jóhann Porkelsson, héraðs-
læknir, formaður; Hannes J.
Magnússon, skólastjóri; Rósberg
G. Snædal, fyrrv. ritstjóri; Stefán
Ág. Kristjánsson, forstjóri;
Brynleifur Tobíasson, yfirkenn-
ari; Eiríkur Sigurðsson, kennari.
Formaður bauð nefndarmenn
velkomna á fundinn og stakk upp
á Eiríki Sigurðssyni fyrir ritara og
var það samþykkt.
Brynleifur Tobíasson benti á
Guðmundur Gunnarsson, núver-
andi ritari áfengisvarnanefndar með
bókina goðu. Mynd: Golli
Landssamband framsóknarkvenna:
Stjómvöld beiti sér f\TÍr
auknum kaupmætti lægstu launa
5. landsþing Landssambands
framsóknarkvenna haldið í
Reykjavík dagana 4. og 5. okt.
1991 gerir þá skýlausu kröfu til
stjórnvalda, að þau beiti sér fyrir
auknum kaupmætti lægstu launa,
en um það markmið voru allir
stjórnmálaflokkar sammála fyrir
kosningarnar í vor.
Sjálfstæðisflokkurinn gekk til
kosninga undir kjörorðinu „frelsi
og mannúð". Nú er ljóst að frels-
ið er handa fjármagnseigendum
og mannúðin er orðin að öfug-
mæli, þegar horft er til árása
ríkisstjórnarinnar á velferðar-
kerfið. Mannlegum gildum er
fórnað fyrir peningahyggju.
Efnahagsstefna ríkisstjórnar
Davíðs Oddssonar, sem einkum
lýsir sér í vaxtahækkunum annars
vegar og aðgerðarleysi hins
vegar, er langt komin með að
Greinasafti um
fiskveiði-
stjómun 1991
Stjórnun fiskveiða við ísland er
eitt umdeildasta hagsmunamál
þjóðarinnar og nægir að vísa til
umræðna um það í Alþingiskosn-
ingum sl. vor. Fjölmiðlavakt
Miðlunar heldur áfram útgáfu
greinasafns um fiskveiðistjórnun
sem hófst árið 1989. Nú kemur út
greinasafn fyrir fyrri hluta árs
1991 (janúar-júní).
Bókin er ítarleg heimild um
ólík sjónarmið, því í henni eru
birtar allar greinar, ritstjórnar-
greinar, viðtöl og fréttir úr fjöl-
mörgum blöðum. Efni er raðað í
tímaröð, sem ásamt aðgengilegri
skrá yfir allar greinar og höf-
unda, auðveldar uppflettingu á
þeim ummælum eða greinum
sem óskað er.
lama fjárhag heimilanna og
atvinnuvegir landsmanna eru
komnir á vonarvöl líkt og þegar
Sjálfstæðisflokkurinn gafst upp
við stjórn landsins 1988.
Þingið mótmælir harðlega
handahófskenndum aðgerðum í
niðurskurði ríkisútgjalda, sem
leiða af sér versnandi afkomu alls
almennings ekki síst barnafjöl-
skyldna og námsfólks, stétta-
skipting eykst stórlega og bilið
breikkar á milli ríkra og fátækra.
Þeim skattahækkunum sem birst
hafa og boðaðar hafa verið í
formi þjónustugjalda er hafnað.
Öll verk þessarar ríkisstjórnar
ber að sama brunni, gegn vel-
ferðarkerfinu og jafnvægi í byggð
landsins.
Þingið fordæmir þann bölsýnis-
áróður sem hafður er uppi af
valdhöfum og óttast að hann
muni draga úr trú landsmanna á
möguleika þjóðarinnar og vilja
einstaklingsins til framkvæmda.
Sú síbylja að allt sem aumt er, sé
fyrrverandi ríkisstjórn að kenna
er skopleg og merki um úrræða-
leysi.
Krafa framsóknarkvenna er
jöfnun lífskjara, jöfn aðstaða til
náms og heilbrigðisþjónusta fyrir
alla.
Ályktun um
evrópskt efnahagssvæði
5. þing Landssambands fram-
sóknarkvenna varar við þeirri
stöðu sem upp er komin í EES
viðræðum, þar sem óljós almenn-
ur fyrirvari er kominn í stað fimm
ákveðinna skilyrða, sem fram-
sóknarmenn samþykktu á sínum
tíma.
Þingið krefst þess að þjóðinni
verði gefnar ítarlegri upplýsingar
um raunverulega stöðu ntála
áður en nokkrar skuldbindingar
verða gerðar af íslands hálfu.
Þingið treystir því að þingflokkur
framsóknarmanna standi vörð
um efnahagslegt og stjórnarfars-
legt sjálfstæði íslensku þjóðar-
innar í EES viðræðunum og vísar
í því efni til samþykktar mið-
stjórnarfundar á Akureyri 1987
um grundvallarstefnumið
flokksins.
Vandséð er, eins og málum er
nú háttað að ísland hafi ávinning
af þátttöku í EES.
Leiðrétting
í frétt í Degi sl. föstudag um eig-
endaskipti á bílaleigunni Erni,
var farið rangt með föðurnafn
Birgis Torfasonar og hann sagður
Bragason. Þetta leiðréttist hér
ineð og eru hlutaðeigandi beðnir
velvirðingar á þessum mistökum.
Akureyri:
Norðurhjara-
rokk í 1929
í kvöld
I kvöld, fímmtudagskvöld,
verður boðið upp á sannkull-
aða þungarokksveislu á
skemmtistaðnum 1929. Hljóm-
sveitirnar sem fram koma eru
Skurk, Exit og Baphomet.
Herlegheitin byrja kl. 21 og
verður miðaverðinu stillt mjög í
hóf.
Tónleikarnir marka upphafið á
tónleikaferð þessara þriggja
hljómsveita um landið á næst-
unni.
Öllum er heimill aðgangur og
verða eyrnatappar seldir við inn-
ganginn. (Fréttatilkynning)
að heppilegt mundi að formaður
og ritari létu þess getið í blöðum
bæjarins, livert hlutverk nefndar-
innar er og var það samþykkt.
Þá var einnig samþykkt að fela
formanni að fara þess á leit við
bæjarfógeta að mæta á næsta
fund nefndarinnar.
Einnig var formaður beðinn að
fá upplýsingar um hvort drykkju-
mannahæli væri hér starfandi og
hvort hægt væri að koma þangað
mönnum og með hvaða kjörum.“
-KK
Bílskúrshurðaopnarar
STRAUMRÁS s.f
Furuvöllum 1 sími 26988
Þar sem þjónustan er í fyrirrúmi.
Húsbyggjendur!
Húsbyggjendur svo og aðrir sem hafa hug á að fá
lagðar heimtaugar í hús sín eru vinsamlega
minntir á að sækja um nú þegar, til þess að forð-
ast þann auka kostnað sem verður eftir að frost
er komið í jörð.
Rafveita Akureyrar,
Hitaveita Akureyrar,
Vatnsveita Akureyrar,
Póstur og sími, Akureyri.
Atvinna óskast!
Nýútskrifaður skrifstofutæknir hver einnig hefur
verslunarpróf óskar eftir atvinnu nú þegar.
Ýmislegt kemur til greina.
Hefur einnig meira- og rútupróf.
Upplýsingar í síma 25023 og 27279.
Laus staða hreppstjóra
Staða hreppstjóra í Bárðdælahreppi í Suður-
Þingeyjarsýslu er laus til umsóknar.
Umsóknir berist undirrituðum fyrir 15. nóvember
1991.
Húsavík 1. október 1991.
Sýslumaður Þingeyjarsýslu.
Vantar góðan og
lipran starfsmann
í kjötborð
Helst vanan.
Upplýsingar veitir Jóhann Ingi næstu daga, milli kl.
10.00-12.00.
Ekki í síma!
HAGKAUP
Norðurgötu 62.