Dagur - 10.10.1991, Qupperneq 12
dum
Akureyri, fimmtudagur 10. október 1991
Frí heimsendingar-
þjónusta alla daga
VEITINGAHUSIÐ
Hadegis-
tilboð
alla daga Alvöru
Súpa og salatbar fylgir vp| f j „ aSk U « c;
öllum abalréttum og pizzum Glerárgötu 20 • s 26690 * Vli,I.Il£ClII 113
Akureyri:
Atvmnulausum fækkar
- voru 127 í septembermánuði
Skráðir atvinnuleysisdagar hjá
Vinnumiðlunarskrifstofunni á
Akureyri voru í september
2802. I ágústmánuði voru
atvinnuleysisdagarnir 3987.
Þannig hefur orðið nokkur
bati sem má þakka að verka-
fólk hefur fengið vinnu er
skólafólkið sat að.
Á Akureyri voru atvinnulausir
í september 127. í mánuðinum
þar á undan voru atvinnulausir
156. í september fyrir ári voru
atvinnulausir 154. Karlar á skrá
eru 57, flestir úr röðum verslun-
armanna, verkamanna og bíl-
stjóra. Konur á skrá eru 70, þar
af 48 verkakonur.
„Það sem af er október hefur
störfum fjölgað heldur á Akur-
eyri þannig að æ fleiri atvinnu-
lausir fá vinnu,“ sagði talsmaður
Vinnumiðlunarskrifstofunnar á
Akureyri. ój
Hvammstangi:
Hreppurimi kaupir jörð
Jörðin Ytri-Vellir í Kirkju-
hvammshreppi var í síðustu
viku seld Hvammstangahreppi.
Búið er að ganga frá kaup-
samningi og verður jörðin
afhent á komandi vordögum.
Ytri-Vellir eru sunnan
Hvammstanga og segir Bjarni
Þór Einarsson, sveitarstjóri á
Hvammstanga, ætlunina vera að
útbúa þar útivistarsvæði fyrir
íbúa staðarins.
„Hvammstangahreppur er afar
landlítill og þar sem þessi jörð
var til sölu var ákveðið að kaupa
hana. Við hyggumst nýta hana til
útivistarmálefna s.s. fyrir hesta-
menn og jafnvel einhverja rollu-
kalla. Einnig er hugsanlegt að
þarna verði búinn til golfvöllur,"
segir Bjarni.
Að sögn Bjarna var samið við
Kirkjuhvammshrepp um að hann
nýtti sér ekki forkaupsrétt á
jörðinni og gengið frá þeim mál-
um í síðustu viku. Kaupverðið er
fjórar milljónir. SBG
Laxveiðin:
Mun fleiri laxar
úr hafbeit en áður
Fjöldi endurheimtra la\a úr
hafbeit var 45% meiri í ár en í
fyrra. Þetta skýrist af auknum
fjölda slepptra seiða en endur-
heimtur í sumar voru 2-3%.
Aukning í stangveiði var um
10% í sumar frá sumrinu
1990.
Veiðimálastofnun hefur tekið
saman bráðabirgðatölur um lax-
veiðina síðastliðið sumar þar sem
þetta kemur fram. Alls veiddust
Strákagöng
opnuð í dag
eftir viðgerð
Strákagöng verða opnuð fyrir
umferð í dag, fimmtudag kl.
16. Endurbótum á þeim er nú
að stærstum hluta lokið, en
gert er ráð fyrir einhverjum
umferðartöfum nk. mánudag
og þriðjudag vegna lokafrá-
gangs á lýsingu í göngunum.
Að sögn Hreins Júlíussonar,
verkstjóra Vegagerðar ríkisins á
Siglufirði, hefur verkinu miðað
vel af hálfu verktakans, ístaks hf.
Göngin hafa verið fóðruð, lýsing
sett upp og frárennslislagnir
endurnýjaðar. „Ég myndi segja
að þetta væri mikil og góð breyt-
ing á göngunum, í raun er um að
ræða byltingu á þeim,“ sagði
Hreinn. óþh
32 þúsund laxar á stöng og um 10
þúsund í net í sumar. Þá er átt
við samanlagða netaveiði í sjó og
í ám. Endurheimtir hafbeitarlax-
ar voru 130.000. Heildarveiðin á
landinu var 172 þúsund fiskar
sem samsvarar heildaraukningu
milli ára um 30%.
Athygli vekur þetta sumarið að
mikil aukning varð á laxveiði á
Vestfjörðum þar sem var mun
meiri veiði en áður. Skýringanna
telur Veiðimálastofnun líklegast
að leita í að hafbeitarlaxar hafi
villst upp í árnar í miklum mæli.
Laxveiðin síðastliðið sumar fór
hægt af stað og hamlaði vatns-
leysi veiði fram eftir sumri, sér-
staklega í smærri ánum. Nokkuð
rættist úr þegar á leið vegna rign-
inga. JOH
Nemendur Glerárskóla spretta úr spori í gær.
Mynd: Golli
Norrænt skólahlaup í Glerárskólanum:
„Til að auka líkamlegt
sem andlegt atgerfi“
- sagði Vilberg Alexandersson, skólastjóri
„Allir hafa hug á aö hlaupa,
jafnt nemendur sem kennarar.
Nemendurnir hlaupa margir
hverjir 10 kílómetra, en Ilest-
ir kennarar styttra,“ sagöi
Vilberg Alexandersson, skóla-
stjóri Glerárskólans á Akur-
eyri, en í gær var norræna
skólahlaupið á dagskrá í
skólanum.
I gær var efnt lil norræns
skólahlaups í Glerárskólanum á
Akureyri. Glerárskólinn er
fyrstur skóla til að efna til sh'ks
hlaups á Akureyri. Morgun-
deildir hlupu kl. 10.30 og síð-
degisdeildir kl. 14.40. Mjöggóð
þátttaka var í hlaupinu.
„Markmið norræna skóla-
hlaupsins er að leitast við að
hvetja nemendur, kennara og
aðra starfsmenn skólanna til að
æfa hlaup og auka þannig
líkamlegt sem andlegt atgerfi.
Jafnframt er ntarkmiðið að efla
norrænt samstarf um íþróttamál
í skólum. Októbermánuður er
ntánuður skólahlaupsins og
hlaupararnir geta valið hvort
þeir hlaupa 2Vi, 5 eða 10 kíló-
metra. Hver skóli skipuleggur
hlaupið fyrir sig og gerir grein
fyrir þátttöku til menntamála-
ráðuneytis. Viðurkenningar-
skjöl eru veitt hverjum hlaup-
ara svo og skóla,“ sagði Vilberg
Alexandersson. ój
Húsavík:
Sauðflárslátrun lauk í gær
- síðustu HólsQallakindurnar teknar í fyrradag
Sauöljárslátrun lauk hjá Slát- Þorgeir Hlöðversson, slátur-
urhúsi Kaupfélags Þingeyinga hússtjóri, sagðist vera feginn að
á Húsavík í gær. Alls var lógað
um 39.200 dilkum og 4.600 af
fullorðnu fé. Meðalvigt dilka
var um 14,6 kg, heldur lakari
en í fyrra, en heppilegri þyngd
hvað markaðinn varðar.
Minna af kjöti var fitufellt en í
fyrra.
ljúka sláturtíð svo snemma í ár,
ekki síst ef tekið væri mið af
veðurfari síðustu dagana. Þorgeir
sagði að slátrun hefði gengið
mjög vel og áfallalaust. Alls unnu
uin 130-140 manns á sláturhúsinu
og sagði Þorgeir að vert væri að
þakka fólkinu vel unnin störf.
Vestur-Húnavatnssýsla:
Ákveðið að stoftia atvinnuþróunarfélag
- mun taka við af átaksverkefninu
Ákveðið var í gær á fundi á
Hvammstanga að farið yrði að
gera starfsreglur o.fl. fyrir
atvinnuþróunarfélag sem
stofna á í V.-Húnavatnssýslu
upp úr næstu mánaðamótum.
Félagið mun taka við af átaks-
verkefni því er staðið hefur yfir
í sýslunni síðustu árin og lýkur
um næstu áramót.
Bjarni Þór Einarsson, sveitar-
stjóri á Hvammstanga og einn
þeirra sem sæti eiga í undirbún-
ingsnefnd fyrir stofnun félagsins,
segir að félagið eigi ekki að heita
atvinnuþróunarfélag heldur
bendi allt til þess að það hljóti
nafnið Hagfélag V.-Hún. Hann
segir að þarna verði um hluta-
félag að ræða og séu það aðilar í
héraði og Byggðastofnun sem
muni gerast stofnaðilar.
Búið er að kanna grundvöllinn
fyrir stofnun þessa hagfélags í
sumar og undirtektir hafa verið
góðar að sögn Bjarna. Samkvæmt
hugmyndum manna mun einn
starfsmaður vinna á vegum félags-
ins til að byrja með, en annars
segir Bjarni að eftir eigi að slípa
allar áætlanir um starfsemina.
SBG
Töluverður niðurskurður var á
fé vegna fækkunar, alls um 2.300-
2.400 kindur. Á þriðjudag áttu
Fjöllungar þung spor að slátur-
húsinu er rúmlega 400 kindum,
þeim síðustu af Hólsfjöllum, var
lógað þar. Orsökin var niður-
skurður vegna fyrirhugaðrar
landgræðslu.
Þorgeir sagði að hluti kjötsins
af fullorðna fénu yrði seldur til
Mexíkó. Sláturhúsið fékk góða
og gagnlega heimsókn í haust, að
sögn Þorgeirs. Ástralskur slátur-
hússtjóri, sem einnig starfar sem
ráðgjafi við slátrun, heimsótti
húsið tvívegis.
í haust var örfáum kiðlingum
lógað á sláturhúsinu. Um helgar
hefur verið unnið að nautgripa-
slátrun og sagði Þorgeir að fyrir
lægi á næstunni að slátra ein-
hverju af stórgripum, svínum og
nautgripum. Einnig ætti að slátra
hrossum, með útflutning til
Japans í huga. Síðan yrði sauðfé
slátrað dag og dag, þar sem ekki
hefðu allir enn heimt af fjalli, það
fé sem fyrir hefði legið að slátra í
haust. IM