Dagur - 25.10.1991, Side 6
6 - DAGUR - Föstudagur 25. október 1991
Hvað ER AÐ GERAST?
Edda Erlendsdóttir, píanóleikari:
Heldur útgáfiitónleika
á Sauðárkróki og Ak-
ureyri um helgina
Ríó tríó og stjömu-
kvöld í SjaUanum
Edda Erlendsdóttir píanóleikari
heldur tvenna tónleika á
Norðurlandi uin helgina. Fyrri
tónleikarnir verða haldnir í sal
Tónlistarskólans á Sauðárkróki á
morgun, laugardaginn 26. októ-
ber, og hefjast kl. 16.00. Þeireru
haldnir á vegum Tónlistarfélags
Sauðárkróks. Síðari tónleikarnir
verða í Safnaðarheimili Akureyr-
arkirkju sunnudaginn 27. októ-
ber og hefjast kl. 17.00. Þeir eru
haldnir á vegum Tónlistarfélags
Akureyrar.
Bach og Franz Schubert. Flest
verka C.P.E. Bach hafa aldrei
áður verið gefin út á plötu og er
þetta fyrsti geisladiskurinn með
verkum eftir þennan höfund leik-
in á nútíma píanó. Tónleikarnir
eru haldnir í tilefni af útkomu
geisladisksins og á efnisskránni
eru verk eftir þessa tvo tónsnill-
inga.
Sem fyrr segir hefjast tón-
leikarnir á Sauðárkróki kl. 16.00
á morgun en tónleikarnir á Akur-
eyri kl. 17.00 á sunnudag.
Edda Erlendsdóttir, píanóleikari.
í kvöld, föstudagskvöld, verður
almennur dansleikur í Sjallanum
og leikur Rokkbandið fyrir dansi
til kl. 03.00 og er frítt inn til kl.
24.00.
A morgun, fyrsta vetrardag,
verður stjörnukvöld í Sjallanum
og mikið um að vera. Boðið
verður uppá þríréttaða máltíð,
skemmtun og dansleik. Þeir sem
koma fram á stjörnukvöldinu
annað kvöld eru m.a. Eyjólfur
Kristjánsson, Jóhannes Kristjáns-
son eftirherma, Ragnar Bjarnason
söngvari og dansflokkur frá
Studioi Alice. Þá verður brugðið
á leik á breiðtjaldinu og happ-
drætti. Þá munu þeir félagar í
Ríó tríó heimsækja Sjallagesti kl.
01.00 og leika nokkur af sínum
þekktustu lögum. Rokkbandið
og Guðrún Gunnarsdóttir leika
fyrir dansi til kl. 03.00.
í Kjallaranum verður það
Guðmundur Rúnar Lúðvíksson
trúbador og myndlistarmaður sem
skemmtir gestum til kl. 03.00.
Leikfélag Akureyrar:
StáJblóm
um helgina
Edda Erlendsdóttir lauk ein-
leikaraprófi árið 1973 en hafði ári
fyrr lokið píanókennaraprófi.
Hún hlaut franskan styrk til náms
við Tónlistarháskólann í París og
lauk prófi þaðan 1978. Edda hef-
ur haldið fjölmarga tónleika og
tekið þátt í tónlistarhátíðum á
íslandi, í Frakklandi og flestum
öðrum Evrópulöndum. Þá hefur
hún farið í tónleikaferðir til
Sovétríkjanna og Bandaríkj-
anna. Árið 1990 var Edda kosin
fulltrúi fyrir Yehudi-stofnunina í
París þar sem hún er nú búsett.
Edda kennir við Tónlistarháskól-
ann í Lyon.
Nú í október kom út geisla-
diskur hjá Skífunni, þar sem
Edda leikur verk eftir Carl P.E.
Hafnarstræti 88,
sími 25914.
Kórahátíð í Háskólabíói
- til styrktar húsbyggingarsjóði MS-félags íslands
Kórahátíð til styrktar húsbygg-
ingarsjóði MS-félags íslands
verður haldin í Háskólabíói
laugardaginn 2. nóvember kl.
15.
Á þessum tónleikum koma
fram eftirtaldir kórar: Skólakór
Kársness, stjórnandi Þórunn
Björnsdóttir; Kór Öldutúns-
skóla, stjórnandi Egill Friðleifs-
son; Dómkórinn, stjórnandi
Marteinn H. Friðriksson; Kór
Langholtskirkju, stjórnandi Jón
Stefánsson; Karlakórinn Fóst-
bræður, stjórnandi Árni Harð-
arsson og Karlakór Reykjavíkur,
stjórnandi Friðrik S. Kristinsson.
Kynnir á tónleikunum verður
Baldvin Halldórsson leikari.
Miðar verða seldir frá 21. októ-
ber í Háskólabíói, Hljóðfæra-
verslun Poul Bernburg hf. Rauð-
arárstíg 16 og Tónastöðinni
Óðinsgötu 7, Reykjavík.
MS-félag íslands er félagsskap-
ur sjúklinga, sem haldnir eru MS
(Multiple Sclerosis). Félagið rek-
ur sjúkradagvistun að Álandi 13 í
Reykjavík. Þar eru aðeins
aðstæður fyrir 25 manns, en rúm-
lega 200 manns eru haldnir þess-
um sjúkdómi á íslandi. Félaginu
hefur verið úthlutuð lóð við
Sléttuhlíð í Reykjavík, þar sem
það áformar að koma sér upp
nýju húsnæði.
Allir þeir, sem koma fram á
Kórahátíðinni í Háskólabíói gefa
húsbyggingarsjóði MS-félagsins
vinnu sína og einig lánar Há-
skólabíó salinn endurgjaldslaust.
- æfingar á jólasöng-
leik að heijast
Leikfélag Akureyrar sýnir leikrit-
ið Stálblóm föstudags- og laugar-
dagskvöld kl. 20.30. Á það skal
minnt að sala áskriftarkorta er
enn í gangi og geta leikhúsgestir
keypt aðgang að þremur sýning-
um á verði tveggja.
Æfingar eru að hefjast á jóla-
söngleik LA. Hann nefnist Tjútt
& tregi og er eftir Valgeir
Skagfjörð. Hann samdi bæði
tónlist og texta sérstaklega fyrir
Leikfélag Akureyrar og mun
leikstýra sjálfur. Baldvin Björns-
son hannar leikmynd og búninga,
hljómsveitarstjóri er Jón
Rafnsson, Jón Hlöðver Áskels-
son sá um tónlistarútsetningar,
Henný Hermannsdóttir semur og
stjórnar dönsum og lýsingu ann-
ast Ingvar Björnsson.
Full búð af nýjum efnum t.d.:
Köflótt taft í jólakjólana, velúr og flauel.
Köflótt stredds og gaberdín.
Ullarefni í miklu úrvali.
Jesey með Licra rósótt, doppótt, röndótt og
einlitt. Flauel margir litir.
Riflað, köflótt og rósótt skyrtuefni í stíl.
Gluggatjaldaefni á 335 kr.
Jólaefnin komin á sinn stað.
Jólakappar og margt fleira.
Póstsendum um land allt.
Burda snið.
Yfirdekkjum hnappa, setjum kósa og smellur.
Borgarbíó:
Sex myndir um helgina
Borgarbíó á Akureyri sýnir sex
kvikmyndir um helgina í tveimur
sýningarsölum. Kvikmyndirnar
eru Alice, Eddi klippikrumla,
Lífið er óþverri, Fullkomið vopn,
Jestons fjölskyldan og Sagan
endalausa.
„Alice“ er nýjasta og ein
albesta kvikmynd snillingsins
Woody Allen. Myndin er bæði
stórsniðug og leikurinn frábær.
„Aðdáendur Woody Allen fá hér
sannkallað kvikmyndakonfekt."
segir í umsögn um myndina.
„Eddi klippikrumla" hefur
slegið í gegn hvar sem hún hefur
verið sýnd og var ein vinsælasta
myndin vestan hafs fyrir nokkr-
um mánuðum. Leikstjöri er Tim
Burton, sem er hinn sami og leik-
stýrði „Batman" og „Beetleju-
ice“.
„Lífið er óþverri“ er brjálæðis-
lega fyndin grínmynd og var
frumsýnd vestan hafs fyrir nokkr-
um vikum. Aðalleikarinn Mel
Brooks segir: „Ég skal lofa ykkur
því, að „Lífið er óþverri“ er ein
besta grínmynd sem þið hafið séð
í langan tíma.“ - Sem sagt, góð
bíóhelgi framundan. Góða
skemmtun.
Bílasala •
Subaru Legacy station 2,2 árg. 1990
ek. 16.000. Verð 1.850.000
MMC Colt 1500 GLX árg. 1989
ek. 45.000. Verð 830.000
MMC Galant Super Salon árg. 1989
ek. 25.000. Verð 1.350.000
Subaru Coupé árg. 1987
Verð 820.000
Bílaskipti
Honda Civic Sedan GL árg. 1989
ek. 34.000. Verð kr. 960.000
MMC Lancer station 4x4 árg. 1988
Verð 950.000
Einnig eigum við mikið
úrval af bílaleigubílum
til sölu á góðu verði
y RiLflSAlWW
Möldursf.
BÍLASALA
við Hvannavelli
Símar 24II9 og 24170