Dagur - 26.03.1992, Side 3

Dagur - 26.03.1992, Side 3
Fimmtudagur 26. mars 1992 - DAGUR - 3 Fréttir Vátryggingafélag íslands hf.: Rekstrar- •ii* ónir króna Afkoma Vátryggingafélags ísiands hf. á árinu 1991 batnaði mikið frá fyrra ári. Rekstrarhagnaður varð 40,6 miiljónir króna. Á aðalfundi félagsins var ákveðið að greiða hluthöfum 5% arð af hlutafé. Fram kemur í skýrslum að kostnaðurinn við rekstur Vá- tryggingafélagsins árið 1991 er nú 332 milljónum króna lægri en verið hefði með kostnað- arhlutfallinu 1988, sem var síðasta starfsár stofnfélaganna tveggja. Um hagræðingar- aðgerðir síðasta árs segir: „Unnið var áfram að hagræð- ingu í rekstri, og árangur varð enn frekari lækkun kostnaðar. Samtala greiddra umboðs- launa og rekstrarkostnaðar lækkaði þannig niður í 19,8% af iðgjöldum ársins úr 23,4% árið 1990. Eigið fé félagsins var aukið á árinu 1991 með útgáfu nýs hlutaíjár að nafn- verði 130 milljónir króna. Hlutafé þetta var allt selt á genginu 2.0 og var aukning eigin fjár félagsins því 300 milljónir króna. Eftir hluta- fjáraukninguna er nafnverð hlutafjár félagsins 430 milljón- ir króna og bókfært eigið fé þess í árslok 1991 er 709 milij- ónir króna. ój Synjun byggingarnefndar á breytingum á Rimasíðu 15 á Akureyri: Byggingamefiid dragi ekki æru manna niður í svaðið með lágkúru - segir Kristján Gunnarsson, eigandi hússins, m.a. í bréfi til nefndarinnar „Það er orðið tímabært að þessari vitleysu Ijúki og nefnd- in veiti umbeðið leyfi til bráða- birgða ef ekki dugar annað til og sé ekki að draga æru manna niður í svaðið með lágkúru. Ef ekki er hægt að fá frið fyrir byggingarnefndinni og starfs- mönnum bæjarins um þennan fasteignarekstur út í Rimasíðu sé ég ekki annað en ég muni leggja reksturinn niður, segja íbúunum upp leigusamningn- um, loka fyrir hitaveitu, raf- magn og vatn og láta innsigla húsið til frambúðar.“ Þetta segir Kristján Gunnars- son, eigandi hússins Rimasíða 15 á Akureyri, í bréfi til byggingar- nefndar Akureyrarbæjar dagsett Raufarhöfn: Verslunaifélagið opnar gistiheimili Verslunarfélag Raufarhafnar hf. hefúr opnað nýtt gistiheimili að Aðalbraut 24 á Raufarhöfn. Gistiherbergin eru á efri hæð- um skrifstofubyggingar versl- unarfélagsins. Fyrst um sinn verður boðið upp á gistingu í tveimur tveggja manna herbergjum og einu eins manns herbergi en í framtíðinni verður gistirýmið aukið. Dvalargestir hafa aðgang að rúmgóðu eldhúsi og góðri stofu til að matast í svo og bjartri og vistlegri setustofu þar sem þeir geta horft á sjónvarp eða gluggað í bækur sem eru til afnota fyrir gesti. Hægt verður að fá morgun- mat á gistiheimilinu og málsverði í mötuneyti sem rekið er í heima- húsi steinsnar frá gistiheimilinu. Ársskýrsla ístex hf.: Tekjur tæpar 60 miHjónir og eiginfjárhlutfall 44%» íslenskur textOiðnaður hf. eða ÍSTEX var stofnað 15. október sl. og tók yfir starfsemi Rekstr- arfélags Alafoss í Mosfellsbæ og Hveragerði. Uppgjör fyrir- tækisins fyrir 1991 Iiggur fyrir, það fyrsta frá því ístex hóf starfsemi. í ársskýrslu ístex kemur fram að fjöldi starfsmanna á sl. ári var 62 og þar af voru 59 í framleiðslu- störfum. Rekstrartekjur voru tæpar 60 milljónir. Hagnaður árs- ins fyrir skatta sem hlutfall af veltu var 5,4% og hagnaður árs- ins sem hlutfall af veltu 2,9%. Þá reyndist veltufjárhlutfall vera 1,92 og lausafjárhlutfall 0,93. Eiginfjárhlutfall (tapþol) var 44%. ístex hf. flytur út handprjóna- band til 15 landa. Helstu mark- aðssvæði handprjónabandsins eru Bandaríkin, Kanada, Evrópa og Japan. Þá framleiðir ístex band í íslenskan fatnað og vefn- aðarvörur sem flutt er út víða um heim. Megináhersla er lögð á framleiðslu úr íslenskri ull, en gæði hennar hafa aukist jafnt og þétt með auknum haustrúningi. ój Alþingi: Fyrirspum um Jóhannes Geir Sigurgeirsson hefur lagt fram á Alþingi fyrir- spurn til dómsmálaráðherra í framhaldi af svokölluðu Þjóð- lífsmáli sem áberandi hefur verið í fjölmiðlum að undan- förnu. Þingmaðurinn krefur dómsmálaráðherra þar svara um vernd almennra borgara gagnvart innheimtumönnum. Fyrirspurn Jóhannesar Geirs er svohljóðandi: „Hyggst dómsmálaráðherra grípa til einhverra aðgerða til verndar almennum borgurum gegn innheimtumönnum sem virðast beita réttarkerfinu til að ná fé út úr saklausu fólki, sbr. fréttir af slíku athæfi í fjölmiðlum í síðustu viku í tengslum við inn- heimtu áskriftargjalda tímaritsins Þjóðlífs?" JÓH í tilkynningu frá Verslunar- félagi Raufarhafnar kemur fram að verði á gistingu er mjög stillt í hóf og einnig er hægt að fá svefn- pokapláss. Þá er hægt að semja um afslátt ef dvalið er í nokkra daga. SS í gær, 25. mars. Bréfið er sent byggingarnefnd vegna afgreiðslu hennar á erindi Kristjáns um breytingar á Rima- síðu 15, en eins og Dagur greindi frá sl. þriðjudag synjaði bygg- ingarnefnd erindinu. Kristján fer fram á í bréfinu að byggingarnefnd taki málið aftur fyrir til efnislegrar umfjöllunar og vísar í því sambandi til 8. greinar byggingalaga. „Til að fyrirbyggja misskilning skal tekið fram að breytingar þessar á notk- un hússins eru eingöngu til bráðabirgða og ætlað að bæta fjárhag vegna eignarinnar 5-10 næstu árin, en ekki sem breyting til frambúðar," segir orðrétt í bréfinu. Eins og fram kom í frétt Dags sl. þriðjudag lagði Árni Ólafsson, skipulagsstjóri Akureyrarbæjar, til á fundi byggingarnefndar 18. mars sl. að hönnuður teikning- anna að nefndum breytingum á Rimasíðu 15 yrði áminntur. Um þetta segir Kristján í bréfi sínu til byggingarnefndar: „Mál þetta er farið að taka á sig skrítna mynd, þegar einn nefndarmaðurinn Árni Ólafsson núverandi skipu- lagsstjóri Akureyrarbæjar er far- inn að ráðast að teiknara mínum fyrir að teikna upp breytingar á húsinu á mína ábyrgð og sam- kvæmt óskum mínum og hug- myndum, með óskum sínum um lágkúrulegar bókanir í garð teiknara míns sem vel mætti skilja sem atvinnuróg af óvönd- uðum. Byggingarnefnd er af- greiðslustaður fyrir hugmyndir manna um húsbyggingar, gerð þeirra, útlit og notkun. Allir hafa rétt á og fullt frelsi til að leggja slíkar hugmyndir fyrir byggingar- nefnd. Allt annað er brot á tján- ingarfrelsi og málfrelsi. Bygg- ingarlögin og skipulagslögin í núverandi mynd hefta athafna- frelsi manna allt of mikið og eru því orðin úrelt og mikið til þarf- laus, mér sýnist að óhætt sé að fella út stóra hluta þeirra að skaðlausu." óþh í frera vetrar. Mynd: Golli Vetrarleikar hestamanna á Akureyri: Fjölbreytt og áhugaverð dagskrá - dagana 27. til 29. mars Vetrarleikar hestamanna fara fram á Sanavellinum á Akur- eyri dagana 27. til 29. mars nk. Hestamannafélagið Léttir á Akureyri og íþróttadeild þess standa að framkvæmd leik- anna. Boðið verður upp á mjög fjölbreytta dagskrá alla dagana og Akureyringar jafnt sem nærsveitamenn eru hvattir til að mæta á SanavöIIinn og styðja þannig við bakið á hesta- mönnum á Akureyri. Vetrarleikarnir verða settir kl. 20,00 á föstudag með fánareið félaga úr íþróttadeild Léttis. Hálfri klukkustund síðar hefst grímutölt þar sem knapar mæta í grímubúningum á skreyttum hestum. Óhætt er að segja að f þessu dagskráratriði koma fyrir sjónir áhorfenda margir glæsileg- ir úrvalstöltarar þar sem tölthest- ar af Eyjafjarðarsvæðinu hafa verið áberandi á liðnum árum á mótum hestamanna um land allt. Morguninn eftir kl. 9.00 hefst forkeppni í fjórum gangtegund- um. Áð henni aflokinni hefst fjölbreytt sýningardagskrá kl. 14.00. Þar verða sýndir stóðhest- ar og hryssur. Dagskrárliðurinn „Ræktunarbússýningar" ætti að vekja athygli sem og sýningar barna, unglinga og eldri félaga úr Létti. Þá verður boðið upp á hindrunarsökks- og kerruaksturs- sýningu og munsturreið félaga úr íþróttadeild Léttis. Þegar sýning- ardagskrá lýkur verður háð gæð- ingaskeiðskeppni. Um kvöldið verður opið hús í Skeifunni í Breiðholti ofan Akureyrar, en Skeifan er félagshús Hesta- mannafélagsins Léttis. Dagskrá sunnudagsins hefst kl. 13.00 með úrslitum í fjórum gangtegundum, en kl. 14.00 verður sýningardagskráin endur- tekin. Að henni lokinni verður efnt til keppni í 150 metra skeiði og síðan verður leikunum slitið með viðhöfn. ój Bókamarkaðurinn á Akureyri: Um 30.000 bækur seldar Stóra bókamarkaðnum í kjallara kjörmarkaðs KEA í Hrísa- lundi lýkur á sunnudag. Mark- aðurinn hefur gengið mjög vel og þegar hafa verið seldar um 30.000 bækur. Þar sem nú fer að síga á seinni hlutann, verður boðið upp á sér- tilboð síðustu dagana. Margar 'bækur lækka enn frekar í verði og þá verður boðið upp á 12 gamlar bækur saman á sérstöku tilboðsverði, eða kr. 500. Mark- aðurinn er opinn í dag frá kl. 9- 18, á morgun föstudag frá kl. 9- 19, á laugardag frá kl. 10-18 og á sunnudag frá kl. 13-18. -KK

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.