Dagur - 26.03.1992, Page 5
Fimmtudagur 26. mars 1992 - DAGUR - 5
Allar forsendur til þess að efla Sighiijörð
segir Björn Valdimarsson, bæjarstjóri, í spjalli um starfið, sjálfan sig og Sigluijörð
Bæjarstjóri þarf að búa yfir hæfilegri blöndu af ákveðni og sveigjanleika,
segir Björn Valdimarsson, bæjarstjóri á Siglufirði.
Björn Valdimarsson hefur nú
setið á annað ár í stóli bæjar-
stjóra á Siglufirði. Hann er 37
ára Reykvíkingur og bjó á
heimaslóðum fyrstu 28 árin. Á
þeim árum vann hann m.a. hjá
hljómplötuútgáfunni Fálkan-
um og kom nærri stofnun
Grammsins. Fluttist síðan
norður í Húnaþing og vann við
rekstur prjónastofa á Blöndu-
ósi og Hvammstanga í átta ár.
Var þá ráðinn starfsmaður
átaksverkefnis í atvinnumálum
á Siglufirði og tók sæti á lista
óháðra í síðustu bæjarstjórnar-
kosningum. í kjölfar kosn-
inganna var hann ráðinn bæj-
arstjóri. Hvernig líkar honum
starfið?
„Mér fellur það vel. F>að er
gott að vinna með Siglfirðingum.
Fyrstu mánuðirnir voru eðlilega
mjög erfiðir vegna þeirrar erfiðu
stöðu sem við vorum í. Maður
þurfti á þeim tíma að segja nei
við flesta sem komu hingað á
bæjarskrifstofuna. Staðan er allt
önnur og betri í dag og því ólíkt
skemmtilegra að takast á þetta,“
segir Björn.
Erilsamt starf
Björn viðurkennir að starf bæjar-
stjóra sé töluvert erilsamt.
„Starfið er þess eðlis að maður er
alltaf með hugann við það. Eigin-
lega má segja að maður sé alltaf í
vinnunni.“
- Hvernig á góður bæjarstjóri
að vera?
„Nú mátaðir þú mig alveg,“
sagði Björn og hló. Bætti síðan
við. „Ég hygg að til þess að sinna
þessu starfi vel, þá þurfi hæfilega
blöndu af ákveðni og sveigjan-
leika.“
- Ertu ákveðinn?
„Það eru víst aðrir betri að
dæma um það. Bæjarstjóri tekur
ekki allar ákvarðanir út frá
rekstrarlegum forsendum, eins
og maður sem stýrir fyrirtæki.
Það þarf alltaf að taka tillit til
fleiri þátta. Mestu máli skiptir að
geta hlustað eftir því sem fólk í
kringum mann vill og í framhaldi
af því að vega og meta hvað af
því hægt er að framkvæma og
hvað ekki. Það auðveldar mitt
starf sem bæjarstjóri að meiri-
hluti bæjarstjórnar hér er mjög
samhentur og raunar má segja
um alla bæjarstjórnina að hún er
mjög samstíga. Það léttir mjög
starfið. Þá má ekki gleyma hlut
starfsfólks bæjarins."
Bjartara framundan í
atvinnumálunum
Siglfirðingum hefur fækkað veru-
lega á undanförnum árum og
ákveðins vonleysis hefur gætt.
Sum atvinnufyrirtæki hafa staðið
fremur illa og bæjarsjóður var
hættulega skuldsettur. Á þessu
hefur orðið veruleg breyting á
síðustu misserum. Björn horfir til
betri daga. „í fyrra fækkaði hér
um 40 manns og ég tel að þá
fækkun verði að skoða í ljósi þess
ástands sem hér var. Loðnu-
bræðslan hefur verið bæjarfélag-
inu mjög mikilvæg, en hingað
kom sáralítil loðna á síðasta ári.
Þetta hafði í för með sér verulega
fækkun starfsmanna hjá Síldar-
verksmiðjum ríkisins. Á þessu
ári horfum við fram til aukinnar
atvinnu. Hingað hefur borist
mun meiri loðna en á síðasta ári
og bærinn framkvæmir verulega
meira í ár en í mörg undanfarin
ár. Þá má ekki gleyma því að
Þormóður rammi hefur fest kaup
á togara, sem hefur jákvæð áhrif
fyrir atvinnulífið í bænum.“
Stóra málið að hafa næga
atvinnu og þjónustu
Björn segir ekki hægt að horfa
framhjá því að Siglufjörður sé
endastöð í samgöngulegu tilliti.
Á móti komi að samgöngur við
bæinn séu góðar. Leiðin til Siglu-
fjarðar sé að stórum hluta lögð
bundnu slitlagi og Siglfirðingar
búi við góðar samgöngur í lofti.
„Stóra málið fyrir bæinn er að
hafa næga atvinnu og þjónustu.
Kröfurnar eru miklar og Siglu-
fjarðarbær reynir eftir mætti að
koma til móts við þær og ég hygg
að með þjónustu við bæjarbúa
stöndum við nokkuð sæmilega
miðað við ýmsa sambærilega
staði á landsbyggðinni.“
Málefni landsbyggðarinnar
bárust í tal og Björn sagðist hafa
veriö mun hræddari um stöðu
hennar fyrir fimm árum en í dag.
„Mér finnst ráðamenn þjóðarinn-
ar vera að gera sér æ betri grein
fyrir því að við lifum á útflutn-
ingi. Og ég tel að það skipti
kannski ekki síður máli að niður-
sveifla liefur verið viðvarandi
víða á landsbyggðinni undanfarin
ár. Reykjavík finnur hins vegar
fyrir samdrætti um þessar
mundir. Þetta hefur haft það í för
með sér að mörg fyrirtæki á
landsbyggðinni hafa náð að
aðlagast breyttum aðstæðum.
Þetta á t.d. við um mörg sjávar-
útvegsfyrirtæki, sem eru eins og
við vitum víða burðarásar í
atvinnulífi á landsbyggðinni. Mér
er til efs að aðrar stórar atvinnu-
greinar hér hafi farið í gegnum
allt að 40% samdrátt í veltu og
náð að aðlagast þeirri skerðingu
með sama hætti og sjávarútveg-
urinn hefur þrátt fyrir allt gert.“
Er með jeppadellu
„Frístundirnar snúast nær ein-
göngu um fjölskylduna, ekki síst
eftir að ég eignaðist barn á sl.
hausti. Síðan taka kvöldgöngurn-
ar með hundinn sinn tíma. Til
þess að komast í burtu frá þess-
um venjulega erli gerum við svo-
lítið af því að fara í sumarhús í
Víðidalnum. Svo er það jeppinn.
Hann hefur lent svolítið útund-
an. Ég fékk fyrst smjörþefinn af
þessu eftir að ég fór í eina ágæta
haustferð með þeim Andrési
Magnússyni, lækni, Guðna
Sveinssyni, lögreglumanni,
Gunnari Júlíussyni, vélstjóra og
útgerðarmanni og Páli Sigurðs-
syni, vélstjóra. Þá komst ég á
bragðið. Síðan fór ég í aðra ferð
í mars fyrir tveim árum. Þá lent-
um við í því að berjast í tíu vind-
stigum 20 síðustu kílómetrana að
Hveravöllum. Eftir þetta fékk ég
delluna og ákvað að fá mér
jeppa. En því miður hefur ekki
gefist eins mikill tími til fjalla-
ferða og maður' hefði gjarnan
viljað."
Bjartsýnn á
framtíð bæjarins
í lokin var sú stóra spurning lögð
fyrir Björn hvernig hann sæi fyrir
framtíð Siglufjarðarbæjar?
„Eiginfjárstaða samfélagsins
hér, bæði bæjarsjóðs og fyrir-
tækja, er orðin jákvæð og því eru
allar forsendur til þess að efla
Siglufjörð. Á hinn bóginn er gott
að vera ekki með of miklar vænt-
ingar eða stórar yfirlýsingar um
það. En ég þykist vera þess full-
viss að vinna við endurskipulagn-
ingu atvinnulífs hér mun halda
áfram og hún skilar sér þegar upp
verður staðið. Kaup Þormóðs
ramma á fjölveiðiskipinu Sunnu
segir meira en mörg orð um að
við erum á réttri leið. En menn
verða að halda vöku sinni. Það
þarf ekki mörg feilspor til þess að
veikja stöðuna," sagði Björn
Valdimarsson. óþh
Að mati bæjarstjóra er staða atvinnufyrirtækja og bæjarsjóðs ágæt og hann telur því allar forsendur til að efla Siglu-
fjörð. Myndir: Golli
Viö eigum glæsilegar bækur sem
eru tilvaldar til fermingargjafa:
M.a. myndskreytta Passíusálma - World Atlas - Biblíuna í
myndum - Ijóðabækur - Stóru fiskabókina -
Byggingalistasögu Fjölva o. fl. o. fl.
SWSKO
BÓKAMARKAÐURINN
Hrísalundi 5
Kjallara
Opiö: Föstud. kl. 9:00-19:00
Laugard. kl. 10:00-18:00
Sunnud. kl. 13:00-18:00 -Síöasti dagur
HÖNNUNARDEILD