Dagur - 26.03.1992, Síða 7

Dagur - 26.03.1992, Síða 7
Fimmtudagur 26. mars 1992 - DAGUR - 7 Tilfinningarnar ólga. Snæfríður íslandssól (Elva Ósk) og Arnas Arnæus (Hallmar Sigurðsson). Herdís Birgisdóttir og Þórdís Arnljótsdóttir í hlutverk- um sínum. miklu stolti, sem er hennar höfuðsmerki, en hún er fyrst og fremst ástfangin af Árna. Hún skilur ekki alþýðuna og er vön að fá allt sem hún girnist, þangað til í ljós kemur að hún fær ekki Árna. Nokkrar setningar í leikritinu lýsa henni mjög vel. Hún segir að hún vilji heldur fá þann versta en þann næstbesta en með tímanum breytist þetta og hún giftist bæði þeim versta og næstbesta, Magnúsi í Bræðra- tungu og dómkirkjuprestinum. Jón Hreggviðsson segir að hún sé eins og reyrstafur sem réttist alltaf við aftur þótt hann bogni. Það gerir stoltið, sama hvað bját- ar á þá reisir hún sig upp. Mér finnst Snæfríður ekki mjög flókin persóna. Hún er algjör andstæða við alþýðuna og Jón Hreggviðsson. Hún er ósköp indæl en hana vantar þennan djúpa skilning á því pólitíska umhverfi sem Hallmar var að lýsa áðan. Árni helgar sig bókum og Snæ- fríður er eiginlega ástfangin af ímynd hans, þessa höfuðsmanns sem er ágætastur allra íslendinga. Hún þráir hann og heldur að hún fái hann en sér loks að þetta gengur ekki upp, enda eiga þau ekki samleið. Snæfríður fer sínar eigin leiðir, sem þekktist varla á þessum tíma, og fer á Þingvöll þar sem konur eru yfirleitt ekki velkomn- ar. Hún vill sjá drekkingarhylinn og mann höggvinn. Það er mikil ólga í henni og kraftur. Hún læt- ur engan stjórna sér og kemst upp með það,“ sagði Elva Ósk að lokum um hina stoltu Snæfríði íslandssól. Eins og áður segir verður íslandsklukkan frumsýnd nk. föstudag og næstu sýningar verða á laugardag og sunnudag. íslands- klukkan er tvöföld afmælissýn- ing, Leikfélag Akureyrar verður 75 ára 19. apríl og Halldór Lax- ness 90 ára 23. apríl. Það er því rík ástæða til að fagna og finna þjóðarsálina í Samkomuhúsinu. SS Kaffihlaðborð verður í Lóni við Hrísalund, sunnudaginn 29. mars frá kl. 15-17. Allir velkomnir. Harmonikuunnendur. Akureyringar, Eyfirðingar, Þingeyingar Harmonikutónleikar og dansleikur í Bláhvammi við Skipagötu, laugardaginn 4. apríl nk. Skemmtunin hefst kl. 21.30 með tónleikum hljóm- sveitar FHUE og hljómsveitar Harmonikufélags Þing- eyinga. Harmonikuleikarar úr báðum félögunum leika fyrir dansi. Húsið opnað kl. 20.30. Miðasala við innganginn. Allir velkomnir. Félag harmonikuunnenda við Eyjafjörð, Harmonikufélag Þingeyinga. Ferskar fréttir með morgunkaffinu ÁskriftaríS? 96-24222 Kristján Kristjánsson: Lesið miUi lína minna... Það fór eins og ég átti von á, að hugleiðingum mínum í dálknum Efst í huga þann 14. mars yrði svarað. Þar deildi ég á skólahald í grunnskólum og spurði m.a. hvort ekki væri hægt að haga undirbún- ingi skólahaldsins á annan hátt og fækka um leið frídögum nem- enda. Ekki er það ætlun mín að fara að skrifast á við kennara um þetta mál. Hins vegar get ég ekki látið hjá líða að leiðrétta Kristin G. Jóhannsson, skólastjóra Bröttuhlíðarskóla og svara Gísla Baldvinssyni, kennara við Gagn- fræðaskóla Akureyrar. Heimavinnandi húsmóðir Kristinn G. tekur skrif mín fyrir í Bakþönkum sínum í Degi sl. laugardag og reynir þar m.a. að lesa milli lína í minni grein og fær það út að ég sé að vandræðast vegna þess að sonur minn fái ekki að vera í skólanum eins og mér og móður hans hentar. (Af hverju var ég svona viss um skrif mín yrðu túlkuð á þennan hátt?). Ekki get ég sagt að Kristni hafi tekist vel upp og hann fer reynd- ar með rangt mál. Til að fyrir- byggja allan misskilning, skal það upplýst, Kristni og fleirum til glöggvunar, að konan mín er heimavinnandi húsmóðir. Við eigum tvö önnur börn, dreng rétt að verða tveggja ára og fjögurra mánaða stúlku. - Og þar sem konan mín vinnur heima, getur sonur minn sem stundar nám í 2. bekk grunnskóla, alltaf, hvort sem frí er í skólanum vegna starfs- eða skipulagsdaga, eða þá að börnin eru send óvænt heim á miðjum skóladegi, fundið móður sína heima. Ég hef heldur ekki heyrt konu mína tala um ónæði af því að hafa soninn heima, eins og Kristinn G. vill vera láta. Hins vegar er ég í vinnunni 8-10 klst. á dag en hitti son minn alltaf í hádeginu og á kvöldin og að sjálf- sögðu um helgar. Kennsla oftar fallið niður en segir í skóladagatalinu Það sem Kristinn er að tala um á við um marga nemendur, þ.e. að báðir foreldrar vinni úti og því sé „þægilegt“ að börnin séu sem mest í skólanum en það á ekki við í mínu tilfelli! Hvort ég á eftir að verða kenn- ari og síðar þingmaður eins og Kristinn G. ýjar að, læt ég ósvar- að og þá minntist ég ekki einu orði á að kennarar stunduðu vinnusvik. Hvort ég, Kristinn G. og Ólafur G. menntamálaráð- herra getum komið okkur saman um hvert á að vera hlutverk for- eldra, skóla og menntamálaráðu- neytis í uppeldi barna, er aldrei að vita og kannski á Ólafur G. eftir að skipa nefnd um það mál, þar sem við þrír eigum sæti. Kristinn talar um bækling frá skólanum þar sem skýrt er frá öllu vetrarstarfinu og því ætti tæpast að koma mér á óvart hvernig til er hagað. Þennan bækling á ég og ég fullyrði jafn- framt að kennsla hefur fallið oft- ar niður í vetur en gefið er upp í skóladagatalinu í þeim ágæta bæklingi. Skólastarfíð ekki heilög kýr Gísli Baldvinsson, skrifar grein í Dag á þriðjudag undir fyrirsögn- inni: „Takk fyrir innleggið Kristján!" Ég segi nú bara; verði þér að góðu Gísli! Ég er sammála Gísla um það að skólastarfið er ekki heilög kýr og umræða um það á að vera virk og þátttaka foreldra meiri. Varð- andi þá hugmynd Gísla, að boð- að yrði til fundar um skólamál, vil ég taka undir með honum og myndi sjálfur reyna að mæta þar. Því er ekki að neita að ég hef fengið þó nokkur viðbrögð við mínum skrifum, bæði frá kennur- um og öðru fólki úti í bæ. Kenn- arar eru mér ósamála en annað fólk úti í bæ hefur lýst yfir ánægju sinni með mín skrif og talið þau fyllilega tímabær. Hvort fleiri vilja hins vegar tjá sig opinber- lega um málið, verður bara að koma í ljós. Kristján Kristjánsson. Höfundur er fréttastjóri Dags. SUNNUHIIÐ VERSIUNARMIÐSTÖÐ Matvörudeild KEA TILBOÐ Lambakótilettur aðeins kr. 688,- kg ★ Tökum aö okkur gerð ostabakka og pinna fyrir stórar sem smáar veislur. ★ Komdu og skoðaðu ostaborðið Sjáumst í Sunnuhlíð

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.