Dagur - 26.03.1992, Qupperneq 14
14 - DAGUR - Fimmtudagur 26. mars 1992
Sértilboð: Eitt símtal og við gerum þér tilboð
AKUREYRI
96-24838
Bílaleigan Örn
Flugvöllur og Tryggvabraut 1.
ÞÓRSHÖFN: Tel. 96-81175
VIÐ ÞJÓNUM ÞÉR
RVS-AVIS
Licency
Stjórnarkjör
Iðja, félag verksmiðjufólks, Akureyri, auglýsir hér
með eftir listum varðandi kjör stjórnar og trúnaðar-
mannaráðs fyrir árið 1992 að viðhafðri allsherjar-
atkvæðagreiðslu. Ber samkvæmt því að skila listum
skipuðum fimm aðalmönnum og fjórum til vara í
stjórn og varastjórn. Átta aðalmönnum í trúnaðar-
mannaráð og fimm til vara. Fimm mönnum í samn-
inganefnd. Tveimur endurskoðendum og einum til
vara. Allt miðað við fullgilda félagsmenn. Hverjum
lista skulu fylgja skrifleg meðmæli 80 fullgildra
félagsmanna. Listunum ber að skila á skrifstofu
félagsins, skipagötu 14, eigi síðar en kl. 17.00,
mánudaginn 6. apríl 1992.
Listi stjórnar og trúnaðarmannaráðs liggur frammi á
skrifstofu Iðju, Skipagötu 14.
Akureyri, 23. mars 1992.
Kjörstjórn.
Tónlist
Söngtónleikar
- á Sal Tónlistarskólans á Akureyri
Sunnudaginn 22. mars efndi Pór-
unn Guðmundsdóttir, sópran-
söngkona, til tónleika á Sal Tón-
listarskólans á Akureyri. Undir-
leikari hennar á píanó var David
Knowles.
Rödd Þórunnar er nokkuð sér-
kennileg. Hún hefur þýtt neðra
svið, en þegar upp á efra svið
raddarinnar kemur, verður rödd-
in dálítið hörð og jafnvel
málmkennd. Tækni hennar er
óumdeilanleg og tónvissa mikil
og brást henni afar sjaldan.
í túlkun líður Þórunn nokkuð
fyrir sérkenni raddarinnar, sem
fellur ekki nógu skemmtilega að
sumum verkum, en nýtur sín aft-
ur afar vel í öðrum. Hún hefur
góða tilburði til túlkunar, sem
reyndar nær ekki ætíð marki af
þeirri ástæðu, sem þegar hefur
verið tilgreind, og viðhefur sviðs-
framkomu, sem er í senn hófleg
og í samræmi við það efni, sem
hún flytur hverju sinni.
Fyrst á efnisskrá Þórunnar
Guðmundsdóttur og Davids
Knowles voru fimm verk eftir
Peter Warlock. Þessi verk voru
ekki svo vel af hendi leyst sem
skyldi og nutu sín ekki, en voru
þó flutt af fjöri og öryggi. Nokk-
uð spillti einnig, að undirleikur
Davids Knowles var verulega of
hávær og drekkti á stundum sem
næst alveg söngnum.
Næst flutti Þórunn Guðmunds-
dóttir fjögur lög eftir Christian
Sinding. Best tókst flutningur
lagsins Leit etter livet, sem var
þróttmikill og ákveðinn, og Paa
andre strengen, sem var þýðlega
og innilega flutt.
Nútímalegustu verkin á
söngskrá Þórunnar voru Fjögur
draumlög eftir Aulis Sallinen. í
þessum verkum virtist söngkonan
vera komin á heimavöll. Túlkun
hennar var ákveðin og örugg og
sérkenni raddar hennar nutu sín.
Fyrir kom reyndar, sérstaklega í
þriðja verkinu, On kolme unta
sisallain, að hæstu tónar virtust
brenglast nokkuð, en að öðru
leyti var flutningur skemmtilegur
og áhugaverður.
Fjórði flokkurinn á efnisskrá
Þórunnar Guðmundsdóttur og
Davids Knowles var fjögur lög
eftir Ture Rangström. Þessi verk
spönnuðu talsvert svið í blæ og
umfangi. Flickan frán fjárran og
Melodi flutti Þórunn innilega og
af lipurð, en síðasta lagið,
Sköldmön, sem er talsvert
dramatískt og átakamikið, skil-
aði sér ekki sem skyldi. Þar kom
til, að hæstu tónar urðu óhreinir,
en einnig féll vítt svið verksins og
andi þess ekki að sérkennum
raddar söngkonunnar.
Tvö verk eftir Jón Leifs, voru á
söngskránni: Þula, op. 23 no. 1
og Draugadans, op. 23 no 2.
Mjög ánægjulegt var að eiga þess
kost að hlýða á verk eftir þetta
lítt þekkta og - að því er virðist -
nokkuð almennt vanmetna ís-
lenska tónskáld. Verkin nutu sín
vel í flutningi Þórunnar. Hún
hafði gott lag á að tengja saman
hálfsöng þann, sem tónskáldið
gerir ráð fyrir sérstaklega í
Draugadansinum og sem fer allt
að því yfir í tal, og eiginlegan
söng. Einnig skilaði dramatík
verkanna sér talsvert vel. Hins
vegar hefði textaframburður
mátt vera verulega skýrari.
Lokatónskáldið á efnisskrá
Þórunnar Guðmundsdóttur var
Jean Sibelius, en eftir hann flutti
hún fjögur lög. Hér naut söng-
konan sín ekki sem skyldi og hef-
ur ef til vill þreyta komið til.
Ánægjulegast var að hlýða á
flutning hennar á hinu hógláta og
yfirvegaða verki Se’n har jeg ej
frágat mera, þar sem vel tókst að
draga fram depurð verksins.
Undirleikari Þórunnar Guð-
mundsdóttur, David Knowles,
lék stórvel á píanóið. Útsetning-
ar þeirra verka, sem flutt voru,
voru margar hverjar greinilega
flóknar og tæknilega vandasam-
ar, en David Knowles var ekki í
neinum vandræðum nokkurn
tímann, heldur lék af fullu öryggi
og langoftast með vandlega unn-
um blæbrigðum. Það helsta, sem
að mátti finna var að fyrir kom,
að undirleikur væri heldur þrótt-
mikill.
Tónleikar Þórunnar Guð-
mundsdóttur voru skemmtilega
óvenjulegir fyrir efnis sakir. Sér-
staka þökk á hún fyrir það að
hafa tekið verk eftir Jón Leifs inn
á efnisskrá sína. Þeim gerir hún
vel viðhlýtandi skil. Vonandi er
hennar von aftur innan tíðar með
meira í sama anda.
Haukur Ágústsson.
Ráðstefna á Hvanneyri
Dagana 30. og 31. mars verður
haldin ráðstefna á Hvanneyri um
nýtingu búfjáráburðar á íslandi.
Ráðstefnan er skipulögð af Bú-
vísindadeildinni á Hvanneyri og
er haldin til heiðurs Guðmundi
Jónssyni fyrrum skólastjóra
Bændaskólans á Hvanneyri en
búfjáráburður og nýting hans var
eitt þeirra verkefna sem hann
lagði mesta áherslu á í kennslu
sinni á Hvanneyri.
í nálægum löndum hefur um-
ræða um nýtingu búfjáráburðar í
landbúnaði aukist á síðustu árum
m.a. vegna hugsanlegra nei-
kvæðra áhrifa á jarðveg og upp-
skeru auk mengunarhættu.
Á ráðstefnunni verður fjallað
um rannsóknir á búfjáráburði.
Einnig verður fjallað um efna-
magn og verðmæti búfjáráburð-
ar, tækni við meðhöndlun og
þjöppun jarðvegs.
Leiðbeinendur verða m.a. frá
Búvísindadeildinni á Hvanneyri,
Búnaðarfélagi íslands, Hagþjón-
ustu landbúnaðarins og Rann-
sóknastofnun landbúnaðarins.
Auk þess mun norskur sér-
fræðingur, Lars Nesheim, flytja
erindi um notkun búfjáráburðar í
Noregi og rannsóknastarf í Nor-
egi m.t.t. nýtingar á búfjár-
áburði. (Fréttatilkynning.)
Háskólinn á Akureyri:
Fyrirlestur um
Grímsvötn
Óskað eftir myndum af
Blikfaxa og Gullfaxa
Hörður Geirsson hjá ljós-
myndadeild Minjasafnsins á
Akureyri leitar nú mynda sem
tengjast tveimur atburðum í
flugsögu landsins. Ef iesendur
eiga þessar myndir í fórum sín-
um eru þeir vinsamlegast
beðnir að hafa samband við
Hörð í síma 24162 eða heima í
s. 27098.
Atburðirnir sem hér um ræðir
snúast um komu Blikfaxa og
Gullfaxa til Akureyrar. Hin nýja
Fokker Friendship vél Flugfélags
íslands, BUkfaxi, kom til Akur-
.eyrar 16. maí 1965 og var mikill
‘mannfjöldi samankominn til að
taka á móti vélinni.
Gullfaxi, ný þota Flugfélags
íslands, lenti á Akureyrarflug-
velli 23. ágúst 1967 og fögnuðu
þúsundir manna þessum renni-
lega farkosti. Mikil bílamergð
var við flugvöllinn og segir Dagur
að óslitin bílaröð hafi verið frá
Aðalstræti 23 til flugstöðvarhúss-
ins. Þá voru mörg hundruð bílar
á túni við flugstöðvarhúsið og
fjöldi bíla á brekkubrúnum og
'/TLAjr !JU ,JL% tajJJii
Vlamifjöldi fugnaði líliU'axa á
■J Aknrcyr»r(liig\'elli
aukavegum í bænum innanverð-
um.
Væntanlega hafa margir tekið
myndir af Blikfaxa og Gullfaxa
við komuna til Akureyrar og vill
Hörður Geirsson gjarnan komast
í samband við þá sem eiga mynd-
ir í fórum sínum.
Einnig hefur Hörður brenn-
andi áhuga á því að fá allar
myndir sem tengjast flugsögu
Tryggva Helgasonar frá Akur-
éyri. SS
í Vatnajökli
Magnús T. Guðmundsson mun
flytja opinn fyrirlestur í Háskól-
anum á Akureyri nk. föstudag,
27. mars 1992, kl. 16.00.
Magnús nefnir fyrirlesturinn:
Grímsvötn í Vatnajökli: Innri
gerð eldstöðvar undir jökli.
Þessi fyrirlestur er miðaður við
að almenningur skilji efnið, en
ekki ætlaður fyrir jarðfræðinga
eða jarðeðlisfræðinga eingöngu.
Magnús er 30 ára. Að loknu
stúdentsprófi stundaði hann fyrst
nám við Háskóla íslands og síðan
framhaldsnám við University
College í London, Englandi.
Hann hefur unnið að doktors-
verkefni þar undanfarin ár og
mun fara utan í næsta mánuði til
að verja doktorsritgerðina.
Rannsóknir Magnúsar hafa m.a.
byggst á að mæla berggrunn und-
ir jökli með nýjum aðferðum.
Vann hann m.a. að þeim rann-
sóknum í fleiri sumur við Gríms-
vötn á Vatnajökli.
Magnús hefur ferðast mikið
um fjöll og jökla á íslandi. Áhugi
hans á þeim er síður en svo yfir-
borðskenndur, því hann hefur nú
þróað aðferðir til að skyggnast
inn í þau líka.
Fyrirlestur Magnúsar er öllum
opinn og aðgangur ókeypis.