Dagur - 02.04.1992, Blaðsíða 15
Fimmtudagur 2. apríl 1992 - DAGUR - 15
ÍÞRÓTTIR
Jón Haukur Brynjólfsson
K E A
BRAUÐGERÐ
1
„Væri auðvitað gaman að fá
tækifæri með norska liðinu“
Jónsson, leikmaður með Stavanger
Badminton:
Einar Jón með U-16
liðið til Hollands
- segir Jakob
„Eg er sjálfur sáttur við mína
frammistöðu hérna í Noregi og
það væri auðvitað gaman að fá
tækifæri með norska liðinu.
Mér hefur verið sagt að ég
verði kallaður til æfinga þegar
undirbúningur hefst fyrir A-
keppnina og það verður bara
að sjá hvernig það gengur en
þangað til, og ef það gerist,
reyni ég að hugsa sem minnst
um þetta,“ sagði Jakob
Jónsson, handknattleiksmaður
með norska liðinu Yiking frá
Stavanger. Jakob, sem er
Akureyringur og fyrrum leik-
maður með KA og KR, gerðist
norskur ríkisborgari á síðasta
ári og Morgunblaðið hefur
greint frá því að Gunnar Petter-
sen, landsliðsþjálfari Norð-
manna, hyggist velja Jakob í
landsliðshópinn sem tekur þátt
í undirbúningi fyrir A-keppn-
ina í Svíþjóð á næsta ári.
,.Samkvæmt úrslitum í B-
keppninni er norska landsliðið
sterkara en það íslenska og það
væri auðvitað gaman að vera val-
inn í það. Pettersen hefur sagt
mér að ég yrði sennilega valinn í
hópinn en þó ekki fyrr en eftir B-
keppnina og það er eðlilegt. Ég
er lítið farinn að spá í hvernig
það yrði að leika með norska
landsliðinu, maður er ekkert
kominn í liðið þótt maður verði
valinn til æfinga og best að segja
sem minnst um það,“ sagði
Jakob.
Árangur norska landsliðsins í
B-keppninni vakti mikla athygli í
Noregi og Jakob sagði Norð-
menn vera ákaflega drjúga yfir
sínum mönnum. „Það er mikil
stemmning hér fyrir handbolta og
það var gaman að fylgjast með
þessu. Eg fylgdist með leik
Norðmanna og íslendinga í
beinni útsendingu og það var
erfitt. Mér fannst þessi leikur
vera nokkuð dæmigerður fyrir
norskan handbolta. Hér er mjög
algengt að úrslit ráðist á upphafs-
mínútum seinni hálfleiks og það
gerðist þarna, Norðmenn náðu
að brjóta íslendingana niður þá
og þótt íslendingar hafi sýnt
mjög góðan „karakter" með því
að jafna var það ekki nóg. Maður
var eiginlega ekki viss með hvoru
liðinu maður ætti að halda meðan
Þorvaldur Jónsson.
Af Leiftursliðinu er það annars
að frétta að það heldur til Grund-
berg í Þýskalandi 11. apríl og
verður í viku. Þar verður æft og
leikið gegn þremur þýskum félags-
liðum.
Jakob Jónsson í leik með KA fyrir
á leiknum stóð en ég verð að
viðurkenna að ég var bara nokk-
uð ánægður þegar honum var
lokið.“
Um helgina verður nágranna-
slagur hjá Jakobi og félögum þeg-
ar þeir mæta SIF frá Stavanger en
SIF er núna í 2. sæti deildarinnar
og Viking í 3. sæti. Stavanger
vann síðasta leik liðanna með 8
marka mun og Jakob er bjart-
sýnn fyrir leikinn um helgina.
„Það er beðið með mikilli eftir- '■
nokkrum árum.
væntingu hérna í bænum eftir
þessum leik og úrslitin geta skipt
miklu máli. Stuðningsaðilar
hérna gera sennilega ekki upp við
sig hvort liðið þeir ætli að styrkja
fyrr en úrslitin eru ljós þannig að
leikurinn getur haft mikla fjár-
hagslega þýðingu fyrir liðin. Við
stefnum að sigri og 2. sæti í
deildakeppninni. Fljótlega hefst
síðan úrslitakeppni fjögurra efstu
liða um titilinn og þar getur allt
gerst,“ sagði Jakob Jónsson.
Einar Jón Einarsson, þjálfari
TBA, hefur verið valinn til að
fara með landsliðshópi 16 ára
og yngri í badminton í æfinga-
búðir til Hollands um miðjan
apríl. Einar Jón fer sem eini
þjálfari liðsins og verður að
KAleikur
æfingaleiki
gegn Víkingi
Á morgun og laugardag leikur
handknattleikslið KA tvo
æfingaleiki gegn íslandsmeist-
urum Víkings í KA-húsinu.
Leikirnir eru þáttur í undir-
búningi liðanna fyrir úrslita-
keppnina um íslandsmeistara-
titilinn sem hefst 13. apríl. Þá
er hugsanlegt að KA leiki gegn
landsliði Suður-Kóreu á mánu-
dag.
Fyrri leikurinn fer fram annað
kvöld kl. 20 en sá seinni á laugar-
dag kl. 13.30. Búast má við
skemmtilegum leikjum, liðin
hafa mæst tvívegis í vetur í
hörkuspennandi leikjum, Vík-
ingur sigraði í Reykjavík en KA
sigraði á Akureyri. KA-liðið hef-
ur notað hléið á keppninni vel og
m.a. leikið tvo æfingaleiki syðra,
tapaði með 2 mörkum fyrir
Haukum og vann Gróttu með
sama mun.
„Víkingarnir mæta hingað með
sitt sterkasta lið og það verður
gaman að sjá hvernig þetta fer.
Ég myndi telja að Víkingar væru
með sigurstranglegasta liðið í
mótinu,“ sagði Alfreð Gíslason,
þjálfari KA.
Eins og komið hefur fram í
fjölmiðlum kom suður-kóreska
landsliðið óvænt hingað til lands í
gær. Hugsanlegt er að KA leiki
æfingaleik gegn liðinu og ef af
verður fer sá leikur fram á mánu-
dagskvöldið.
teljast nokkud óvenjulegt að
Akureyringur verði fyrir val-
inu, ekki síst þar sem allir spil-
ararnir í liðinu verða frá
Reykjavík.
Farið verður utan 17. apríl og
dvalið í 9 daga. í hópnum verða 5
strákar og 3 stelpur, öll frá
Reykjavík.
„Ég var beðinn að fara með
sem þjálfari liðsins og það kom
mér algerlega á óvart,“ sagði
Einar Jón í samtali við Dag.
Hann hefur séð um alla þjálfun
hjá TBA sl. tvö ár og var þar
áður aðstoðarþjálfari. „Ég er
mjög ánægður með að hafa orðið
fyrir valinu. Þetta kemur mér vel
því ég kynnist þarna nýjum þjálf-
unaraðferðum og mér finnst
ánægjulegt að þjálfari af lands-
byggðinni verði fyrir valinu."
Knattspyrna:
Þorvaldur með
Val til Færeyja
Þorvaldur Jónsson, markvörð-
ur 2. deildarliðs Leifturs í
knattspyrnu, fór með Vals-
mönnum til Færeyja á dögun-
um og lék æfingaleiki með lið-
inu, m.a. gegn færeyska lands-
liðinu. Þorvaldur hljóp í skarð-
ið fyrir Bjarna Sigurðsson sem
er meiddur.
Valsmenn voru í vandræðum
með markvörð og því ræddi Ingi
Björn Albertsson, þjálfari Vals,
þann möguleika við Martein
Geirsson, þjálfara Leifturs, að
Þorvaldur færi út með liðinu og
varð það ofan á. Þorvaldur virð-
ist hafa staðið fyrir sínu því hann
hélt markinu hreinu í 3:0 sigri
Valsmanna á færeyska landslið-
inu en ekki tókst að hafa upp á
úrslitum úr leik liðsins við fær-
eyskt félagslið í fyrradag.
Skíðamót Islands sett
í Ólafsflrði í dag
Skíðamót íslands verður sett í
Ólafsfirði í dag og hefst
keppni þar kl. 11. Mótið, sem
ber jafnframt heitið íslands-
mót Flugleiða að þessu sinni,
fer fram á tveimur stöðum
eins og fram hefur komið,
norrænu greinarnar í Ólafs-
firði og alpagreinarnar á
Akureyri, en ekkert verður
keppt á Dalvík eins og upp-
haflega stóð til.
Þrátt fyrir að mótið geti ekki
farið fram á Dalvík munu Dal-
víkingar og Ólafsfirðingar sjá
um framkvæmd mótsins. Snjó-
leysið hefur reynst Dalvíking-
um dýrt því mótshaldarar höfðu
lagt í mikinn og dýran undir-
búning, m.a. hafa Dalvíkingar
reist myndarlegan skíðaskála
sem kostar um 15 milljónir kr.
Setning mótsins fer fram á
keppnisstað í Ólafsfirði í dag
milli kl. 10.30 og 11 en kl. 11
hefst keppni í fyrstu greinun-
um, skíðagöngu karla, 17-19
ára pilta og kvenna.
Dagskrá mótsins fer hér á
eftir:
Fimmtudagur 2. apríl
Ólafsfjörður:
15 km ganga karla, H kl. 11.00
10 km ganga 17-19 ára pilta, H kl. 11.00
5 km ganga kvcnna, H kl. 11.00
Föstudagur 3. apríl
Akurejri:
Stórsvig kvenna, fyrri ferð kl. 10.00
Stórsvig karla, fyrri ferð kl. 10.30
Stórsvig kvenna, seinni ferð kl. 12.00
Stórsvig karla, seinni ferð kl. 12.30
Ólafsfjörður:
Norræn tvíkeppni kl. 15.00
Laugardagur 4. apríl
Akureyri:
Svig kvenna, fyrri ferð kl. 10.00
Svig karla, fyrri ferð kl. 10.30
Svig kvenna, seinni ferð kl. 13.00
Svig karla, scinni ferð kl. 13.30
Ólafsfjörður:
30 krn ganga karla, F kl. 11.00
15 knt ganga 17-19 ára pilta, F kl. 11.00
7,5 km ganga kvenna, F kl. 11.00
Sunnudagur 5. apríl
Akureyri:
Samhliðasvig karla kl. 9.00
Samhliðasvig kvenna kl. 9.00
Ólafsfjörður:
3x10 km boðganga karla, HHF kl. 11.00
3x5 km boðganga kvenna, HHF kl. 11.00
Mótsslit og lokahóf verður í
Tjarnarborg í Ólafsfirði kl. 17 á
sunnudag.