Dagur - 16.05.1992, Blaðsíða 6
6 - DAGUR - Laugardagur 16. maí 1992
UTGEFANDI: DAGSPRENT HF.
SKRIFSTOFUR: STRANDGATA 31, PÓSTHÓLF 58, AKUREYRI,
SlMI: 96-24222 • SÍMFAX: 96-27639
ÁSKRIFT KR. 1200 Á MÁNUÐI • LAUSASÖLUVERÐ KR. 110
GRUNNVERÐ DÁLKSENTIMETRA 765 KR.
RITSTJÓRI: BRAGI V. BERGMANN (ÁBM.)
FRÉTTASTJÓRI: KRISTJÁN KRISTJÁNSSON
UMSJÓNARMAÐUR HELGARBLAÐS: STEFÁN SÆMUNDSSON
BLAÐAMENN: INGIBJÖRG MAGNÚSDÓTTIR (Húsavík vs. 96-41585),
JÓHANN ÓLAFUR HALLDÓRSSON,
JÓN HAUKUR BRYNJÓLFSSON (íþrótlir), ÓLI G. JÓHANNSSON,
ÓSKAR ÞÓR HALLDÓRSSON, SKÚLI BJÖRN GUNNARSSON
(Sauðárkróki vs. 95-35960, fax 95-36130), STEFÁN SÆMUNDSSON,
ÞÓRÐUR INGIMARSSON, LJÓSMYNDARI: KJARTAN ÞORBJÖRNSSON
PRÓFARKALESTUR: SVAVAR OTTESEN
ÚTLITSHÖNNUN: RÍKARÐUR B. JÓNASSON, ÞRÖSTUR HARALDSSON
AUGLÝSINGASTJÓRI: FRlMANN FRlMANNSSON
DREIFINGARSTJÓRI: HAFDÍS FREYJA RÖGNVALDSDÓTTIR, HEIMASÍMI 25165
FRAMKVÆMDASTJÓRI: HÖRÐUR BLÖNDAL
PRENTVINNSLA: DAGSPRENT HF.
"N ~\
/1
Með vorinu kviknar líf í orðsins
aðskiljanlegu merkingu. Menn,
dýr og jurtir vakna úr dvala og
breiða fagnandi út faðminn mót
hækkandi sól. Atvinnulífið tekur
fjörkipp er þúsundir námsmanna
leggja frá sér penna og blað og
taka upp skóflu eða flökunarhníf.
Göturnar taka að iða af mannlífi
og um allar sveitir er fólk á ferð til
acýnjóta lífsins í sumarleyfinu. Líf.
Á þessum tímamótum, tíma
kviknandi lífs, leggjast leikhúsin
hins vegar í dvala. Vetrarstarfinu
er lokið og sumarið er notað til
andlegrar og líkamlegrar næring-
ar. Það er full ástæða til að líta um
öxl í sumarbyrjun því leiklistin
hefur sannarlega blómstrað hér á
Norðurlandi í vetur.
Hæst ber í huga margra 75 ára
afmæh Leikfélags Akureyrar, eina
atvinnuleikhússins á landsbyggð-
inni. Afmælinu var fagnað á við-
eigandi hátt og hér skal sérstak-
lega getið hinnar merku og tíma-
bæru ritsmíðar Haraldar Sigurðs-
sonar, Sögu leiklistar á Akureyri
1860-1992, sem kom út í tengslum
við afmælið. Rit þetta er mikið að
Blómleg leiklist
á landsbyggðinni
vöxtum og geymir áhugaverðan
fróðleik enda er greint frá öllum
leiksýningum á Akureyri og í ná-
grenni sem settar voru á svið á
þessu tímabili. Hinar fjölmörgu
myndir í bókinni segja líka meira
en mörg orð.
Leikfélag Akureyrar sló tvær
flugur í einu höggi með því að
setja upp íslandsklukkuna eftir
Halldór Laxness, sem afmælis-
verkefni félagsins og til heiðurs
skáldinu á níræðisafmæli þess.
íslandsklukkan er líka sú sýning
er stendur upp úr á leikárinu en
sýningum er einmitt að ljúka í
kvöld. En þrátt fyrir gott leikár hjá
atvinnuleikhúsinu eru margir á
þeirri skoðun að áhugaleikfélögin
í grenndinni hafi sum hver stolið
senunni.
Mörg öflug áhugaleikfélög eru
starfandi á Norðurlandi og á
nýliðnu leikári hafa einkum tvö
þeirra vakið athygli fyrir stórhuga
uppfærslur og góða aðsókn. Ann-
ars vegar Freyvangsleikhúsið sem
sýndi rokkóperuna Messías
Mannsson (Jesus Christ Super-
star) við fádæma vinsældir og kom
fólk víða af landinu til að sjá þessa
sýningu í litla félagsheimilinu í
Eyjafjarðarsveit. Hins vegar er um
að ræða Leikfélag Húsavíkur sem
setti upp Gaukshreiðrið og vakti
sú sýning einnig verðskuldaða
athygli innan byggðarlagsins sem
utan og klykkti þetta gamalgróna
áhugaleikfélag út með leikför til
Hafnarfjarðar.
Vitanlega mætti nefna fleiri
áhugaleikfélög á Norðurlandi í
þessu sambandi því mörg þeirra
settu upp góðar sýningar eins og
getið hefur verið á síðum Dags.
Gróskan í leiklistinni hefur verið
mjög ánægjuleg og á það bæði við
um þá sem taka þátt í sýningum
og njóta þeirra. Listsköpun er
ávallt gefandi í báðar áttir þegar
vel tekst til.
Önnur listsköpun á Norðurlandi
hefur einnig verið kröftug og
metnaðarfull og því vakti það
nokkra athygli þegar úthlutun
listamannalauna var kunngerð á
dögunum að aðeins einn starfandi
listamaður á Norðurlandi fær
starfslaun, en alls fengu 111 út-
hlutun ýmist til sex mánaða, eins
árs eða þriggja ára. Hinir 110 eru
nær allir starfandi á höfuðborgar-
svæðinu. Vonandi segir þessi
niðurstaða ekki neitt um stöðu
listamanna á landsbyggðinni en
þetta vekur vissulega athygli. SS
Bakþankar
Kristinn G. Jóhannsson
Um Ráðhústorg sem sett er upp á
vörubíla fyrir augunum á okkur Gústa
Það er ekki nóg með að búið
sé að loka búðinni hérna
undir okkur Gústa heldur er
nú verið að taka frá okkur
torgið. Ráðhústorgið líka. Við
vitum ekki alveg hvernig
þetta ætlar að enda. Það er
verið að setja torgið upp á
vörubíla af miklum dugnaði
og aka því eitthvað út í
buskann.
Nú hefur þetta blessaða
torg svo sem aldrei verið
annað en heldur illa hirt eyja
eða hringtorg í umferðinni í
miðbænum hin síðari ár en
samt er ég dálítið eins og
klökkur að sjá á eftir því
svona í pörtum enda hefur
það verið frá því ég man fyrst
eftir mér eins konar nafli
bæjarins og miðpunktur. Það
hefur þó tæpast staðið undir
Ráðhústorgsnafninu og ekki
haft neinar forsendur til þess,
ekki Ráðhús né hafði það
uppi gagnlega tilburði til að
laða til sín torglíf.
En það hefur verið þarna
og Akureyringar hafa mælt
sér mót á torginu þegar mikið
hefur staðið til. Þegar ég var
yngri var ég í nánu sambýli
við hermenn sem áttu heima
í bröggunum þar sem nú er
bílastæði og JMJ-húsið.
Framkvæmdasemi þessara
teygði sig einnig inn á torgið
og þeir reistu þar skotbyrgi
og þóttust dulbúa það með
því að mála á það sýningar-
glugga bókabúðar. Þetta var
undarlegt mannvirki og dular-
fullt og dálítið hrollvekjandi
fannst mér þá. Stríðið átti sér
þannig stað á torginu. Uppi á
þessu byrgi héldu menn síð-
an fagnaðarræður og stolts á
lýðveldisdaginn árið 1944.
Ekki kann ég að rekja allt
það sem við Gústi höfum
upplifað á torginu síðan og
yrði þó vafalaust merkileg
saga og rómantísk á köflum
en ef við miðum við aðkom-
una að því árla morguns um
helgar upp á síðkastið þá
virðist það einkum gegna
hlutverki um nætur og
umgengnin ósæmileg, því
miður.
Ekki höfum við heldur
neinn sérstakan áhuga á því
að standa fastir í fortíðinni og
horfa þrútnum hvörmum á
eftir torgi sem hefur hvort
sem er gegnt hlutverki sínu.
Þó erum við íhaldssamir báð-
ir eins og hendir fleiri en
framsóknarmenn.
Það er satt að segja kom-
inn í okkur yngjandi tilhlökk-
unarhrollur að fá nýtt torg og
fá að fylgjast með hvernig
það fungerar utan teikni-
borðsins. Ég sá einhvern
tíma tillögur að nýju torgi og
Skátagili þegar efnt hafði ver-
ið til samkeppni um tilhögun
á nýju landslagi á þessum
samhangandi stöðum. Þær
tillögur voru flestar miðaðar
við að hér væri sumar. Mér
fannst þær vera þriggja mán-
aða tillögur: Blómskrúð, lækir
og skuggsælar trjákrónur til
að hlífa okkur við sólargeisl-
unum. Mér fannst of lítið hugs-
að um að verjast næðingnum
úr Brekkugötunni eða Geisla-
götustrekkingnum þegar
hann er á norðan um vetrin
og sumrin líka. Ég kann auð-
vitað engin skil á skipulagi
bæjar eða þess konar vísind-
um en það hvarflaði að mér
að tillögurnar hefðu hentað
vel á sólbreiskum suðlægum
slóðum. Hér þurfum við ekki
vörn gegn sólarljósi þessa tíu
daga á sumrin þegar það læt-
ur að sér kveða að nokkru
ráði heldur miklu heldur hlé
fyrir algengari veðrum hér um
slóðir, skjólsælt torg.
Nú er verið að koma verð-
launatillögunni í varanlegt
efni og kemur þá í Ijós hve
vel hún þjónar manneskjun-
um í miðbænum. Þar á með-
al Gústa og mér.
Það gæti oft verið býsna
skemmtilegt ef skipulag tæki
mið af staðháttum og veður-
lagi þess staðar sem því er
ætlað að fjalla um.
Hvernig sem þessu er nú
háttað kemur í Ijós á næst-
unni hvert aðdráttarafl nýja
Ráðhústorgið og hellulögð
Bótin hefur á íbúana og hvort
auðnast að vekja Bótina til
nýs og fjölbreyttara lífs. Og
þótt við Gústi séum með
þetta nöldur þá er það nú
meira til að vera trúir mál-
staðnum. Engir verða fegnari
né glaðari en við ef nýja torg-
ið færir okkur skemmtilegri
og betri miðbæ en nú er og
þess vegna óskum við þess
að breytingarnar sem við nú
verðum vitni að takist sem
best og fáfengilegar efa-
semdir okkar verði sér til
skammar.
Okkur finnst líka mikilsvert
að komið sé mynd á miðbæ-
inn og nú þegar ný stórhýsi
rísa í Bótinni, ætluð verslun
og þjónustu og torgið verður
fullfrágengið hlýtur að koma í
Ijós hvort við getum ekki
komið á þennan bæjarhluta
björgulegri mynd og fjöl-
mennri önn eins og samir í
miðjum bæ. Það er að
minnsta kosti von okkar
Gústa sem lítum björtum
augum út á framtíðartorgið
þrátt fyrir búðarleysið og
vöruskortinn undir okkur.
Kr. G. Jóh.