Dagur - 11.06.1992, Qupperneq 16
Skógræktarfélag Eyfirðinga ★ Gróðrarstöðin í Kjama
Opið mánud.-fimmtud. kl. 9-18. Föstud. kl. 9-19. Laugard. og sunnud. 10-17.
A4M0.M Leitið upplýsinga
Akureyri, fímmtudagur 11. júní 1992
Protabú Serkja á Blönduósi:
Vélamar væntanlega
seldar til útlanda
- „Blönduósingar hafa engan áhuga“
Plöntusaía í fiilhmi gangi
Barrtré ★ Lauftré ★ Skrautrunnar ★ Berjarunnar
Limgerðisplöntur ★ Klifurplöntur ★ Skógarplöntur ★ Rósir.
i simum
24047 og 24599.
★ Póstsendum
um allt land.
Að undanförnu hafa staðið yfír
viðræður við þrjá erlenda
aðila, í Suður-Ameríku, Aust-
urlöndum fjær og Englandi,
um kaup á vélakosti pappírs-
pokaverksmiðjunnar Serkja á
Blönduósi. Þorsteinn Hjalta-
son, bústjóri þrotabúsins, seg-
ist vonast til að vélarnar verði
Hofsós:
Framkvæmdir
hreppsins
bundnar við
haínargaröinn
„Það mætti vera meiri atvinna
hér á Hofsósi nú í bili en það er
ekkert vandræðaástand. Afla-
brögð voru mjög góð hér um
miðjan maímánuð en það stóð
ekki lengi því snurvoðabátarn-
ir voru fljótir að sópa því upp
og sá afli kom ekki til vinnslu
hér á Hofsósi“ segir Jón
Guðmundsson sveitarstjóri um
atvinnuhorfur í Hofshreppi.
„Annars eru menn hér
almennt mjög á móti snurvoða-
veiðinni enda var hún upphaflega
leyfð á Skagafirði vegna kola-
veiði en hér hefur hins vegar ekki
veiðst koli í mörg ár og forsendur
því brostnar."
Fiskiðjan á Hofsósi veitir 45 til
50 manns atvinnu og þar er unn-
inn afli sem ekið er frá Sauðár-
króki úr togurum Skagfirðings
hf. Enginn fiskur er hins vegar
verkaður í salt eins og er þar sem
söluhorfur á helstu saltfisk-
mörkuðunum eru nú frekar
daprar. Flestir unglingar sem
þess æskja fá sumarvinnu en ung-
lingavinna á vegum hreppsins
hófst á miðvikudag.
Sáralitlar framkvæmdir verða í
sumar á vegum hreppsins þar
sem unnið er að því að koma
fjárhagi hreppsins í viðunandi
horf en þó verður unnið við lýs-
ingu á hafnargarðinum og eins
verður unnið við lagfæringu á
þekjunni.
Unnið er að endurbyggingu í
gömlu „kvosinni" en í lok þessa
mánaðar verður Bjálkahúsið
(pakkhúsið) opnað fyrir ferða-
menn og unnið er að því að gera
upp gamalt hótel og þar verður
fljótlega opnuð kaffistofa o.fl. til
þjónustu við ferðamenn. GG
seldar um eða upp úr næstu
mánaðamótum.
Þorsteinn sagði það hafa verið
forgangsverkefni að selja vélarn-
ar innanlands en áhuginn hefði
ekki reynst nægur og því hefði
verið leitað út fyrir landsteinana.
Hann sagði sölu af þessu tagi all-
flókna þar sem um sérhæfðan
búnað væri að ræða en nú stæðu
yfir viðræður við fyrrnefnda þrjá
aðila og væntanlega fengist
niðurstaða um eða upp úr mán-
aðamótum. 4-5 aðilar eiga veð-
rétt í vélunum og þurfa að sam-
þykkja söluna áður en hún geng-
ur í gegn.
Jóhann Evensen, fyrrum fram-
leiðslustjóri Serkja, tók verk-
smiðjuna á leigu um tíma en lauk
framleiðslunni í byrjun síðasta
mánaðar og síðan hefur allur
rekstur hennar legið niðri.
Jóhann segir starfsfólk verk-
smiðjunnar ýmist atvinnulaust
eða flutt á brott og segist vita um
einn fyrrum starfsmann hennar
sem búinn sé að fá aðra vinnu í
bænum. „Blönduósingar hafa
greinilega engan áhuga á verk-
smiðjunni og mér sýnist hún vera
endanlega dauð,“ sagði Jóhann.
JHB
Jón Helgi Bjömsson landaöi fyrsta fiskinum og með honum á myndinni er
systir hans Halla Bergþóra sem landaði öðrum fiskinum en faðir þeirra
Björn Jónsson, setti í hann. Mynd: im.
!-----------------------------------
Laxá í Aðaldal:
40pundaflaxi
í gærmorgun
- Halldór Blöndal
með 12 punda hrygnu
Jón Helgi Björnsson frá Laxa-
mýri náði fyrsta laxinum úr
Laxá í Aðaldal kl. 8:12 í gær-
morgun. Þetta var gullfalleg 13
punda hrygna. Björn Jónsson
á Laxamýri setti í næsta flsk,
15 punda hæng sem dóttir
hans, Halla Bergþóra landaði
kl. 8:30. Landbúnaðarráð-
herra, Halldór Blöndal, fékk
síðan þriðja laxinn, 12 punda
hrygnu kl. 9:30.
Laxmýringar fengu þessa þrjá
laxa á svæði 1 fyrri hluta veiði-
tímans í gærdag, fyrsta daginn
sem stangveiði er leyfð í ánni.
Síðdegis hófu síðan Húsvíkingar
veiðar á svæðinu.
Björn á Laxamýri sagði að
hann teldi þetta eðlilega byrjun
en hann ætti von á góðri veiði í
sumar. Skilyrði til veiðanna voru
ekki góð í gærmorgun. Áin var
vatnsmikil, 15 gráðu heit og
lituð, því í hvassviðrinu á dögun-
um gruggaðist Mývatn upp.
Björn sagði að vart hefði orðið
við fisk á flestum stöðum en hann
hefði tekið illa. Jón Helgi sagðist
hafa séð einn risastóran lax í ánni
og rétti út báða arma til að marka
stærð hans. IM
Halldór Blöndal á bændafnndi í Laugarborg:
Mjólkurbúin knúin til að hagræða er þau geta
ekki bætt rekstrarhaJla úr verðmiðlunarsjóði
- var þörf á gárfestingu Mjólkursamsölunnar á Bitruhálsi?
Á fundi með bændum í Laug-
arborg á þriðjudagskvöldið
ræddi Halldór Blöndal, land-
búnaðarráðherra meðal annars
um tillögur Sjömannanefndar
um hagræðingu í mjólkuriðn-
aði. í máli hans kom fram að
með hugmyndum nefndarinn-
ar væru mjólkurbúin knúin til
aukinnar hagræðingar þar sem
ekki verði lengur unnt að velta
hallarekstri þeirra yfír í verð-
miölunarsjóö.
Halldór sagði að samkvæmt
búvörusamningnum þurfi að
draga framleiðslu á mjólk saman
um 4,500 þúsund lítra til þess að
fella framleiðsluna að neyslu sem
væri nú um 100 milljónir lítra á
ári. Þá hefðu verið settar fram til-
lögur um að gera landið að einu
framleiðslusvæði mjólkur og
leggja verðmiðlunarsjóð mjólk-
urafurða niður. Þær aðgerðir
myndu knýja mjólkurbúin í land-
inu til aukinnar hagræðingar þar
sem þá verði ekki lengur unnt að
sækja fjármuni í verðmiðlunar-
sjóð til þess að standa undir halla
af rekstri þeirra. Halldór kvað
óhjákvæmilegt að mjólkurbúum
fækkaði eitthvað og að þau yrðu
að taka upp ákveðnari verka-
skiptingu sín í milli. Halldór
ræddi nokkuð um miklar fjárfest-
ingar í mjólkurbúum og lét í ljós
efasemdir um hvort þörf hefði
verið fyrir hina miklu fjárfestingu
Mjólkursamsölunnar á Bitruhálsi
í Reykjavík í því sambandi þar
sem mjólkurbú hefðu verið fyrir
hendi bæði á Selfossi og í Borg-
arnesi. ÞI
Kartöfluræktin:
Míirna sett niður í ár en áður
- yfir 20% samdráttur í sölu á garðáburði í vor
Um 23% samdráttur varð í
sölu á garðáburði hjá Áburð-
arverksmiðju ríkisins á síðast-
liðnu vori en sá áburður er
einkum notaður við kartöflu-
rækt. Á síðasta ári voru seld
Héraðsráð Eyjafjarðar:
Sairmingur um sorphirðu imdirritaður
Eins og áður hefur verið greint
frá hafa sveitarfélögin við
utanverðan Eyjafjörð sam-
þykkt að ganga til samninga
við Gámaþjónustu Norður-
lands um sorptöku og flutning
á því inn á Glerárdal. Þessi
sveitarfélög eru Ólafsfjörður,
Dalvík, Svarfaðardalur og
Árskógshreppur.
Gámaþjónustan átti tvö lægstu
tilboðin í verkið og alls þrjú til-
boð en næsta tilboð að þeim frá-
töldum var 20,3% hærra. Sorpi
frá þessum sveitarfélögum hefur
verið brennt á sorphaugunum við
Sauðanes í Ólafsfjarðarmúla, en
sveitarfélögin munu ekki verða
fyrir kostnaðarauka þótt sorpi
verði nú ekið inn á Glerárdal.
Árlegur kostnaður einstakra
sveitarfélaga verður sem hér
segir: Dalvík 5,3 milljónir, Ólafs-
fjörður 4,9 milljónir, Árskógs-
hreppur 1,3 milljónir og Svarfað-
ardalur 550 þúsund.
Á fundi Héraðsráðs Eyja-
fjarðar í gær var samningur
áðurnefndra sveitarfélaga við
Gámaþjónustuna undirritaður en
hann gildir til þriggja ára. GG
um 2200 tonn af garðáburði en
einungis um 1700 tonn í vor.
Minnkandi notkun garðáburð-
ar bendir til þess að minna hafl
verið sett niður af kartöflum en
undanfarin ár, sem hafa ein-
kennst af umframframleiðslu,
kartöflumyglu á Suðurlandi og
heiftarlegu verðstríði á heild-
sölumarkaðnum.
Sveinberg Laxdal, fyrrum for-
maður Félags kartöflubænda við
Eyjafjörð, sagði að þessi sam-
dráttur í sölu á garðáburði benti
til þess að minna hefði verið sett
niður á þessu vori þótt tölur um
minni áburðarsölu þyrftu ekki að
tákna sambærilegan samdrátt á
garðlöndum bænda. Hann sagði
að einhverjir hefðu hætt kartöflu-
rækt, að minnsta kosti um tíma,
aðrir borið minna í garða sína og
einhverjir hugsanlega ekki náð
að festa kaup á nægilegu áburð-
armagni vegna þeirrar erfiðu
fjárhagsstöðu er verðstríð undan-
farinna ára hefði leitt af sér fyrir
marga bændur.
Páll Guðbrandsson, formaður
Landssambands kartöflubænda,
sagði ljóst að minna hefði verið
sett niður en á síðasta ári þótt
hann hefði ekki staðfestar tölur
um það. Hann sagði að einhverjir
bændur hefðu hætt og aðrir sett
minna niður en áður. Bæði væri
um að ræða áhyggjur manna
vegna offramleiðslu og einnig
nýttist útsæði í ár verr en oft
áður. Páll sagði að þrátt fyrir
almennan samdrátt í kartöflu-
ræktinni fyndust dæmi um að
bændur hafi verið að auka við
sig. Páll sagði að búast mætti við
góðri uppskeru ef fram færi sem
horfði og nú væru bændur tilbún-
ir til að verjast myglunni og úðað
yrði í tíma með réttum efnum.
ÞI