Dagur - 24.06.1992, Blaðsíða 2

Dagur - 24.06.1992, Blaðsíða 2
2 - DAGUR - Miðvikudagur 24. júní 1992 Fréttir Ekkert svartnættisandrúmsloft hjá veiðimönnum við Laxá í Aðaldal: Besta byijun í ánni síðan 1987 - um 170 laxar á land á fyrstu 13 dögunum Veiðin í Laxá í Aðaldal hefur ekki byrjað jafn vel og nú síð- ustu fjögur árin. í gær voru komnir 140 laxar á land á svæðum Laxárfélagsins og seg- ist Orri Vigfússon, formaður félagsins, reikna með að þar með séu komnir allt í allt um 170 laxar á land úr allri ánni. Meðalvigtin er há það sem af er en smálax er farinn að gera vart við sig sem veiðimenn telja fyrirboða um stórar smá- laxagöngur síðar í sumar. Þrettán dagar eru síðan veiði hófst í Aðaldal. „Ef við miðum við síðasta ár þá er aukningin talsverð auk þess að meðalvigtin er há. Áin hefur ekki byrjað svona vel undanfarin fjögur sumur en vorið 1987 var veiðin enn betri en þetta. Við erum bjartsýnir með þessa byrjun,“ sagði Orri. Hann segir veiðina á fyrstu 13 dögunum samkvæmt eðlilegu mynstri. Stórlaxinn er uppistaðan í aflanum og nokkrir 20 punda fiskar þegar komnir á land. „En við viljum gjarnan sjá einn og einn smálax með núna því þá bendir það til mikils magns af honum líka. Hámarkið í smá- laxaveiðinni verður síðan um og upp úr 20. júlí,“ sagði Orri. Veðrið á Laxárbökkum var ekki til að hrópa húrra fyrir í gær en veiðimenn urðu varir við mikla fiskigengd í ána. Alls komu 27 laxar á land í fyrradag og var meðalvigt þeirra 10 til 11 pund. „Það eru lúsugir laxar alveg upp á 7. svæði þannig að nýgenginn fiskur er um alla á. Mest veiðist af fiski á bilinu 10-17 pund og nokkrir 20 punda fiskar eru komnir en smálaxar koma líka inn á milli. Þetta er framar bestu vonum,“ sagði Haraldur Haraldsson, veiðimaður við Laxá í Aðaldal í gær. JÓH Leifur Tómasson með 14 punda hrygnu af Suðurhólma í Laxá í Aðaldal. Byrjun veiðisumarsins lof- ar góðu. Mynd: HB Verslun með reyrvörur Líttu á verðið Húsbóndastólar, verð fró kr. 25.000,- stgr. Reyrsett, verð fró kr. 34.675,- stgr. Stakir körfustólar, verð fró kr. 14.300,- stgr. Fatastandar, verð fró kr. 2.850,- stgr. Klappstólar, hvítir, svartir, natur, kr. 2.700,- Hunda- og kattakörfur, verð fró kr. 600,- Körfur margar gerðir, verð fró kr. 200,- Hnífasett, skurðarbretti, bakkar, skólar, glös, bréfakörfur o.m.fl. 4ra manna matar- og kaffistell, 20 stk., verð kr. 1.900,- Bleiki fíiiinn Kaupangi • Sími 12025. i kjötbordi Lamba- súpukjöt (blandað) Aðerins kr. Tah- marhadar birgðir Akureyri: Bygging á 650 fermetra verslunarhúsnæði að heflast Framkvæmdir eru nú að hefj- ast við 650 fermetra verslunar- húsnæði á horninu fyrir neðan Bautann og Smiðjuna á Akur- eyri. Byrjað var að girða svæð- ið af á mánudaginn en fram- kvæmdir við húsið sjálft hefj- ast í næstu viku. Áætlaður byggingartími er eitt og hálft ár. Húsið verður L-laga og á tveimur hæðum. Á horninu verð- ur fjögurra hæða turn. Það eru Leiga fyrir íbúðarhúsnæði og atvinnuhúsnæði, sem sam- kvæmt samningum fylgir vísi- tölu húsnæðiskostnaðar eða breytingum meðallauna, hækkar um 1,8% frá og með 1. Ljósmyndavörur hf. í Reykjavík sem byggja húsið og þar verða aðalstöðvar Fuji á Norðurlandi. Þá hefur helmingnum af neðri hæðinni þegar verið ráðstafað til aðila í verslunar- og þjónustu- starfsemi á Akureyri. í tilefni af framkvæmdunum hafa Ljósmyndavörur ákveðið að bjóða Akureyringum upp á 50% afslátt af filmuframköllunum og gildir tilboðið um óákveðinn tíma. Mótttökustaðir fyrir filmur júlí. Reiknast þessi hækkun á leigu sem er í júní 1992. Leiga helst síðan óbreytt næstu tvo mánuði, þ.e. í ágúst og september. eru Shell-nestið við Hörgárbraut, Borgarsalan við Ráðhústorg og Myndbandahöllin við Viðjulund. JHB ■ Bæjarráð hefur samþykkt að verða við erindi frá Ung- mennafélagi Akureyrar, þar sem félagið leitar eftir heimild til þess að nota mcrki Akur- eyrarbæjar á viðurkenningar- pening, sem afhenda á öllum þátttakendum í Akureyrar- maraþon-hlaupi, sem ætlað er að fari frant árlega. Jafnframt að Akureyrarbær leggi merkið til á verðlaunapeninginn félag- inu að kostnaðarlausu. ■ Hafnarstjórn hefur sam- þykkt samning um kaup Akur- eyrarhafnar á lóðum og húsum af KEA á Oddeyrartanga. Kaupverð þessara eigna sam- kvæmt samningnum er kr. 23.718.000.-. ■ Hafnarstjórn hefur borist bréf frá Möl og sandi hf. þar sem sótt er um leyfi til að fá að setja á land möl sem dælt yrði af hafsbotni. Um er að ræða tilraunafarm. Hafnarstjórn tók jákvætt í erindið og fól hafnarstjóra að kanna málið og finna heppilegan stað til að setja möiina á land. ■ Skólanefnd telur ekki fært að bæjarsjóður greiði viðbót- arkennslu á næsta skólaári vegna námsefnisins, „Að ná tökum á tilverunni." Nefndin leggur áherslu á að hún telji þetta mikilvægt námsefni, sem mjög æskilegt sé að skólarnir geti sinnt innan samfélags- fræðinnar. ■ Skólanefnd hefur borist crindi frá Síðuskóla, þar sem kynnt er hugmynd að tilrauna- kennslu á sérstöku efni úr heimspeki í 5. bekk skólans næsta skóiaár. Skólinn hefur þegar fengið styrk kr. 544.521,- frá KÍ vegna tilraun- arinnar. ■ Skólanefnd hefur sam- þykkt að nemcndur verði boð- aðir í skóla ntánudaginn 7. september í haust og skóla verði slitið skv. sköladagatali 28. maí. Fiskmiblun Noröuriands á Dalvík - Ffskverö á markaöi vikuna 14.06-20.06 1992 Tegund Hámarks- verö Lágmarks- verö Meðalverð (kr/kg) Magn (kg) Verömæti Grálúöa 30 30 30 58 1.740 Hlýri 30 30 30 33 990 Karfi 20 15 19,90 51 1.015 Lúöa 260 120 237,60 50 11.880 Steinbítur 37 20 34,50 170 5.865 Ufsi 37 30 35,54 850 30.213 Ýsa 96 75 91,73 775 71.087 Þorskur 77 67 76,18 7.918 603.217 Þorskur, smár 50 49 49,71 1.004 49.907 Samtals 71,13 10.909 775.914 Dagur blrtlr víkulega töltu yflr flskverð hjá Flskmlölun Norðurlands á Dalvík og grelnlr þar frá vcrðlnu som fékkst í vlkunnl á undan. Þotta er gort I IJósl þoss að hlutverk flskmarkaða í vorþ- myndun islenskra sjávarafurða hefur vaxlö hróðum skrefum og þvi sjálfsagt aö gera lesendum blaðslns klelft aö fylgjast með þróun markaðsverðs á flski hér i Norðurlandi. Framkvæmdir við nýja verslunarhúsnæðið hefjast í næstu viku en á mánu- daginn var hafist handa við að girða svæðið af. Gísli Gestsson, framkvæmda- stjóri Ljósmyndavara, er lengst til hægri á myndinni. Mynd: gt Húsaleiga hækkar um 1,8%

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.