Dagur - 24.06.1992, Síða 7
Miðvikudagur 24. júní 1992 - DAGUR - 7
Séð yfir Lónin. Myndir: IM
víkkaði sjóndeildarhringinn. Ég
er ekki maður gærdagsins, vil
prufa nýjar leiðir séu þær til. Við
búum í þannig þjóðfélagi að ann-
að dugar ekki. Við setjumst ekki
niður og skrifum bréf í hálfan
dag, heldur rissum eitthvað á fax-
ið og fáum svar um hæl. Þjóðfé-
lagið er að breytast og við verð-
um að fylgjast með, annars miss-
um við af lestinni og töpum í
slagnum.“
Við munum ekki safna
skuldum
Ertu bjartsýnn á framtíð Rifóss?
„Við erum stórhuga. Ef þetta
gengur ekki hérna núna, er ég
efins urn að það muni ganga
nokkurs staðar á íslandi að reka
matfiskeldi. Ég er bjartsýnn, en
verð á laxi verður að hækka inn-
an næstu tveggja ára. Við mun-
um frekar hætta hérna en reka
fyrirtækið áfram og safna
skuldum, ef í það færi en ég hef
alls ekki trú á að svo verði. Sjálf-
ur legg ég fram hlutafé ásamt
fólki sem starfar hérna. Við höf-
um lagt í persónulegar ábyrgðir
og erum ekki svo heimskir að
gera slíkt nema að hafa trú á að
þetta gangi.
Við ætlum að reka fiskeldið á
skynsamlegum nótum og á næstu
dögum förum við að flytja seiði
frá Öxnalæk í töluverðum mæli.
Síðan sækjum við kvíarnar til
Vestmannaeyja, en það er tölu-
verð vinna að taka þær upp og
koma þeim fyrir aftur hér í Lón-
unum,“ segir Ólafur.
Nú eru þeir félagarnir farnir að
ókvrrast og þurfa að fara að taka
til höndunum. Framkvæmda-
stjórinn skutlar skjalatöskunni
inn á skrifstofuna og grípur sam-
festing og vinnuvettlinga. Blaða-
maður Dags kveður og óskar Rif-
óssmönnum velfarnaðar í fram-
tíðinni. IM
„Ferðavakar“ settir upp á
10 stöðum á landinu
Fyrstu Ferðavakarnir (FVH-
standar) voru settir upp 22.
júní síðastliðinn. Ferðavakinn
er tölvuvætt upplýsingakerfí á
fímm tungumálum fyrir ís-
lenska og erlenda ferðamenn,
sem auðveldar þeim að skipu-
leggja ferðalög sín sjálfír.
Upplýsingastöðvarnar saman-
standa af tölvubúnaði, þ.e. tölvu,
prentara, geisladrifi og stórum
17” snertiskjá, sem notandinn
stjórnar með því að þrýsta á sjálf-
an skjáinn. Helstu upplýsinga-
flokkar eru: Almennar upplýs-
ingar, samgöngur, gisting, veit-
ingastaðir, ferðir, leigur, íþróttir
og afþreying, menning og listir,
þéttbýli og útsýnisstaðir. Einnig
er boðið upp á lifandi myndir frá
öllum helstu náttúruperlum
íslands af geisladiski (mynddiski)
sem ætlunin er að gefa út erlend-
is. Hægt er að breyta upplýsing-
um, s.s. setja inn nýtt símanúm-
er, hvenær sem er. Auglýsendur í
Ferðavakanum geta fengið upp-
lýsingar um hversu oft var spurt
um þá, hvar hvenær og á hvaða
tungumáli.
Settir verða upp 11 FVH-
standar á eftirtöldum stöðum á
landinu: Reykjavík (2), Kefla-
vík, Borgarnesi, ísafirði, Varm-
ahlíð, Akureyri, Mývatni, m/s
Norrænu, Skaftafelli og Selfossi.
Stefnt er að því að fjölga stöðun-
um á næsta ári.
Guðrún Gunnarsdóttir, fram-
kvæmdastjóri, við svonefndan
ferðavaka.
Tölvufyrirtækið Bain Business
Solutions ltd. í Glasgow hefur
áhuga á að setja upp svipað kerfi
fyrir ferðamenn í Skotlandi og.
nota þá þetta íslenska hugvit.
Einnig hafa Færeyingar og
Grænlendingar sýnt mikinn
áhuga.
Hluthafar Ferðavakans eru:
Upplýsingamiðstöð Ferðamála,
Fjarhönnun hf. og Bain Business
Solution ltd. í Glasgow.
Djasshátíð á
Egilsstöðum
Á síðari árum hefur orðið
ánægjuleg vakning í tónlistarlífi
þjóðarinnar. Segja má, að í það
hafi bæst þáttur, sem reyndar var
áberandi fyrir nokkrum áratug-
um, en lá síðan í láginni þangað
til núna nýverið. Hér er átt við
djassinn, sem var uppistaðan í
danstónlist fyrstu áratugi þessar-
ar aldar, en sem núna hefur færst
inn á tónleikasviðið; þessa klass-
ísku tónlist sveiflunnar og lífs-
gleðinnar, sem höfðar beint til
tilfinninga áheyrandans og hrífur
hann með sér, svo að hann getur
vart setið kyrr.
Áhuginn fyrir djassi hefur farið
sívaxandi með þjóðinni á síðustu
árum. Þetta kemur fram í ýmsu,
svo sem miklum fjölda manna,
sem gleðja sjálfa sig og aðra með
því að leika þessa tónlist, en ekki
síst í mikilli grósku í tónleika-
haldi og djasshátíðum. Nægir þar
að nefna hina miklu djasshátíð í
Reykjavík, djasshátíð, sem hald-
in var í Vestmannaeyjum í sumar
og ekki síst Djasshátíð Egils-
staða.
Fyrsta djasshátíðin á Egils-
stöðum var haldin 1988. Síðan þá
hefur verið efnt til Djasshátíðar
Egilsstaða ár hvert. Að baki há-
tíðinni stendur, Djasssmiðja
Austurlands, félagsskapur djass-
áhugamanna á Austurlandi, sem
nær um allan fjórðunginn í bók-
staflegri merkingu. Þarna hefur
mikið starf verið unnið ekki síst
fyrir fórnfúst framlag og óbilandi
hugsjónastarf Árna ísleifssonar,
píanóleikara og tónlistarkennara
á Egilsstöðum.
Fyrsta djasshátíðin á Egilstöð-
um stóð í þrjá daga. Hún var vel
sótt. Síðan hefur aðsókn farið
vaxandi eða um þriðjung milli
ára hverju sinni. Hátíðargestir
hafa líka komið víðar að með
hverju ári, enda hefur hátíðin
ætíð verið svo vönduð sem unnt
hefur verið. Til hennar hafa jafn-
an komið tónlistarmenn í fremstu
röð, svo sem Guðmundur Ing-
ólfsson, píanóleikari, sem lék í
síðasta sinn opinberlega á Djass-
hátíð Egilsstaða í sumar leið. Á
síðari árum hafa fjölmiðlar þjóð-
arinnar, svo sem sjónvarp, líka
sýnt hátíðinni æ meiri áhuga og
gert henni skil oft með veglegum
hætti.
Á þessu ári hefst Djasshátíð
Egilsstaða fimmtudaginn 25. júní
og stendur til sunnudagsins 28.
Alls verða flytjendur á hátíðinni
fimmtíu og þar á meðal í fyrsta
sinn í sögu hátíðarinnar erlendir
djassarar, enda verður þetta
fimm ára afmælishátíð. Tríó frá
Danmörku leikur, en auk þess
koma fram Viðar Alfreðsson,
trompetleikari, gítaristarnir Jón
Páll Bjarnason og Björn Thor-
oddsen, saxafónleikararnir
Sigurður Flosason og Rúnar
Georgsson, Þórður Högnason,
bassaleikari og Árni Elvar,
píanóleikari, sem líka mun halda
sýningu á myndverkum sínum.
Ekki mun heldur skorta söngv-
ara, enda ár söngsins. Á því sviði
verða á meðal þátttakenda Edda
Borg, Linda Gísladóttir, Oktavía
Stefánsdóttir, Friðrik Theódórs-
son, Pétur Tyrfingsson, Sigurður
Sigurðsson og djasskór Austfirð-
inga, Arnís.
Það verður greinilega mikið
um dýrðir á Egilsstöðum og full
ástæða til þess fyrir áhugamenn
um djass að gera sér ferð austur
til þess að njóta alls þess góðgæt-
is, sem fram verður borið. Norð-
lendingar geta í því efni notið
góðs af pakka, sem Flugfélag
Norðurlands býður upp á og felur
í sér flug fram og til baka með
50% afslætti og aðgangskort á
hátíðina alla fjóra dagana, sem
hún stendur, og kostar innan við
átta þúsund krónur.
Haukur Ágústsson.
SIALLANUM FIMMTUDAGINN 25. JÚNÍ KL10-01
MIDGARDIFÖSTUDAGINN 26. JÚNÍ KL 23-03
BREIMIIEYKJADAL LAUGARDAGINN 27. JÚNÍ KL. 23-03