Dagur - 07.07.1992, Page 13

Dagur - 07.07.1992, Page 13
Þriðjudagur 7. júlí 1992 - DAGUR - 13 Geysilegar endurbætur á Tjamartárkju í Svarfaðardal - átti aldarafmæli 4. júní sl. en ekki hefur enn verið hægt að halda upp á afmælið Tjarnarkirkja í Svarfaðardal átti aldarafmæli 4. júní sl. Ekki hefur þó enn reynst unnt að halda upp á afmælið þar sem geysilegar endurbætur á kirkj- unni standa nú yfir. Vonast er til að framkvæmdum Ijúki seinni partinn í ágúst og þá verði hægt að fagna þessu merkisafmæli. f fyrrasumar var farið að huga að því að mála kirkjuna í tilefni afmælisins en þá kom í ljós að töluvert meira þurfti að gera. Á daginn kom að burðartré voru farin að fúna og ákveðið var að endurnýja þau. Þegar byrjað var á framkvæmdunum komu fleiri skemmdir í ljós, m.a. var sökkull- inn farinn að láta verulega á sjá og meiri fúi var í kirkjunni en fyrst var talið. Snemma í vor var panellinn tekinn utan af kirkjunni og hreinsaður og þurrkaður en hluta af honum þurfti að endurnýja. Stór liluti af grindinni hefur verið endurnýjaður og nýr sökkull steyptur og grjóthleðsla sett utan á hann. Innviðir kirkjunnar niunu halda sér nokkurn veginn og liún mun halda upphaflegu útliti. Einni spurningu er ósvarað í tengslum við framkvæmdirnar og það er hvort vígja þurfi kirkjuna upp á nýtt. Sigríður Hafstað á Tjörn, formaður sóknarnefndar, segir Ijóst að þess þurfi verði haggað við altarinu cn það hafi ekki verið gert enn. Tjarnarkirkja er um 50 fer- metrar og tekur 60-70 manns í sæti. Sigríður segir að henni hafi nánast ekkert verið breytt frá því hún var byggð. „Að vísu var ioft fremst í henni þannig að hægt var að sitja uppi en kirkjan er lítil þannig að fljótlega var loftið tek- ið og söngpallur settur aftast í staðinn. Þetta var gert fljótlega upp úr aldamótum og síðan hefur henni ekkert verið breytt. Hún þykir merkileg fyrir þá sök að hún hefur verið timburkirkja allt frá upphafi en ekki verið klædd að utan með járni eða asbesti eins og margar aðrar kirkjur. Laust eftir 1960 voru gefnir í hana steindir gluggar sem þykir óvenjulcgt að hafa í svo litlum kirkjum og síðan á hún það sam- BORGARBÍÓ Salur A Þriðjudagur Kl. 8.45 Ógnareðli Salur B Þriðjudagur Kl. 9.00 Kona slátrarans BORGARBÍO S 23500 Eins og sjá má hefur verið tekið til óspilltra málanna og er þessi fallega kirkja nánast óþekkjanleg. Inni í kirkjunni er ekki fagurt um að litast en vonast er til að framkvæmdun- um verði lokið scinni partinn í ágúst og allir hlutir þá komnir á sinn stað. Fyrir miðri myndinni stendur yfirbreitt altarið sem enn hefur ekki verið haggað en verði það gert þarf að vígja kirkjuna upp á nýtt. Mymlir: jhb eiginlegt með hinum kirkjunum í dalnum að vera turnlaus sem er frekar sjaldgæft." Fyrirfram var talið að fram- kvæmdirnar myndu kosta um 3-5 milljónir en Sigríður segir oröið ljóst að upphæðin verði hærri þar sem ýmislegt hafa bæst við síðan kostnaður var áætlaður. En hvernig er þessi mikla viðgerð fjármögnuð? „Við sóttum um í alla sjóði sem við vissum að myndu hugs- Húsbyggjendur Bændur Höfum til leigu færanlega steypustöö, óháö rafmagni. hrærir 0,5 m3 í einu. Hagkvæmari kóstur finnst ekki. Pallaleiga Óla, Aðalstræti 7, sími 23431, bílasími 985-25576. anlega styrkja þetta. Húsfriðun- arsjóður styrkti okkur með einni milljón, Jöfnunarsjóður kirkna veitti 600 þúsund og Menningar- sjóður Svarfdæla 400 þúsund. Kirkjan átti um eina milljón en Ijóst er að töluvert vantar upp á enn til að endar nái saman og trúlega verður bilið brúað með lántökum í bili,“ sagði Sigríður. Kirkjan er í eigu Tjarnarsókn- ar sem nær yfir 14 bæi í dalnum. Hún hefur verið í stöðugri notk- un síðan hún var byggð og prest- setur var að Tjörn fram til 1917. I dag er sóknarprestur sá sami og á Dalvík, sr. Jón Helgi Þórarins- son. JHB Vinningstölur 4. jÚIÍ '92 @Ú5)(2 8)Éjgf " (21) VINNINGAR FJÖLDI VINNINGSHAFA UPPHÆÐ Á HVERN VINNINGSHAFA 1. 5al5 1 5.985.246,- 2.4» ÉfT 211.614,- 3. 4al5 133 8.233,- 4. 3aí5 4.246 601.- Heildarvinningsupphæð þessa viku: 10.266.923.- > í 1 UPPLÝSINGAR: SlMSVARI 91-681511 lukkulIna991 002 Brautarholti 22 Reykjavík kynnir nýjan gististaö miösvæðis í Reykjavík á sérstöku kynningarveröi. Húsið er allt sem nýtt, herbergin eru vistleg og rúmgóö. Viö veitum sérstakan afslátt til hópa og til þeirra sem gista lengur en í 7 daga. Leitið upplýsinga - Sími 25599 - Símbréf 6-25599 ¥“|Frá Ferða- nefnd Léttis Ákveðið hefur verið að efna til félagsferðar út á Flateyjardal dagana 16. til 19. júlí nk. Ferðaáætlun: Farið verður frá Kaupvangsbakka kl. 18.00 á fimmtudaginn 16. júlí og farið í Draflastaði í Fnjóskadal þar sem hestarnir verða geymdir yfir nóttina. Á föstudag verður lagt af stað frá Draflastöðum kl. 13.00 og riðið út að Heiðar- húsum á Flateyjardalsheiði en þar verður gist í tvær nætur. Á laugardag verður farið út að sjó og svipast þar um og síðan far- ið heim til Akureyrar á sunnudag. Þátttökugjald er kr. 500 fyrir hvern þátttakanda eldri en 16 ára en þar að auki er hagagjald fyrir hvern hest kr. 450. Ath. að hundar eru ekki leyfðir í ferðinni. Séð verður um flutning á farangri fyrir þá sem þess óska. Væntanlegir þátttakendur skrái sig hjá einhverjum undirrituð- um fyrir mánudagskvöldið 13. júlí og greiði sín þátttökugjöld. Jón Höskuldsson, sími 21554. Björn Jónsson, sími 24121. Jón Ól. Sigfússon, sími 23435. Aðrar ferðir sem Ferðanefnd hyggst gangast fyrir í sumar eru hópferð á Melgerðismela föstudaginn 24. júlí ogfjöl- skylduferð í Sörlastaði um verslunarmannahelgina og verða þessar ferðir auglýstar síðar. Ferðanefnd Léttis. Sendibfiastöðin s/f Sími 22133. I Litlir bílar, stórir bílar, lyftubílar,skutlur Flytjum allt: Hvenær sem er og hvert sem er.

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.