Dagur - 07.07.1992, Page 14
14 - DAGUR - Þriðjudagur 7. júlí 1992
MlNNING
ri Kveðjuorð:
T Ámi Bjamarson
Fæddur 4. febrúar 1910 - Dáinn 29. júní 1992
Árni Bjarnarson hefur kvatt.
Með honum er horfinn einn
þeirra manna, sem um langt skeið
settu svip sinn á bæjarlífið á
Akureyri. Árni var hugsjóna-
maður og framkvæmdamaður. Á
æskuárum mótaðist hann af hug-
sjónum ungmennafélaganna og
tileinkaði sér þær. Þær voru leið-
arljós hans langa ævi og hann
lagði sitt af mörkum til að breyta
hugsjónum í veruleika og jafn-
framt til að varðveita sögu geng-
inna kynslóða. Fyrir honum voru
allir menn, lifandi og látnir,
merkir menn á einhvern hátt og
ástæða til að minnast þeirra og
læra af iífshlaupi þeirra. Þar
gerði hann engan mun höfðingja
og múgamanna.
Ungur að árum stofnaði Árni
skóla fyrir verðandi bifreiða-
stjóra. Það var á þeim árum, þeg-
ar bílar voru enn næsta fágætir og
ekki almenningseign. Síðar stóð
hann fyirr stofnun flugskóla í lok
síðari heimsstyrjaldar og gaf út
fyrstu kennslubók á íslandi um
flug. Á ýmsan annan hátt vann
hann að bættum samgöngum,
jafnt í lofti sem á landi.
Það var Árna einnig mikið
hugðarefni, að ísland yrði skógi
klætt á nýjan leik, og m.a. rækt-
aði hann sjálfur myndarlegan
skógarreit á Svalbarðsströnd.
En annars varð ævistarf Árna
að mestu bundið bókum og bóka-
útgáfu. Hann rak Bókabúðina
Eddu í áratugi og bókaútgáfu
með sama nafni. Verslaði hann
jöfnum höndum með nýjar og
gamlar bækur, og fyrir milli-
göngu hans eignaðist margur
bókasafnarinn eftirsóttar bækur
og smárit. í Augum Árna var í
rauninni ekkert prentað mál svo
lítils virði, að ekki væri ástæða til
að halda því til haga, ef einhver
skyldi síðar hafa áhuga fyrir að
eignast það vegna söfnunar-
ástríðu eða af öðrum ástæðum.
Sjálfur átti hann og mjög gott
safn bóka.
Árni var mikill áhugamaður
um samskipti íslendinga við
Vestur-íslendinga, sem um skeið
voru nánast engin orðin. En með
mikilli elju tókst honum að
endurvekja þau samskipti og um
leið að bjarga frá gleymsku minn-
ingu þeirra Islendinga, sem fluttu
til Vesturheims, flestir í lok fyrri
aldar. Hann fór fjölda ferða á
íslendingaslóðir vestanhafs og
safnaði efni til útgáfu Vestur-
íslenskra Æviskráa, sem nú hafa
að mestu verið gefnar út í fimm
myndarlegum bókum, aðeins sú
sjötta og síðasta er enn óprentuð.
Fyrir þessi störf var Árni sæmdur
íslensku Fálkaorðunni, og ýmsar
fleiri viðurkenningar hlaut hann
frá opinberum aðilum og félaga-
samtökum.
Árni Bjarnarson fæddist að
Pálsgerði í Grýtubakkahreppi,
en eiginkonan varð á vegi hans
inni á Svalbarðsströnd, Gerður
Sigmarsdóttir frá Mógili, sem nú
lifir mann sinn eftir langa og far-
sæla sambúð. Þau hjón eignuðust
fjögur börn, dæturnar Helgu og
Ásdísi og synina Hörð og
Harald. Alls eru afkomendurnir
nú orðnir 24.
Atvikin höguðu því svo, að
Helga varð eiginkona undirrit-
aðs. Af þeim ástæðum kynntist
ég Árna eðlilega mjög vel og
mannkostum hans. Sama var
hvenær til hans var leitað, ef ein-
hvern vanda bar að höndum.
Hann var jafnan tilbúinn til að
leita heppilegustu leiðar til
úrlausnar og veita þá aðstoð, er
hann mátti. Síðar fór svo, að
leiðir okkar Helgu skildu, en það
breytti engu um það, að Árni var
sami góði vinurinn og áður. Og
börnum okkar var hann góður
afi. Ég kveð því Árna með
söknuði.
I einkalífi sínu barst Árni lítt á
og tranaði sér ekki fram til mann-
virðinga, sem svo er kallað. Hins
vegar veit ég, að vinir hans voru
margir og hann því betur metinn
sem menn kynntust honurn
betur. Hann var mannkostamað-
ur, sem alla ævi reyndist trúr
þeim hugsjónum, sem hann
tileinkaði sér ungur.
Nú, þegar Árni Bjarnason hef-
ur kvatt þennan heim, sendi ég
Gerði og afkomendum þeirra
hjóna öllum, samúðarkveðjur.
Sameiginlega minnumst við góðs
og mikilhæfs manns.
Sævar Frímannsson.
Kveðja frá N.L.F.A.
Sterkur stofn er fallinn. Þótt
þetta sé gangur lífsins og aldur
Árna Bjarnarsonar hár, er
söknuður okkar mikill.
Líf Árna var allt samfelldur
starfsdagur, hann vann margfalt
starf á langri ævi og taldi ekki
vinnustundirnar. Hann var svo
heppinn að geta unnið að ýmsum
áhugamálum sínum til hinstu
stundar og dró hvergi af sér.
Árni var einn af þeim eldhug-
um er studdu byggingu Kjarna-
lundar. Þar sem annars staðar
stóð Gerður, kona hans, ötul og
áræðin við hlið hans.
Náttúrulækningafélag Akur-
eyrar þakkar Árna hans óeigin-
gjarna starf og vottar Gerði og
fjölskyldu hans innilega samúð.
Áslaug Kristjánsdóttir,
formaður N.L.F.A.
Þórarinn Jónsson
bóndi, Bakka, Svarfaðardal
Fæddur 3. júlí 1918 - Dáinn 25. júní 1992
Okkur langar til að setja fáein
orð á blað í þakkar- og kveðju-
skyni til elsku pabba, tengda-
pabba og afa.
Við erum þakklát fyrir allar
þær stundir sem synir okkar
fengu að njóta með honum. Það
ríkti alltaf mikil gleði á milli
þeirra og var þeim ákaflega mikils
virði. Hann leyndi sér ekki,
gleðitónninn í röddinni sem kall-
aði svo oft: „Afi er að koma,“ og
þegar hann sýndi á sér fararsnið
heyrðist alltaf sagt í bænartón:
„Má ég fara með afa?“
Við þökkum honum fyrir alla
þá hjálp sem hann hefur veitt
okkur, ekki síst haustið ’90 þegar
við vorum að byggja fjósið. Það
voru tómlegir dagar þegar hann
kom ekki. Þó vinnusemin væri
óþrjótandi, vildi hann alltaf gefa
litla aðstoðarmanninum tíma,
enda voru þeir búnir að brasa
ýmislegt saman. Þetta voru
ómetanlegar stundir og minning-
arnar frá þeim eigum við nú og
geymum með okkur.
Nú þegar komið er að kveðju-
stund er margt sem kemur upp í
hugann. Það var alltaf gaman að
koma til pabba í fjárhúsin og
hesthúsið, þá var hægt að gleyma
sér og spjalla saman góða stund í
návist hestanna, sem veittu hon-
um mikla ánægju. Að fylgjast
með hestunum í sumarhaganum
eða fara í ferðalög á hestum var
honum mikils virði.
í morgunljómann er lagt afstað.
Allt logar afdýrð, svo vítt sem er séð.
Sléttan, hún opnastsem óskrifað blað,
þarakur ei blettar, þar skyggir ei tréð.
- Menn og hestar á hásumardegi
í hóp á þráðbeinum, skínandi vegi
með nesti við bogann og bikar með.
Betra á dauðlegi heimurinn eigi.
(Einar Benediktsson).
Nú þegar dagsverkinu er lokið,
viljum við færa pabba ástarþakk-
ir fyrir allt.
Ég fel í forsjá þína,
Guð faðir, sálu mína,
því nú er komin nótt.
Um ljósið lát mig dreyma
og Ijúfa engla geyma
öll börnin þín svo blundi rótt.
(Matthías Jochumsson).
Elsku mamma, tengdamamma
og amma, megi góður Guð
styrkja þig og styðja um ókomna
tíð.
Fjölskyldan á Grund.
■IPW ■Bw | - iJFm. ' Y a
Unglingaleikhópurinn Radisubeðið fr Hús Alsælir Dani - unglingaleikhi „Þau voru mjög ánægð með heimsóknina og alsæl með við- tökurnar sem sýningarnar fengu,“ sagði Hrefna Jóns- dóttir í Leikfélagi Húsavíkur, einn af gestgjöfum 21 Borg- undarhólmsbúa sem sóttu leik- félagið heim nýlega. í hópnum voru 14 unglinar sem starfa í barnaleikhóp á vegum dansks vinaleikfélags Leikfélags Húsavíkur. Unglingarnir, Radísu- beðið, sýndu norræna revíu tvisv- ar sinnum í Samkomuhúsinu og komu leikhúsgestum bókstaflega til að gráta af hlátri. Ungu leikar- á Borgundarhólmi. avík: r í snjókomu 5pur slær í gegn arnir voru á aldrinum 13-16 ára og stóðu sig mjög vel og voru landi sínu til sóma. Hópurinn var ekki heppinn með veður á Húsavík og t.d. varð að hætta við sjóferð sem búið var að skipuleggja. Farið var með hópinn að Kröflu og gengið á Leirhnjúk. Diskótek var haldið og kynni tókust með húsvísku og dönsku unglingunum. „Þau voru ógurlega ánægð með allt og ein danska stúlkan sagði við mig að enginn tryði sér þegar hún kæmi heim og segðist hafa setið úti í potti með 41 gráðu heitu vatni - og snjókomu,“ sagði Hrefna. IM
Norðurlandar íslendingar P meistarar 1 ( íslenska karlalandsliðið sigraði í opnum flokki á Norðurlanda- mótinu í bridds sem lauk á föstudag. íslenska liðið hlaut 185.5 vinningsstig en norska liðið hafnaði í öðru sæti með 174.5 vinningsstig. íslendingar spiluðu við Norð- menn í tíundu og síðustu umferð- inni á föstudag. Fyrir umferðina voru íslendingar efstir í opna flokknum, 13 vinningsstigum fyr- ir ofan Norðmenn, svo að um hreinan úrslitaleik var að ræða, þar sem íslendingar máttu ekki tapa stærra en 9:21. Svo fór að Norðmenn sigruðu 16:14 en það voru íslendingar sem fögnuðu sigri á mótinu. Svíar höfnuðu í þriðja sæti með 167 vinningsstig, Finnar í fjórða sæti með 144, Danir í fimmta sæti með 140 og Færey- nótið í bridds: íorðurlanda- >pnum flokki ingar í því sjötta með 70,5 vinn- ingsstig. íslenska liðið var skipað þeim Sævari Þorbjörnssyni, Karli Sig- urhjartarsyni, Matthíasi Þorvalds- syni, Sverri Ármannssyni og spilandi fyrirliði var Björn Éysteinsson. Svíar urðu Norðurlandameist- arar í kvennaflokki og hlutu 192,5 vinningsstig. Danir urðu í öðru sæti með 166 stig, Finnar í þriðja sæti með 163,5 stig, Norð- menn í fjórða sæti með 156,5 stig, íslendingar í fimmta sæti með 148,5 stig og Færeyingar í sjötta sæti með 61 stig. íslenska kvennaliðið var skip- að þeim Esther Jakobsdóttur, Valgerði Kristjónsdóttur, Ljósbrá Baldursdóttur og Hjör- dísi Eyþórsdóttur. Fyrirliði var Jón Hjaltason. -KK
Gunnar Gud Jónas Ingimii tónleika á I Gunnar Guðbjörnsson, tenór- söngvari, og Jónas Ingimund- arson, píanóleikari, halda tón- leika á Hvammstanga nk. laug- ardag, 11. júlí, kl. 16. Gunnar er hér staddur í stuttri heimsókn frá önnum í Þýska- landi, en hann er fastráðinn við óperuna í Wiesbaden. Þeir félagar Gunnar og Jónas hafa starfað mikið saman á undanförnum árum og verður söngskrá þeirra mjög fjölbreytt að þessu sinni. Tönleikarnir á Hvammstanga eru þeir fyrstu í röðinni í tón- bjömsson og indarson með Vorðurlandi leikaferð þeirra félaga um Norðurland, en auk þeirra eru tónleikar á Breiðumýri sunnu- daginn 12. júlí kl. 21, í Safnahús- inu á Húsavík .mánudaginn 13. júlí kl. 21, í Safnaðarheimili Akureyrarkirkju þriðjudaginn 14. júlí kl. 20.30 og í Miðgarði í Skagafirði miðvikudaginn 15. júlí kl. 21. Gunnar er í hópi þeirra íslensku söngvara sem hvað mesta athygli hafa vakið á undan- förnum árum. Því er það sérstakt fagnaðarerindi að hann láti til sín heyra á Norðurlandi. (Fréttatilkynning)