Dagur - 10.09.1992, Page 1
Venjulegir og
demantsskornir
trúlofunarhringar
Afgreiddir samdægurs
GULLSMIÐIR
SIGTRYGGUR & PÉTUR
AKUREYRI
Siglu^örður:
Úrbætur í
samgöngumálum
efst á blaöi
- segir Kristján Möller,
forseti bæjarstjórnar
Sveitarstjórnarmenn á Norð-
urlandi vestra munu á næst-
unni eiga fundi með fjárveit-
inganefnd Alþingis og þing-
mönnum kjördæmisins og
leggja fram óskalista sinn um
framkvæmdir sem þeir telja að
verði að hafa forgang.
Kristján Möller, forseti bæjar-
stjórnar Siglufjarðar, segir að
efst á óskalistanum hjá Siglfirð-
ingum séu úrbætur í samgöngu-
málum, bæði hvað varðar flug-
völlinn og veginn frá Ketilási til
Siglufjarðar. „Vandamálið með
flugvöllinn er að á vorin blotnar
hann meira en góðu hófi gegnir
og því verða flugvélar oft að
lenda á Sauðárkróki. Það er
óþolandi ástand bæði fyrir okkur
og flugrekstraraðilana,“ sagði
Kristján. Varðandi samgöngur á
landi sagði hann algerlega óvið-
unandi ástand á veginum frá
Ketilási að Strákagöngum. „Það
hefur að vísu verið unnið þarna
að ræsagerð og maður trúir því
að það sé undirbúningur fyrir
varanlegt slitlagsagði Kristján.
óþh
Akureyri:
Piltur viðurkeimir
ávísanafals
Mynd: Golli
Konungleg heimsókn til Norðurlands
Haraldur V. Noregskonungur, Sonja drottning og frú Vigdís Finn-
bogadóttir, forseti íslands, ásamt fríðu föruneyti komu til Aðaldals-
flugvallar kl. 10 í gærmorgun með flugvél Landhelgisgæslunnar.
Lemjandi rok og rigning var í Aðaldal er hinir tignu gestir stigu frá
borði. Halldór Kristinsson, sýslumaður Þingeyinga, tók á móti gestum
og haldið var til Mývatnssveitar undir leiðsögn Jóhanns Sigurjónsson-
ar, menntaskólakennara. Veðurguðirnir slökuðu nokkuð á klónni er
komið var í Mývatnssveit og gestirnir nutu náttúrufegurðar sveitarinn-
ar sem og hádegisverðar að Hótel Reynihlíð.
Úr Mývatnssveit var för heitið til Akureyrar í Lystigarðinn þar sem
Sigríður Stefánsdóttir, forseti bæjarstjórnar Akureyrar, framámenn
bæjarins ásamt nokkrum fjölda bæjarbúa tóku á móti gestum með
viðhöfn. Að aflokinni stuttri skoðunarferð um Akureyri var haldið til
Akureyrarkirkju. Fjölmenni var við hátíðarathöfn í kirkjunni og að
henni lokinni gengu gestir til veislu að Hótel KEA. Ræður voru fluttar
og konungshjónunum sem og forseta íslands voru færðar gjafir bæjar-
stjórnar, sem bæjarlistamaðurinn Margrét Jónsdóttir hafði gert. Kon-
ungshjónin yfirgáfu Akureyri kl. 18,30 og lauk þar velheppnaðri
íslandsheimsókn. Sjá nánar bl. 6 og 7 ój
Sæplast hf. á Dalvík:
Tólf prósent framleiðsluaukning
fyrstu sjö mánuði ársins
- á sama tíma hefur útflutningsverðmæti aukist um 28%
Rannsóknarlögreglan á Akur-
eyri handtók pilt á þriðjudags-
kvöldið vegna gruns um ávís-
anamisferli. Pilturinn hefur
viðurkennt verknaðinn.
„Pilturinn er nítján ára og hef-
ur ekki lent í afbrotum fyrr.
Hann falsaði all margar ávísanir
úr stolnu ávísanahefti. Heildar-
upphæðin sem hann komst yfir á
4 til 5 dögum nemur um eitt
hundrað og tíu þúsund krónum.
Málið fer nú til meðferðar og
pilturinn verður ákærður heima í
héraði," sagði talsmaður rann-
sóknarlögreglunnar á Akureyri.
Loðnuverksmiðjurnar á Rauf-
arhöfn og Þórshöfn hafa verið
hráefnislausar í nokkurn tíma,
eða hátt í tvær vikur. Aðfara-
nótt þriðjudags lauk bræðslu á
Siglufirði og allt hráefni klár-
aðist í Krossanesi um hádegis-
bilið í gær og bræðslu því hætt.
Engir loðnubátar voru á mið-
unum í gær vegna veðurs.
Fyrsta loðnan sem landað var á
Siglufirði á þessari vertíð kom sl.
Magnaukning í framleiðslu
Sæplasts hf. á Dalvík fyrstu sjö
mánuði þessa árs nemur 12
prósentum. Kristján Aðal-
steinsson, framkvæmdastjóri
föstudag. Pað var Örn KE sem
kom með 730 tonn. Síðan bættust
fleiri í hópinn um helgina og var
alls landað 3.733 tonnum hjá
Síldarverksmiðjum ríkisins á
Siglufirði sem jafnframt er heild-
armagn loðnu sem verksmiðjan
hefur fengið á vertíðinni. Þær
upplýsingar fengust í verksmiðj-
unni í gær að greiðlega hefði
gengið að bræða loðnuna og lauk
bræðslu aðfaranótt þriðjudags.
Sæplasts hf., segir að hlutur
útflutnings hjá fyrirtækinu hafi
aukist frá fyrra ári. Þannig hef-
ur útflutningsverðmæti aukist
um 28% fyrstu sjö mánuði
Nú er bara beðið eftir betra veðri
og meiri loðnu.
Jóhann Pétur Andersen, verk-
smiðjustjóri í Krossanesverk-
smiðjunni, sagði að bræðslu hefði
lokið í hádeginu í gær, en þá var
verið að klára bein og fiskúrgang.
Krossanesverksmiðjan hefur tek-
ið á móti 3.440 tonnum af loðnu á
haustvertíðinni. „Þetta mætti
koma örar en er þó skárra en ver-
ið hefur,“ sagði Jóhann Pétur.
þessa árs. A sama tíma nemur
samdráttur í sölu á innanlands-
markaði um 8%.
Fyrr á þessu ári hóf Sæplast
framleiðslu á rotþróm og segir
Verksmiðjurnar á Norðaustur-
horninu, Síldarverksmiðjur ríkis-
ins á Raufarhöfn og loðnuverk-
smiðja Hraðfrystistöðvar Þórs-
hafnar, hafa fengið drjúgt af
loðnu á þessari vertíð og stórum
meira en á síðustu haustvertíð en
nú er farið að teygjast úr stopp-
inu. Fyrir austan bíða menn líka
eftir betra veðri og reikna með að
bátarnir fari að hreyfa sig í dag
eða á morgun. SS
Kristján að sala á þeim hafi geng-
ið vel. Einnig hefur verið tölu-
verð sala í vatns- og safntönkum.
Kristján sagði að það sem af er
þessu ári hafi mikil áhersla verið
lögð á markaði í Frakklandi og
Danmörku og sú vinna hafi skil-
að sér. Danir hafa lengi keypt
framleiðslu Sæplasts, en töluverð
aukning hefur orðið að undan-
förnu í sölu til fiskvinnslufyrir-
tækja í Danmörku.
Eins og fram hefur komið hafa
útvegsmenn á Bretagne-skaga í
Frakklandi keypt ker frá Sæplasti
og líkað vel. Kristján segir að sú
vinna sem lögð hefur verið í
markaðssetningu á framleiðslu
Sæplasts í Frakklandi á síðustu
tveim árum sé að skila sér. „í
sumar höfum við verið að kynna
þessa framleiðslu í fleiri atvinnu-
greinum í Frakkalandi en sjávar-
útvegi, t.d. fiskeldi og matvæla-
iðnaði. Staða okkar á erlendum
mörkuðum er alltaf að styrkjast
og við leggjum áherslu á að
styrkja hana enn frekar,“ sagði
Kristján. óþh
oj
Loðnuveiðar liggja niðri vegna veðurs:
Hráefni á þrotum hjá öllum verksmiöjum
- Siglfirðingar fengu 3.733 tonn um síðustu helgi