Dagur - 10.09.1992, Qupperneq 3
Fimmtudagur 10. september 1992 - DAGUR - 3
Fréttir
Skammt norðan við Ydali hefur risið 300 fm. hus. Mynd: kk
Aðaldælingar
byggja
Aðaldælingar eru að eignast
sitt eigið ráðhús. Skammt
norðan við Ýdali er í byggingu
300 fm. hús þar sem slökkvi-
stöð, hjálparsveit og hrepps-
skrifstofur verða til húsa.
Dagur Jóhannesson, oddviti
Aðaldælinga, sagði í samtali við
Dag að slökkvilið og hjálparsveit
í hreppnum væru í húsnæðishraki
og fyrst farið var að byggja á ann-
að borð, hefði verið ákveðið að
byggja yfir hreppsskrifstofurnar í
leiðinni.
ráðhús
Bygging hússins gengur sam-
kvæmt áætlun. Verktaki við
bygginguna er Hermann Sigurðs-
son í Hraunkoti og samkvæmt
útboði ber honum að skila húsinu
fokheldu fyrir 15. nóv. nk. Að
sögn Dags verður síðan reynt að
ljúka við bygginguna fyrir næsta
vor.
Talsvert er um byggingarfram-
kvæmdir í Aðaldal um þessar
mundir. Meðal annars er verið
að byggja við íbúðarhús og fjós
og bygging íbúðarhúsa er á döf-
inni. IM
Akureyri:
„Stjómvöld ganga í
skrokk á tríllusjómömium
er gera út smátt“
- segir Ingvi Árnason, sjómaður
Trillukarlar fengu nýverið
kvóta þann sem þeir mega
veiða á yfirstandandi veiðiári.
Margir eru óhressir með sinn
hlut og þykir óréttlæti ráða
ríkjum. Einn þessarra manna
er Ingvi Arnason á Akureyri
sem rær á tæplega þriggja
tonna trillu er ber nafnið Jón
Geir EA 132.
„Pví er svipað varið með
stjórnvöld fiskveiðimála og karli
nokkrum er ég þekkti í gamla
daga. Karlinn átti þrjá syni. Peg-
ar sá elsti og öflugasti gerði
eitthvað af sér þá lúskraði sá
gamli á yngsta syninum sem var
lítill og veikburða. Er karlinn var
spurður hví hann hefði þennan
háttinn á þá var svarið: „Ég ræð
ekki við þann elsta og stærsta.“
Þannig er komið með stjórnsýsl-
una í dag. Við höfum mýmörg
dæmi. Ég vil nefna eitt. Stjórn-
völd ganga í skrokk á okkur
trillukörlum sem gera út smátt.
Þannig þarf ég að borga veiði-
leyfisgjald að upphæð krónur
12.325,00 fyrir 4830 tonn. Þetta
þykir mér hart þegar ég lít til
stóru bátanna," segir Ingvi Árna-
son, sem lengi var í forsvari fyrir
trillusjómenn við Eyjafjörð. ój
Kammerhljómsveit Akureyrar:
Hlj óms veitarstj óri ráðinn
- aðalfundur nk. miðvikudag
Guðmundur Óli Gunnarsson,
skólastjóri Tónlistarskólans á
Akureyri, hefur verið ráðinn
aðalhljómsveitarstjóri Kamm-
erhljómsveitar Akureyrar
næsta starfsár.
Aðalfundur Félags áhugafólks
um Kammerhljómsveit Akureyr-
ar verður haldinn í sal Tónlistar-
skólans miðvikudaginn 16. sept-
ember kl. 20.30. Allir sem áhuga
hafa fyrir starfi Kammerhljóm-
sveitar Akureyrar eru hvattir til
að mæta og gerast félagar, segir í
fréttatilkynningu frá stjórn
félagsins.
Núveiandi formaður Félags
áhugafólks um Kammerhljóm-
sveit Akureyrar er Rósa K. Júlí-
usdóttir og framkvæmdastjóri
Kammerhljómsveitarinnar er Jón
Hlöðver Áskelsson. SS
Hugmyndir ríkisstjórnarinnar um hækkun tryggingargjalds
í stað aðstöðugjalds:
Kæmi harkalega við hefð-
bundnu búgreinamar
- launaliðurinn er 45% í sauðQárræktinni og 40% í nautgriparækt
Gunnlaugur Júlíusson, hag-
fræðingur Stéttarsambands
bænda, segir að hækkun álagn-
ingarhlutfalls tryggingargjalds
í stað aðstöðugjalds kæmi
harkalega við hefðbundnu
búgreinarnar, nautgriparækt
og sauðfjárrækt, en allt annað
yrði upp á (eningnum í korn-
greinunum svokölluðu, svína-
rækt, kjúklinga- og eggjafram-
leiðslu.
Eins og fram kom í Degi í gær
hefur Stéttarsamband bænda
mótmælt þessum áformum ríkis-
stjórnarinnar og bent á að hækk-
un tryggingargjalds muni leiða til
lakari samkeppnisstöðu innlendr-
ar framleiðslu, það sama gildi um
búvöru og innlenda iðnaðarfram-
leiðslu.
„Þessi breyting myndi lækka
verð á framleiðslu korngrein-
anna, vegna þess að þar er launa-
liðurinn í kringum tíu prósent.
Hins vegar myndi þetta þýða
hækkun á bæði sauðfjár- og naut-
griparækt vegna þess að launalið-
urinn í þessum greinum er mikl-
um mun hærri,“ sagði Gunnlaug-
ur.
í kostnaðarmyndun búvara er
launaliðurinn hæstur í sauðfjár-
ræktinni og því kæmi þessi breyt-
ing verst við hana. Samkvæmt
verðlagsgrundvellinum í júní sl.
var hlutur launa í sauðfjárrækt-
inni um 45%, en í nautgriparækt-
inni var hann um 40%. Sam-
kvæmt verðlagsgrundvelli 1.
september sl. var hlutur launa í
kostnaðarmyndun í kjúklinga-
rækt 12% og 13% í eggjafram-
leiðslunni. óþh
Hugmyndir ríkisstjórnarinnar kæmu harkalega við sauðfjárbændur. Mynd: kk
Sæversmálið í Ólafsfirði:
Ólafsfiarðarbær áfrýiar
Ólafsfjarðarbær ætlar að áfrýja
til Hæstaréttar dómi Héraðs-
dóms Norðurlands eystra í
svokölluðu Sæversmáli. Búast
má við að niðurstaða Hæsta-
réttar fáist ekki fyrr en eftir 1-2
ár.
Héraðsdómur Norðurlands
eystra kvað dóm sinn upp 17.
ágúst sl. og var bæjarsjóður
Olafsfjarðar dæmdur til að greiða
Búnaðarbanka íslands á Akur-
eyri rúmar 7 milljónir króna.
Bæjarsjóður veitti á sínum tíma
lagmetisfyrirtækinu Sæveri í
Ólafsfirði bæjarábyrgð á lánum
hjá Búnaðarbankanum en
skömmu síðar varð fyrirtækið
gjaldþrota. Þar sem Búnaðar-
bankinn lýsti ekki kröfum í
þrotabúið töldu forsvarsmenn
Ólafsfjarðarbæjar að ábyrgðin á
lánunum væri fallin niður. Bún-
aðarbankinn gerði mun hærri
kröfu á bæjarsjóð en dómur Hér-
aðsdóms hljóðaði upp á rúmar 7
milljónir.
Bæjarráð Ólafsfjarðar kom
saman þegar dómurinn hafði ver-
ið kveðinn upp í ágúst og sam-
þykkti að fela bæjarstjóra og lög-
manni bæjarins að taka ákvörðun
um áfrýjun í málinu. Niðurstaða
liggur nú fyrir og hefur bæjar-
stjóri tilkynnt bæjarstjórn að
dómnum verði áfrýjað. JÓH