Dagur - 10.09.1992, Síða 11
Fimmtudagur 10. september 1992 - DAGUR - 11
ÍÞRÓTTIR
Halldór Arinbjarnarson
Samskipadeildin: Leikjum í botn- baráttunni seinkað Leik ÍBV og KA hefur verið seinkað um 2 tíma. Hann verður því leikinn á laugar- daginn kl. 16.00 í stað 14.00. Leik UBK og Víkinga hefur einnig verið frestað og verður hann leikinn á sama tíma. Verði ekki flugfært til Vest- mannaeyja á laugardaginn frestast báðir leikirnir þangað til kl. 14.00 á sunnudag.
Knattspyrna: Nói endurráðinn þjáJfarí Magna Nói Björnsson hefur verið endurráðinn þjálfari 3. deildarliðs Magna í knatt- spyrnu. Nói tók við Magna fyrir nýafstaðið keppnis- tímabil og náði ágætis árangri með liðið. Auk þess að þjálfa Magna í sumar, lék Nói einnig með lið- inu og hyggst hann gera það áfram á næsta keppnistíma- bili, svo framarlega sem hann kemst í liðið. Þá er reiknað með að Magni mæti rneð nán- ast sama mannskap til Iciks næsta sumar. Magni hafnaði í sjöunda sæti 3. deildar í sumar. Liðið fékk 22 stig úr 18 leikjum, vann 6 leiki, gerði 4 jafntefli
en tapaði 8 leikjum. -KK
Knattspyrna: Leíkbönn Eftirtaldir leikmenn af Norðurlandi voru dæmdir í leikbann á fundi Aganefnd- ar KSÍ 8. september síðast- liðinn: Vegna brottvísunar: Atli Þ. Samúelsson, Þór 3. fl. Vegna fjögurra gulra spjalda: Bjarki Bragason, KA 2. fl. Ásmundur Vilhelmsson, Hvöt Vegna sex gulra spjalda: Pétur Arason, Hvöt Þá munu þeir Jóhannes Ólafs- son liðsstjóri ÍBV og Ingi Sig- urðsson leikmaður verða í banni þegar lið þeirra mætir KA í síðustu umferð Sam- skipadeildarinnar. HA
Ólympíumótið: Góður árangur íslendingarnir á Ólympíu- mótsins halda áfram að standa sig vel. Akureyring- arnir Rut Sverrisdóttir og Elvar Thorarensen kepptu bæði í gær og náðu góðum árangri. íslendingar hafa nú unnið 2 gull, 1 silfur og 6 bronsverðlaun. Rut komst í úrslit í 100 m baksundi. Hún synti á tíman- um 1:20,55 sem er nýtt ís- landsmet. Úrslitin áttu að fara fram í gærkvöld. Elvar hóf keppni í borðtennis í gær og sigraði andstæðing sinn í þremur lotum 20-22, 21-7 og 21-1. HA
Ólympíumót þroskaheftra:
Eins og áður sagði keppa þeir
báðir í frjálsum íþróttum. Þeir
munu báðir keppa í 100 m hlaupi
og langstökki en Aðalsteinn mun
auk þess keppa í hástökki og
Stefán í 200, 400 og 800 m hlaup-
um. „Hér heima berjumst við oft
í þessum greinum og það er mis-
jafnt hvor hefur betur,“ sagði
Aðalsteinn. Þeir sögðust ekki
þekkja mikið til mótherja sinna
úti en gerðu sér vonir um að geta
í það minnsta staðið upp í hárinu
á þeim. „Þær upplýsingar sem við
höfum um hina keppendurna eru
það gamlar að vafasamt er að
taka of mikið mark á þeim,“
sagði Stefán. Einnig sögðu þeir
að oft næðist betri árangur á stór-
mótum úti þar sem fólk væri þar
að keppa við topp aðstæður, sem
væri ekki alltaf raunin hér heima.
Þeir sögðust vera orðnir tals-
vert spenntir enda um mikinn
viðburð að ræða. Það er að sjálf-
sögðu mikill heiður fyrir hvern
íþróttamann að taka þátt í stór-
móti sem þessu. Aðspurðir sögðu
þeir að keppnisreynslan væri það
besta við svona mót. Þeir þyrftu
sterkari mótherja en völ væri á
hér heima. „Þá erum við betur
undirbúnir fyrir næsta mót,“
sagði Aðalsteinn. Þeir félagar
hefja báðir keppni 16. september
og verður spennandi að fylgjast
með þeim. HA
Þeir sögðust halda til Reykja-
víkur næstkomandi föstudag og á
laugardag yrði flogið til London
þar ^en hópurinn mundi gista
eina nótt áður en haldið yrði
Madrid. Aðspurðir sögðust þeir
kannast við flesta hina keppend-
urna, bæði úr keppnum hér
heima og eins hefði hópurinn all-
ur komið saman á Laugarvatni
nú fyrr í sumar. Báðir höfðu þeir
félagar áður tekið þátt í keppn-
um erlendis en þetta væri samt
sem áður stæsti íþróttaviðburður
þeirra til þessa. „Ég átti reyndar
að i'ara til Suður-Kóreu og var
búinn að æfa fyrir þá leika en á
síðustu stundu var hætt við það
út af veseni við skráningar í
i flokka,“ sagði Stefán.
Ólympíumót hreyfihamlaðra
stendur nú sem hæst í Barce-
lona. Nú líður senn að því að
Ólympíumót þorskaheftra
- segja ólympíufararnir
Aðalsteinn og Stefán eru til í slaginn.
Spánar og keppa þar fyrir
íslands hönd. Þetta eru þeir
Aðalsteinn Friðjónsson og
Stefán Thorarensen. Þeir
munu báðir keppa í frjálsum
íþróttum. Auk þeirra keppa í
Madrid, Gunnar Þ. Gunnars-
son og Katrín Sigurðardóttir
frá Selfossi. Bára Erlingsdótt-
ir, Guðrún Ólafsdóttir, Sigrún
H. Hrafnsdóttir og Mannfreð
I. Jensson frá Reykjavík. Dag-
ur fékk þá félaga Aðalstein og
Stefán í stutt spjall og spurði
fyrst hvernig ferðinni yrði
háttað.
hefjist en það verður haldið í
Madrid 13.-23. september
næstkomandi. Tveir Norð-
lendingar munu brátt halda til
„Staðráðnir í að gera okkarbesta“
, Tindastóll:
Ólíklegt að Guðbjöm þjálfi áfram
- óvíst með bræðurna Pétur og Bjarka
Keppni er nú lokið í þriðju
deild og eins og kunnugt er
unnu Tindastólsmenn frá
Sauðárkróki deildina með
glæsibrag. Fyrir keppnistíma-
bilið fékk Tindastóll góðan
liðsstyrk en þá gengu bræðurn-
ir Pétur og Bjarki Péturssynir
ásamt þjálfaranum Guðbirni
Tryggvasyni í raðir Stólanna.
Enn er ekki frágengið hvort
þremenningarnir halda áfram
með liðinu á næsta ári en Guð-
björn Tryggvason taldi afar
ólíklegt að hann mundi verða á
Króknum næsta sumar.
Gengi Tindastóls í sumar var
einstaklega gott. Liðið tapaði
einungis einum leik í deildinni,
gerði eitt jafntefli en vann 16
leiki. Bjarki Pétursson varð
markahæsti leikmaður deildar-
innar með 17 mörk. Á þessari
stundu er allt á huldu um hvort
hann, ásamt Pétri og Guðbirni
leika á ný með Sauðárkróksliðinu
þegar keppni hefst í 2. deild
næsta sumar. Ómar B. Stefáns-
son hjá Tindastól sagði allt of
snemmt að segja nokkuð til um
hverjir mundu verða með næsta
sumar. í sama streng tók Pétur
Pétursson þegar haft var sam-
band við hann. Pétur mun stunda
nám í Fjölbrautaskólanum á
Sauðárkróki í vetur, eða í það
minnsta fram að áramótum.
Bjarki bróðir hans hefur haldið á
Bjarki Pétursson.
ný til Akraness.
Aðspurður sagðist Guðbjörn
Tryggvason telja fremur ólíklegt
að hann mundi verða hjá Tinda-
stól á næsta ári. Hann hefur nú
tekið við sínu fyrra starfi á Akra-
nesi. „Það þarf mikið að breytast
til þess að ég verði á Sauðárkróki
næsta sumar,“ sagði Guðbjörn.
Hann sagðist að öllum líkindum
þurfa að segja upp því starfi sem
hann gegndi á Ákranesi ef hann
ætti að geta þjálfað Tindastól
áfram, „og ég er ekki tilbúinn til
þess eins og atvinnuástandið í
þjóðfélaginu er í dag,“ sagði
hann. Það bendir því allt til þess
að Tindastóll þurfi að leita sér að
nýjum þjálfara fyrir næsta sumar.
Aldursflokkainót UMSE í fijálsum íþróttum
Hér birtist seinni helmimgur
úrslita á aldursflokkamóti
UMSE. Við höfðum áður birt
úrslitin hjá strákunum en hér
koma stelpurnar.
Tátur 10 ára og yngri:
60 m hlaup:
1. Sara Vilhjálmsd., Svarfd 9,90
2. Ingunn Högnadóttir, Vorb 10,00
Langstökk:
1. Ingunn Högnad., Vorb 3,60
2. Svanhildur Ketilsd., Framt 3,46
Boltakast:
1. Svanhildur Ketilsd., Framt 33,40
2. Ingunn Högnad., Vorb 29,85
Stelpur 11-12 ára:
60 m hlaup:
1. Gunnhildur Helgad., Æskan 9,00
2. Heiða Valgeirsd., SM 9,00
400 m hlaup:
1. Ingibjörg Helgad., Svarfd 1:12,90
2. Sigurbjörg Guðmundsd., SM 1:15,10
Langstökk:
1. Gunnhildur Helgad., Æskan 4,20
2. Sigurbjörg Guðmundsd., SM 4,19
Hástökk:
1. Ingibjörg Leifsd., Árroð 1,20
2. Kolbrún Kristjánsd., Svarfd 1,15
Kúluvarp:
1. Berglind Óðinsd., Reyni 6,04
2. Ólöf Óskarsd., Svarfd 5,66
Boltakast:
1. Ellý Elvarsd., Reyni 34,70
2. Gunnhildur Helgad., Æskan 32,66
Stelpur 13-14 ára
100 m hlaup:
1. Soffía Gunnlaugsd., Reyni 13,60
2.-3. Eva Bragad., Svarfd 13,80
2.-3. Sigurlaug Níelsd., Framt 13,80
400 m hlaup:
1.-2. Sigurlaug Níelsd., framt 1:10,00
1..-2. Þórdís Jónsd., Æskan 1:10,00
Langstökk:
1. Soffía Gunnlaugsd., Reyni 4,73
2. Þórdís Jónsd., Æskan 4,40
Hástökk:
1. Sandra D. Pálsd., Framt 1,40
2. Sigurlaug Níelsd., Framt 1,35
Kúluvarp: 1. Soffía Gunnlaugsd., Reyni 7,40
2. Eva Bragad., Svarfd 6,80
Spjótkast: 1. Gunnur Stefánsd., Árroð 23,02
2. Gunnhildur Júlíusd., Svarfd 21,76
Meyjar 15-16 ára: 100 m hlaup: 1. Heiðdís Þorsteinsd., Svarfd 17,60
800 m hlaup:
1. Linda Sveinsd., Reyni 3:05,20
2. Halla B. Davíðsd., Svarfd 3:22,50
4x100 m boðhlaup:
1. Sveit Árroöans/Framt 59,60
2. Sveit SM 1:02,00
Hástökk: 1. Heiðdís Þorsteinsd., Svarfd 1,25
Kúluvarp: 1. Heiðdís Þorsteinsd., Svarfd 6,15
Stúlkur 17-18 ára: 100 m hlaup: 1. Linda Sveinsd., Reyni 13,60
2. Maríanna Hansen, Æskan 13,90
Langstökk: 1. Linda Sveinsd., Reyni 4,74
2. Maríanna Hansen, Æskan 4,44
Hástökk: 1. Maríanna Hansen, Æskan 1,50
2. Linda Sveinsd., Reyni 1,20
Kúluvarp: 1. Maríanna Hansen, Æskan 7,23
2. Sigurlaug Hauksd., Svarfd 7,21
Kringlukast: 1. Sigurlaug Hauksd., Svarfd 18,10
2. Maríanna Hansen, Æskan 14,58
Spjótkast: 1. Maríanna Hansen, Æskan 17,22