Dagur - 26.09.1992, Side 19
Laugardagur 26. september 1992 - DAGUR - 19
Máttugur var Marley
- veglegt safn með verkum meistarans komið út
Nú liðlega ellefu árum eftir fráfall
reggímeistarans Bob Marley, en
hann lést úr krabbameini í
Bandaríkjunum 11. maí 1981, er
að koma á markað mjög vandað
og veglegt safn með hans bestu
og frægustu verkum auk annars
áður óútgefins og sjaldgæfs
efnis. Er nánar tiltekið um að
ræða kassa með fjórum geisla-
diskum, sem samtals geyma 78
lög er spanna feril Marleys frá
upphafi til loka hans.
Marley, sem fæddist í höfuðborg
Jamaíka, Kingston, árið 1945,
sonur bresks kafteins og
jamaískrar stúlku, gaf út sitt
fyrsta lag, One cup of coffie, árið
1962. Var hann þá fyrst einn síns
liðs, en stofnaði svo hljómsveit-
ina The Wailers tveimur árum
síðar. Var sú sveit æ síðan órjúf-
anlegur hluti af ferli Marleys.
Urðu vinsældir Marleys og
Wailers fljótt miklar á Jamaíka og
víðar þar um slóðir, en verulega
athygli vakti Marley fyrst alþjóð-
lega er hann vann með leikaran-
um og söngvaranum Johnny
Nash að sköpun laga, en Nash
var einn fyrsti vestræni tónlist-
armaðurinn til að hljóðrita efni á
Jamaíka. Samdi Marley m.a. lag
fyrir Nash sem kallaðist Stir it up,
er vinsælt varð í Bretlandi árið
1971.
Með The Wailers fóru svo hlutirn-
ir einnig aö ganga vel fyrir sig á
heimsvísu hjá Marley og uxu
vinsældirnar stig af stigi á átt-
unda áratugnum. Meðal annarra
góðra verka, sem Marley og
Wailers sendu frá sér, má nefna
Nasty Dread, sem inniheldur
fræg lög eins og Lively up
yourself og No women no cry,
Exodus, sem færði Marley og
félögum endanlega heimsfrægð-
ina og sat til að mynda í yfir heilt
ár á breska sölulistanum, Kaya,
sem geymir hið sígilda lag Is this
love og Survival, síðustu plötuna
sem Marley og Wailers sendu frá
sér og jafnframt þá allra vinsæl-
ustu.
Nýja safninu, sem fáanlegt verð-
ur í kassettuformi auk geisla-
diska, fylgir vegleg 64 blaðsíðna
bók sem ekkja Marleys, Rita, rit-
ar formála að. Ber safnið nafnið
Songs Of Freedom og kemur
það út í takmörkuðu upþlagi,
einni milljón eintaka.
Ur ýmsum áttum
Gamlir hiþpar víða um heim
eru með öndina í hálsinum
þessa dagana eftir að fregnast
hafði að eitt helsta goð þeirra,
gítarleikarinn Jerry Garcia í
Greatful Death, hefði fengið
slæmt hjartaáfall fyrir nokkru. Var
reyndar í fyrstunni gert lítið úr
þessari veilu Garcia af hálfu
talsmanna Garcia en í Ijós hefur
komið að um alvarlegt tilfelli var
að ræða hjá þessum fimmtuga
kappa. Munu nú frekari lífdagar
hjá honum byggjast á bættu
líferni samfara góðri og mikilli
hvíld, en miklar reykingar og
neysla ruslfæðis í langan tíma
eiga stóran þátt í heilsutapi hans.
Var þetta í annað skiptið á um
sex árum sem Garcia verður fyrir
slíku áfalli. í fyrra sinn náði hann
bata, en sá hins vegar ekki að
sér og hélt uppteknum hætti í
slæmu líferni.
Eftir nokkra erfiðleika og tafir
hyllir loksins undir að frum-
burður þeirra Stephen Morris og
Gillian Gilbert úr New Order,
undir nafninu The Other Two, líti
dagsins Ijós. Mun gripurinn bera
heitið The other two and you og
er áætlaður útgáfudagur þann
26. október. Vöktu þau Morris og
Gilbert mikla athygli með fyrstu
smáskífu sinni með laginu Tasty
fish síðastliðinn vetur, þannig að
nýju plötunnar hefur verið beðið
með nokkurri eftirvæntingu. Eru
þau tvö m.a. með þessu framtaki
sínu að brúa bilið milli verkefna
hjá New Order líkt og hinir tveir
meðlimirnir, Bernard Summer og
Peter Hook hafa verið að gera á
undanförnum misserum.
Eitt af mest áberandi svoköll-
uðum sjálfstæðu útgáfufyrir-
tækjum í tónlistarheiminum,
Creation Records, (sjálfstætt er
lausleg þýðing á independance)
hefur nú að hluta tengst fyrir-
tækjarisanum Sony. Er um að
ræða kaup Sony á drjúgum skerf
hlutabréfa í Creation, eða að
andvirði um 350-60 milljóna
íslenskra króna. Munu kaupin
m.a. fela í sér betri tækifæri fyrir
hljómsveitir á vegum Creation
við að koma sér á framfæri, með
meiri dreifingu á plötum, fleiri
tónleikum o.s.frv. Hefur í því
sambandi verið gerður sérstakur
samningur við þrjár af helstu
sveitum útgáfunnar, Teenage
Fan Club, Ride og Primal
Scream, um dreifingu á verkum
þeirra víða um heim undir merkj-
um Sony.
Dauðinn lætur ekki að sér
hæða frekar en fyrri daginn
og sækir heim tónlistarmenn líkt
og aðra þegar síst skyldi. Nú fyrir
skömmu lést trommuleikari hljóm-
sveitarinnar þekktu Toto, Jeff
Porcaro, úr hjartaslagi á heimili
sínu í Kaliforníu. Var hann 38
ára að aldri og lætur eftir sig eig-
inkonu og þrjú börn. Hafði Toto
nýlokið upptökum á sinni nýjustu
plötu, Kingdom of Desire, þeirri
fyrstu í tvö ár, er dauða Porcaro
bar að garði. Mun platan vænt-
anlega koma út innan skamms.
Gömlu pönkhetjurnar í Ra-
mones láta ekki deigan
síga þrátt fyrir skrautlegan nær
tveggja áratuga feril og senda frá
sér enn eina þlötuna nú í sept-
ember. Þótt undarlegt kunni að
virðast þá gæti platan, sem heita
mun Mando bizarro, e.t.v. orðið
vatn á myllu George Bush í
bandarísku forsetakosningun-
um, því í einu lagi þlötunnar er
frú Tipper Gore, eiginkonu vara-
forsetaefnis demókrata, Albert
Gore, sendur tónninn. Er ástæð-
an sú að frú Gore hefur verið
framarlega í flokki samtaka, sem
hafa ráðist harkalega á rokktón-
listarmenn og viljað að verk
þeirra yrðu jafnvel bönnuð. í
texta lagsins, sem kallast
Censorshit (sem fínlega má
þýða sem Siðgæðishræsni)
benda þeir Ramonesfélgar frúnni
á það m.a. að vandinn í banda-
rísku þjóðlífi sé ekki fólginn í
vondum rokkurum, heldur í vax-
andi fátækt, fjölgun heimilis- og
atvinnulausra o.s.frv.
Hljótt hefur verið um stór-
sveitina Bon Jovi undanfar-
in misseri eftir að kastast hafði í
kekki milli aðalmannanna, Jon
Bon Jovi söngvara og Richie
Sambora gítarleikara, og framtíð
sveitarinnar var í óvissu. Mun slíkt
nú hins vegar vera að baki og er
hljómsveitin komin saman að
nýju og byrjuð að taka uþp nýtt
sköpunarverk undir stjórn upp-
tökumannsins fræga Bob Rock.
Ber það eins og er nafnið Kepp
the faith, en ekki er Ijóst hvort
það er endanlegt nafn, né hvenær
að útgáfu verður.
SKALLI
Félag smábátaeigenda Norðurlandi vestra
heldur aðalfund sunnudaginn 27. sept. að
Suðurgötu 3, Sauðárkróki kl. 14.
Venjuleg aðalfundarstörf.
Örn Pálsson og Arthúr Bogason koma á
fundinn.
Mætum allir.
Stjórnin.
Skrifstofustjóri
Við leitum að starfsmanni með góða viðskipta-
menntun og sjálfstæða hugsun.
í starfinu felst m.a.:
★ Umsjón með fjárreiðum, viðskiptamannabókhaldi
og áætlanagerð.
★ Stjórnun sölumála.
Um heilsdagsstarf er að ræða.
Umsækjandi þarf að geta hafið störf strax.
Upplýsingar og umsóknareyðublöð
aðeins á skrifstofu okkar.
DDRÁÐNINGAR
Endurskoðun Akureyri hf., Glerárgötu 24, sími 26600
Hjartans þakkir til ykkar allra
sem á margvíslegan hátt glödduð mig
á níræðis afmæli mínu.
Guð blessi ykkur öll.
GUÐLAUG S. GUNNLAUGSDÓTTIR,
Hornbrekkuvegi 12, Ólafsfirði.
J
Móöir okkar,
INGIBJÖRG TRYGGVADÓTTIR
frá Garðsvík,
andaðist aö Dvalarheimilinu Hlíö miðvikudaginn 23. septem-
ber.
Jarðarförin auglýst síðar.
Börnin.
Bróðir okkar,
SIGURGEIR TRYGGVASON,
Svertingsstöðum, Eyjafjarðarsveit,
verður jarðsunginn frá Kaupangskirkju miðvikudaginn 30.
sept. kl. 13.30. Blóm vinsamlegast afþökkuð en þeir sem vilja
minnast hans láti Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri njóta þess.
F.h. vandamanna,
Guðrún Bergrós Tryggvadóttir,
Haraldur Tryggvason.
Þökkum innilega auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og
útför föður míns, sonar, bróður og mágs,
BJARNA JÚLÍUSAR GUÐMUNDSSONAR,
Fífumóa 1 d, Ytri-Njarðvík.
Bjarni Þór Bjarnason,
María Júlíusdóttir,
Elsa Guðmundsdóttir, Rafn Hjartarson,
Helga Guðmundsdóttir, Ólafur Jónsson,
Vilhelm Guðmundsson, Rannveig Alfreðsdóttir,
Freyja Guðmundsdóttir, Tryggvi Harðarson,
Sigurður Guðmundsson, Sumarrós Guðjónsdóttir,
Pálmi Guðmundsson.