Dagur - 20.10.1992, Side 2
2 - DAGUR - Þriðjudagur 20. október 1992
Fréttir
Örtröð var við söluborð Kára í Garði í Kolaportinu á laugardaginn. Margir lögðu leið sína þangað gagngert til að
kaupa lambakjöt af Garðsbóndanum og að vonum vakti þessi kjötsala mikla athygli fjölmiðlamanna. Mynd: t*i
Kjötsala Kára í Garði:
Hundrað skrokkar seldust á
sköimrnim tíma í Kolaportinu
- Kári íhugar að halda torgsölu áfram
Blönduós:
Norskir blaða-
menn í heimsókn
Nú um helgina voru sjö norskir
blaðamenn staddir á Blöndu-
ósi ásamt forstjóra norska
fyrirtækisins Ál-hyttebyg og
bæjarstjóra og forseta bæjar-
stjórnar Á1 í Hallingdal.
Erindið var að kynna sér það
sem Blönduós og Húnavatns-
sýslur hafa að bjóða ferða-
mönnum.
Blaðamennirnir sjö eru frá
norskum viku- og mánaðarritum
sem fjalla um útivist og veiðar.
Þeir komu hingað í boði sam-
starfshóps um ferðamál, en ýmsir
aðilar standa að þeim hópi, m.a.
Trésmiðjan Stígandi og Hótel
Blönduós. Bæjarstjórinn í Á1 og
forseti bæjarstjórnar komu til að
eiga viðræður við kollega sína á
Blönduósi um aukið samstarf á
sviði ferðamála og viðskipta. Að
sögn Ófeigs Gestssonar bæjar-
stjóra urðu þeir sammála um að’
starfa saman á þessum vettvangi.
Hilmar Kristjánsson fram-
kvæmdastjóri Stíganda sagði í
samtali við blaðið að norsku
blaðamennirnir hefðu m.a. farið
á rjúpnaveiðar og veitt 40 rjúpur,
sem mætti teljast gott. Stígandi
hefur nú þegar keypt og sett upp
tvö hús frá fyrirtækinu Ál-hytte-
byg og hefur í hyggju að byggja
fleiri, ef samstarf næst og
fjármagn. Áhugi er á að fá inn
norskt hlutafé til helmings við
heimaaðila, en verið er að tala
um hlutafé upp á u.þ.b. 25 millj-
ónir. Hvort Norðmenn koma inn
í dæmið skýrist væntanlega
snemma á næsta ári. Blaða-
mennirnir komu hingað til að
kynna sér aðstæður og munu
skrifa um ferð sína og er það
hugsað til kynningar í Noregi.
Meiningin er að fá hingað norska
ferðamenn sem hafa áhuga á
ævintýra- og veiðiferðum, en að
sögn Hilmars eru aðstæður í
Húnavatnssýslum einstakar hvað
veiði varðar. Sagði hann að
blaðamönnunum hefði líkað vel.
sþ
Deildakeppni Skáksambands
íslands 1992-93 hófst um síð-
ustu helgi og mættu 34 lið til
leiks með yfir 200 skákmenn
innanborðs. Tefldar voru 4
umferðir af 7 en mótinu lýkur
seint í mars. A-sveit Skákfé-
lags Akureyrar er í 2. sæti í 1.
deild.
Staðan eftir fjórar umferðir í 1.
deild er þannig að A-sveit Tafl-
félags Reykjavíkur er langefst
með 25 vinninga af 32 möguleg-
um, enda þéttskipuð meisturum
og er þetta í fyrsta sinn sem TR
skiptir sveitunum eftir styrkleika
en ekki borgarhlutum.
A-sveit Skákfélags Akureyrar
er í 2. sæti með 17,5 vinninga en
stutt er í næstu sveitir. A-sveit
Taflfélags Garðabæjar er með
16,5, Skáksamband Vestfjarða
16, Skákfélag Hafnarfjarðar 15,
USAH 14,5, Taflfélag Kópavogs
12,5 og B-sveit Taflfélags
Reykjavíkur 11 vinninga.
SA vann sveit Hafnarfjarðar
5,5:2,5 og sveitir TR-B og Vest-
firðinga 5:3 en tapaði 2:6 á móti
TR-A. Margeir Pétursson stór-
meistari gat ekki teflt með SA
því hann var ekki kominn frá
Sölubásinn innst í Kolaportinu
við Kalkofnsveg í Reykjavík,
sem bar yfirskriftina „Odýra
Iambakjötið“, dró athygli fólks
heldur betur að sér síðastliðinn
laugardag því kjöt Kára Þor-
grímssonar, bónda í Garði II í
Mývatnssveit, seldist þar upp á
skömmum tíma. Kári mætti til
leiks með 100 skrokka og voru
birgðirnar að mestu uppseldar
upp úr hádegi. Kári kvað við-
tökur kaupenda hafa farið
fram úr sínum björtustu von-
um og íhugar nú að bjóða aðra
100 skrokka til sölu í Kolaport-
inu á laugardaginn kemur.
Mikil örtröð var við sölubás
Hollandi þar sem hann stóð sig
vel á útsláttarmóti, lagði t.a.m.
Jóhann Hjartarson að velli en
tapaði fyrir Short eftir tvær fram-
lengingar.
Þegar A-sveit TR mætti SA
tefldu þrír stórmeistarar og einn
alþjóðlegur meistari með TR,
þ.e. Jóhann Hjartarson, Jón L.
Árnason, Guðmundur Sigurjóns-
son og Karl Þorsteins. Það var
því við ramman reip að draga en
Kára og af viðbrögðum við-
skiptavina hans mátti ráða að
þeir væru mjög ánægðir með
þetta framtak.
„Þessi maður á miklar þakkir
skyldar,11 sagði fullorðin kona
þegar hún hafði lokið við að
kaupa lambalæri og súpukjöt af
Kára. „Það var kominn tími til að
einhver bryti sig út úr þessu kerfi,
sem einhvern tíma var ágætt en
er fyrir löngu búið að ganga sér
til húðar.“ Þessi ummæli hennar
voru nokkuð dæmigerð fyrir það
andrúmsloft sem ríkti við kjöt-
sölubás hins þingeyska bónda.
„Viðtökurnar eru langt fram úr
mínum björtustu vonum. Ég fer
létt með að selja þessa 100
Áskell Örn Kárason sigraði
Guðmund og Arnar Þorsteinsson
gerði jafntefli við Karl.
Bestu árangri í A-sveit SA
náðu Jón Garðar Viðarsson sem
fékk 3 vinninga á 1. borði, Áskell
Örn Kárason 3,5 v. á 3. borði og
Bogi Pálsson 3 v. á 7. borði, allir
í 4 skákum. SS
Skákfélag Akureyrar er í topp-
baráttunni í 2. deild rétt eins
og þeirri fyrstu. B-sveit SA er í
3. sæti eftir fyrri Iotuna með
16,5 vinninga, rétt á eftir C-
sveit TR og Taflfélaginu Helli
(nýtt félag í Rvík) sem eru með
17 vinninga.
C-sveit SA, ungliðasveitin, er í
6. sæti í 2. deild og í þeirri sveit
náði Júlíus Björnsson mjög góð-
um árangri á 2. borði eða 3,5
skrokka," sagði Kári Þorgríms-
son þar sem hann bar kjöt úr
sendiferðabíl inn í sölubás sinn í
Kolaportinu um hádegi á laugar-
dag. „Ég efast um að ég eigi
nokkuð eftir nema slög um tvö-
leytið.“ Kári seldi upp og fyrir-
hugar að mæta aftur í Kolaportið
að viku liðinni með aðra 100
skrokka af kjöti. Kári selur kjöt-
ið niðurskorið og frosið en kvaðst
ekki hafa fengið leyfi til að selja
það í heilum skrokkum.
í máli fólks við sölubás Kára
Þorgrímssonar mátti heyra að
það taldi sig ekki síður vera að
sýna samstöðu með honum og
þessu framtaki hans en það væri
að kaupa ódýrt kjöt. Aðspurður
kvaðst Kári hafa kynnt sér nokk-
uð verð á nýju lambakjöti í stór-
mörkuðum og taldi hann sig vera
að bjóða kjötið á heldur lægra
verði en þeir. „Ég tel mig hins
vegar ekki vera að undirbjóða
markaðinn - ég þarf að fá mitt
verð fyrir afurðirnar," sagði Kári
Þorgrímsson. Hann sagði að ef
fólk vildi fremur kaupa kindakjöt
á markaðstogri en í verslunum
væri í sjálfu sér ekkert því til
fyrirstöðu. Eftir þeim viðtökum
sem hann' hefði fengið virðist
ekkert vera í vegi þess að fólk
komi og geri kjötkaup á torgi.
Vel mætti hugsa sér að kaupa
kjöt í heildsölu og selja til neyt-
enda með þessum hætti. ÞI
vinningum í 4 skákum.
Sveit UMSE er í 7.-8. sæti í 2.
deild og þarf að taka sig á ef ekki
á illa að fara.
Keppni í 1. og 2. deild fór fram
í Reykjavík en í 3. deild var
keppt á Akureyri. Þar sigraði D-
sveit Skákfélags Akureyrar og
vann sveitin sér þar með rétt til
að tefla í úrslitakeppni 3. deildar
sem fer fram í Reykjavík í mars.
SS
Akureyri:
Bæjarmála-
punktar
■ Bygginganefnd hefur leitað
eftir heimild bæjarráðs til að
auglýsa lausar lóðir í Gilja-
hverfi III og V. Tilgangur
auglýsingarinnar er meðal
annars sá að meta lóðaþörf á
árinu 1993. Bæjarráð heimilar
nefndinni að auglýsa íbúða-
húsalóðir með fyrirvara um
hvenær þær verði gerðar bygg-
ingahæfar.
■ Stjórn veitustofnana hefur
gengið frá fjárhagsáætlun fyrir
Rafveitu Akureyrar árið 1993
með niðurstöðu kr. 273.230.000.
Á eignabreytingar var fært kr.
72.710.000.
■ Menningarinálanefnd af-
greiddi á fundi sínum nýlega,
umsóknir um íbúð í Davíðs-
húsi á næsta ári. Alls fengu
átta aðilar inni í húsinu á tíma-
bilinu 4. desember nk. til 30
september á næsta ári.
■ Skólanefnd hafa borist
athugasemdir við húsnæði og
aðstöðu f Síðuskóla, frá
Vinnueftirliti ríksins og Heil-
brigðiseftirliti Eyjafjarðar.
Gerðar eru 14 athugasemdir
við smíðastofu, við rekstur
mötuneytis í kaffistofu og þá
eru settar fram 3 kröfur um
aukna loftræstingu og að sýnt
verði fram á að almenn loft-
ræsting í B og C-álmu sé full-
nægjandi.
■ Iþrótta- og tómstundaráði
hefur borist bréf frá foreldra-
ráði Gagnfræðaskóla Akur-
eyrar, þar sem þess er farið á
leit við ráðið að það endur-
skoði lokunartínra félagsmið-
stöðvanna í bænum. Þær eru
opnar til kl. 22.30 þegar boðið
er upp á „opið hús“ en
foreldraráðið vill aö þeim
verði lokað ki. 22.00. Ráðið
hefur falið starfsmönnum sín-
um að boða til fundar með
fulltrúum foreldrafélaga grunn-
skóla bæjarins, þar sem þetta
mál veröur til lykta leitt.
■ Á fundi atvinnumálanefnd-
ar nýlega, var upplýst að í lok
mánaðarins mun hefjast á veg-
um Ferðamálafélags Eyja-
fjarðar, 18 vikna námskeið í
svæðaleiðsögn um Norðurland
eystra. Um 15 þátttakendur
hafa skráð sig á námskeiðið og
standa þátttökugjöld undir
námskeiðskostnaði.
■ Atvinnumálanefnd styrkti
á síðasta ári Járntækni hf.
vegna hönnunar og smíði á
búnaði til að slá úr frystipönn-
um. Fyrir skömmu kynnti
fyrirtækið þennan búnað fyrir
forsvarsmönnum Útgerðarfé-
lags Akureyringa, sem nú hef-
ur ákveðið að gera tilraun með
þennan búnað í einurn af
frystitogurum félagsins.
■ Heilbrigðisnefiid hefur vak-
ið athygli bæjarstjórnar á að
sorphaugar bæjarins hafa ekki
tilskilið starfsleyfi umhverfis-
ráðherra. Heilbrigðisnefnd
mælist jafnframt til þess að
bæjarstjórn sæki um starfsleyfi
til Hollustuverndar ríkisins í
samræmi við ákvæði mengun-
arvarnarreglugerðar.
Skák
Deildakeppnin, 1. deild:
Skákfélag Akureyrar í 2. sæti
Neðri deildir:
Sveitir Skákfélags Akureyrar
í toppbarátturmi