Dagur - 10.11.1992, Side 2
2 - DAGUR - Þriðjudagur 10. nóvember 1992
Fréttir
Brottvikning bæjarstjóra Ólafsíjarðar á laugardag:
Lausn meiriMutans skapar meiri vanda en
- segir Bjarni Kr. Grímsson, fráfarandi bæjarstjóri
Bjarni Kr. Grímsson, fráfar-
andi bæjarstjóri í Ólafsfirði,
segist ósáttur við þá samþykkt
meirihluta sjálfstæðismanna á
laugardag að segja sér fyrir-
varalaust upp störfum. Hann
segir að það hafi ekki verið að
sinni ósk að þessi gjörningur
hafi verið framkvæmdur á lok-
uðum fundi bæjarstjórnar og
hans vilji sé sá að á bæjar-
stjórnarfundi í dag verði þetta
mál rætt opinberlega. Sjálfur
segist Bjarni ekki óttast þá
umræðu, hann hafi hreinan
skjöld gagnvart sínu starfi sem
bæjarstjóri en honum hafi ver-
ið fórnað undir yfirskini friðar
í Sjálfstæðisflokknum í
bænum.
„Ég kem hingað í starf bæjar-
stjóra í endaðan júlí 1988 og þá
var búið að ræða við mig og ljóst
að meirihlutinn óskaði eftir
bæjarstjóra sem myndi taka þátt í
þeirra störfum. Eg var á þeim
tíma flokksbundinn framsóknar-
maður en talið æskilegt að ég
gengi í Sjálfstæðisflokkinn. Ég
hef ekki við þetta breytt mínum
pólitísku skoðunum en við getum
sagt að ég sé vinstrisinnaður
sjálfstæðismaður. Ég sagði jafn-
framt við meirihlutann í bæjar-
stjórn þegar til mín var leitað að
ég vildi taka þátt í að móta stefn-
una innan bæjarins og að tekið
yrði fullt tillit til mín. Þaö var
gert í byrjun og sumum fannst ég
fara full geyst í þetta fyrst. Hér
þurfti að taka til hendinni í ýmsu
og taka á málum. Á þessum tíma
voru uppi deilur innan Sjálf-
stæðisflokksins í Ólafsfirði og
þær kristölluðust aðallega milli
fyrrverandi forseta bæjarstjórn-
ar, Birnu Friðgeirsdóttur og
Sigurðar Björnssonar, en þau
voru þá bæði í meirihluta bæjar-
stjórnar. Ég varð vitni að ótrú-
legum rifrildum sem fóru fram
innan flokksins á þessum tíma,“
sagði Bjarni Grímsson í viðtali
við blaðið í gær.
Snemma ósætti við
Sigurð Björnsson
Opinberlega hefur skýrt komið
fram að samstarf Bjarna Gríms-
sonar og Sigurðar Björnssonar
gat ekki lengur gengið og hafa
hvað eftir annað komið upp deil-
ur þeirra í milli. Bjarni segist
hafa fundið snemma fyrir því í
starfi að þau mál sem Sigurður
lagði fyrir hann þurftu að fá
hraða meðferð og án breytinga.
„Fram að kosningum 1990 kom
ekkert upp á milli okkar en að
vísu hef ég heyrt núna að menn
hafi verið óhressir þá og auðvitað
er aldrei svo að hægt sé gera öll-
um til hæfis. Það væri ekki mikill
maður sem fer alltaf meðalveginn
og heldur öllum ánægðum. Það
getur ekki gengið til lengdar. En
hafi verið óánægja með störf mín
strax um kosningar þá hefur því
verið haldið leyndu fyrir mér. Þá
er verið að koma aftan að mér
með það núna og maður hefur
eiginlega verið notaður sem ein-
hver tuska og er síðan hent út í
horn. Þetta er lýsandi dæmi um
aðferðir sem hafa verið notaðar
og ég get ekki sætt mig við þær.“
Bæjarstjóraefni
Sjálfstæöisflokks við
síðustu kosningar
Bjarni segir að við bæjarstjórnar-
kosningarnar vorið 1990 hafi ver-
ið lagt að sér að gefa ekki kost á
sér á lista sjálfstæðismanna held-
ur yrði hann boðinn sem bæjar-
stjóraefni flokksins og þannig
sem fimmta hjólið undir vagnin-
um. Hann hafi skrifað upp á
stuðningsyfirlýsingu við framboð
flokksins og þar með hafi einnig
verið ljóst að minnihlutinn yrði
að auglýsa starfið ef þeir næðu
meirihluta í bæjarstjórn.
Bjarni segir að nokkru fyrir
síðustu kosningar til Alþingis
hafi hann fyrst fengið hótun um
að verða sagt upp störfum og þá
eftir að framámaður í Sjálfstæðis-
flokknum óskaði eftir áliti hans á
Sigurði Björnssyni, bæjarfull-
trúa, vegna uppstillingar flokks-
ins á lista fyrir kosningar. Bjarni
segist hafa svarað þessari spurn-
ingu en síðar hafi Sigurður
Björnsson frétt af þessu tveggja
manna tali og brugðist illa við.
*
Abyrgðaveitingin til
Fiskmars
Bjarni segist viðurkenna að sér
hafi orðið á mistök við gerð
tryggingabréfs vegna ábyrgða-
veitingar til Fiskmars hf. 1989,
fyrirtækis sem Sigurður Björns-
son átti hlut í og veitti forstöðu.
Fyrirtækið fór í gjaldþrot sem
kostaði bæjarsjóð milljónir
króna. Bæjarábyrgð á lánum
Fiskmars hf. hafi verið veitt en
um haustið 1989 þegar útbúa átti
tryggingabréf vegna ábyrgðarinn-
ar hafi Sigurður Björnsson og
Þorsteinn Ásgeirsson, bæjarfull-
trúi, tjáð sér að samþykki meiri-
hlutans sé fyrir því að bæjarsjóð-
ur taki 2. veðrétt í tækjum Fisk-
mars hf. „Þarna brást ég og gerði
þau mistök að trúa Sigurði því
samþykkt fyrir þessu reyndist
ekki fyrir hendi. Ég brenndi mig
þá á að framkvæma hlut sem ekki
var búið að ræða á formlegum
fundi inni í bæjarráði og bæjar-
stjórn. Ég áttaði mig ekki á að
þeir tveir réðu ekki sem meiri-
hluti og við þessa reynslu verð ég
að búa. Síðan þá hef ég ekkert
gert nema fyrir liggi skýr sam-
þykkt frá bæjarráði eða bæjar-
stjórn og menn hafa á stundum
ekki þolað umræðuna um mál.
Ég hef aldrei síðan getað fyrir-
gefið Sigurði hvernig þarna var
brotið á mér í mínu starfi.“
Sætti mig ekki við að
hlýða tilskipunum
Upp frá þessu segir Bjarni að
stirt hafi verið á milli hans og
bæjarfulltrúans en á kosninga-
daginn 1991 hafi Sigurður komið
til sín skilaboðum þar sem hann
hafi mælst til þess að sættir verði
milli þeirra. Bjarni segist hafa
fagnað því og strax á mánudag
eftir kosningar hafi Sigurður
heilsað sér með handabandi sem
hann hafi talið innsigla að sam-
skiptin yrðu með öðrum hætti á
eftir. Því hafi sér komið í opna
skjöldu þegar aðeins fáum vikum
síðar hafi komið upp tillaga frá
Sigurði og tveimur bæjarfulltrúum
öðrum um að setja nokkurs kon-
ar yfirmann á sig sem bæjar-
stjóra. „Þessu má helst líkja við
starfsaðferðir eins og þær voru
austantjalds þar sem eru pólitísk-
ir eftirlitsmenn. Nú átti ég að
hlýða tilskipunum skilyrðislaust
og það gat ég ekki sætt mig við.
Ég vil geta mótað störfin og haft
áhrif í samstarfi með öðrum,“
segir Bjarni.
í framhaldi af þessu komu
fram ásakanir á síðasta ári um
Bjarni Kr. Grímsson.
óeðlilega háan risnu- og ferða-
kostnað bæjarstjórans og segist
Bjarni benda á að þá hafi hann
verið hreinsaður af þeim ásökun-
um og orð Sigurðar Björnssonar
um þetta efni verið dæmd ómerk.
„Það hefur ekkert annað komið
fram en allt hafi verið eðlilegt en
þessi umræða sverti mannorð
mitt.“
Meirihlutinn nær ekki
saman með svo
dramatískum aðferðum
Bjarni segir að hann og forseti
bæjarstjórnar, Óskar Þór Sigur-
björnsson, hafi verið sammála
um í haust að grípa verði í taum-
ana vegna erfiðra samskipta
Á lokuðum fundi bæjarstjórn-
ar Ólafsfjarðar sl. laugardag
lét Bjarni Kr. Grímsson, frá-
farandi bæjarstjóri, bóka eftir-
farandi:
„Vegna tillögu um starfslok
bæjarstjóra vil ég, Bjarni Kr.
Grímsson, bæjarstjóri í Ólafs-
firði, koma eftirfarandi bókun í
fundargerðabók bæjarstjórnar
Ólafsfjarðar: Ég hef verið bæjar-
stjóri í Ólafsfirði frá lokum júlí
1988 og á þeim tíma starfað með
fjölda fólks og í langflestum til-
vikum átt mjög ánægjuleg og góð
samskipti við þetta fólk. Einn
ljóður hefur þó verið á samskipt-
um mínum við fólk og er það við
einn af bæjarfulltrúum D-listans,
Sigurð Björnsson. Þau hafa verið
mjög stirð og er ljóst að við get-
um á engan hátt starfað náið
saman. Samskiptaerfiðleikar
þessir hafa haft verulega trufl-
andi áhrif á störf mín sem bæjar-
stjóra. Orsakir þessara sam-
skiptaerfiðleika má rekja til
starfa minna sem embættismanns
og persónulegra hagsmuna
bæjarfulltrúans. Má þar fyrst
nefna ábyrgðaveitingar bæjar-
sjóðs til Fiskmars hf. og var ljóst
þá þegar að aðferðir bæjarfull-
trúans voru einfaldar; ef ekki
væri fallist í einu og öllu á öll
Bjarna og Sigurðar, sem er for-
maður bæjarráðs. Hann segist
augljóslega þurfa að beygja sig
undir ákvörðun meirihluta bæjar-
stjómar en hann sé mjög ósáttur
við þá leið sem Óskar Þór hafi
valið. „Ég skil ekki flokkshags-
munina í þessu og sé ekki betur
en Sjálfstæðisflokkurinn hér sé
gjörsamlega klofinn. Hann nær
ekki saman með svona dramatísk-
um aðferðum. Þetta kallar á
sterk viðbrögð og þau fær meiri-
hlutinn. Ég get ekki séð að flokk-
urinn hér í bænum beri sitt barr
eftir þetta tímabil.
Ef ég þurfti að víkja til að ná
sáttum í Sjálfstæðisflokknum þá
átti Sigurður Björnsson einnig að
víkja á sama tímapunkti. Hann
hans erindi athugasemdalaust
yrði meirihlutasamstarfi D-list-
ans slitið. Þetta hefur gengið sem
rauður þráður í öllum erindun-
um. Þó nefndur fulltrúi hafi
aldrei greitt atkvæði sjálfur um
sín mál eða honum tengd, þá hef-
ur hann haldið stíft um taumana
og stjórnað á bakvið.
Næst skal nefna að bæjarfull-
trúinn kom við annan mann á
fund bæjarstjóra og tjáði honum
það að meirihlutinn í bæjarstjórn
hefði ákveðið að nægjanlegt veð
væri fyrir ábyrgðum bæjarsjóðs á
Iánum Fiskmars hf. og annar veð-
réttur væri ákveðinn, en Spari-
sjóður Ólafsfjarðar fengi fyrsta
veðrétt, þar sem fyrirtækið skuld-
aði svo mikið þar og þyrfti veð-
réttinn. Síðar kom í ljós að þessi
orð voru hreint fals, en því miður
var ég svo einfaldur að trúa
bæjarfulltrúanum, sem var
reyndar framkvæmdastjóri Fisk-
mars hf. á þessum tíma og hlut-
hafi. Öllum bæjarbúum er ljóst
hvernig fór, bæjarsjóður og fyrir-
tæki í hans eigu hafa tapað tugum
milljóna króna. í ljósi þessa auk
ýmissa atburða annarra hef ég
sem bæjarstjóri ekki verið tilbú-
inn til náinnar samvinnu við
bæjarfulltrúann, enda er langt
síðan ég tjáði bæjarfulltrúanum
að ef hann hefði einhverja sið-
hún leysir
segist ætla út á desemberfundi
bæjarstjórnar og það á ég eftir að
sjá gerast. Forseti bæjarstjórnar
taldi á hans ábyrgð að leysa málið
og það hefur hann gert en ég tel
að lausnin skapi meiri vanda en
hún leysir. Auk þess er verið að
láta bæjarsjóð borga fyrir ágrein-
inginn í Sjálfstæðisflokknum í
bæjarstjórn.“
Bæjarsjóðspeningar til að
leysa ágreininginn
Bjarni segir að í byrjun þessa
kjörtímabils hafi hann og forseti
bæjarstjórnar gert drög að starfs-
samningi bæjarstjóra og verið
samkomulag um þessi drög þeirra
í milli. í þessum drögum er
ákvæði um að sé bæjarstjóra sagt
upp skuli hann fá greidda 6 mán-
uði vegna uppsagnar og 6 mán-
aða biðlaun. Bjarni segist telja að
þessi ákvæði standi með sam-
þykki forseta bæjarstjórnar en
starfssamningsdrögin hafi á
tímabilinu komið tvisvar fyrir
bæjarráð. Pólitískur meirihluti í
bæjarstjórninni beri ábyrgð á
kostnaði bæjarsjóðs vegna
starfsloka bæjarstjóra og auk
heldur geti þetta mál haft alvar-
legar afleiðingar varðandi ýmis
mál sem hann hafi unnið að upp á
síðkastið, t.d. stofnun nýs hafna-
samlags og viðræður við heil-
brigðisráðuneytið vegna Horn-
brekku. Þessi mál og ýmis önnur
séu nú sett í óvissu. „Ég tel mig
ekkert hafa að fela. Ef nota á
peninga bæjarsjóðs til að leysa
ágreining í meirihlutanum þá
væri skynsamlegt að lágmarka
þann kostnað. En þeir hafa vald-
ið sem kjörnir fulltrúar og það
sem þeir hafa gert er fullkomlega
löglegt en siðlaust," sagði Bjarni
Grímsson, fráfarandi bæjarstjóri
í Ólafsfirði. JÓH
ferðisvitund skyldi hann segja af
sér í bæjarstjórn.
Því miður er hægt að rekja
fleiri dæmi um pólitískar ákvarð-
anir og hindranir sem reynt hefur
verið að setja á störf mín sem
bæjarstjóra, auk persónulegra
ávirðinga. Ég tel að bæjarstjór-
inn sé embættismaður bæjar-
stjórnar og hvernig sem hann er
kjörinn eða ráðinn eigi hann að
starfa fyrir alla bæjarstjórnina og
alla bæjarbúa, ekki bara fyrir þá
sem „kjósa rétt.“ Eftir því hef ég
reynt að fara, enda kolómöguleg-
ur í starfi, alltaf að hygla röngu
fólki. Þessi vinnubrögð get ég
ekki liðið og hef reynt mitt ítrasta
til að koma í veg fyrir að svo
verði, en því miður ekki alltaf
tekist. Nú virðist bæjarfulltrúinn
enn einu sinni vera kominn með
tangarhald á bæjarfulltrúum
Sjálfstæðisflokksins hér í bæ og
er enn einu sinni ekki hugsað um
hag bæjarsjóðs eða álit bæjarins
út á við, heldur mjög þrönga
hagsmuni og er ekki einu sinni
hægt að kalla það flokkshags-
muni, því þeir eru einungis
persónulegir og bæjarsjóður er
látinn borga eina ferðina enn.
Að lokum óska ég Ólafsfirði
og Ólafsfirðingum alls hins besta
og bæjarstjórninni sérstaklega,
því ekki mun af veita.“
Bókun Bjama Kr. Grímssonar
á bæjarstjómarftmdi sl. laugardag