Dagur - 10.11.1992, Page 16
Hágæöa litstækkun á 5 mínútum
^PzáiSmyndir
Skipagötu 16 - Sími 23520
Loðnan:
130 þúsund
tonnum verið
landað
Aðeins 3243 tonn veiddust af
loðnu frá mánudegi til laugar-
dags í sl. viku og var mest land-
að hjá Sfldarverksmiðjum
ríkisins á Seyðisfirði, 1004
tonnum, og hjá Hraðfrystihúsi
Eskifjarðar, 848 tonnum.
Aflahæsti báturinn var ísleifur
VE sem landaði 627 tonnum á
Seyðisfirði en loðnuaflinn síðustu
daga hefur allur fengist á Bakka-
flóadýpi. Siglufjörður er enn
hæsta löndunarhöfnin með 36773
tonn; Raufarhöfn með 21972
tonn; Neskaupstaður með 12877
tonn; Eskifjörður með 11972
tonn, Akranes með 11488 tonn
og Þórshöfn með 11150 tonn.
Alls hafa borist á land 130691
tonn sem er 33% af loðnukvótan-
um sem er 390 þúsund tonn, en ef
farið verður eftir tillögum Haf-
rannsóknastofnunar verður kvót-
inn aukinn í 640 þúsund tonn og
þá er það loðnumagn sem komið
er á land aðeins 20% af heildar-
kvótanum. GG
Góð sala hjá
Skagfirðingi SK
- meðalverð álíka
og síðast
Skagfirðingur SK-4 seldi 160
tonn af karfa í Bremerhaven á
mánudagsmorgun. Verðio var
mjög gott að sögn Gísla S. Ein-
arssonar útgerðarstjóra hjá
Skagfirðingi hf.
Heildarverðmæti aflans var
um 20 milljónir króna, meðal-
verð á kílóið var 125 krónur.
„Við erum sæmilega ánægðir
með þetta, enginn hefur farið yfir
hundraðkall frá því Skagfirðing-
ur seldi síðast“, sagði Gísli og
kvað verð undanfarið hafa verið
lélegt. Þetta sé hæsta verðið frá
því Skagfirðingur seldi í Bremer-
haven fyrir mánuði síðan. Verðið
er að vísu heldur lægra í krónum
taliðsemskýristafgengissigi. sþ
Stærstur hluti afla Gissurar ÁR fer til vinnslu hjá K. Jónssyni á Akureyri. Þessi mynd var tekin þegar unnið var að
löndun Úr Gissuri í gær. Mynd: Robyn
Gissur ÁR á Akureyri:
Landar 83 tonnum af rækju
- þar af fara 56 tonn til vinnslu hjá K. Jónssyni
Rækjuveiðiskipið Gissur ÁR finnsson.
frá Þorlákshöfn er til löndunar Gissur ÁR iandar að jafnaði í
á Akureyri. Aflinn fer að stór- Reykjavík. Nú bregður svo við
um hluta til vinnslu hjá Niður- að skipið landar á Akureyri. Ein-
ar Sveinbjörnsson, 2. stýrimaður,
segir að landað sé á Akureyri þar
sem styst hafi verið af miðunum
til Akureyrar. Aflinn, 83 tonn, var
suðuverksmiðju K. Jónsson og
Co hf. Ljósavík hf. í Þorláks-
höfn gerir Gissur út en skip-
stjóri er Guðmundur Guð-
sóttur í norðurkantinn.
„Við vorum 23 daga í túrnum.
Þetta var sæmilegt kropp. Afla-
verðmætið er um 12 milljónir og
56 tonn fara til vinnslu hjá K.
Jónsson. Við leggjum aftur í’ann
á fimmtudaginn,“ sagði Einar
Sveinbjörnsson. ój
Kaup Blönduósbæjar á hlutabréfum í Kaupfélagi Húnvetninga:
Frauikvæmd samþykktar bæjarstjómar
verði frestað tá næsta prhagsárs
Á fundi bæjarráðs Blönduóss
sl. föstudagskvöld lagði Ófeig-
ur Gestsson, bæjarstjóri, fram
bréf til Kaupfélags Húnvetn-
inga, undirritað af honum, þar
sem fram kemur ósk um að
fresta framkvæmd samþykktar
bæjarstjórnar sl. þriðjudag um
að bærinn kaupi samvinnu-
hlutabréf í B-stofnsjóði Kaup-
félags Húnvetninga fyrir 12
milljónir króna, til næsta fjár-
hagsárs.
Eins og fram kom í Degi sl.
laugardag lagði Óskar Húnfjörð,
oddviti Sjálfstæðisflokksins og
formaður bæjarráðs, fram tillögu
á bæjarráðsfundinum sl. föstudag
þess efnis að bæjarstjóra verði
Mjög góð rækja í Öxarfirði
Rækjuveiðin hefur gengið aH-
vel í haust og þetta er mjög
góð rækja og flokkast vel.
Menn hafa verið að ná viku-
skammtinum á fjórum dögum
en hann er 7,5 tonn“ segir
Ragnar Tómasson á Öxarnúp
ÞH-162 frá Raufarhöfn, en
VEÐRIÐ
Veðurstofan spáir að í dag
snúist vindur til norðlægrar
áttar með heldur kólnandi
veðri um landið norðanvert. Á
morgun er búist við nokkuð
hvassri norðanátt og elja-
gangi, en á fimmtudag gerir
Veðurstofan ráð fyrir að
norðanáttin gangi niður og á
föstudag snúist vindur aftur til
suðaustlægrar áttar með hlýn-
andi veðri.
báturinn er á rækjuveiðum á
Öxarfirði og landar aflanum til
vinnslu hjá rækjuverksmiðj-
unni Geflu hf. á Kópaskeri.
Fjórir bátar stunda rækjuveið-
ar á Öxarfirði, en það eru auk
Öxarnúps, Þingey ÞH-51 frá
Kópaskeri, Þorsteinn GK-15 frá
Raufarhöfn og Kristey ÞH-25 frá
Húsavík. Afli þessara báta hefur
nægt til að halda uppi stöðugri
vinnu við rækjuvinnslu á Kópa-
skeri.
Hafrannsóknastofnun lagði til
eftir að rannsóknaskipið Dröfn
RE-35 hafði verið að rannsaka
rækjustofninn þar í haust að
rækjukvótinn á Öxarfirði yrði
hækkaður um 200 tonn, færi úr
500 tonnum 1991 í 700 tonn en
endanleg ákvörðun hefur enn
ekki verið tekin.
Á Húnaflóa hefur rækjukvót-
inn verið skertur um 500 tonn, úr
2000 tonnum í 1500 tonn og á
Skagafirði úr 600 tonnum í 300
tonn. í upphafi rækjuvertíðar var
veiði bönnuð á Skagafirði vestan
við línu sem dregin var úr Hegra-
nesi, en því banni hefur verið
aflétt. GG
falið að skera upp fjárhagsáætlun
bæjarins á yfirstandandi ári í ljósi
samþykktar bæjarstjórnarinnar
sl. þriðjudag. Fulltrúar H og K-
lista í bæjarráði lýstu því að þeir
myndu fella tillöguna.
„í ljósi upplýsinga bæjarstjóra
lagði ég fram bókun á þá leið að
tillaga mín yrði höfð til hliðsjón-
ar við gerð næstu fjárhagsáætlun-
ar og voru engar athugasemdir
gerðar við það,“ sagði Óskar
Húnfjörð, formaður bæjarráðs
Blönduóss.
„Þetta mál mun samkvæmt
þessu ekki skekkja fjárhagsstöðu
bæjarins í ár, fái þetta bréf
jákvæða afgreiðslu hjá Kaup-
félaginu, og jafnframt er ekki
tilefni til þess að skera upp fjár-
hagsáætlunina,“ sagði Óskar.
Ekki náðist í Ófeig Gestsson,
bæjarstjóra, í gær. óþh
Ekið á tvær kindur
í Skagafirði
- og báðar drepnar, bíllinn skemmdur
Ekið var á tvær kindur skammt
vestan við Víðimýrarsel í Skag-
firði aðfaranótt laugardags.
Drápust þær báðar samstundis
og bfllinn skemmdist talsvert.
Tilkynnt var um atburðinn kl.
1:30 aðfaranótt laugardags til
lögreglunnar á
Áreksturinn átti
Vatnsskarðs
Sauðárkróki.
sér stað milli
og Víðimýrarsels.
Kindurnar drápust samstundis og
var bíllinn talsvert skemmdur að
framanverðu, þó ökufær að sögn
lögreglu. sþ
, Árekstur á
Arskógsströnd
Töluverðar skemmdir urðu
á tveim fólksbifreiðum sem
skullu saman sl. laugardag
við afleggjarann heim að
bænum Litla-Árskógi á
Árskógsströnd. Engin slys
urðu á fólki.
Samkvæmt upplýsingum
lögreglunnar á Dalvík varð
slysið með þeim hætti að öðr-
um bílnum var beygt heim að
Litla-Árskógi, en í þann mund
var hinum bílnum ekið framúr
og skipti engum togum að þeir
skullu saman. óþh
Akureyri:
Rúðurbrotnar
í skólum
Um helgina voru brotnar
rúður í tveim skólum á
Akureyri, Gagnfræðaskól-
anum og Lundarskóla, og
einnig voru spenntir upp
gluggar á Ieikskólanum
Flúðum.
Tvær rúður voru brotnar í
Gagnfræðaskólanum og rúða í
útidyrahurð í Lundarskóla.
Lögreglunni á Akureyri
hafði í gær ekki tekist að finna
skemmdarvarginn eða -varg-
ana. óþh
Húsavík:
Tveu- olvaoir
ökumenn teknir
- orðnir 25 á árinu
og kvótinn búinn
Aðfaranótt laugardags var
ökumaður tekinn vegna
gruns um ölvun við akstur á
Húsavík og aðfaranótt
sunnudags var annar öku-
maður tekinn af sömu sök-
um. Annars var helgin róleg
hjá lögreglu á Húsavík.
Á þessu ári hafa 25 öku-
menn í Suður-Þingeyjarsýslu
verið teknir vegna gruns um
ölvunarakstur, eða jafn margir
og allt árið f fyrra. Árið 1990
voru einnig teknir 25 öku-
menn vegna gruns um ölvun,
en árið ’89 voru þeir 15 og árið
’88 voru þeir 32. Áfengisútsala
var opnuð á Húsavík í maí
1991, svo samkvæmt þessum
tölum virðist hún ekki hafa
áhrif á þennan þátt. IM
Sauðárkrókur:
Helgin róleg
- Bakkus brá sér
þó undir stýri
Að sögn lögreglu á Sauðár-
króki fór helgin fram með ró
og spekt. Þó var einn öku-
maður tekinn vegna gruns
um ölvun við akstur.
Einn dansleikur var á Sauð-
árkróki á föstudagskvöld á
vegum nemenda við Fjöl-
brautaskólann. Fór allt vel
fram, en þó gistu tveir fanga-
geymslur lögreglunnar um
nóttina. Einn ökumaður var
tekinn vegna gruns um ölvun
við akstur. sþ