Dagur - 13.11.1992, Qupperneq 6
6 - DAGUR - Föstudagur 13. nóvember 1992
Hvað er að gerast?
Hátíðarmessa í
Akureyrarkirkju
Hátíðarmessa verður í Akureyrar-
kirkju nk. sunnudag, 15. nóvember,
kl. 14 og verður minnst afmælis
Fjölskyldu-
skemmtun í
Árskógi
Næstkomandi sunnudag kl. 16 verð-
ur vegleg fjölskylduskemmtun í
Árskógi. Þetta er þriðja árið sem
slík skemmtun er haldin og er hún
framlag Árskógshrepps til menning-
ardaga við utanverðan Eyjafjörð.
Þetta er tónlistardagskrá og taka
fjölmargir þátt í henni, sem ýmist
búa á Árskógsströnd eða eru með
öðrum hætti tengdir Árskógsströnd.
Yngsti þátttakandinn er 17 ára og sá
elsti 58 ára. Boðið verður upp á
mjög fjölbreytta tónlist og er óhætt
að fullyrða að fólk ætti að geta fund-
ið eitthvað við sitt hæfi. Aðgangs-
eyrir er 1500 krónur fyrir fullorðna
og 500 krónur fyrir böm.
Bólumarkaður
um helgiua
Bólumarkaðurinn að Eiðsvallagötu
6 verður opinn á morgun, laugar-
dag, kl. 11 til 15 og á sunnudag kl.
13 til 16. Á morgun verður boðið
upp á keramik, hljómplötur, skó,
reyktan silung og ýmislegt fleira. Á
sunnudag verður meðal annars boð-
ið upp á spil fyrir safnara, fatnað,
lukkupakka og laufabrauð. Ef veð-
ur leyfir verða á boðstólum sviða-
lappir frá Sauðárkróki. Enn eru örfá
borð laus á sunnudag og eru pantan-
ir teknar í síma 26869 (Ásthildur).
Þriggja
kvölda félags-
vist í Eyja-
flarðarsveit
Næstkomandi sunnudagskvöld kl.
20.30 hefst í Freyvangi árleg þriggja
kvölda félagsvist ungmennafélag-
anna í Eyjafjarðarsveit. Að viku lið-
inni, sunnudaginn 22. nóvember,
verður spilað í Laugarborg kl. 20.30
og þriðja og síðasta kvöldið verður í
Sólgarði laugardaginn 28. nóvember
kl. 20.30. Miðaverð er kr. 600 og
em veglegir vinningar í boði. Allir
eru velkomnir.
kirkjunnar. Séra Þórhallur
Höskuldsson predikar og þjónar
fyrir altari ásamt séra Birgi Snæ-
björnssyni. í messunni mun Kór
Akureyrarkirkju undir stjórn
Björns Steinars Sólbergssonar flytja
þrjá þætti úr þýskri messu eftir
Franz Schubert, sem er í íslenskri
þýðingu Sverris Pálssonar, fyrrver-
andi skólastjóra Gagnfræðaskóla
Akureyrar. Óskar Pétursson, tenór,
syngur einsöng. Aðrir flytjendur
tónlistar em Gordon Jack, Sveinn
Sigurbjörnsson og Hjálmar Sigur-
bjömsson, trompetleikarar og Dóró-
thea Dagný Tómasdóttir, orgel.
Hvítir sandar
í Borgarbíói
Klukkan níu og ellefu sýnir Borgar-
bíó myndina Hvítir sandar, sem er
spennandi sakamálamynd. Klukkan
níu verður einnig sýnd myndin Ver-
öld Waynes, sem er sprenghlægileg
gamanmynd og klukkan eliefu verð-
ur sýnd myndin Ferðin til Vestur-
heims með Tom Cruise og Nicole
Kidman í aðalhlutverkum. Á
sunnudag klukkan þrjú verða sýnd-
ar myndirnar Pétur Pan og Prinsess-
an og durtarnir.
Akureyri:
Tónleikar á
sal Tónlistar-
skólans í kvöld
Hrólfur Vagnsson, harmonikuleik-
ari, og Hiroto Yashima, fiðluleikari,
halda tónleika í sal Tónlistarskólans
á Akureyri í kvöld, föstudag, og
hefjast þeir kl. 20.30. Á efnis-
skránni eru verk eftir Bartok,
Albeniz, Ichlyanagi (fyrrverandi
eiginmaður Yoko Ono), Monti,
Kupcovitc, Kreissler o.fl.
Aðalfundur
Ustvinafélags
Akureyrarkirlgu
Aðalfundur Listvinafélags Akureyr-
arkirkju verður haldinn í kapellu
kirkjunnar kl. 16 nk. sunnudag, 15.
nóvember, að lokinni hátíðarmessu
í Akureyrarkirkju, en þar verður
afmælis kirkjunnar minnst.
Bændur athugið!
Eigum á lager heimilisrafstöðvar frá 1,4 kw
til 17 kw til tengingar á dráttavélar.
Einnig diesel og bensínvélar.
Leitið nánari upplýsinga.
I
Við Tryggvabraut • Akureyri • Sími 22700
Basar og
kaffisala í
Safnaðar-
heimilinu
Konur í Kvenfélaginu Baldursbrá við lítinn hluta þeirra muna sem verða á
boðstólum á morgun.
Baldursbrá með
basar í Glerárkirkju
Kvenfélagið Baldursbrá heldur sinn
árlega jólabasar í Glerárkirkju á
morgun, laugardaginn 14. nóvem-
ber, kl. 15. Þar verða á boðstólum
glæsilegir jólamunir sem félagskon-
ur hafa unnið að undanfarnar vikur,
úrval af heimabökuðu brauði og
kökum, lukkupokar fyrir börnin og
jólakort félagsins verða líka seld.
Kvenfélagskonur vonast til að sjá
sem flesta bæjarbúa á morgun og
benda á að þeir styrki gott málefni
því ágóðanum er varið til líknar-
mála og kirkjunnar.
Þqár sýningar
á linu langsokk
Þrjár sýningar verða á Línu lang-
sokk um helgina. Á morgun verður
ein sýning kl. 14, en tvær sýningar á
morgun; sú fyrri kl. 14 (uppselt) og
sú síðari kl. 17.30. Miðasala í Sam-
komuhúsinu alla virka daga nema
mánudaga kl. 14 til 18 og sýningar-
daga fram að sýningu. Laugardaga
og sunnudaga er opið kl. 13 til 18.
Sjallinn:
KK-Band,
Galfleó og
Rúnar Þór
Mikið verður um að vera í Sjallan-
um um helgina. í kvöld verður
Sjallakráin opin og þar leikur hin
stórgóða hljómsveit KK-Band, með
Kristján Kristjánsson í broddi fylk-
ingar. Aðgangur er ókeypis. Annað
kvöld, laugardagskvöld, sér hljóm-
sveitin Galíleó um fjörið í Sjallan-
um. Rúnar Þór verður f Kjallaran-
um í kvöld og annað kvöid.
Kökubasar í
þjónustu-
• X J «x* •
nuðstoðuun
Víðilundi 22
Kvenfélagið Framtíðin heldur
kökubasar nk. sunnudag, 15.
nóvember, kl. 15 í anddyri þjónustu-
miðstöðvarinnar Víðilundi 22 á
Akureyri. Einnig verður seldur not-
aður fatnaður. Fólk er hvatt til að
koma og styðja gott málefni.
Gréta Berg
teiknar í Vín
Gréta Berg verður í Blómaskálan-
um Vín í Eyjafjarðarsveit á laugar-
dag og sunnudag frá kl. 14.00 til
18.00. Gréta er kunn fyrir teikning-
ar sínar og mun draga upp myndir af
gestum blómaskálans ef þeir óska.
Rokkbandið
á Hótel KEA
Hljómsveitin Rokkbandið leikur
fyrir dansi á Hótel KEA á Akureyri
annað kvöld, laugardagskvöld. Hús-
ið verður opnað fyrir aðra en mat-
argesti kl. 23.30.
Basar og kaffi-
sala í Skjaldarvík
íbúar og starfsfólk Dvalarheimilis-
ins í Skjaldarvík stendur fyrir árleg-
um basar og kaffisölu í Skjaldarvík
nk. sunnudag kl. 14. Fólk er boðið
hjartanlega velkomið.
Lengi hefur það tíðkast að Kvenfé-
lag Akureyrarkirkju hafi verið með
fjáröflun þá helgi sem næst er
afmælisdegi kirkjunnar, 17.
nóvember. Konurnar hafa lagt
geysilega vinnu í gerð basarmuna og
hlaðborðið þeirra hefur ætíð verið
rómað. Kaffisalan og basarinn
verða nk. sunnudag í Safnaðar-
heimilinu eftir hátíðarmessu nk.
sunnudag. Kvenfélagið býður alla
velkomna og væntir þess að sjá sem
flesta velunnara.
Kjördæmisþmg
framsóknarmanna
að Dlugastöðum
Framsóknarmenn í Norðurlands-
kjördæmi eystra halda kjördæmis-
þing um helgina að Illugastöðum í
Fnjóskadal. Þingið hefst kl. 20 í
kvöld og þar mun Steingrímur Her-
mannsson, formaður Framsóknar-
flokksins, m.a. halda ávarp. Á
morgun hefjast nefndarstörf kl. 9 og
eftir hádegi verða mál afgreidd.
Reiknað er með þingslitum um kl.
18.
Laufabrauðs-
ogkökubasar
Árlegur laufabrauðs- og kökubasar
Kvenfélags Alþýðuflokksins verður
í JMJ-húsinu á Akureyri, annarri
hæð, á morgun, laugardaginn 14.
nóvember kl. 14. Að vanda verður
gott úrval af hnallþórum af öllum
stærðum og gerðum.
Sjálfsbjargar-
portíð á morgun
Portið hefur aftur starfsemi, nú und-
ir nafninu Sjálfsbjargarportið, á
morgun, laugardaginn 14. nóvem-
ber, að Bjargi við Bugðusíðu á
Akureyri. Opið verður frá kl. 11 til
16. Básapantanir í síma 12080.
Félagsvist
að Melum
Annað kvöld, laugardaginn 14.
nóvember kl. 21, verður spiluð
félagsvist að Melum í Hörgárdal.
Þetta er annað kvöldið af þrem. All-
ir eru velkomnir og er boðið upp á
kaffi.
Húsavík:
Paul Weeden með námskeið
Námskeið í jazzspuna, hefst á veg-
um Jazzþings 17. nóv. nk. Kennari á
námskeiðinu verður bandaríski gít-
arleikarinn og íslandsvinurinn Raul
Weeden. Námskeiðið er ætlað bæði
hljóðfæraleikurum og söngvurum,
sem áhuga hafa á jazztónlist.
Paul Weeden kom til Húsavíkur
fyrir 6 árum og hélt eftirminnilegt
námskeið fyrir húsvíska jazzáhuga-
menn, og má segja að það marki
upphaf húsvískrar jazzvakningar.
Jazzáhugamenn vænta sér mikils
af komu Pauls, þar sem mikil þróun
hefur átt sér stað í jazzmenningu á
Húsavík á þessum 6 árum. Nám-
skeiðinu lýkur með jazzkvöldi föstu-
daginn 20. nóv., þar sem fram koma
þátttakendur af námskeiðinu.
Þ.ám. Stórsveit Húsavíkur, söng-
sveitin NA 12, Blúsvíkingar o.fl. að
ógleymdum Kvartett Paul Weeden,
en hann skipa, auk Pauls, þeir
Sigurður Flosason, Tómas R. Ein-
arsson og Guðmundur R. Einars-
son.
Skráning á námskeiðið fer fram
hjá Grétari Sigurðarsyni í síma
42082.