Dagur - 20.11.1992, Side 2
2 - DAGUR - Föstudagur 20. nóvember 1992
Fréttir
Frostrásin:
Útsendingar
heflast í dag
Útvarpstöðin Frostrásin hefur
útsendingar í dag og ná þær
sendingar eyrum Akureyringa
og næsta nágrennis. Þetta er í
þriðja sinn sem Frostrásin fer í
loftið og ætti því að vera
útvarpshlustendum kunn.
Stöðin mun senda út allan sól-
arhringinn frá kl. eitt í dag til 1.
janúar 1993, en öll vinna við stöð-
ina er unnin í sjálfboðavinnu.
Útsendingartíðnin er 98,7 og
fyrsta lagið sem heyrast mun í
dag er „Nú er það byrjað" með
Rokkbandinu. GG
Verslunarmanna-
félag Húsavíkur:
„Lausnir koma
ekki sjálfkrafa“
Þungar áhyggjur yflr ástandi
atvinnumála á Húsavík og í
nágrannabyggðum koma fram
í ályktun sem stjórn Verslun-
armannafélags Húsavíkur
sendi nýlega frá sér.
í ályktuninni segir: „Nú er svo
komið að atvinnuleysi er viðvar-
andi árið um kring og er ekki
bundið við eina starfsstétt eins og
oftast áður. Viðvarandi atvinnu-
leysi hefur í för með sér stærri
vandamál en sjálfan atvinnumiss-
inn, s.s. niðurbrot einstakling-
anna og önnur félagsleg vanda-
mál. Ljóst má vera að lausnir
koma ekki sjálfkrafa.
Oftast horfa menn þó til þess
að sjávarfang og úrvinnsla þess
skapi flest störfin og bæti hér úr.
Víst er svo að sjósókn og fisk-
vinnsla mun um langa framtíð
verða sú undirstaða, sem flest
annað byggir á, en með minnk-
andi sjávarafla og lakara ástandi
fiskistofna hér við land verður að
mæla með því að leita að öðrum
atvinnumöguleikum og mun
margt geta komið til greina.
Skoða verður vel:
* þá iðnaðarkosti sem upp
kunna að koma
* flutning á verkefnum frá hinu
opinbera til héraðsins
* ferðamannaþjónustu með tilliti
til heilsu og hressingaraðstöðu
* þann iðnað og þjónustu sem
fyrir er með tilliti til útvíkkunar
starfseminnar
Hefðbundnu atvinnulífi á
landsbyggðinni fylgja alltaf
nokkrar sveiflur. Þó hefur
atvinnustigið verið þannig
undanfarin ár að ekki má una við
til frambúðar. Því verða allir
aðilar sem málið varðar að vinna
sem nánast saman til að skapa þá
umgjörð sem við kjósum til fram-
tíðar.“ IM
Fyrirhugað að Pan hf. byggi átta ein-
býlishús á Syðri-Brekkunni á Akureyri
Lögð er áhersla á glæsi-
leg hús og aðkomu
Um mitl næsta sumar er fyrir-
hugað að hefja byggingu átta
einbýlishúsa á byggingareit
sem er austan Grenilundar og
sunnan Skógarlundar á Syðri-
Brekkunni á Akureyri. Húsin
verða öll með sama sniði.
Fanney Hauksdóttir, arkitekt
hjá Arkitekta- og verkfræði-
stofu Hauks hf. á Akureyri,
hefur skipulagt svæðið og
teiknað húsin fyrir bygginga-
fyrirtækið Pan hf., sem starfað
hefur á Akureyri um langt
árabil.
Að sögn Fanneyjar Hauksdótt-
ur er búið að samþykkja afstöðu-
teikningu. Teikningin liggur nú
til auglýsingar hjá skipulagsdeild
Akureyrarbæjar. Bygginganefnd
Akureyrarbæjar hefur samþykkt
tillöguteikningar af húsunum.
Endanlegar teikningar eiga eftir
að fara fyrir nefndina til sam-
þykktar.
„Markmið með skipulagstil-
lögu er að skapa vistlegt og
manneskjulegt umhverfi. Lögð
er áhersla á glæsileg hús og
aðkomu þar sem akvegir eru í
lágmarki. Einnig er þess gætt að
hvert hús njóti vel sólar og útsýn-
is. Innan svæðis er gert ráð fyrir
leiksvæði og göngustígum milli
húsaþyrpinga. Aðkeyrsla að hús-
unum verður inn á tvö torg sem
prýdd verða gosbrunnum. Ein-
býlishúsin verða á tveimur hæð-
um með innbyggðri bílageymslu.
Stærð grunnflatar er um 75 fer-
metrar og gert er ráð fyrir mögu-
leika á útbyggingum á fyrstu hæð
vegna sólskála og innganga," seg-
ir Fanney Hauksdóttir. ój
i Framhlið fyrirhugaðra einbýlishúsa sem rísa munu við Grenilund. Að neðan
má sjá skipulag fyrirhugaðs byggingasvæðis.
Skýrsla starfshóps um fiskeldi og sjávarbúskap:
Bleikjueldi og framleiðsla bleikjuseiða
auðveld með nýtingu jarðvarma
Út er komin skýrsla um þróun
fiskeldis, en á árinu 1990 skip-
aöi Rannsóknaráð ríkisins
starfshóp sem sérstaklega
skyldi kanna reynslu Islend-
inga af laxeldi, leggja mat á líf-
fræðilegt, tæknilegt og rekstr-
arlegt þekkingarstig í íslensku
fiskeldi, að meta markaðslegar
forsendur og þróun markaða,
að gera tillögur um val tegunda
og/eða stofna og leggja drög að
rammaáætlun um rannsóknir
og þróunarstarf fyrir fiskeldi á
íslandi. Formaður starfshóps-
ins var Guðmundur Stefánsson
framkvæmdastjóri Laxár hf. á
Akureyri.
Um framtíðarhorfur í fiskeldi
segir að í norskri spá sé gert ráð
fyrir að árleg neysla fiskmetis
muni aukast úr rúmum 70 milljón
tonnum í um 100 milljón tonna
árið 2010 og mun mestur hluti
þeirrar aukningar koma úr eldi.
Möguleikar í eldisframleiðslu séu
því gífurlegir. Þær eldistegundir
sem framleiddar hafa verið á ís-
landi eru einkum laxfiskar, mest
lax en minna af bleikju, regn-
bogasilungi og urriða. Auk þess-
ara tegunda hefur um nokkurt
skeið staðið yfir tilraunaeldi á
lúðu og sæeyra, rannsóknir á
möguleikum til hafbeitar á þorski
eru að hefjast og fyrir nokkrum
árum voru gerðar tilraunir til eld-
is á hörpudiski, kræklingi og
ferskvatnsrækju.
Framleiðsla matfisks hefur
aðeins verið hluti þess magns sem
gera hefði mátt ráð fyrir og eru
helstu ástæður þess taldar vera:
óhentugir stofnar, léleg seiði,
ónóg þekking, lélegar eldis-
aðstæður, fisksjúkdómar og fjár-
skortur.
Taldar eru góðar aðstæður til
bleikjueldis hérlendis og auðvelt
L
F/T Baldvin Þorsteinsson EA10
Skipið er í Akureyrarhöfn og verður
til sýnis almenningi frá
kl. 14.00-18.30 í dag, föstudag og
laugardag frá kl. 11.00-14.00.
Samherji hf.
að nýta jarðvarma við fram-
leiðslu bleikjuseiða í seiðaeldis-
stöðvum og mikið er af lindar-
vatni sem hægt er að nota beint.
Leggja verður áherslu á kynbæt-
ur til að tryggja það að við stönd-
umst samkeppni við aðrar þjóðir,
en heimsframleiðsla á bíeikju
hefur verið lítil hingað til. Lagt er
til að megináhersla í eldi nýrra
tegunda sjávarfiska miðist við
lúðu og þorsk (seiðaeldi og haf-
beit), en eldi annarra kaldsjávar-
tegunda þ.e.a.s. hlýra, steinbíts,
kræklings og hörpudisks ekki tal-
ið eins arðbært.
Nauðsynlegt er talið að þeim
umsvifum sem nú eru orðin í
rannsóknum og þróun í fiskeldi
verði haldið áfram á næstu árum,
en á árinu 1991 voru 7 rannsókn-
arstöðvar, þar sem hægt var að
framkvæma eldistilraunir. Fram-
lög og styrkir til rannsókna og
þróunar í fiskeldi voru um 160
milljónir og ársverk um 50. Á
árunum 1984-1988 var fiskeldi
hér í mestri mótun og uppbygg-
ingu, en þá var aðeins starfrækt
ein rannsóknarstöð.
Talið er aðkallandi að ríkis-
stjórnin marki opinberlega heild-
arstefnu í fiskeldi íslendinga
a.m.k. fram til aldamóta og þá
verði sérstaklega hugað að
tengslum fiskeldis, fiskveiða og
fiskvinnslu og kannað verði hvort
ekki sé eðlilegt að sjávarútvegs-
ráðuneytið fari með málefni
fiskeldis í stað landbúnaðarráðu-
neytis. í niðurlagi skýrslunnar er
bent á að Norðmenn, okkar
helstu keppinautar á erlendum
fiskmörkuðum, leggi um 3 millj-
arða kr. á ári til rannsókna- og
þróunarverkefna í fiskeldi, þar
sem áhersla er lögð á: fram-
leiðslutækni og framleiðsluþró-
un; nýjar tegundir, þ.m.t. lúðu-
eldi og hafbeit á þorski; heil-
brigði og sjúkdómavarnir eldis-
tegundanna og fóður og fóðrun
eldistegunda. Fiskeldi framtíðar-
innar verður í auknum mæli
hátæknigrein, þar sem öflug
rannsókna- og þróunarstarfsemi
er hornsteinn arðsemi ásamt
markvissri markaðsstarfsemi.
GG
Iðnþróunarfélag Norðurlands vestra:
Námskeið fyrir
athafnakonur frestast
Námskeiði fyrir athafnakonur
sem Iðnþróunarfélag Norður-
lands vestra ætlaði að standa
fyrir á Löngumýri í Skagafirði
nú um helgina verður frestað.
Námskeið fyrir athafnakonur
sem til stóð að halda í kjördæm-
inu fellur niður um sinn. Nám-
skeiðið átti að standa í tvo daga,
föstudag og laugardag á Löngu-
mýri. Af óviðráðanlegum ástæð-
um verður að fresta námskeiðinu
og er fyrirhugað að halda það 5.-
6. mars 1993. Verður það auglýst
nánar síðar. sþ