Dagur - 20.11.1992, Qupperneq 3
Föstudagur 20. nóvember 1992 - DAGUR - 3
I DAGS-LJÓSINU
Heilbrigðismálaráð Norðurlands eystra um Kristnesspítala:
ítrekar fyrri samþykktir um upp-
byggingu endurhæfingaraðstöðunnar
- ráðið segir óviðunandi ef skáka eigi hjúkrunarsjúklingum
til annarra landshluta
lí
Fyrir Kristnesnefndinni svo-
kölluðu, sem er þessa dagana á
fundi í Reykjavík, iiggur ný
greinargerð Heilbrigðismála-
ráðs Norðurlands eystra um
starfsemi Kristnesspítaia. Þar
eru ítrekaðar fyrri samþykktir
um nauðsyn á uppbyggingu
endurhæfingaraðstöðu í Krist-
nesi og segist ráðið undir eng-
um kringumstæðum sætta sig
við að endurhæfing verði skor-
in niður á Norðuriandi með
þeim líklegu afleiðingum að
hún verði aukin á Reykjavík-
ursvæðinu. Þá beinir ráðið
einnig sjónum sínum að hjúkr-
unarsjúklingunum og segir
óviðunandi ef skáka eigi þeim
af Eyjafjarðarsvæðinu til ann-
arra landshluta og greiða þar
kostnað fyrir þá, kostnað sem
ekki fáist greiddur til stofnana
á Eyjafjarðarsvæðinu.
Heilbrigðismálaráð Norður-
lands eystra er skipað 10 manns.
Þar á sæti héraðslæknirinn á
Norðurlandi eystra, framkvæmda-
stjórar Fjórðungssjúkrahússins á
Akureyri, Kristnesspítala,
Heilsugæslustöðvarinnar á Akur-
eyri og Sjúkrahússins á Húsavík,
auk heilsugæslulæknisins á Dal-
vík og aðstandenda heilsugæslu-
stöðvanna á Pórshöfn, Raufar-
höfn og Kópaskeri.
í greinargerðinni er lagt mat á
hugsanlegar afleiðingar af veru-
legum samdrætti í starfsemi
Kristnesspítala. Jafnframt er
áréttuð stefna Heilbrigðismála-
ráðs, en greinargerðin var send
heilbrigðisráðherra og formanni
Kristnesnefndarinnar svoköll-
uðu. Lögum samkvæmt á Heil-
brigðismálaráð að hafa eftirlit
með heilbrigðismálum í héraði
og gera tillögur um framgang og
forgang verkefna á sviði heil-
brigðismála.
Vakin er athygli á því í skýrsl-
unni að nú þegar er ástandið í
öldrunarmálum á Norðurlandi
eystra fjarri því að vera nógu gott
og nægir að benda á að verði þau
hjúkrunarrúm sem nú eru í Krist-
nesi lögð af þá verða færri rúm á
hverja 100 einstaklinga yfir 70
ára aldri en annars staðar á land-
inu.
„Fyrirliggjandi er nú biðlisti
eftir hjúkrunarrýmum á Akur-
eyri og er ljóst að á meðan aldr-
aðir hjúkrunarsjúklingar liggja í
rúmum bráðadeilda Fjórðungs-
sjúkrahússins þolir svæðið engan
veginn fækkun hjúkrunarrúma.
Það er áhyggjuefni, hvaða
afleiðinar það hefði fyrir lyf-
lækningadeild Fjórðungssjúkra-
hússins ef hjúkrunarrýmum
fækkaði á svæðinu. Lyflækninga-
deildin sem telur 23 rúm og er
bráðadeild fyrir allt Norðurland
og hluta Austfjarða var með 86%
meðalnýtingu rúma árið 1991.
Það þýðir að að meðaltali voru
ekki laus nema 3 rúm á deildinni
og er sá viðbúnaður mjög lítill
miðað við það svæði sem deild-
inni er ætlað að þjóna. Mikið er
um að eldra fólk sé lagt inn á lyf-
lækningadeild og vegna skorts á
hjúkrunarrýmum dvelja sjúkling-
ar oft á lyflækningdadeild mun
lengri tíma en raunverulega er
þörf á. Álagið á deildina er sveiflu-
kennt eins og á allar bráðadeild-
ir en ljóst er að deildin þolir alls
ekki aukið álag sem fylgja myndi
verulegri
rúma.“
fækkun hjúkrunár-
Tilfærsla á kostnaði
- enginn sparnaður
Heilbrigðismálaráð segir ljóst að
í nálægum byggðum við Akureyri
er ekki laust hjúkrunarrými sem
nýta mætti fyrir þá sjúklinga sem
nú dvelja á Kristnesspítala. „Það
liggur því fyrir að verði fjármagni
ekki veitt til reksturs hjúkrunar-
rýma á Kristnesi þarf að flytja
sjúklingana til vistunar í öðrum
landshlutum. Heilbrigðismálaráð
mælir eindregið gegn því að aldr-
aðir hjúkrunarsjúklingar á
Eyjafjarðarsvæðinu verði fluttir til
visturnar í öðrum landshlutum
með þeim afleiðingum að þjón-
ustan á Eyjafjarðarsvæðinu
skerðist verulega og rekstrar-
kostnaður færist til en sparast
ekki.“
í greinargerð heilbrigðismála-
ráðs er rakin uppbygging endur-
hæfingar á Kristnesspítala en þar
gera áætlanir ráð fyrir 34 rúma
deild, en við núverandi húsnæðis-
aðstæður er unnt að hafa í notk-
un 24 rúm. Starfsmannaheimildir
leyfa hins vegar aðeins notkun um
10 rúma. Um % hlutar endur-
hæfingarsjúklinga koma frá bráða-
deildum sjúkrahúsa fyrst og
fremst F.S.A. en Vi hluti kemur
skv. tilvísun heimilislækna.
„Sú reynsla sem þegar er feng-
in af starfsemi endurhæfingar-
deildar í Kristnesi sýnir að á
Fjórðungssjúkrahúsinu á Akur-
eyri hefur tekist að stytta legu-
tíma sjúklinga talsvert eftir vissar
aðgerðir og á það einkum við
bæklunaraðgerðir. Þá tekst með
slíkri endurhæfingardeild sem
rekin er í tengslum við starfsemi
Fjórðungssjúkrahússins að veita
fullnaðarmeðferð eftir aðgerðir
en bæklunardeildir sem reknar
eru án tengsla við endurhæfingar-
deild, útskrifa sjúklinga sem ekki
hafa fullnaðarmeðferð. Tengsl
F.S.A. við slíka endurhæfingar-
deild tryggja þannig fullnaðar-
meðferð sem ekki er hægt að
veita á bráðadeild og gefur
möguleika á mun betri nýtingu á
fjárfestingum og mannafla bráða-
sjúkrahússins, þar sem hægt er
að stytta legutíma eftir aðgerðir
og auka þannig fjölda aðgerða
sem bráðasjúkrahúsið ræður
við.“
í niðurlagi skýrslunnar er svo
gerð grein fyrir stefnu Heilbrigð-
ismálaráðs í málinu:
„Heilbrigðismálaráð ítrekar
fyrri samþykktir sínar um nauð-
syn þess að byggja upp endur-
hæfingaraðstöðu í Kristnesi og
getur undir engum kringumstæð-
um sætt sig við að þjónusta þessi
verði skorin niður á Norðurlandi
með þeim líklegu afleiðingum að
hún verði aukin á Reykjavíkur-
svæðinu. Heilbrigðismálaráð tel-
ur það einnig óviðunandi ef
hjúkrunarsjúkiingum af Eyja-
fjarðarsvæðinu verður skákað til
annarra landshluta og kostnaður
greiddur fyrir sjúklingana þar,
sem ekki fæst greiddur til stofn-
ana í Eyjafirði.
Á Kristnesi er nú þegar fyrir
hendi húsnæði og önnur aðstaða
til hjúkrunar og endurhæfingar
og virðist sýnt að með betri nýt-
ingu á þeirri aðstöðu megi kom-
ast hjá frekari fjárfestingum og
auknum rekstrarkostnaði annars
staðar. Heilbrigðismálaráð telur
eðlilegt að leitað sé allra leiða í
hagræðingu og samræmingu
heilbrigðismála á Norðurlandi
eystra, sem og annars staðar, en
bendir á að afleiðingarnar af lok-
un Kristnesspítala yrðu mjög
alvarlegar. Ráðinu er hins vegar
ljóst að lokun spítalans er ein-
ungis einn þeirra kosta sem
skoðaðir verða, en Heilbrigðis-
málaráð hefur ekki haft tök á að
gera athugun á því hvort ná megi
fram hagkvæmari rekstri með
breyttum áherslum eða breyttu
rekstrarfy rirkomulagi.
Niðurstaða Heilbrigðismála-
ráðs er sú, að það sé enginn vafi á
að þörf er fyrir þá endurhæf-
ingarstarfsemi sem nú er rekin á
Norðurlandi og raunar er þörf
fyrir mun öflugra starf á því sviði.
Full þörf er einnig á öllum þeim
hjúkrunarrúmum sem nú eru
rekin á Kristnesi og því hvetur
ráðið til að allar þær breytingar
sem verða á starfsemi Kristnes-
spítala miði að því að viðhalda
þeirri þjónustu sem nú er veitt á
sviði endurhæfingar og öldrunar-
mála,“ segir í skýrslu Heilbrigð-
ismálaráðs Norðurlands eystra.
JÓH
Gerið góð kaup
Einlitar herraskyrtur 5 litir.
Verð aðeins kr. 2.500,-
Köflóttar skyrtur á börn.
St. 104-176. Verð kr. 1.398,-
Náttföt á börn í úrvali.
Rúllukragabolir á börn og fullorðna.
Gallabuxur á alla fjölskylduna.
Nýkomiö:
Stretsbuxur á börn kr. 810,-
Stretsbuxur á fullorðna kr. 905,-
Jóladúkar, margar stærðir, gott verð.
5% staðgreiösluafsláttur.
• •
Hjalteyrargötu 4 - Símí 22275
jfiBLÆWl^^iiiBMMWHWiniwriwrrniwiwiimMiwwMiiifriiw'iniiwwrtii'i'n 11 «i
Altröppur
Tilboð
2 þrepa kr. 2147
3 þrepa kr. 2549
4þrepa kr. 2918
5 þrepa kr. 3314
6 þrepa kr. 3995
7 þrepa kr. 4794
8 þrepa kr. 5240
3 way
flölhæítiisstlgi
kr. 5303
KAUPLAND
Kaupangi v/Mýrarveg, símí 23565
Þér er dooio a kynnmgu
á sokkabuxum í Amaro
Föstudaginn 20. nóv. kl. 13.00-18.00
og laugardaginn 21. nóv. kl. 10.00-
13.00 verðum við með kynningu á
Hudson sokkabuxum.
Kynntar verða sokkabuxur úr nýjum og
byltingarkenndum „micro" þræði, en
einnig fjölmargar aðrar gerðir sokkabuxna
frá Hudson.
Velurþú þér sokkabuxur á réttum forsendum?
Á kynningunni gefst þér færi á leiðsögn í
vali á sokkabuxum sem henta þér best.
jafnframt getur þú tryggt þér Hudson
sokkabuxur á hagstæðu kynningar-
verði.
Miðstöð hagstæðra viðskipta.