Dagur - 26.11.1992, Blaðsíða 2
2 - DAGUR - Fimmtudagur 26. nóvember 1992
Fréttir
Bensínstöð rís í Síðuhverfi:
Deíliskipulag svæðis milli Austur-
síðu og Hlíðarbrautar samþykkt
Náttúrufræðistofnun
Norðurlands:
Undir ríkið
á næsta ári
Ekki er gert ráð fyrir að ríkið
yfirtaki verulegan hluta af
rekstri Náttúrufræðistofnunar
Norðurlands fyrr en um mitt
næsta ár, en gert hafði verið
ráð fyrir að ríkið tæki yfir
reksturinn um næstu áramót.
„Samkvæmt lögum hafði verið
gert ráð fyrir að ríkið tæki við
rekstrinum um áramótin. Eftir
því sem ég veit best verður það
ekki, en hins vegar hefur verið
reiknað með því að ríkið taki yfir
reksturinn um mitt ár,“ sagði
Hörður Kristinsson, forstöðu-
maður Náttúrufræðistofnunar.
Undir Náttúrufræðistofnun
heyrir m.a. starfsemi Lystigarðs-
ins og sýningarsalur stofnunar-
innar við Hafnarstræti, en Hörð-
ur segir að gert sé ráð fyrir að
þessi starfsemi heyri áfram undir
Akureyrarbæ. óþh
Þorskveiði
að undanfómu á
Vestfjarðaimðum
Ofstopaveður hefur verið á
miðum togara síðustu tvo sólar-
hringa. I gær lágu þeir togarar
Útgerðarfélags Akureyringa
hf. sem voru á sjó í vari undir
Grænuhlíð. Aður en norðan-
skotið gerði voru togarar að
þorskveiðum í Víkurál og
raunar víðar á togslóð fyrir
vestan. Skipstjórnarmenn
segja að veiðin sé hálfgert nag.
Kaldbakur EA kom til löndun-
ar í gær. Aflinn, 75 tonn, er af
Vestfjarðarmiðum. - Frystitogar-
inn Sléttbakur EA er einnig í
heimahöfn til löndunnar. Aflinn
268 tonn fryst, 415 tonn úr sjó, er
að aflaverðmæti 50 milljónir.
Sléttbakur var að mestu að veið-
um á Torginu fyrir vestan og afl-
inn því karfi og grálúða. - Sval-
bakur EA landaði fyrir helgi 170
tonnum. Uppistaða aflans var
karfi. ój
Bæjarstjorn Akureyrar sam-
þykkti á fundi sínum sl. þriðju-
dag tillögu skipulagsnefndar
bæjarins að deiliskipulagi á
svæði því í Síðuhverfi sem
afmarkast af Austursíðu,
Lindarsíðu og Hlíðarbraut en
samkvæmt tillögunni er gert
ráð fyrir bensínstöð á horni
Austursíðu og Hlíðarbrautar.
Tillagan var samþykkt með
fimm atkvæðum gegn einu,
fimm bæjarfuUtrúar sátu hjá.
Skipulagsstjóra Akureyrar-
bæjar er falið að auglýsa deili-
skipulagið og samkvæmt lög-
um er það tU kynningar og
athugasemda í fjórar vikur frá
fyrsta kynningardegi.
Hér er um svokallað miðhverfi
að ræða en þar er átt við miðbæj-
arsækna verslunar- og þjónustu-
starfsemi og stjórnsýslu. Einnig
eru leyfðar þar hvers kyns skrif-
stofubyggingar, verslunarhús og
stofnanir, gisti-, veitinga- og
skemmtistaðir, aðsetur félaga-
samtaka svo og önnur atvinnu-
starfsemi sem ekki truflar
umhverfi sitt með óþrifum, drasli
og hávaða. íbúðir eru almennt
heimilar á efri hæðum húsa, og
jafnframt má í einstaka tilfellum
leyfa hús sem eingöngu eru ætluð
til íbúðar.
Töluverðar umræður hafa ver-
ið síðasta misseri innan bæjar-
stjórnar Akureyrar um staðsetn-
íngu bensínstöðvar á horni Aust-
ursíðu og Hlíðarbrautar og verið
skiptar skoðanir um það hvort sú
starfsemi samræmdist þeim hug-
myndum sem uppi hafa verið um
miðhverfi og það reynist svo
vera. Ræddar hafa verið hug-
myndir um að umferðartenging
frá svæðinu kæmi inn á Hlíðar-
braut á móts við Smárahlíð og
hvort breyta þyrfti Lindarsíðu,
en svo verður ekki. Innakstur á
umrætt svæði verður því ein-
göngu frá Lindarsíðu. GG
Hækkun húshitunarkostnaðar:
Akureyringur greiðir 11.890 kr.
Reykvíkingur greiðir 5.123
- álagning vsk. kemur mjög misjafnlega
niður á byggðarlög
Hjólbarðaþjónusta á Akureyri:
Vísbending um verðsamráð
Verðlagsstofnun gerði um
miðjan nóvember könnun á
verðlagningu ónegldra vetrar-
hjólbarða hjá 11 fyrirtækjum á
Norðurlandi eystra. Jafnframt
var kannað hver kostnaður
væri við að skipta um hjól-
barða, umfelgun og jafnvægis-
stillingu á bifreiðum.
Fertugasta og sjöunda leikvika
í íslenskum getraunum var um
síðustu helgi. Akureyringar
voru getspakir sem fyrr. Tvær
raðir seldar af Golfklúbbi
Akureyrar reyndust með 13
rétta.
Helstu niðurstöður könnunar-
innar eru þessar: Lægsta verð fyr-
ir að skipta um dekk, umfelgun
og jafnvægistillingu fyrir fólksbíl
eða smáan sendibíl er kr. 3.255.
Hæsta verð er 14,9% hærra eða
kr. 3.740. Verðmunur á skipt-
ingu, umfelgun og jafnvægisstill-
ingu undir smærri jeppa og sendi-
Alls komu fram 250 þúsund
vinningsraðir í þessari viku. Þrjár
raðir reyndust með 13 rétta
hérlendis, tvær á Akureyri og ein
í Reykjavík. Akureyringar upp-
skáru vel enda tippuðu þeir
manna mest á landinu. Þrettán
réttir gáfu nú kr. 757.130,00. ój
bíla er meiri eða 29,6%. Sú þjón-
usta kostar frá 3.580 krónum til
4.640 króna. Ef aðeins er litið til
Akureyrar þá er enginn verð-
munur á þessari þjónustu. Gefur
það sterka vísbendingu um sam-
ráð verkstæðanna á Akureyri um
verðlagningu á hjólbarðaþjón-
ustu. Verðið á Akureyri er hærra
en annars staðar á Norðurlandi
eystra.
Allt að 32,1% verðmunur er á
sömu tegund vetrarhjólbarða á
milli verkstæða. Ef aðeins er litið
á verðmun á milli verkstæða á
Akureyri þá er aðeins í tveim til-
fellum um 5 kr. verðmun að
ræða.
Meðalverð á hjólbörðum á
Norðurlandi eystra er í 9 tilfell-
um af 14 lægra en á höfuðborgar-
svæðinu og er allt að 8,5% munur
þar á. í þeim tilvikum þar sem
það er hærra er um undir 1%
mun að ræða. ój
Hitunarkostnaður 400 rúnunetra
húss á Akureyri hækkar um
11.890 krónur á ársgrundvelli -
úr 84.926 í 98.815 krónur við
14% álagningu virðisauka-
skatts á húshitunarkostnað. í
frétt í Degi í gær voru hækkun-
artölur ranglega auðkenndar
með prósentum en áttu að
sjálfsögðu að vera þúsundir
króna.
Á sama hátt hækkar húshitun-
arkostnaður í Reykjavík, sé mið-
að við sömu stærð af húsi, um
Lítil loðnuveiði hefur verið
síðan í byrjun vikunnar en síð-
ustu landanir voru á mánudag.
AIls hafa borist á land 199.668
tonn á haustvertíðinni, en
heildarloðnukvótinn er
639.600 tonn.
Siglufjörður er enn hæsta lönd-
unarhöfnin með 36.773 tonn, en
síðan kemur Raufarhöfn með
5.123 krónur - úr 36.596 í 41.720
krónur. Hjá Orkubúi Vestfjarða
hækkar hitunarkostnaður um
10.134 krónur og um 12.402 hjá
Hitaveitu Rangæinga, en þar
verður hækkunin mest vegna
hæsta húshitunarkostnaðar á
landinu. Þar sem húshitunar-
kostnaður er mjög mismunandi
eftir stöðum kemur álagning
virðisaukaskattsins misjafnlega
niður og þeir sem búa við hæstan
kostnað greiða þarafleiðandi
mesta hækkun. Pl
29.057 tonn, Neskaupstaður með
26.374 tonn, Seyðisfjörður með
24.077 tonn, Eskifjörður með
22.261 tonn, Akranes með
16.650 tonn, Þórshöfn með
15.030 tonn og Krossanesverk-
smiðjan með 14.403 tonn en aðrir
staðir snöggtum minna. Alls hef-
ur loðnu verið landað á 15 stöð-
um á landinu. ‘ GG
Akureyri:
Tveir getraunaseðlar
með þrettán rétta
Loðnuvertíðin:
Veiðst hafa liðlega 30%
af heildarloðnukvóta