Dagur - 26.11.1992, Blaðsíða 3
Fimmtudagur 26. nóvember 1992 - DAGUR - 3
Fréttir
Bifreiðatryggingar:
Greiðslusamnmgum hefur Qölgað
Lögreglan gerir öðru hverju
átak í því að koma þeim bif-
reiðum í skoðun hjá Bifreiða-
skoðun Islands sem þangað
eiga að vera komnar, og stund-
um þarf að grípa til númera-
klippinga þegar þverkallast er
við því.
Lögreglan fær öðru hverju lista
frá Bifreiðaskoðuninni yfir þær
bifreiðar sem þegar eiga að hafa
komið í skoðun, og er sá fjöldi
svipaður nú og hefur verið á þess-
STAK:
Efiiahagsað-
gerðunum harð-
lega mótmælt
Efnahagsaðgerðir ríkisstjórn-
arinnar frá því á mánudag
mæta harðri andstöðu hjá
stjórn Starfsmannafélags
Akureyrarbæjar. Stjórnin
sendi frá sér svohljóðandi
ályktun í fyrradag:
„Stjórn STAK mótmælir harð-
lega fyrirhuguðum efnahagsað-
gerðum ríkisstjórnarinnar sem
fela í sér stórfellda kjaraskerð-
ingu fyrir almennt launafólk. Á
sama tíma er sköttum létt af
fyrirtækjum, einnig þeim sem
búa við góð kjör og jafnvel mik-
inn gróða. Með þessu styrkir
ríkisstjórnin velferðarkerfi fyrir-
tækjanna á kostnað velferðar
almennings á íslandi.
Stjórn STAK vill einnig vekja
athygli á auknu misrétti milli
íbúa landsins sem felst í álagn-
ingu skatta á húshitun og skorar á
bæjarstjórn Akureyrar og þing-
menn í Norðurlandskjördæmi
eystra að beita sér gegn þessu
óréttlæti." JÓH
Gigtarfélagið:
Kristnesspítala
verði
ekki lokað
Nýverið var aðalfundur Gigt-
aifélagsins á Norðurlandi
eystra haldinn að Hótel KEA á
Akureyri. I skýrslu formanns,
Ingibjargar Sveinsdóttur, kom
fram að gigtsjúkir hafa fengið
sérstakan aðgang að sundlaug-
inni í Glerárhverfi kl. 12.45 til
13.45 á fimmtudögum. I þess-
um tímum er laugin höfð heit-
ari en ella.
Á fundinum voru eftirtaldar
tillögur samþykktar samhljóða:
1) Aðalfundur Gigtarfélagsins á
Norðurlandi eystra mótmælir öll-
um áformum um lokun eða
skerðingu á starfsemi Kristnes-
spítala.
2) Aðalfundur Gigtarfélagsins á
Norðurlandi eystra felur stjórn
félagsins að knýja á um að fá
heimild fyrir stöðu sérfræðings í
gigtlækningum við Fjórðungs-
sjúkrahúsið á Akureyri.
Stjórn félagsins var endurkjör-
in en hana skipa: Ingibjörg
Sveinsdóttir formaður, Guðrún
Guðmundsdóttir gjaldkeri og
Ingvar Teitsson ritari. í vara-
stjórn voru kjörin Guðný
Ögmundsdóttir og Herdís G.
Jónsdóttir. ój
um tíma undanfarin ár. Talið er
að lögreglan finni milli 2-3% af
þeim bifreiðum sem eru á þessum
lista. Ef bifreið finnst eru kann-
aðar í tölvu lögreglunnar upplýs-
ingar frá Bifreiðaskoðuninni um
ástand bifreiðarinnar og t.d.
hvort pantaður hafi verið skoð-
unartími fyrir viðkomandi bifreið.
Öðrum er gefinn stuttur frestur
til að koma sínum málum í lag,
en í mörgum tilfellum er um
hreinan trassaskap að ræða, en ef
bifreiðaeigandi á ekki fyrir trygg-
ingargjöldum og þungaskatti má
segja að viðkomandi hafi ekki
efni á því að teljast bíleigandi.
„Fólk á greinilega í meiri erfið-
leikum nú að standa skil á trygg-
ingargjöldum og það er meira um
það að komið sé og samið um
greiðslu bifreiðatryggingagjald-
anna. Ég tel hins vegar að núm-
eraklippingar vegna vanskila á
tryggingum séu ekki tíðari nú en
áður, enda höfum við boðið okk-
ar viðskiptavinum samninga um
greiðslu iðgjalda," segir Sigurður
Harðarson hjá svæðisskrifstofu
Vátryggingafélags íslands á
Akureyri.
Töluverð aukning er á því að
iðgjöldin séu greidd með rað-
greiðslum gegnum kreditkorta-
fyrirtækin, og eru dæmi um það
að þeim sé dreift á 8 mánuði.
Einnig nýtur boðgreiðslukerfið
vaxandi vinsælda, en með því
ákveður kreditkorthafi hversu
háa upphæð hann vill greiða af
kortinu á mánuði til trygginga-
félagsins og þá færast öll iðgjöld
viðskiptavinarins inn á boð-
greiðslusamninginn. GG
HRÍSALUNDUR
í
jólaskapi
Kerta
og konfektmarkaður
Jólaskraut, silkiblóm,
jólakort, jólapappír
Einnig mikið úrval caf
annarri gjafavöru
Glæsilegt
kjötborð
Hátíðarsteikur
i miklu úrvali
Jóla-
lilboð
á kjötvörum
t.d.
léttreyktur
lamba-
hryggur
698
kr. kg
Jóla-
tilboð
á nidursoðnum
ávöxtum
Gott
verð
Egg
19 3 kr. kg
Niðursoðiit
jarðarber i/, dós
78 kr
Bananar
69kr.kg
Kynnum föstudag frá kl. 14-19: Kynnum laugardag frá kl. 10-14:
Hnetusmjör Sultur • Djús
Pastarétti Hnetusmjör • Pastarétti
Sælkeraverslun á stórmarkaðsverði
VISA