Dagur - 04.12.1992, Blaðsíða 1
Framtíð Kristnesspítala hvergi nærri ráðin þrátt fyrir niðurstöðu Kristnesnefndarinnar:
Spamaðarleiðirnar verður að finna í
viðræðiun FSA og heilbrigðisráðuneytisins
í áiiti Kristnesnefndarinnar
sem skilað var heilbrigðisráð-
herra í fyrrakvöld segir ekkert
um að 40 milljóna sparnaði í
rekstri Kristnesspítala verði
náð með því að færa rekstur
spítalans undir Fjórðungs-
sjúkrahúsið á Akureyri. Strax
eftir að álit nefndarinnar lá fyr-
ir sagði Sighvatur Björgvins-
son, heilbrigðisráðherra, í við-
tölum að niðurstaða nefndar-
innar sé sú að þessum sparnaði
verði náð með sameiningu við
FSA en í skýrslunni stendur
skýrt að árangursríkasta leiðin
til að ná 40 milljóna sparnaðin-
um sé sú að sameina rekstur-
inn FSA. í skýrslunni er því
ekki að finna útfærslu á sparn-
aðinum með sameiningu við
FSA heldur mun sú útfærsla
verða verkefni þeirra fulltrúa
frá heilbrigðisráðuneyti og
Fjórðungssjúkrahúsinu sem nú
munu setjast niður til að ræða
sameiningu stofnananna
tveggja. Starfsfólk Kristnes-
spítala er því enn í óvissu um
hver skipan mála verður eftir
áramót.
Heilbrigðisráðuneytið óskaði í
gærmorgun eftir viðræðum við
stjórnendur Fjórðungssjúkra-
hússins á Akureyri um yfirtöku á
rekstri Kristnesspítala. Ingi
Björnsson, framkvæmdastjóri
FSA, hafði ekki upplýsingar í
höndum hvenær þessar viðræður
verði og hvernig fyrirætlunum
um 40 milljóna króna sparnað
verði náð.
í Kristnesnefndinni sátu m.a.
Pétur Þór Jónasson, sveitarstjóri
Eyjafjarðarsveitar og Halldór
Jónsson/bæjarstjóri á Akureyri.
Nefndin skrifaði öll undir álitið
og samkvæmt heimildum blaðs-
ins er talið að norðanmenn hafi í
starfi hennar unnið varnarsigur
því hafa verður í huga að sá
möguleiki var uppi að Kristnes-
spítali verði lagður niður.
Nefndin hafnaði þeim mögu-
leika alfarið að leggja spítalann
niður. í áliti nefndarinnar kemur
fram að nefndin taldi ekki heldur
möguleika að gera spítalann að
sjálfstæðri stofnun, m.a vegna
efnahagsaðstæðna í landinu.
Priðji möguleikinn var að sam-
eina reksturinn við FSA. Þennan
kost taldi nefndin álitlegan við
núverandi aðstæður og með því
náist veruleg hagræðing í stjórn-
un og mönnun, auk þess sem
hafa verði í huga að stærsti hluti
endurhæfingarsjúklinga komi frá
FSA. Til viðbótar verði nýting
Kristnesspítala markvissari ef um
sameiginlega stjórnun verði að
ræða.
Að þessum möguleikum upp-
töldum segir Kristnesnefndin í
áliti sínu, eins og áður segir, að
Sauðárkrókur:
Fundur um samvmnu
bæjarstjóma
- bæjarfulltrúar ekki á einu máli um gildi
opinnar
Á fundi bæjarstjórnar á Sauð-
árkróki s.l. þriðjudag urðu
talsverðar umræður um sam-
skipti bæjarfélaganna á
Blönduósi og Sauðárkróki.
Kom fram í máli fulltrúa að
nauðsynlegt sé að gott sam-
starf sé með þessum bæjarfé-
lögum. Menn voru hins vegar j
ekki sammála um hversu opin
umræðan um þessi mál skyldi
vera.
Tilefni þessara umræðna var
að 19. nóv. s.l. áttu bæjarráðs-
menn á Sauðárkróki fund með
fulltrúum bæjarstjórnar á
Blönduósi. Þar voru margvísleg
málefni rædd, m.a. málefni Fjöl-
brautaskóla Norðurlands vestra,
samgöngumál og staðsetning
SSNV. í framhaldi af þessum
fundi var ákveðið að halda ■
sameiginlegan fund þessara
bæjarstjórna í janúar n.k. á
Sauðárkróki. Mál þau sem rædd
voru á þessum fundi eru sum
hver viðkvæm, s.s. bygging bók-
námshúss FNV og staðsetning
umræðu
'SSNV. Stefán Logi Haraldsson
sagði á fundinum að töluverðrar
óánægju gæti hjá Héraðs-
nefnd Skagfirðinga að A.-Hún-
vetningar taki ekki þátt í kostn-
aði af byggingu bóknámshúss og
Blönduósbær verði að ákveða
afstöðu sína í því máli. Jafnframt
kvað hann ýmislegt hafa komið
upp á varðandi samskipti bæjar-
félaganna vegna staðsetningar
SSNV.
Upplýsingar Stefáns Loga um
málefni þessa fundar komu í
kjölfarið á umræðu um það hvort
ræða ætti í smáatriðum á bæjar-
stjórnarfundi hvað fram hefði
farið á umræddum fundi 19. nóv.
Töldu menn slíkt geta valdið erf-
iðleikum í samskiptum þessara
bæjarfélaga að skeggræða slíkt
opinberlega. Vafasamt væri að
túlka orð annarra og slík frásögn
yrði að vera jákvæð, ef vinna ætti
að bættum samskiptum. í máli
allra fulltrúa kom þó fram sú
sameiginlega skoðun að þessi
bæjarfélög eigi að vinna saman
og eiga góð samskipti. sþ
árangursríkasta leiðin til að ná
því markmiði að reka Kristnes-
spítala innan ramma fjárlaga,
þ.e. með 40 milljóna króna
sparnaði, sé að sameina rek-
sturinn FSA. Það kalli hins vegar
á verulega hagræðingu og sparn-
aðaraðgerðir.
Loks kemur fram í nefndarálit-
inu á náist ekki samkomulag við
FSA þá útiloki nefndin ekki að
Ríkisspítalar reki Kristnesspítala
áfram, þá sem hluta af hæfingar-
deild, þ.e. þeirri endurhæfingu
sem ráðgert er að koma á fót í
Kópavogi.
Mikil óvissa ríkti á Kristnes-
spítala í gær og var boðað til lok-
aðs fundar starfsfólks í gærkvöldi
þar sem kynnt var niðurstaða
Kristnesnefndarinnar. Pétur Þór
Jónasson, sveitarstjóri Eyjafjarð-
arsveitar, vildi ekki tjá sig í gær
um innihald skýrslu nefndarinnar
en sagðist ósáttur við að heil-
brigðisráðherra hafi kosið að
ræða þetta mál í fjölmiðlum í
fyrrakvöld, sem raun bar vitni,
áður en hlutaðeigandi aðilum
norðan heiða hafði verið gerð
grein fyrir niðurstöðum nefndar-
innar.
Þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir í
gær náðist ekki í Sighvat Björg-
vinsson, heilbrigðisráðherra.
JÓH
Akureyri:
Loðnubátar í landi vegna veðurs
- mikið af loðnu, en stendur djúpt og er dreifð
Sjö bátar höföu landað um
miðjan dag í gær í Krossa-
nesverksmiðjuna en flestir
aðeins með slatta. Þetta voru
Börkur, Kap, Hólmaborg,
Albert, Júpíter, Jón Kjartans-
son og Faxi með samtals um
1200 tonn. Loðnubátarnir tín-
ast nú til hafnar vegna brælu,
og spáð er stormi á norðaustur-
miðum fram á laugardag.
Flestir bátarnir hafa þó farið til
Siglufjarðar með smáslatta rétt
eins og þeir sem komu til Akur-
eyrar. Nokkrar áhafnir Iögðu
land undir fót og fóru heim í
kærkomið frí.
Skipstjórinn á Kap VE-4 sagði
talsverða loðnu vera hér norður
og norðaustur af Grímsey en
bæði stæði hún djúpt og væri
mjög dreifð. GG
***»«'.:«*!
porður oo.MSsac
SVANUR
Bræla á miðunum og Ioðnuskipin í höfn.
Erfiðir sjúkraflutningar:
Óhapp við bátaflutninga á Fjöllum
Sjúkrabflstjóri, Iæknir og lög-
reglumenn frá Húsavík lentu I
mjög erfiðum sjúkraflutning-
um í gærdag. Sækja þurfti
mann í Grímsstaði á Fjöllum.
Maðurinn var á ferð yfir öræf-
in, hafði farið úr axlarlið og
var mjög kvalinn.
Það var rúmlega sjö í gær-
morgun sem heimilisfólk á
Grímsstöðum var vakið upp og
beðið um aðstoð. Menn á vörubíl
voru á ferð frá Borgarfirði eystra
til Akureyrar með bát til viðgerð-
ar. Báturinn skemmdist mjög í
innsiglingunni við Borgarfjörð
fyrir nokkrum dögum. Skammt
frá Grímsstöðum fór eigandi
bátsins upp á vörubílinn til að sjá
til þess að bátuinn kæmist undir
línur sem lágu yfir veginn, en við
það tognaði hann það illa að
hann fór úr axlarlið.
Maðurinn beið á Grímsstöðum
eftir lækni og sjúkrabíl frá Húsa-
vík og kl. rúmlega átta fór lög-
reglubíll til aðstoðar sjúkrabíln-
um. Þeir komu hálf eitt í Grímss-
staði og var manninum þá kippt í
liðinn og veitt læknisþjónusta.
Kl. 14 var haldið af stað með
manninn á Sjúkrahús Húsavíkur.
Komið var í bæinn rétt fyrir kl.
17. Snjóplógur aðstoðaði bílana
austan við Námaskarð og þeir
þurftu einnig að draga hvor ann-
an á spili vegna ófærðar. Ferðin
sóttist seint vegna mjög dimmra
élja og mikil úrkoma var á þess-
um slóðum. Á Grímsstöðum var
stórhríðarveður síðdegis f gær.
IM