Dagur - 04.12.1992, Blaðsíða 15
Föstudagur 4. desember 1992 - DAGUR - 15
ÍÞRÓTTIR
Halldór Arinbjarnarson
Körfubolti, 1. deild:
Topplið deildanna mætast
í kvöld veröur stórleikur í 1.
deildinni í körfubolta þegar
topplið A- og B-riðils mætast.
Liðin eru Þór og IA og fer
leikurinn fram á Akranesi.
Bæði lið eru taplaus í deildinni
í vetur og því verður spennandi
að fylgjast með uppgjöri þeirra.
Leikurinn er prófsteinn á hvort
liðið er sterkara og einnig nokk-
urs konar úrslitaleikur í deildinni
þar sem liðin berjast um sæti í
úrvalsdeild að ári. Úrslitin eru þó |
hvergi nærri ráðin, en það lið sem!
sigrar stendur vissulega vel að
vígi. Helgin verður mjög erfið
hjá Þórsurum því á morgun þurfa
þeir að fara til Sandgerðis þar
sem leikið verður gegn heima-
mönnum í Reyni. Reynismenn
eru með eitt sterkasta lið deildar-
innar en urðu þó að játa sig sigr-
aða gegn Þórsurum í íþróttahöll-
inni fyrr í vetur. Nú hefur liðið
hins vegar heimavöllinn. Hið
unga lið Þórs hefur litla mót-
spyrnu fengið í deildinni til þessa
og því er spennandi að sjá hvort
það stenst álagið eða missir
flugið. Um næstu helgi leikur síð-
an UFA gegn sömu liðum og
Þórsarar nú.
Islandsmótið í handknattleik, 1. deild:
Botnlið Fram bakaði Þórsara
Þórsarar vilja án efa sem fyrst
gleyma viðureign sinni við
Framara, en liðin mættust á
miðvikudagskvöldið í Laugar-
dalshöllinni. Lið Þórs lék
afspyrnu illa allan leikinn en
fyrri hálfleikur var þó hálfu
verri en sá síðari. Lokatölur
leiksins urðu 30:19 eftir að
staðan í leikhléi var 13:7.
Fyrri hálfleikur byrjaði með
sínu markinu hjá hvoru liði en
síðan komu 11 sóknir í röð án
; marks hjá Þór. Framarar voru
litlu skárri en náðu þó að rétta úr
kútnum og voru fljótlega komnir
með góða forystu. Breyttu stöð-
unni úr 4:2 í 12:6. Þórsarar skor-
uðu aðeins 3 mörk fyrstu 16
mínútur leiksins og segir það í
raun allt sem segja þarf um sókn-
arleik liðsins. Skotið var úr ótrú-
legustu færum og hinar furðuleg-
ustu sendingar út í bláinn litu
dagsins ljós.
Síðari hálfleikur byrjaði með
þremur mörkum hjá Fram og
staðan því orðin 16:7. Þórsarar
tóku þá 2 menn úr umferð og
náðu að minna muninn í 19:14.
Síðan fór allt í sama farið og Þór
skoraði aðeins 5 mörk úr 18
sóknum það sem eftir var. Fram-
arar gengu á lagið og röðuðu inn
mörkum. Lyktir leiksins urðu
30:19, eins og áður sagði. Leikur-
inn var einn sá lélegasti sem
undirritaður hefur séð Þórsara
leika og vonandi að þeir nái að
rífa sig upp og endurheimta þann
baráttuanda og þá stemmningu
sem leikmenn geta sýnt. Björn
Björnsson liðstóri hjá Þór var
óhress með sína menn. „Við
duttum strax niður og þetta
minnti um margt á Haukaleikinn.
Allt liðið var dapurt í kvöld.“
SV
Gangur leiksins: 4:1, 9:4, 11:6, 13:7,
16:8, 19:11, 19:14, 22:15, 27:16, 30:19.
Mörk Fram: Karl Karlsson 8, Andri Sig-
urðsson 6, Páll Þórólfsson 5, Davíð
Gíslason 4, Jason Ólafsson 2, Jón Ó.
Kristinsson 2, Ragnar Kristjánsson 2 og
Pétur Arnarson 1.
Mörk Þórs: Ole Nielsen 5, Atli Rúnars-
son 4, Jóhann Samúelsson 4, Finnur
Jóhannsson 2, Ingólfur Samúelsson 2,
Rúnar Sigtryggsson 1 og Sævar Árnason
1.
Dómarar: Kristján Sveinsson og Þorlák-
ur Kjartansson.
Fyrrum KA-maðurinn Karl Karlsson skaut Rúnar Sigtryggsson og félaga
hans hjá Þór í kaf í leiknum á miðvikudagskvöldið. Karl átti stórleik fyrir
Fram.
Þýska knattspyrnan:
Áhugamannalið í undanúrslit
Þann 1. og 2. des°Tiber fóru 8
liða úrslit þýsku bikarkeppn-
innar fram. Af þeim 5 úrvals-
fþróttír
helgarinnar
KÖRFUKNATTLEIKUR:
Föstudagur: Úrvalsdeild: UBK-Tindastóll kl. 20.00
1. deild karla: ÍA-Pór kl. 20.30
Laugardagur: 1. dcild kvenna: Tindastóll-UMFG kl. 15.30
1. deild karla: Reynir-Þór kl. 14.00
Sunnudagur: 1. dcild kvennu: Tindastóll-UMFG kl. 14.00
KNATTSPYRNA:
Föstudagur-laugardagur.:
Coca-Cola mót í fþróttahöllinni.
deildaliðum sem eftir voru,
komust aðeins 2 áfram og þau
mætast einmitt í undanúrslit-
um. Það er því Ijóst að annað
hvort 2. deildar lið Chemnitzer
eða áhugamannalið frá Berlín,
mun leika til úrslita á Ólympíu-
leikvanginum í Berlín 12. júní í
vor.
Óvæntustu úrslit í 8 liða
úrslitunum var glæsilegur sigur
áhugamannaliðs Hertha Berlin á
úrvalsdeildarliði Núrnberg.
I Áhugamennirnir voru betri allan
, leikinn og Lehman skoraði sigur-
markið á 89. mínútu, aðeins mín-
útu eftir að Núrnberg hafði
jafnað. Leikmenn Hertha munu
sækja 2. deildar lið Chemnitzer
heim en þeir slógu Evrópumeist-
ara Werder Bremen úr leik.
Framlengingu þurfti til að knýja
fram úrslit.
Það var síðan 2. deildar lið
Carl Zeiss Jena sem fékk Bayern
Leverkusen í heimsókn og vann
Leverkusen öruggan sigur með
tveimur mörkum landsliðsmanns-
ins Andreas Thom. Úrvalsdeild-
arliðin Frankfurt og Karlsruhe
áttust við á miðvikudagskvöld.
Leikurinn þótti skemmtilegur og
vítaspyrnukeppni þurfti að koma
til þar sem jafnt var eftir fram-
lengingu. Wittwer misnotaði 3.
spyrnu Karlsruhe og Uli Stein
fyrirliði Frankfurt tryggði sínum
mönnum sigur. Úrslit leikja urðu
sem hér segir:
Carl Zeiss-Leverkusen 0:2
Chemnitzer-Werder Bremen 2:1
Hertha Berlin-Núrnberg 2:1
Karlsruhe-Frankfurt 4:6
f undanúrslitum 30. og 31. mars
mætast:
Chemnitzer-Hertha Berlin
F rankfurt-Leverkusen
Árni Hermannsson,
Þýskalandi/HA
Arnsteinn Jóhannesson og félagar hans hjá Þór verða að halda vel á spöð-
unum um hclgina.
Staðan
Handbolti, l.deild:
FH 12 8-2-2 318:283 18
Valur 13 6-6-1 299:273 18
Stjarnan 12 7-3-2 297:289 17
Selfoss 12 6-3-3 312:293 15
Víkingur 12 7-0-5 278:267 14
Haukar 12 6-1-5 313:293 13
ÍR 114-2-5 262:264 10
KA 12 4-2-6 266:279 10
Þór 12 4-2-6 289:313 10
HK 12 3-1-8 278:305 7
ÍBV 12 2-3-7 271:300 7
Fram 12 2-1-9 285:309 5
Körfubolti, 1. deild:
A-riðill: Þór 7 7 0 643:496 14
Reynir 8 6 2 734:667 12
UFA 5 23387:443 4
Höttur 10 19 675:790 2
B-riðill:
Akranes 7 7 0 676:475 14
ÍS 7 4 3 445:458 8
ÍR 7 25 499:558 4
Bolungarvík 9 1 8 634:806 2
Porvaldur Örlygsson:
Á erfitt upp-
dráttar hjá
Nottingham Forest
Þorvaldi Örlygssyni gengur
ekki sem best þessa dagana.
Liö hans vann Tottenham í
deildarbikarnum á miðviku-
dagskvöldiö, en Þorvaldur var
ekki í leikmannahópi Forest.
Hann er skiljanlega ekki
ánægður með sín mál.
Það hefur löngum verið sagt
að erlendir leikmenn eigi erfitt
uppdráttar í ensku knattspyrn-
unni, ekki síst ef liði þeirra gengur
illa. Þetta virðist vera að sannast
hjá Þorvaldi, en lið hans er nú í
neðsta sæti úrvalsdeildarinnar.
Nú er Forest hins vegar komið í
8 liða úrslit deildarbikarkeppn-
innar. Þorvaldur sagði í samtali
við Dagblaðið að hann væri
ákveðinn í að skrifa ekki undir
framtíðarsamning hjá félaginu.
Allir á skíði:
Opið í Hlíðarflalli
Skíðafólk getur nú farið að
taka gleði sína því nú um helg-
ina verður opið í Hlíðarfjalli.
Eins og fólk ætti að hafa orðið
vart við þá hefur snjó kyngt niður
að undanförnu á Akureyri. Nú er
svo komið að snjórinn í Hlíðar-
fjalli nægir til þess að hægt sé að
Innanhússknattspyrna:
Coca-Cola mót
Hið árlega Coca-Cola mót í
innanhúsknattspyrnu fer fram í
íþróttahöllinni um helgina.
Mótið hefst f kvöld kl. 20.10 og
verður fram haldið á morgun kl.
14.15. Úrslitin byrja kl. 17.00.
Að þessu sinni taka 13 lið af
Norðurlandi þátt. Síðast sigraði
A-lið KA B-lið sama félags í
úrslitum og Leiftur varð í 3. sæti.
Markahæstir voru Arnar Jónsson
og Ormarr Örlygsson. Það eru
Reynir og UMF Svarfdæla sem
standa fyrir mótinu að þessu
sinni.
opna. Um helgina verða í það
minnst 2 lyftur opnar, þ.e. í
Hólabraut og Hjallabraut og
vonir standa til að stólalyftan
verði einnig opin. Það fer þó eftir
veðri. Fólk er hvatt til að fara á
skíði en kynna sér þó aðstæður
fyrst.
Aðstaða skíðagöngufólks hefur
batnað til muna.