Dagur - 04.12.1992, Blaðsíða 16
Akureyri, föstudagur 4. desember 1992
Gólfm í Amtsbókasafninu hætt að svigna:
Nokkur tonn af bókum flutt
í geymslu til gamla fólksins
- mest gömul og úrelt fræðirit á erlendum tungum
Nýir matseðlar í Smiðju
Gunnar Gunnarsson leikur fyrír matargesti á
föstudags- og laugardagskvöld ásamt Jóni Rafnssyni
I gær var þungu fargi létt af
gólfum Amtsbókasafnsins á
Akureyri er nokkur tonn af
bókum voru flutt til geymslu í
kjallara húss aldraðra við Víði-
lund. Sem kunnugt er hafði
Vinnueftirlit ríkisins á Akur-
eyri gert athugasemdir við að
burðarþoli gólfa í geymslum
Amtsbókasafnsins væri ofboð-
ið og þess var krafist að úrbæt-
ur yrðu gerðar.
Lárus Zophoníasson, amts-
bókavörður, sagði að flutningur
bókanna í áðurnefnda geymslu
væri ásættanleg lausn miðað við
aðstæður. Ljóst væri að gólfin
hefðu verið að sligast, enda hús
Amtsbókasafnið orðið of lítið
fyrir löngu og þörfin fyrir við-
byggingu brýn.
Starfsmenn Akureyrarbæjar
brettu upp ermarnar í gær og
fluttu bækur í tonnavís frá bóka-
safninu í geymsluna sem innrétt-
uð var í kjallara fjölbýlishúss aldr-
aðra. En hvaða bækur skyldu
þetta vera?
Hólmkell Hreinsson, bóka-
Erindi Hagkaupa vegna nýbyggingar
hafnað í hafnarstjórn Akureyrar:
„Forsendur engar
fyrir leyfísveitingu
- segir Jónas Porsteinsson,
formaður hafnarstjórnar
Fundur var haldinn í hafnar-
stjórn Akureyrar sl. miðviku-
dag. A fundinum var tekin
afstaða til umsóknar Hag-
kaupa vegna stækkunar á
verslunarhúsi til austurs. Ekki
var tekin afstaða til stækkunar
á byggingu Rúmfatalagersins.
Því máli var frestað til næsta
fundar.
Að sögn Jónasar Þorsteinsson-
ar, formanns hafnarstjórnar á
Akureyri, var erindi Hagkaupa
synjað á þeirri forsendu að ekki
var gert ráð fyrir byggingafram-
kvæmdum í þá veru, sem Hag-
kaup fer fram á, í samþykktu
deiliskipulagi yfir hafnarsvæðið.
Engar athugasemdir komu fram
við skipulagið þegar það var aug-
lýst fyrir nokkrum mánuðum.
„Forsendur eru engar fyrir
leyfisveitingu að mati hafnar-
stjórnar. Astæðulaust er með
öllu að skera af athafnasvæði
hafnarinnar fyrir starfsemi þá
sem Hagkaup rekur. Afstaða
verður tekin til Rúmfatalagers-
málsins á næsta fundi. Það mál er
svipaðs eðlis. Starfsemi Rúmfata-
lagersins á ekkert skylt við þá
starfsemi sem ætlað er að verði á
hafnarsvæðinu og því eru menn
tregir í taumi,“ segir Jónas Þor-
steinsson.
Jón Kr. Sólnes, bæjarfulltrúi,
er formaður skipulagsnefndar.
Jón segir að skipulagsnefnd taki
erindi Hagkaups og Rúmfata-
lagers til umfjöllunar um miðjan
desembermánuð. „Fari svo að
hafnarnefnd og skipulagsnefnd
verði ekki sammála, þá úrskurð-
ar bæjarstjórn Akureyrar hvort
byggt verður eða ekki.“ ój
Hvammstangi:
Starfsfólki Meleyrar
sagt upp störfíun
- lokað fram í miðjan janúar
Meleyri hf. á Hvammstanga
mun loka frá 20. des. og fram í
miðjan janúar, að sögn Guð-
mundar Tr. Sigurðssonar fram-
VEÐRIÐ
Norðanáttin heldur áfram
næsta sólarhringinn. Austur
við Noreg er 952 millibara
lægð sem grinnist. Gert er ráð
fyrir allhvössu veðri og élja-
gangi um norðanvert landið
frammeftir degi, en dragi úr
vindi og úrkomu síðdegis. Þá
er einnig gert ráð fyrir að kólni
nokkuð.
kvæmdastjóra fyrirtækisins.
Það þýðir að 32 starfsmönnum
hefur verið sagt upp störfum.
Að sögn Guðmundar verður
Meleyri lokuð yfir jólin, og flest-
öllu starfsfólki því sagt upp störf-
um fram í janúar. Hann sagði að
unnið verði að viðgerðum og við-
haldi á tímabilinu. „Þetta er bara
eins og alls staðar í kringum
okkur, þetta hefur verið árvisst,"
sagði Guðmundur um lokunina
og uppsagnirnar. Hann kvað
ekkert nýtt að frétta í málefnum
Meleyrar hf., en fyrirtækið hefur
einungis afurðalán út á vinnslu á
rækjuskel. Framtíð fyrirtækisins
er því enn óráðin. sþ
safnsfræðingur, sagði að þetta
væru mest gömul og úrelt fræðirit
á erlendum málum, einnig auka-
eintök af eldri, íslenskum bókum
sem hægt yrði að ganga að svo og
aukaeintök af tímaritum. Fyrst
um sinn verðar bækurnar í köss-
um í kjallaranum en fyrirhugað
er að koma upp hillum fyrir
bækurnar.
Viðbygging við Amtsbókasafn-
ið er enn á hönnunarstigi. Hús-
næðisvandræði bókasafnsins og
Héraðsskjalasafns Eyjafjarðar
hafa verið tilfinnanleg á síðustu
árum og hefur þurft að grípa til
ýmissa skammtímaráða á borð
við bókaflutningana nú.
Fyrir allmörgum árum var
horft til þess að koma á fót útibúi
frá Amtsbókasafninu í Glerár-
hverfi og var horft til verslunar-
miðstöðvarinnar í Sunnuhlíð í
því sambandi og einnig hefur
húsnæði í kjallara Glerárkirkju
verið litið hýru auga. Vegna
fyrirhugaðrar nýbyggingar voru
þessar hugmyndir settar í salt og
þar eru þær enn að sögn
Hólmkels. SS
Starfsmenn Akureyrarbæjar réðust á bókastaflana í gær og nú eru umfram-
tonnin komin í geymslu í kjallara fjölbýlishúss aldraðra við Víðilund.
Mynd: Robyn
Bygging íþróttahúss hefst á Raufarhöfn á næsta ári:
Nýtt aðalskípulag til
ársins 2012 í hönnun
Sveitarstjórn Raufarhafnar-
hrepps samþykkti á fundi sín-
um sl. laugardag aö hefja
byggingu íþróttahúss á næsta
ári ef framlag fæst úr Jöfnun-
arsjóði sveitarfélaga. í fyrra
fékkst hálfrar milljón króna
framlag úr Jöfnunarsjóði til
hönnunar og undirbúnings-
framkvæmda.
Húsið verður staðsett í Holta-
hverfi, í nágrenni sundlaugarinn-
ar, og er hugmyndin að samnýta
búningsklefa með sundlauginni
en innangengt verður milli bygg-
inganna með sérstakri tengibygg-
ingu. Stærð íþróttasalarins verð-
ur 21x30 metrar, sem er lögleg
stærð fyrir allar boltaíþróttir að
undanskildum handknattleik.
Áætlanir um byggingakostnað
hljóða upp á 65 milljónir króna
en á næstunni verður sent út
útboð vegna burðarvirkis
hússins, og er talið líklegra að um
límtréshús verði að ræða frekar
en uppsteypt hús eða stálgrindar-
hús. Áð þeirri ákvörðun lokinni
verður stefnt að því að ljúka
hönnunarvinnu við íþróttahúsið.
Ummerki síldaráranna á Rauf-
arhöfn hverfa nú eitt af öðru. Nú
er verið að rífa Norðursíldar-
bryggjuna, sem er nyrst í höfn-
inni, norður undir kirkjunni,
vegna þess hve fúin hún var
orðin. Raufarhafnarhreppur
leysti til sín þessar eignir við upp-
gjör á þrotabúum, en fyrirhugað
er að skipuleggja á þessu svæði
athafnasvæði fyrir smábátaút-
gerðina.
Unnið er að nýju aðalskipulagi
fyrir Raufarhafnarhrepp í sam-
ráði við Skipulag ríkisins, og á
það að gilda til ársins 2012. Það
verður lagt fram á komandi ári til
kynningar og athugasemda eins
og lög gera ráð fyrir.
Verið er að klæða Hótel Norð-
urljós, sem er í eigu hreppsins,
að utan og skipta um glugga, og
er það fyrsta skrefið í því að gera
hótelið, að heils árs hóteli en
hingað til hefur það aðeins verið
rekið yfir sumartímann. Að lok-
inni þessari endurnýjun á hótel-
inu verður hægt að vinna að
raunhæfri markaðssetningu sem
er sveitarfélaginu nauðsynleg til
að laða að ferðamenn út af hin-
um hefðbundna hringakstri um
landið. GG
Akureyri:
Veljum íslenskt
- átak atvinnumálanefndar og
verkalýðsfélaga
Nefndarmenn atvinnumála-
nefndar Akureyrarbæjar, full-
trúar bæjarstjórnarflokkanna
og fulltrúar, stjórnir og trúnað-
armenn verkalýðsfélaga á
Akureyri ætla að halda uppi
áróðri næstu þrjá laugardaga
fyrir því að Akureyringar og
nærsveitamenn neyti íslenskr-
ar vöru.
„Við verðum í helstu verslun-
armiðstöðvum bæjarins klædd
sérstökum vestum er Folda hefur
gefið. Prenns konar slagorð
verða notuð þar sem við bendum
á þýðingu þess að velja íslenskt.
Ef sérhver íslendingur á aldrin-
um 16 til 70 ára eykur kaup á
íslenskri vöru um 12.000 krónur
á ári, þá skapar það 204 ný störf.
Atvinnuleysisdrauginn verðum
við að sigra og veljum því
íslenskt," segir Heimir Ingimars-
son, formaður atvinnumála-
nefndar Akureyrarbæjar. ój