Dagur - 15.12.1992, Blaðsíða 3

Dagur - 15.12.1992, Blaðsíða 3
Þriðjudagur 15. desember 1992 - DAGUR - 3 Fréttir Karaoke-keppni einstaklinga í Sjallanum: Sigurvegari varð Elín Bjömsdóttir frá Ólafsfírði Tólf söngvarar kepptu til úrslita í karaokekeppni einstaklinga sem fram fór Sjallanum sl. föstudagskvöld. Keppendur voru víða af Norðurlandi, Akureyri: Bæjarmála- punktar ■ Bæjarráð hefur hafnað forkaupsrétti að hlutabréfa- kaupum í Kaupþingi Norður- lands hf., en með bréfi dags. 18. nóvember sl. tilkynnti Kaupþing Norðurlands bæjar- ráði um aukningu hlutafjár í félaginu. ■ I tilefni af vígslu Glerár- kirkju nýverið samþykkti bæjarráð gjöf til kirkjunnar frá Akureyrarbæ að upphæð 500 þúsund krónur. ■ Bæjarráð hefur samþykkt að lóðir við Snægil og Skútagil verði gerðar byggingarhæfar á næsta ári. Jafnframt fól bæjarráð bæjarverkfræðingi að vinna að frekari útfærslu á byggingar- og skipulagsskil- málum fyrir Giljahverfi III og leggja fyrir næsta bæjarráðs- fund. ■ Bæjarráð hefur samþykkt samningsdrög milli Akureyr- arbæjar og Landssamtakanna Þroskahjálpar um að Akur- eyrarbær gerist framkvæmda- aðili að kaupum á íbúð fyrir sambýli þroskaheftra á Akur- eyri. ■ Menningarmálanefnd hef- ur samþykkt ósk amtsbóka- varðar um ráðningu Birnu Björnsdóttur Klettagerði 1 í hálfa stöðu bókavarðar við útlánsdeild Amtsbókasafns- ins, en 10 sóttu um stöðuna. ■ Félagsmálaráð hefur sam- þykkt að ráða Sigríði Magneu Jóhannsdóttur Steinahlíð 7b í stöðu forstöðumanns sambýiis fyrir aldraða að Skólastíg 5 frá og með 1. janúar 1993. Alls bárust 15 umsóknir um stöð- una. ■ Jafnfréttisnefnd hefur sam- þykkt að láta hanna og „gefa út“ veggspjald um kynferðis- lega áreitni. Veggspjaldinu verði dreift á vinnustaði og opinbera staði á Akureyri. A fundi nefndarinnar 25. nóvember sl. var jafnréttisfull- trúa falið að leita eftir samn- ingi við Soffíu Árnadóttur, myndlistakonu, um hönnun veggspjaldsins. ■ Heilbrigðisnefnd hefur lagt til að veita Sigurði Arnfinns- syni starfsleyfi fyrir brauðgerð að Skarðshlíð 17 á Akureyri. ■ Á fundi atvinnumálanefnd- ar 8. desember sl. var lagt fram bréf frá ÍS hf. þar sem fyrirtækið býður fram aðstoð sína til könnunar á möguleik- um til atvinnuuppbyggingar á Akureyri. Atvinnumálanefnd samþykkti að kanna þetta mál nánar. ■ íþrótta- og tómstundaráð hefur falið forstöðumanni Sundlaugar Akureyrar að hefja sölu sérstakra afsláttar- korta til félaga í Starfsmanna- félagi Akureyrarbæjar. Hér verði um tilraun að ræða, tímabundið í 6 mánuði, en málið verði endurskoðað að þeim tíma liðnum. m.a. frá Dalvík, Ólafsfírði, Húnavatnssýslum og Akur- eyri. Sigurvegari varð Elín Björns- dóttir frá Ólafsfirði, 27 ára mót- tökustjóri á Heilsugæslustöðinni. í öðru sæti varð Jóna Fanney Svavarsdóttir, 18 ára nemi í Menntaskólanum á Akureyri, frá Litladal í Austur-Húnavatns- sýslu. Hún á ekki langt að sækja sönghæfileikana enda barnabarn Jóhanns Konráðssonar og bróð- urdóttir Kristjáns Jóhannssonar óperusöngvara. í þriðja sæti varð Freyja Snorradóttir frá Dalvík, 31 árs verslunarmaður. Tveir efstu keppendurnir fara til Reykjavíkur 8. janúar nk. og keppa þar sem fulltrúar Norð- lendinga í íslandsmóti í karaoke sem fram fer í Danshúsinu í Glæsibæ. Þar mæta 11 aðrir keppendur. Á síðasta ári sigraði Akureyringurinn Óttar Óttars- son í þessari keppni þannig að þær Elín og Jóna Fanney hafa titil að verja. GG Vorum að taka heim úrval af stórglœsilegum ítölskum leðursófasettum og hornsófum Frábœrt verð • Margar tegundir og litir raðgreiðslur Sófasett 3+1+1 • Módel 865 • Kr. 133.200 stgr. 1/örubær Tryggi/abraut 24 602 Ahureyri Wk húsgagnaverslun sími se-si4ia Elín Björnsdóttir. Mynd: Benni Kaldbakur hf. á Grenivík: Ekki uiurið eftir jól - en strax á nýbyrjuðu ári Nægjanlegt hráefni er nú til staðar hjá frystihúsi Kaldbaks hf. á Grenivík út þessa viku en reiknað er með að bátarnir komist á sjó seinni hluta þess- arar viku. Síðasti vinnudagur fyrir jól er áætlaður 22. des- ember. Engin vinna verður milli jóla og nýárs en Jóhann Ólafsson framkvæmdastjóri sagðist fast- lega reikna með að a.m.k. Sjöfn ÞH færi á sjó milli jóla og nýárs þannig að hægt verði að hefja vinnslu að nýju 4. janúar. Þokkalegur afli hefur verið hjá þeim bátum sem lagt hafa upp hjá Kaldbaki hf. en að undan- förnu hafa tveir bátar frá Raufar- höfn einnig lagt þar upp. Óvíst er um framhald þeirra viðskipta eft- ir áramótin. Jóhann segist ekki reikna með að kaupa fisk af Rússum, þ.e. þorsk úr Barents- hafi, ef brýna nauðsyn ræki ekki Húsavík: Perubijótar á perunni Lögreglan á Húsavík stóð nokkra hálffullorðna menn að því að gera sér að leik að brjóta perur af jólatré Húsa- víkurbæjar aðfaranótt sunnu- dags. Munu unglingarnir hafa hitt og maskað 20 perur, þó þeir væru á perunni sjálfír. Iðulaus stórhríð skall á undir morgun á sunnudag og var þá rmkið að gera hjá lögreglu við að aðstoða fólk við að komast í og úr vinnu á sjúkrahúsið og fleira. Mun skaplegra veður var á Húsa- vík í gær, en mikill snjór og ill- fært um bæinn fyrir fólksbíla. IM til þess en Kaldbakur hf. keypti 12 tonn af þorski úr Barentshafi í byrjun nóvember. GG Slys gera ekki boð á undan sér! OKUM EINS OG MENN! IUMFERÐAR IRÁÐ Bsaaittamamii win niwu rwnr»r>fM»nrwi CRÉME fBA\CHE er íslensk hágæða mjólkurafurð sem gefur óíal möguleika við matargerð. Sýrður rjómi hentar vel m.a. í salöt, sósur, ídýfur og með ávöxtum og tertum Betra bragð með SýrJhtm - líka á jólunum Mjólkursamlag KEA

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.