Dagur - 15.12.1992, Blaðsíða 6
6 - DAGUR - Þriðjudagur 15. desember 1992
„Innakstur í göngugötuna er strang-
lega bannaður norðan frá.“
fatlaðra. Þá er bannað að leggja
bílum að torginu.
Það er eins með Ráðhústorgið
og göngugötuna að margir öku-
menn misnota vörulosunarrétt-
inn svo og vanvirða þeir torgið
okkar með því að vera að leggja
bílum þar.
Þessi hellulögðu svæði miðbæj-
arins eru ætluð gangandi fólki og
þess vegna skora ég á ökumenn
bifreiða að virða þann rétt gang-
andi fólks og vera ekki með bíla
sína á þessum svæðum. Eins og í
göngugötunni mun lögreglan
fylgjast með því að ökumenn fari
að settum reglum, en þeir sem
það gera ekki, geta búist við því
að bílar þeirra verði fjarlægðir á
kostnað eigenda.
Að lokum sendum við lögreglu-
menn á Akureyri bæjarbúum
óskir um gleðileg jól og gott og
farsælt komandi ár.
Ólafur Asgeirsson.
Höfundur er aðstoöaryfirlögregluþjónn
lögreglunnar á Akureyri.
P.S. Munið að áfengt jólaglögg
og akstur bifreiða fara ekki
saman.
„Gangandi vegfarendur eiga ekki að
ari.“
þurfa að sneiða hjá bifreið sem þess-
Myndir og myndatextar: Ólafur Ásgeirsson
væntanlega greiðan veg um
göngugötuna.
Nú í jólaumferðinni vildi ég
skora á alla ökumenn bifreiða að
halda sig fjarri göngugötunni svo
og öðrum gönguleiðum fólks, og
lögreglan mun fylgja því eftir að
ökumenn rangstæðra bíla á þess-
um svæðum verði sektaðir og bíl-
arnir fjarlægðir ef þörf krefur.
Ráðhústorg
Nú í sumar lauk að mestu fram-
kvæmdum við Ráðhústorg og er
það nú orðið hellulagt og á að
vera án bílaumferðar. Við inn-
keyrsluna á torgið hefur verið
sett upp merki þar sem allur akst-
ur er bannaður nema með þeim
undantekningum að vörulosun er
leyfð svo og nauðsynleg umferð
Ef einhverjir eru eftir...
Þeir aöilar sem hafa áhuga á að senda
jólakveðjur í Degi og ekki hefur verið haft
samband við, er bent á afgreiðslu
blaðsins.
Opið frá kl. 8-17 virka daga og föstudaga
frá kl. 8-16.
D
auglýsingadeild
sími 24222.
II
Leitin
eftir Vigfús Björnsson hefur
að geyma 25 sögur og þætti.
Leitin
er fyrir ungt fólk sem
leitar róta sinna - einnig þá
sem leita skemmtilegs prósa.
Leitin
eflir skilning á mannssálinni
- þó einkum mannlífinu.
Leitin
er spennandi bók, full af
dulúð, þar sem harpa þjóðar-
sálar er slegin á hvassan - en
jafnframt seiðmagnaðan hátt.
Leitin
er ramm-íslensk bók
fyrir íslendinga á öllum aldri
- heima og heiman.
KORNIÐ
Fæst í öllum
bókabúðum
Bflana úr göngugötunm!
'1
Fyrir nokkrum árum fengum við
Akureyringar okkar göngugötu
þegar Hafnarstrætinu var breytt.
Ætlunin var sú að gera miðbæinn
vistvænni og losna við bílaumferð
úr miðbænum.
Gatan var þá hellulögð og sett
í hana fallegir blómakassar og
góð lýsing. Einnig voru hitalagnir
lagðar undir hellurnar þannig að
snjór festist lítið í götunni. Ekki
var þó öll bílaumferð bönnuð.
Við innkeyrsluna í götuna var
sett upp merki sem sýndi að gat-
an væri göngugata og allur akstur
um hana væri bannaður. Undir
bannmerkinu var síðan sett svo-
hljóðandi skilti: Gildir ekki um
vörulosun og umferð sjúkra og
hreyfihamlaðra.
Ætluð gangandi
vegfarendum
Með þessu skilti var verslunareig-
endum gefinn kostur á að koma
vörum í verslanir sínar og einnig
var sjúkum og hreyfihömluðum
gefinn möguleiki á að komast um
götuna og þá sérstaklega til að
komast að læknamiðstöðinni,
sem er við götuna.
Mér er kunnugt um það að
menn eru ekki á eitt sáttir um
það hvort göngugatan eigi rétt á
sér í þessari mynd eða ekki og
ekki skal lagður á það dómur
hér. En göngugatan er komin til
að vera og hún er fyrst og fremst
ætluð gangandi vegfarendum.
Það er margra skoðun að t.d.
kaupmenn við götuna séu kæru-
lausir með sína eigin bíla í göt-
unni og leggi þeim oft fyrir fram-
an verslanir sínar. Þegar svo lög-
Ólafur Ásgeirsson.
reglan ætlar að hafa afskipti af
þeim segjast þeir vera að losa
vörur í verslunina. Með vörulos-
un er ekki átt við bréf og litla
pakka, heldur er átt við þannig
hluti að illmögulegt sé að koma
þeim með öðrum hætti en á
bílum.
Þá verða einnig þeir sem hafa
t.d. merki fatlaðra í bílnum sín-
um að gæta þess að misnota ekki
rétt sinn til aksturs í götunni.
Dæmi um slíkt er þegar fatlaður
maður ekur ófatlaðri konu sinni
að verslun í götunni.
Lögreglumenn hafa haft
afskipti af mörgum sem aka um
götuna. Þeir hafa fengið hin
ýmsu svör þegar spurt er um
erindi í götuna og margir hafa
brugðist ókvæða við þessum
afskiptum lögreglunnar. Þegar
verið var að byggja hið nýja og
glæsilega verslunarhús í götunni
þurftu t.d. margir iðnaðarmenn
að leggja bílum sínum þar fyrir
framan nýbygginguna og mörg-
um þeirra fannst afskipti lögregl-
unnar af bílunum vera alls
ónauðsynleg því allir þóttust vera
að aka áhaldakistum sínum að
byggingunni. Nú er flestum fram-
kvæmdum við húsið lokið þannig
að gangandi vegfarendur eiga
„Lítið rými er orðið fyrir gangandi vegfarendur, þegar svo margir bílar eru
komnir í götuna. Þá er leiðin ekki heldur greið fyrir sjúkra- eða brunabíla,
ef á þarf að halda.“
„Innakstur í göngugötuna er aðeins leyfður frá suðri - en þó með þeim
ströngu skilyrðum sem um getur í greininni.“
Bifreiðastöður á Ráðhústorgi eru stranglega bannaðar.“